Morgunblaðið - 07.11.1980, Síða 16

Morgunblaðið - 07.11.1980, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1980 Otgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 5.500.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 280 kr. eintakiö. Kaffirabb og smákökur Einkennilegt er, að ráðherrar skuli vikum og jafnvel mánuðum saman skýra þjóðinni frá því, að efnahagsstefn- an, sem þeir fylgja, skili engum árangri en láti jafnframt hjá líða að gera grein fyrir nauðsynlegum úrbótum. Þannig er háttað „stjórnlist" núverandi ríkisstjórnar. I ræðu og riti leggja ráðherrar áherslu á það, að „eitthvað" þurfi að gera, en síðan heyrist ekkert meir. I síðustu viku efndi forsætisráðherra til svonefnds samráðsfundar með aðilum vinnumarkaðarins. Þegar hann var spurður um stefnu stjórnar sinnar í efnahagsmálum, var svarið á þá leið, að menn yrðu að átta sig á því, að hún væri ekki þarna til umræðu. Er þá samráðið orðið til lítils gagns, ef enginn veit lengur, hvað á fundunum á að ræða. Er furðulegt, að aðilar vinnumarkaðarins skuli líða slík vinnubrögð. Sérstaklega hefur verkalýðshreyfingin lagt á það mikla áherslu að fá jafnan að vera höfð með í ráðum um mótun efnahagsstefnunnar og ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar var stofnuð haustið 1978 með meiri heitstrengingum um það en nokkur önnur, að nú ætti svo sannarlega að ráðgast við aðila vinnumarkaðarins. Má segja, að síðan hafi lítið sem ekkert gerst á því sviði og fundurinn í síðustu viku sé kórónan á það marklausa orðagjálfur, sem ráðherrar hafa látið sér nægja í samráðsskyni síðan. Ef til vill hefur þeim, sem að ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar stóðu 1978, lærst, að fagrar yfirlýsingar um þetta efni duga skammt, þegar á hólminn er komið. Sé núverandi ríkisstjórn á þeirri skoðun, að samráð við aðila vinnumarkaðarins beri einungis að skoða sem kaffirabb með smákökum, verður að óska þess af henni, að hún skýri afdráttarlaust frá þeirri afstöðu sinni. „Samráðið" var þungamiðjan í stefnu ríkisstjórnar Ólafs Jóhannessonar að hans eigin sögn og slíkt lykilatriði í stjórnmálastarfi síðustu ára á ekki að gufa upp fyrir hirðuleysi. Á næstu dögum gefst ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens tækifæri til að bægja á brott öllum efasemdum um afstöðu sína til samráðsins. Greinilegt er, að við samningu fjárlagafrum- varps og þjóðhagsáætlunar fyrir 1981 hafa ráðherrar einsett sér að gera „eitthvað" til að ná verðbólgunni niður. Síðan hefur enginn fengið upplýsingar um það, hvað eigi að gera, þótt ítrekað hafi verið um það spurt bæði á Alþingi og af blaðamönnum. Undir lok þessa mánaðar heldur Alþýðusamband Islands þing sitt. Ekkert væri eðlilegra en ríkisstjórnin notaði það sem vettvang til að boða fyrirhugaðar efnahagsaðgerðir sínar. Forystumenn verkalýðshreyfingarinnar hafa sýnt ríkis- stjórninni margvíslega vinsemd og sá flokkur, sem segist valdamestur í stjórninni, Alþýðubandalagið, kallar sig á tyllidögum að minnsta kosti skjól verkalýðsins. Þess er nú beðið með eftirvæntingu, hvaða hugmyndir um stjórn efnahagsmála ríkisstjórnin kemur til með að kynna á Alþýðusambandsþingi. Láti hún ekkert frá sér heyra um stefnu sína fyrir eða á þinginu, er greinilegt, ^ð „samráðið" snýst aðeins um kaffidrykkju og smákökur. F æðingarheimilið Miklar umræður hafa spunnist um framtíð Fæðingarheimil- is Reykjavíkurborgar síðustu daga. Uppi eru áform um að selja það ríkinu og er sagt, að það sé gert í sparnaðarskyni auk þess sem ríkissjóður hafi neitað að greiða svonefnd halladag- gjöld til að endar næðu saman í rekstrinum. Sjálfsagt er að spara í opinberum rekstri, hvar sem það er unnt. í þessu máli hefur komið fram ótti um það, að með þessum aðgerðum sé verið að spara með þeim hætti að leggja niður þjónustu, sem mörgum er kær af margvíslegum ástæðum og á fullan rétt á sér. Þegar þessi ótti hefur verið látinn í ljós hafa forráðamenn ríkisins á þessu sviði sagt, að hann sé ástæðulaus, þar sem alls ekki eigi að breyta neitt rekstri Fæðingarheimilisins. Sé málið þannig vaxið hljóta menn að spyrja: Ur því að ríkið telur sér fært að greiða allan kostnað við óbreyttan rekstur Fæðingar- heimilisins, hvers vegna getur það ekki tekið að sér að greiða halladaggjöldin á þessari stofnun eins og öðrum sjúkrastofnun- um? Auk þess sem yfirtaka ríkisins myndi leiða til kostnaðar- auka fyrir það að öðru leyti, þar sem Reykjavíkurborg greiðir nú 16,53% af daggjöldum heimilisins. Greinilega er þörf á betri rökum í þessu viðkvæma máli. Ljóam. Emilia Frá lokafundi kirkjuþings i gær, en fundirnir fóru fram í Hallgrimskirkju. Kirkjuþingi lauk í gær: Samþykkt að leikmenn fái aðild að biskupskjöri KIRKJUÞING samþykkti i gær samhljóða frumvarp um nýja handbók kirkjunnar og lagði til að hin nýja handbók yrði gefin út til reynslu fyrst i stað. — Þetta er gleðistund fyrir islenska kirkju, að við höfum staðið saman um frumvarpið og fáum nú iangþráða handbók, sagði sr. Pétur Ingjaldsson prófastur, sem nú situr Kirkjuþing fyrir Norðlendinga. Biskup tók i sama streng og taldi að „harpa kirkjunnar hefði rikari og auðugri hljóm en áður“ við tilkomu væntaniegrar handbókar. Hr. Sigurbjörn Einarsson bisk- up þakkaði kirkjuþingi meðferð þess á frumvarpinu, en fátítt er talið að svo viðkvæmt mál, sem helgisiðir kirkjunnar eru, skuli fá samstöðu á kirkjuþingi, presta- stefnu og öðrum þeim vettvangi innan kirkjunnar, sem það hefur verið til meðferðar. í máli kirkju- þingsmanna kom fram að mikil þörf væri á ítarlegri kynningu í söfnuðum landsins, en handbókin gerir m.a. ráð fyrir ýmsum val- kostum við helgihald kirkjunnar. Þá samþykkti kirkjuþing ein- róma frumvarp til laga um bisk- upskosningu. Gerir frumvarpið ráð fyrir hlutdeild leikmanna við biskupskjör. Skuli eiga kosninga- rétt, fyrir utan þjónandi presta og prófasta og kennara guðfræði- deildar eins og nú er, kjörnir leikmenn, sem eigi sæti á kirkju- þingi svo og leikmenn sem sitji í kirkjuráði og einn leikmaður fyrir hvert prófastsdæmi, þó tveir frá Reykjavíkurprófastsdæmi, kjörnir af leikmönnum, sem sæti eiga á héraðsfundi, til 4 ára í senn, svo og varamenn. Frumvarp þetta samdi próf. Ármann Snævarr, en það fer nú til meðferðar hjá kirkjumálaráðherra og Alþingi. Verði samþykkt á Alþingi breyt- ing á núverandi fyrirkomulagi biskupskjörs gæti kjör biskups á næsta ári verið eftir hinum nýju lögum. Samþykkt var á kirkjuþingi að það skuli koma saman árlega, en ekki annað hvert ár eins og nú er, og standi allt að 10 daga og að þingfulltrúum verði fjölgað úr 17 í 21. Af öðrum samþykktum kirkju- þings má nefna að áhersla er lögð á eflingu félagslegrar þjónustu kirkjunnar og að fenginn verði sérfræðingur til þess starfs, kirkjuráði er falið að kanna á hvern hátt kirkjan geti stutt áhugamannasamtök um áfengis- varnir, tilmælum er beint til ríkisstjórnarinnar um að hún kanni hvernig þjóðin geti varist eiturlyfjaflóði, biskupi og kirkju- ráði er falið að sjá um að í tilefni þúsund ára afmæiis kristniboðs á Islandi verði minnst af kirkjunnar hálfu þýðingar boðunar kristinnar trúar og að lokum er kirkjuráði falið að taka upp viðræður við Ferðamálaráð og aðra aðila ferða- mála um að komið verði upp aðstöðu til helgihalds á sumar- dvalarstöðum og orlofsbúðum. Einhugurinn um nýja handbók er mikill sigur fyrir kirkjuna — segir biskup íslands að afloknu kirkjuþingi NÍI ER komið að lokum 12. kirkjuþings, sem verið hefur starfsamt og afgreitt mörg stórmái. Þetta er siðasta kirkjuþing þessa kjörtimabils og þvi nokkur timamót nú, auk þess siðasta kirkjuþing mitt, þar sem nú eru framundan timamót i minu lifi einnig, sagði hr. Sigurbjörn Einarsson biskup íslands m.a. i lokaorðum á kirkjuþingi i gær. Biskup kvaðst við upphaf starfs síns sem biskup hafa gengið að störfum á kirkjuþingi með nokkrum ugg, þar sem það hafi þá verið ný stofnun og ómótuð, aðeins komið saman einu sinni. Það hafi komið í hans hlut að bera ábyrgð á starfi þess og móta í 20 ár. — En það er margs góðs að minnast frá þessu árabili, mörg stórmál hafa hlotið afgreiðslu hér og farið gegnum Alþingi og orðið að lögum, t.d. lög um Skálholt og kristnisjóð. Það voru tímamótamál og urðu til að auka á sjálfsforræði kirkj- unnar, sagði biskup og lét hann í ljós þakkir til kirkjuþings- fulltrúa. — Oft hafa verið mörg mál til meðferðar á kirkjuþingi og þetta var meðal þeirra sem flest hafði í takinu, lögð voru fram 30 mál og hlutu þau öll afgreiðslu, sagði biskup í samtali við Mbl. — Þessi mál hafa flest krafist mikillar vinnu og má t.d. nefna handbókarmálið og smærri mál, þótt ekki séu umfangsmikil, vekja stundum miklar umræður. Ég tel það stórsigur fyrir kirkj- una þegar næst fullkominn ein- hugur um slíkt mál sem ný handbók er. Er þá sama hvert er litið, á einum vettvangi af öðrum hefur hún hlotið þær viðtökur að menn hafa fylgt henni þegar þeir hafa kynnt sér hana og svo var einnig hér. Hvað er þér í huga nú þegar dregur að lokum starfsferils þíns sem biskup? — Ekkert sérstakt. Ég lifi, ef ég fæ að lifa, nákvæmlega eins og ég hefi alltaf gert. Þar geng ég að verki hvers dags eins og verið hefur, því hér eru það verkin, sem skammta tímann og hugsa ég ekki lengra fram en einn dag. Hefur starf þitt ekki verið erilsamt? — Víst hefur svo oft verið, en nokkur hvíld hefur verið í fjöl- Biskup íslands, hr. Sigurbjörn Einarsson breytileika starfsins. Störfin eru að vísu mismunandi kærkomin, sum hlutverkin hafa verið erfið, önnur minna ánægjuleg, en eitt hefur tekið við af öðru og mörg eru ánægjuleg þótt erfið séu. Nefna má að kirkjuþing var t.d. mikil viðbót við biskupsstarfið þegar það hóf að koma saman og á mörgum sviðum hefur ýmis- legt starf vaxið út frá biskups- embættinu; t.d. æskulýðsstarf, hjálparstofnun o.fl. Ekki hefur alltaf tekist að fá fjölgað starfs- mönnum eftir því sem verkefn- um hefur fjölgað, verkefnin hafa oftar verið á undan, en ég held að nokkuð megi vel við una í svipinn, sagði hr. Sigurbjörn Einarsson að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.