Morgunblaðið - 11.11.1980, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 11.11.1980, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1980 27 Hann varð NM-meistari ísland náði góðum árangri í Norðurlandameistaramótinu í kraftlyftingum sem fram fór hér á iandi fyrir skómmu. Þar eign- uðumst við þrjá NM-meistara. Einn þeirra var Þorsteinn Leifs- son sem við kynnum nú hér fyrir lesendum. Hann er ásamt fleiri lyftingamönnum íþrótt sinni til mikils sóma. þar sem hann æfir af eljusemi og dugnaði. Þorsteinn Leifsson. ÞORSTEINN LEIFSSON (KR), 19 ára nemandi (f. 6.9. 1961) Þor- steinn hóf að æfa lyftingar árið 1975. Hann varð unglingameistari 1977 í 67,5 kg flokknum og lyfti þá 180 kg í samanlögðu, það sama ár keppti hann á sínu fyrsta alþjóð- lega móti (N.M. ungl.) og frá þeim tíma að telja má segja að framfar- irnar hafi verið stöðugar hjá honum. 1979 varð hann íslands- meistari í 75 kg flokknum og setti þá met í snöruninni, jafnhöttun- inni og í samanlögðu eftir harða keppni. A Islandsmeistaramótinu 1980 sigraði hann í 82,5 kg flokkn- um og lyfti 292,5 kg í samanlögðu og á íþróttahátíðinni í sumar náði hann olympíulágmarkinu í sama flokki er hann lyfti 300 kg í samanlögðu (ungl. met). Hann var einn þriggja íslenskra lyftinga- manna sem kepptu á Ólympíuleik- unum í Moskvu í sumar. Norður- landamótið sem nú verður haldið verður fjórða N.M. unglinga sem Þorsteinn keppir á. Besti árangur Þorsteins er 130 kg í snörun og 170 kg í jafnhöttuninni. Lyttlngar ) Skrifa undir brottvísun Tommy Docherty, einn kunn- asti framkvæmdastjórinn i ensku knattspyrnunni, sagði nýiega að þegar framkvæmdastjórar skrif- uðu undir samninga við knatt- spyrnulið væru þeir raunveru- lega að skrifa undir brottvísun sina frá félaginu. „Þeir skrifa bara ekki dagsetninguna," — bætti hann við. Þetta virðist a.m.k. eiga vel við Docherty sjálfan þvi í ófá skipti hefur hann verið látinn taka pokann sinn hjá ýmsum liðum þar sem hann hefur setið við stjórn. Hann var nýlega rekinn frá Queen’s Park Rangers og var það í þriðja skiptið sem hann var rekinn frá þvi félagi!!! • Það var ekki mikið svigrúm sem hann Varði fékk á milli risanna hjá Aftureldingu um helgina er Týr og UMFA léku í Vestmannaeyj- um. Engu að síður stóð Varði sig vel á línunni. Risarnir tveir eru Einar Magnússon og Björn Bjarnason, fyrrum leikmenn með Víking. Ljósm. Sigurgeir Jónasson. Leikmenn fengu 2,8 milljónir upp j vinnutap hja ÍA AÐALFUNDUR Styrktarfélags knattspyrnunnar á Akranesi var haldinn laugardaginn 1. nóv. sl. Á fundinum kom fram. að tekjur félagsins námu um 4,4 millj., en útgjöld um 3,9 millj. Langstærstur hluti þeirrar upp- hæðar var notaður til að greiða niður vinnutap leikmanna i meistaraflokki eða 2,8 millj. Auk þess veitti félagið Unglingaráði fjárstyrk, alls fiOO þúsund. Félagið kaus leikmann ís- landsmótsins á fyrsta fundi sínum eftir að mótinu lauk. Fyrstur til að hljóta þessa viðurkenningu var hinn frábæri markmaður Bjarni Sigurðsson. Á aðalfundinum var honum veitt viðurkenning vegna þessa, kr. 200 þúsund. Stjórn félagsins var einróma endurkjörin, en hana skipa: Hin- rik Haraldsson formaður, Kristín Aðalsteinsdóttir gjaldkeri, Karl Alfreðsson bókari, Marsibil Sig- urðardóttir ritari, Viðar Karlsson og Áki Jónsson meðstjórnendur og Þorgeir Jósefsson blaðafulltrúi. Nokkrir leikmenn mættu á fundinn og lýstu þeir yfir þakk- læti sínu og ánægju með starfsemi félagsins. Einnig kom fram þakk- læti eiginkvenna leikmanna vegna greiðslna á vinnutapi svo að æf- ingar gætu hafist kl. 5 síðdegis og leikmenn gætu verið með fjöl- skyldum sínum á kvöldin. Styrktarfélagið hyggst færa út kvíarnar á næsta sumri. í sumar greiddi félagið vinnutap vegna tveggja æfinga í viku en áformað er að fjölga þeim æfingum og greiða bónus til leikmanna fyrir hvert stig sem liðinu hlotnast á íslandsmótinu á næsta sumri. Vitað er um mjög stóran hóp dyggra stuðningsmanna í Reykja- vík og er ætlunin að leita til þessa hóps á næsta sumri. Fyrirhugað er að boða fund í Reykjavík í byrjun næsta árs og kynna hug- myndir félagsins nánar. Þeir voru góðir vinir i hálfleik, sem sannir bræður. En á leikvellinum gáfu þeir ekkert eftir. Og litli bróðir var þá hvergi hræddur við stóra bróður. Enda vann lið hans Týr með miklum yfirburðum. Með Tý spilar Hörður til vinstri yngri bróðurinn. Gústaf sá eldri spilar hinsvegar með Aftureldingu úr Mosfellssveit, þó svo að hann sé einn af traustustu knattspyrnumönnum ÍBV og fastur maður í liði þeirra. Ljósm. Sigurgeir J. Helga hefur sett 27 met Helga Halldórsdóttir frjáls- iþróttakona úr KR á framtiðina fyrir sér á hlaupabrautinni. Hún hefur þótt ung sé sett 27 ís- landsmet i frjálsum iþróttum. Hér er Helga að koma í mark klædd landsliðshúningi Íslands í Kalott-keppninni sem fram fór hér á landi siðastliðið sumar. (Frjilsar IbrðUlp IIIN bráðefnilega Ilelga Ilall- dórsdóttir frjálsíþróttakona úr KR hefur nú þótt ung sé sett hvorki meira né minna en 27 fslandsmet í frjálsum íþróttum. Ilelga hefur sett 9 kvennamet. Þar af eru tvö í boðhlaupum. 9 stúlknamet í flokki 17 —18ára og 4 meyjamet í flokki 15—16 ára. Öll þessi met eru sett utanhúss eða 22 alls. Þá hefur Ifelga sett 5 íslandsmet innanhúss. Helga æf- ir mjög vel um þessar mundir og stefnir að því að bæta árangur sinn enn frekar. Ilelga hefur aðeins æft og keppt í tvö sumur og er enn ung að árum og því má búast við miklu af henni í fram- tíðinni sem íþróttakonu. Hér á eftir eru kvennamet Helgu: 60 m hlaup, 7,6 sek. 80 m hlaup. 9,8 sek. 200 m hlaup, 24,96 sek rafmagnstimataka. 300 m hlaup 39,3.100 m grindahlaup 13,9 sek. 200 m grind 28,5 sek. Langstökk 5,78 metrar. 4x100 m hoðhlaup 47,35 landssveit. 4x400 m boð- hlaup 3,46,31 sek landssveit.—i>r- Willoughby er vongóður EF ÉG get styrkt hópinn hjá KA með 2—3 nýjum leikmönnum þegar kcppnistímahilið hefst á ný í mars tel ég að við ættum að eiga möguleika á því að verða nógu ofarlega i 1. deiidinni til að tryggja okkur sæti í UEFA bik- arkeppninni" segir Alex Wil- loughby þjálfari Akureyrarliðs- ins KÁ í örstuttu spjalli við enska vikuritið SHOOT fyrir skömmu. I blaðinu er skýrt frá því að þessi fyrrverandi leikmaður með Rangers og Aberdeen hafi náð góðum árangri sem leikmaður en nú hafi hann einnig náö góðum árangri sem þjálfari, hjá íslenska liðinu Sportsclub Akureyri eins og KA er nefnt í greininni. „Ég gerði miklar kröfur til leikmanna síðasta keppnistímabil, og þeir fóru frábærlega vel eftir því sem ég krafðist af þeirn," segir hann ennfremur. Sagt er, að á fyrsta keppnis- tímabili sínu með liðið hafi hann stýrt því til sigurs í 2. deild. Það hafi hlotið 31 stig af 36 möguleg- um, og eftir þennan árangur sinn hafi hann gert framkvæmdastjór- um í Bretlandi það ljóst að hann hafi snúið aftur, en hann hefur þjálfað lið víðs vegar um heim upp á síðkastið. — sh. • Jón Bragi, markvörðurinn ungi hjá Tý. átti stórgóðan leik með liði sínu um siðustu helgi. Jón Bragi fékk aðeins á sig 14 mörk. Vel af sér vikið. Ljósm. Sigurgeir J. FH Aðalfundur handknattleiks- deildar FII verður haldinn laug- ardaginn 15. nóvember. Nánar verður greint frá þessu síðar. Nú er þjóðin miklu Trimm-stuði Nú fara allir út aö trimma í göllum frá Ingólfi og þá veröur trimmiö leikur einn. Bómullargallar Litir: grátt, dökkblátt — meö hettu og rennilás. Verö aðeins kr. 19.300.-. Stæröir: S - M - L - XL Skokkskórnir eru auövitaö frá Puma Nú verður algjört trimmstuð pumn um allan bæ Einnig höfum viö úrval af ótrúlega ódýrum göllum. Verö frá kr. 13.900-17.900. ort= voruvfflrffluiiiRi llinqiéllífiF ©/knmoiinðiir Klapparstig 44 Reykjavik simi 11783

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.