Morgunblaðið - 11.11.1980, Page 16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1980
... og þrongt var setið i hófi i barnaskólanum að Ilólum að vígslunni lokinni.
„Þad sem hér hefur gerst
er nánast kraftaverk“
Fiskeldisstöð og hitaveita
vígð í Hjaltadal fimm
mánuðum eftir að
framkvæmdir hófust
Fiskcldisstöð Hólalax hf. Myndina tók ljósm. Mbl. Kristján er vígslugestir gengu frá vigsluathöfn i
stöðvarhúsinu til vígsluhófs í barnaskólanum að Hólum og eru Ragnar Arnalds fjármálaráðherra og
frú fremst á myndinni.
Fjolmargir gestir voru við-
staddir vígslu hitaveitunnar og
fiskeldisstöðvarinnar...
Ragnar Arr.alds fjármálaráðhcrra vígir Hitavcitu Hjaltadals.
með því að opna fyrir krana er hleypir vatni á þra-r og stokka
fiskeldisstoðvar Holalax hf. l.jósm. Mhi. hristjan.
„Það er ástæða til að gera sér
dagamun þegar tekin er í notkun
fiskeldisstöð Hólalax hf. og
Hitaveita Hjaltadals. Þessi
fyrirtæki eiga eftir að hefja
Hóla í Hjaltadal á ný til vegs og
virðingar. Þau eiga eftir að veita
hlýju og hagsæld um okkar
byggðir," sagði Pálmi Jónsson
landbúnaðarráðherra í hófi að
Hólum í Hjaltadal á laugardag
er tvö ný fyrirtæki voru tekin í
notkun þar í sveit, hitaveita og
fiskeldisstöð, en stöðin verður sú
stærsta og fullkomnasta hér á
landi þegar hún verður fullbúin.
Pálmi lýsti opnun fiskeldisstöðv-
arinnar, en augnabliki áður vígði
Ragnar Arnalds fjármálaráð-
herra hitaveituna, með því að
skrúfa frá krana er hleypti vatni
í þrær og stokka fiskeldisstöðv-
arinnar. Fjölmenni var við
vígsluathöfnina og hóf að henni
lokinni, einkum bændur og búa-
lið úr Skagafjarðarsýslu, en þar
á meðal voru gestir víðs vegar að
af Norðurlandi og sunnanmenn
einnig. Stjórnarformaður beggja
fyrirtækjanna er Gísli Pálsson
bóndi á Hofi í Vatnsdal í
A-Húnavatnssýslu og stjórnaði
hann vígsluathöfninni og hófinu
af röggsemí.
„Það sem hér hefur gerst er
nánast kraftaverk, alla vega
stórkostlegt afrek," sagði Pálmi,
en framkvæmdir við eldisstöðina
og hitaveituna hófust í júní
síðastliðnum. „Hér er verið að
nýta jarðhita og að efla fiskeldi,
en við væntum þess, að í þessar
lindir íslenzkra gæða megi
sækja aukna hagsæld í framtíð-
inni. Eg óska, að það líf sem
vaknar í eldisstöð Hólalax hf.
eigi eftir að leiða af sér sporða-
köst í norðlenzkum ám og sunn-
lenzkum líka,“ bætti Pálmi við.
Hann gat þess, að markmiðið
með þessum framkvæmdum
væri það eitt, að efla Hólastað,
en samþykkt var í ríkisstjórn-
inni í marz sl., að hefja endur-
reisn skólastarfs á Hólum.
Pálmi ræddi ýmsar hugmyndir
er væni á döfinni í þeim efnum.
PVam kom í máli Pálma, að á
n;esla ari vrði hitaveita lögð í
húsin a Læiidaskólanum, en mið-
I’álmi Jónsson landbúnaðarráð-
herra flytur ræðu að vigslunni
lokinni. en þar lýsti hann m.a.
huumvndum er uppi væru í
••amh.tndi við endurreisn skóla-
starf' að llólum.
að er við að hefja þar skólastarf
að ári.
Valgeir Guðjónsson bóndi á
Daufá í Lýtingsstaðahreppi lýsti
framkvæmdum við fiskeldisstöð-
ina, sem er á svokölluðum Hofs-
eyrum innan við Hólastað. Kvað
hann áætlað kostnaðarverð fisk-
eldisstöðvarinnar, sem er um
1200 fermetrar, vera um 430
milljónir króna, en inn í þeirri
upphæð væri og eignaraðild
stöðvarinnar í hitaveitunni, 125
milljónir króna. Fram kom hjá
Valgeiri, sem er í stjórn Hólalax
hf., að heita vatnið væri leitt um
sex kílómetra leið úr borholu við
bæinn Reyki, sem er innsti
bærinn í Hjaltadal. Þá er kalda
vatnið leitt úr 17 lindum í mikilli
vatnslögn á Hofseyrunum.
Tveir menn hafa verið ráðnir
að fiskeldisstöðinni, Pétur
Bjarnason, sem er framkvæmda-
stjóri stöðvarinnar, og Svein-
björn Oddsson. Að sögn Péturs
verður fyrst um sinn eingöngu
unnið við hrognaklak í stöðinni,
en nýlega kom um ein milljón
hrogna í stöðina. Klekjast þau út
í marz næstkomandi og getur
stöðin því selt sumaralningsseiði
næsta sumar og gönguseiði
næsta haust. Að sögn Péturs er
eftir að setja upp ræktunarker
úr piasti í stöðvarhúsinu og
ganga frá skrifstofuhúsi og fóð-
urgeymslu.
Fiskeldisstöðin er eign veiðifé-
laga í Skagafjarðar- og Húna-
vatnssýslum og nokkurra ein-
staklinga. Ríkissjóður á um 40%
í stöðinni í gegnum Bændaskól-
ann og hitaveituna. Hlutáfélag
um stöðina, Hólalax hf., var
stofnað sl. vor. Að sögn Péturs
voru fyrirtækin tvö, fiskeldis-
stöðin og hitaveitan, nánast for-
senda hvors annars, því enginn
grundvöllur hefði verið fyrir
fiskeldisstöðinni án hitveitunn-
ar, og ekki hefði verið grundvöll-
ur fyrir hitaveitunni ef ekki
hefðu aðrir notendur en heimilin
í sveitinni verið fyrir hendi.
Miðað er við, að fiskeldisstöð
Hólalax hf. verði kennslustöð í
fiskeldi og að fiskeldi verði ein
af búgreinunum, sem kenndar-
verða í bændaskólanum á Hólum
að ári. — ágás
Rósberg Snædal flutti vígslu-
ljóð í hófinu. en vísurnar kvaðst
hann hafa ort á gangi milli
hæjar og húsa siðustu dagana
fyrir vígslu fiskeldisstöðvarinn
ar og hitaveitunnar. Vígsluljóð-
ið var á léttari nótunum, „ekki í
neinum aldamótastíl*. eins og
Rósberg orðaði það.
Við vígslu fiskeldisstöðvar Hólalax hf. og Hitaveitu Hjaltadals voru sumir þingmenn Norðurlands-
kjördæmis vestra meðal gesta. Á þessari mynd má sjá Pálma Jónsson landbúnaðarráðherra og Eyjólf
Konráð Jónsson alþingismann koma til vígslunnar, en að baki Pálma gengur Valgeir Guðjónsson
bóndi á Daufá og stjórnarmaður í Hólalax. Ljósm. mu. Krintján.