Morgunblaðið - 11.11.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1980
15
Dr. Esbjörn
Rosenblad
Dr. jur. Esbjörn Rosenblad,
sendiráðunautur, er sextugur í
dag 11. nóvember. Hann er doktor
í lögum og magiseter í sögu.
Doktorsritgerð hans heitir „Al-
þjóðleg mannúðarlögmál um
Vopnaviðskipti". Var hún gefin út
af Henry Dunant-stofnuninni,
stofnanda alþjóðlega Rauða kross-
ins. Þá hefur dr. Esbjörn samið
fleiri verk um svipað efni, eins og
t.d. „Bönnuð vopn og skæruhern-
aður, sveltbeiting í hernaði" '(sbr.
Biafra) o.fl.
Dr. Rosenblad hefur starfað við
sænska sendiráðið hér í Reykjavík
í þrjú ár. Hefur hann á þeim tíma
eignast fjölda vina sakir mann-
kosta sinna og ljúfmennsku. —
Hann hefur gegnt embættisstörf-
um fyrir sænska ríkið á ýmsum
stöðum í Evrópu en segist hvergi
hafa unað sér betur en hér. Dr.
Rosenblad er kvæntur ísl. konu,
Rakel Sigurðardóttur frá Laxa-
mýri og hefur þannig tengst land-
inu sterkari böndum.
Vinir hans óska honum hjartan-
lega til hamingju á þessum degi.
Megi gæfa og gengi fylgja þeim
hjónum í framtíðinni.
Heimilisvinur.
Samið
við þjóna
SAMKOMULAG tókst aðfaranótt
föstudags i kjaradeilu Félags
framreiðslumanna og Sambands
veitinga- og gistihúsaeigenda.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins tókst samkomulag um
svokallaða kauptryggingu, sem
reiknuð hefur verið brúttó, en
verður nú reiknuð nettó, þ.e.a.s.
kaup aðstoðarfólks þjóna hefur
ekki áhrif á þessa kauptryggingu.
Þá hafa verið gefin vilyrði fyrir að
leiðrétt verði tvísköttun launa-
skatts, þar sem þjónar þurfi að
greiða slíkan skatt af launum
aðstoðarfólks, eftir að veitinga-
húsið hefur einnig gert það.
Til verkfalls þjóna á laugardag-
inn kom því ekki.