Morgunblaðið - 11.11.1980, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1980
17
um, sem á voru hengd ýmiskonar
búsáhöld, sem til sölu voru og gaf
þetta fyrirkomulag gömlu búð-
anna þeim alveg sérstakt svipmót.
Fyrir framan búðarborðið biðu
svo viðskiptavinirnir þess, að röð-
in kæmi að hverjum og einum og
reynt var að uppfylla óskir allra,
ef þess var nokkur kostur. Höfð-
ingi þessa húss var að sálfsögðu
eigandinn eða faktorinn í umboði
hans. Við eigum margar sögur um
þessa menn og þær ekki allar til
eftirbreytni. Staðreynd er hins-
vegar, að margir í hópi þessara
manna á liðnum tíma, voru hinir
merkustu menn, sem margt gott
létu af sér leiða. Hinu er ekki að
Emil Magnússon, Grundarfirði:
Gamla búðin
Fyrir ofan skrifborðið mitt, þar
sem ég sit við ritvélina, hangir
mynd eða öllu heldur eftirprentun
af mynd Gunnlaugs Schevings,
sem ber ofanritað heiti. Eg hef oft
setið og virt þessa mynd fyrir mér
og finn, að mér þykir einkar vænt
um hana.
Sjálfur hóf ég minn verzlunar-
rekstur í samskonar húsakynnum
og sýnd eru á þessari mynd, það ei
gömlu húsi frá tímum selstöðu-
verzlananna á íslandi, byggt á
síðastliðinni öld af miklum hag-
leik, en hefur nú orðið eldinum aí
bráð.
Eg á margar og góðar minn-
ingar úr þessum húsakynnum
sem vissulega höfðu sinn sjarma,
þótt allt væri þar með öðru sniði
en nú tíðkast. Stundum, þegar ég
horfi á mynd Schevings, er ekki
laust við að mér finnist að ég andi
að mér því sérstaka andrúmslofti,
sem svo mjög einkenndi þessar
gömlu verz' nir.
Lykt af rúsínum, sveskjum og
öðrum ávöxtum, ásamt angan af
allskonar kramvöru, leggur fyrir
vit manns. Vinstra megin við
dyrnar, þegar inn var komið, var
púlt hátt og stórt um sig, girt
rimlum á þrjár hliðar. Þar stóð
afgreiðslumaðurinn og skrifaði í
sínar bækur og alltaf standandi.
Hann var þannig girtur frá fólk-
inu, sem kom að verzla og jók það
nokkuð á virðingu hans, mundi
trúlega hafa verið kallað stöðu-
tákn í dag.
í loftinu var allt fullt af krók-
neita, að oft var staða þeirra erfið
og enginn vandi að leggja athafnir
þeirra út á hinn verri veg. Það var
um langt árabil mikil lenzka í
þessu landi, að rithöfundar
skáldsagna lögðu sig fram um að
hafa þessa stétt manna að skot-
spæni og var það um tíma vinsælt
lestrarefni hjá þjóðinni. Áttu
kaupmenn sér fáa keppinauta í
þessum efnum, nema ef vera
skyldu prestar, en þeir guldu oft
hið herfilegasta afhroð í meðferð
skáldsagnahöfunda.
Mörg dæmi mætti nefna því til
staðfestu, að þessir gömlu faktor-
ar og fulltrúar þeirra mörkuðu
djúp spor í sjálfstæðis- og frelsis-
baráttu þessa þjóðar, þegar hvað
daprast horfði um hennar mál.
Áhrif þessara manna á menning-
ar- og félagsþroska hinna ýmsu
byggðarlaga var meiri en svo, að
yfir fyrnist á fáum áratugum.
Megin ókostur í augum nútíma-
mannsins gagnvart gömlu búðun-
um var hið volduga búðarborð,
sem var einsog veggur á milli
viðskiptavinanna og þess vöruúr-
vals, sem á boðstólum var.
Það hlaut því að koma einsog af
sjálfu sér, að með breyttum tíðar-
anda og byltingu á sviði verzlunar,
yrði það eitt meginatriðið, að
borðið færi burt. Sú varð líka
raunin á og verður vikið að því í
næstu grein.
Nýtt fraktflug
alla
föstudaga
Nú hefur LUXEMBORG bæst í hóp vikulegra
áfangastaöa í sérstöku fraktflugi
OAMSTERDAM
BRUSSELO, ODUSSELDORF
LUXEMBORG'o „
PARisO...., ‘OFRANKFURT
OMÍLANÖ
Sex safnstöóvar á meginlandinu annast
vöruflutninga frá BRUSSEL, AMSTERDAM,
DUSSELDORF, FRANKFURT, PARIS og
MÍLANÓ yfir til LUXEMBORG. Viókoma í
LONDON á leiöinni heim
Láttu FLUGFRAKT um flutninginn- fljótt og
örugglega
FLUGLEIDIR
«