Morgunblaðið - 11.11.1980, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 11.11.1980, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1980 Faðir okkar + ÞORDURSTEFÁNSSON fró Vestmannaeyjum, Skarphéöinsgötu 20, Reykjavík, andaöist á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 9. november. Þóröur Þórðarson, Rut Þóröardóttir, Björn Þóröarson, Þóra Þóröardóttir, Ásta Þóröardóttir, Birna Þórðardóttir. + Móðir okkar, GUDRÍÐUR ÞÓRÓLFSDÓTTIR, Drápuhlíð 21, lézt á Landakotsspítala laugardaginn 8. nóvember. Sólrún Þorbjarnardóttir, Rósa Björk Þorbjarnardóttir, Ragnhildur Þorbjarnardóttir. t Móðir okkar og tengdamóðir, LÁRA ANDRÉSDÓTTIR, Míðvangi 17, Hafnarfiröi, lést aö Hrafnistu í Reykjavík 9. nóvember. Guóný Sæmundsdóttir, Þuríöur Steingrímsdóttir, Jón Bjarnason, Helga Steingrímsdóttir, Hallgrímur Pétursson, Guðmundur Steingrímsson, Unnur Guðmundsdóttir. + Eiginkona mín, HRAFNHILDUR SIGURÐARDÓTTIR, lést þann 9. nóvember s.l. í sjúkrahúsi í Finspáng, Svíþjóð. Jaröarförin auglýst síöar. Guðmundur Ingvason. + Konan mín og móðir okkar, ÓLÖF JÓNASDÓTTIR frá ísafirði, andaðist í Sjúkrahúsi Akraness 9. nóvember. Ingólfur Árnason og börn. + Móðir okkar, INGIBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR, Noröurbrún 34, áður Skúlagötu 70, andaðist í Borgarspítalanum aö kvöldi 8. nóvember. Börnin. + Bróöir okkar, VIGGÓ HELGASON, sölustjóri, lézt í Borgarspítalanum aö morgni 8. nóvember. Fyrir hönd okkar systkinanna. Magnús Helgason. Sonur minn, HERMANN SVANUR SIGURÐSSON, lést af slysförum þann 9. þ.m. María Óskarsdóttir. + Systir mín, JÓHANNA ÍSLEIFSDÓTTIR, sem lést á Elliheimilinu Grund 6. nóvember, veröur jarösett frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 13. nóvember kl. 13.30. Fyrir hönd aöstandenda. Marta í. Ólafsdóttir, Starhaga 16. Minning: María Guðmunds dóttir Creighton Fædd 9. mars 1943. Dáin 25. októbcr 1980. I dag verður jarðsungin frá Dómkirkjunni vinkona mín, María Guðmundsdóttir Creighton. Svo óvænt og skyndilega bar dauða hennar að, vegna sjúkdóms, að það tók mig langan tíma að átta mig á hvað hafði raunveru- lega gerst. Hvernig átti nokkrum okkar að detta í hug, fyrir ári síðan, þegar María fór aftur til Bandaríkjanna, eftir að vera búin að vera hér heima hjá fjölskyldu sinni, að hún yrði ekki meðal okkar ári síðar, hún var aðeins 37 ára gömul, í blóma lífsins. María giftist Timothy David Creighton 6. maí 1972 og fluttust þau hjónin til Bandaríkjanna það sama ár. Það sem mér þótti alltaf vænst um, var að í þau skipti sem María kom til landsins í heim- sókn, hitti ég alltaf þá sömu góðu og vönduðu Maríu, sem hafði verið mín æskuvinkona. Árin höfðu þar engu breytt. Þá koma upp í huga mér ýmis atvik úr bernsku, t.d. hve María var mikið fyrir dýr, og eins hve alltaf var þægilegt að koma inn á heimili hennar, þar sem öllum vinum var tekið opnum örmum, því hlýlegri fjölskyldu er varla hægt að hugsa sér. Eiginmanni, móður, systur og vandamönnum, votta ég samúð mína, þegar við í dag kveðjum Maríu hinstu kveðju. Oddný Björgvinsdóttir. María Guðmundsdóttir Creight- on er borin til moldar í dag. Hún dó ung vestur í Bandaríkjunum eftir stutta en stríða baráttu við + Konan mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma, JÓSEFÍNA JÓHANNSDÓTTIR, Steinageröi 3, lést aö morgni 8. nóvember í Landakotsspítala. Kristján H. Guömundsson, Alfreö Kristjánsson, Ásbjörg Jónsdóttir, Aöalheiöur Kristjánsdóttir, Valgeir Lárusson, Anna Kristjánsdóttir, Helgi Veturliöason, Bjarney Kristjánsdóttir, Örn Helgason, Jónína Kristjánsdóttir, Jón Ásgeir Jónsson, og barnabörn. + Móöir okkar og tengdamóöir. KRISTBJÖRG SIGURDARDOTTIR, Langageröi 100, éöur húsfreyja Lambhúshóli, Vestur-Eyjafjöllum, andaöist í Borgarspítalanum 8. nóvember. Þóröur Guönason, Inga Á. Eiríksdóttir, Hjélmrún Guönadóttír, Andrés Guömundsson, María Guönadóttir, Valtýr Sasmundsson, Magnús Guönason, Svava Ingimundardóttir, ' Guöbjörg Guónadóttir, Gestur Magnússon + Eiglnmaöur minn og faöir okkar, ÞÓRÐUR BJARNASON, vörubifreiöastjóri, Strandgötu 81, Hafnarfiröi, veröur jarösunginn frá Þjóökirkjunni í Hafnarfiröi í dag, þriöjudag kl 3. Sigríöur Ketilsdóttir og börn. + Eiginkona mín, dóttir og systir, MARÍA GUDMUNDSDOTTIR CREIGHTON, Shreveport, Louisiana, áöur til heimilis aö Starhaga 14, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni, þriöjudaginn 11. nóvember n.k. kl. 13.30. Timothy David Creighton, Helga Eiríksdóttir, Ingibjörg R. Guömundsdóttir. + Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, ODDNÝ ÁSGEIRSDÓTTIR, veröur jarösungin frá Fríkirkjunni, miövikudaginn 12. nóvember kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Samtök sykursjúkra. Asgeröur Sófusdóttir, Stefanía Sófuadóttir, Árni Sófusson, Höröur Sófusson, Jóhann Sófusaon, Guöjón Pálaaon, Jón Guömundsson, Edda Ólafsdóttir, Geirlaug Karlsdóttir, Vala Jakobsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn banvænan sjúkdóm. í dag stönd- um við, vinir hennar, ásamt fjöl- skyldu, á grafarbarminum og spyrjum: Hvers vegna var þetta ljós slökkt svo snemma? Svarið berst okkur með vindinum, jafn óræð gáta sem fyrr, og enginn má sköpun renna. Við fylgjum Maríu til grafar í dag með sorg og trega í hjarta. Tíminn mun þó lina harminn og við varðveitum minningu um góða stúlku. í mínum huga uppeldis- systur og leikfélaga; vin. Þetta eru fallegar endurminningar, með ívafi af benskubrekum og ærslum, en umfram allt minningar um sólskin, æskugleði og vináttu. Ég man ekki fyrr eftir mér en Maju. Frá því við vorum lítil börn fram á fullorðinsár bjuggu fjöl- skyldur okkar í sama húsinu. Þar bundust þær þeim vináttuböndum sem æ síðan hafa baldið, án bresta, og raunar styrkst í sífellu. Því fylgja þessum línum kveðjur og þakkir til Maríu frá sambýlis- fólkinu í Starhaga 14 og ennfrem- ur frá konu minni og börnum fyrir vinarþel og umhyggju. María fæddist 9. mars árið 1943, eldri dóttir hjónanna Guðmundar Jónssonar, starfsmanns Raf- magnsveitu Reykjavíkur og Helgu Eiríksdóttur. Yngri dóttirin er Ingibjörg Rannveig, starfsmaður Flugleiða hf. Guðmundur lést í umferðarslysi árið 1973. María lauk stúdentsprófi frá Verslun- arskóla íslands árið 1964 og hóf að því búnu störf hjá Nóa, Hreini og Síríusi hf. og vann þar lengst af meðan hún var hér á íslandi. 6. maí árið 1972 giftist hún banda- rískum manni, Timothy David Creighton frá Louisiana, og flutt- ist með honum vestur um haf. Þau bjuggu í Chreveport í Louisiana, heimbæ Davids, þegar María veiktist og lést hinn 25. október. Þau voru barnlaus. Á kveðjustundu í dag þökkum við Maríu fyrir allt sem hún gaf okkur á þeirri stuttu ævi sem almættið úthlutaði henni. Jafn- framt vottum við eiginmanni hennar, móður og systur dýpstu samúð. Vilhelm G. Kristinsson. Ungur má, en gamall skal. í dag, þegar ég kveð í hinsta sinn æskuvinkonu mína, Maríu Guðmundsdóttur Creighton, er mér efst í huga djúpur söknuður, ásamt þakklæti til Guðs, fyrir árin okkar öll, sem við vorum hamingjusamar í námi, starfi og leik. Vinskapur fjölskyldna okkar hófst ekki með okkar vinskap, heldur þróaðist hann frá ömmum okkar og síðan mæðrum, sem í dag meta hvor aðra að verðleikum með sinni vináttu. María ólst upp á góðu og afburða gestrisnu heimili að Starhaga 14 hér í borg, dóttir hjónanna Helgu Eiríksdóttur og Guðmundar Jónssonar. Þau eign- uðust tvær dætur, Maríu og Ingi- björgu Rannveigu, sem hefur svo sannarlega sýnt hve stórbrotin hún er með umhyggju sinni og dugnaði. Á Starhaga bjuggu einnig for- eldrar Helgu og bróðir. Dauðinn barði fyrst að dyrum árið 1963, þegar sú frábæra kona, María eldri, lést og mun ég ávallt minnast hennar með ást og virð- ingu. Gleði, blandin trega aðskildi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.