Morgunblaðið - 11.11.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.11.1980, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 251. tbl. 68. árg. ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. írönum skýrt frá vandkvæðum WashinKton. 10. nóv. — AP. FIMM manna nefnd, sem Jimmy Carter hefur sent til Alsír. mun heita þvi að Bandarikjamenn skipti sér ekki af innanrikismál- um írans og skýra vandkvæði þess að ganga að öðrum skilyrðum, sem íranar setja fyrir frelsun banda- risku KÍslanna, að sögn banda- riskra embættismanna i dag. Svartsýni á ráðstefnu Madrid. 10. nóv. — AP. DIPLÓMATAR unnu iannt fram á kvöld til að reyna að bjarna örvKK- ismálaráðstefnunni, sem á að setja i Madrid á morKun. bótt nokkur bjartsýni ríkti í daK dró úr henni síðar. Bandariskur fulltrúi saKði, að hann væri „frekar svartsýnn” á lausn á deilum um daKskráratriði, sem hafa staðið i niu vikur. Hópur andófsmanna frá Sovét- ríkjunum hóf í dag baráttu fyrir því í sambandi við ráðstefnuna, að staðið yrði við mannréttindaákvæði Helsinki-samningsins, sem verður tekinn til meðferðar. Sjá nánar grein á bls. 12—13. Nefndin mun leggja áherzlu á erfiðleika samfara því að skila eignum fyrrverandi íranskeisara og innistæðum í bandarískum bönk- um. Nefndin er undir forsæti Warr- en Christopher varautanríkisráð- herra. Alsír hefur tekið að sér milligöngu í málinu. Abolhassan Bani-Sadr íransfor- seti sagði í dag, að ef deilan leystist á einni viku gætu íranar fengið vopnasendingar, sem mundu hjálpa þeim í stríðinu við íraka, að sögn Teheran-útvarpsins. Irakar segja, að þeir muni ekki halda að sér höndum, ef Banda- ríkjamenn hjálpa írönum í stríðinu. Bani-Sadr ítrekaði einnig synjun írana um friðarviðræður við Iraka. Iranar vona að því lengur sem stríðið dragist, því meiri andstöðu muni stjórn Saddam Husseins for- seta mæta hjá landsmönnum. Lech Walesa óskað til hamingju með samkomulag Samstöðu og hæstaréttar 1 Varsjá. Formanski dómari er til vinstri með tvelmur aðstoðarmönnum. Aðrir á myndinni eru verkalýðsleiðtogar. Walesa aflýsir verkfallinu eftir úrskurð hæstaréttar Varsjá. 10. nóv. — AP. STÆRSTA óháða verkalýðsfélagið í Póllandi, Samstaða, aflýsti boðuðu verkfalli í dag, þegar hæstiréttur hafði samþykkt að fellt yrði úr stofnskrá þess ákvæði, þar sem haldið var fram forystuhlutverki kommúnistaflokksins. Þar með var afstýrt stigmöKnun ókyrrðarinnar meðal verkamanna er K«eti haft viðtækar þjóðfélagslegar, efnahaKs- legar og pólitískar afleiðingar fyrir Pólland. Ghotbzadeh látinn laus Róm, 10. nóv. — AP. FYRRVERANDI utanríkisráiV herra írans, Sadegh Ghothzadeh. hefur verið sleppt úr fangelsi að sogn starfsmanns iranska sendi- ráðsins i Róm i dag. Byltingarverðir handtóku Ghotbzadeh í síðustu viku og gáfu honum að sök að reyna að valda klofningi, lama styrjaldarreksturinn gegn írökum og gagnrýna náms- mennina, sem tóku bandarísku gísl- ana. Handtaka hans hefur endurvakið valdabaráttu hófsamra manna og harðlínumanna. í tilkynningu eftir úrskurðinn sagði Samstaða, að hann „gerði okkur kleift að sigrast á hinu hættulega þjóðfélagsástandi, sem landið stæði andspænis.” Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu, sagði þúsundum fagnandi stuðnings- manna, að „við hefðum náð fram því sem við ætluðum okkur." Hins vegar er þetta aðeins byrjunin," sagði hann. „Við eigum mikið starf fyrir höndum og allir verða að taka þátt í því.“ Witold Formanski yfirdómari sagði, að héraðsdómstóllinn í Varsjá hefði farið út fyrir verk- svið sitt, þegar hann bætti inn í stofnskrána ákvæði um hlutverk flokksins og setti fyrirvara á verkfallsrétt þegar félagið var formlega skrásett í síðasta mán- uði. I þess stað samþykkti dómar- inn tillögu lögfræðings Samstöðu, Wieslaw Chrzanowski, um viðbót við stofnskrána með tveimur samningum alþjóða sambands verkalýðsfélaga, þar sem haldið er fram rétti til að stofna verkalýðs- félög, og köflum úr samningunum um lausn verkfallanna í sumar. Þar er forystuhlutverk flokksins viðurkennt. Lögfræðingur tengdur Sam- stöðu sagði að lokasamkomulagið væri samhljóða tillögum, sem fé- lagið sendi ríkisstjórninni fyrir mörgum vikum. Eftir fund hæstaréttar átti Walesa fund með Stefáni kardin- ála Wyszynski, æðsta manni pólsku kirkjunnar, sem lét í ljós ánægju með lausn málsins og hvatti verkamenn til að sýna auðmýkt. Walesa lét lítið yfir sér á blaðamannafundi og kvað árang- urinn því að þakka, að Pólverjar stæðu saman. Hann sagði, að ekki væri unnt að tala um sigur og Foot sigraði Denis Healey Frá fréttaritara Morgunhlaðsins í London. Einari Guðfinnssyni. i rut. Þvert ofan í allar spár sigraði Michael Foot, hinn vinstrisinnaði öldungur þegar kosinn var nýr leiðtogi brezka Verkamannaflokksins í daK- í atkva-ðagreiðslu meðal þinKmanna fékk Foot 139 atkva-ði. en Denis Healey fyrrum f jármálaráðherra fékk 129 atkvæði. Stuðningsmenn Healeys virtust vera með hýrri há nú síðustu daKana. Menn voru almennt sammála um að hann væri að vinna á. Menn töldu þó oruKKt að örfá atkva-ði mundu skilja á milli Healeys ok Foots. Úrslitin komu þvi öllum á óvart. Það sem eflaust hefur orðið Hea- ley að fótakefli er að meðal virkra meðlima Verkamannaflokksins er hann lítt vinsæll. í ríkisstjórn Calla- ghans, þar sem hann var fjármála- ráðherra, var hann oft og tíðum persónugervingur óvinsælla ráðstaf- ana. Fyrir vikið hafa margir verka-- lýðsleiðtogar horn í síðu hans. Vitað er að síðustu dagana hefur mjög verið knúið á af þessum mönnum, að þingmenn kysu Foot en ekki Healey. Og talið er af stjórn- málaskýrendum að þetta gæti hafa haft úrslitaáhrif. Michael Foot er 67 ára og elzti maðurinn sem kosinn hefur verið leiðtogi Verkamannaflokksins í 50 ár. Hann hefur ekki mikla reynslu af setu í ríkisstjórn, en hefur þó verið um árabil einn kunnasti en um leið einn umdeildasti þingmaður Breta. Um hann hefur löngum staðið styrr. Lengst af hefur hann verið orðaður við vinstrimennsku. Hann leiddi gjarnan og stjórnaði andófi gegn forystu flokksins, sem hann sakaði um hægri villu. Þá var hann kunnur af andstöðu sinni gegn kjarnorku- vopnum og hefur lengi haft á stefnuskrá sinni að Bretar dragi úr vígbúnaði sínum einhliða. Loks hef- ur Michael Foot haft ímugust af veru Bretlands í Efnahagsbandalagi Michael Foot ásamt JHl konu sinni I Neðri málstofunni i gærkvöldi Evrópu og látið að sér kveða í andstöðu gegn bandalaginu. Leiðtogakosningarnar í Verka- mannaflokknum hafa án efa vakið fleiri spurningar en þær hafa svar- að. Aðalspurningin er þó: klofnar Verkamannaflokkurinn? Þó enginn geti svarað því telja margir líkurnar á því talsverðar. Verkamannaflokk- urinn undir forsæti Foots verður án efa vinstrisinnaðri en nokkru sinni fyrr. Ef marka má fortíð hins nýja leiðtoga gengur hann trúlega til kosninga næst með þá kröfu á oddinum að Bretar dragi sig úr EBE og afvopnist snarlega. Sterk öfl í flokknum munu aldrei samþykkja slíkt. „Þremenninga- klíkan" svonefnda, Shirley Williams fyrrum menntamálaráðherra, David Owen fyrrum utanríkisráðherra og William Rodgers, sem margir töldu að mundi bjóða sig fram sem leiðtogaefni, hafa hótað því að ganga úr flokknum, ef slíkt verður á stefnuskránni. Nú reynir á leiðtoga- hæfileika Foots, en undanfarin eitt til tvö ár hefur verið talað um að hann hafi sveigt nokkuð frá sinni ósveigjanlegu vinstristefnu og muni reyna í framtíðinni að sameina flokkinn hvað sem það kostar. ósigur og viðeigandi lausn hefði fundizt. Walesa var ákaft hylltur fyrir utan dómhúsið og konur fleygðu til hans blómvöndum. „Við óttumst ekkert," sagði vegfarandi nokkur. „Pólski herinn stendur með Samstöðu." Mannfjöldinn söng þjóðsönginn og kaþólskan sálm undir stjórn Walesa. Útvarpið sagði frá fréttinni athugasemdalaust. Yfirvöld ákváðu jafnframt að fella niður brottvísun tuga vestrænna fréttamanna. í Moskvu staðfesti Tass í gær óvenjulega frétt um sameiginlegar heræfingar. Reagan er af kon- ungakyni London. 10. nóv. — AP. RONALD Reagan, næsti for- seti Bandarikjanna, á ættir að rekja til Brian Boru (Brian Boruma Cennegigssonar, yfir- konungs Írlands á 11. öld, sem féll í Brjánsbardaga og var fyrsta þjóðhetja íra) að söKn brezkra og irskra ættfræðinga í kvöld. Brjánsbardagi, sem getið er um í Njálu og fleiri íslenzkum heimildum, var háður við Clontarf, skammt frá Dyflinni, 1014. Með honum lauk áhrifum víkinga á írlandi. Ætt Reagans er rakin til frænda Boru, sem var af Reg- ansætt í Munster, en þótt hann væri aðeins frændi ættföðurins er Ronald Reagan samt talinn af konungaættum. Reagan-fjölskyldan (eða Regan og O’Regan) fluttist frá héraðinu Tipperary, þar sem hún var lengi búsett og bjó við fátækt, á árum hungursneyðar- innar miklu 1845 — 48. Reagan verður einn af níu af 40 forset- um, sem hafa verið ættaðir frá írlandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.