Morgunblaðið - 11.11.1980, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1980
23
• Hinn snjalli körfuboltamaður KR-inga. Jón SiRurðs-
son, í baráttu við Jóhannes og Ríkharð. Jón átti mjög
góðan leik gegn Val.
Islandsmeistararnir
töpuðu sínum þriðja leik
ÍSLANDSMEISTARAR Vals í körfuknattleik töpuóu sínum þriðja
leik í íslandsmótinu í körfuknattleik er liðið tapaði fyrir KR-in>?um á
sunnudaK í LauKardalshöll. KR sigraði með 86 stÍKum Kegn 80. Var
liðiö vel að þeim sÍKri komið ok föKnuðu leikmenn ákaft í leikslok.
Þeim var KreinileKa mikið í mun að leKKja Valsmenn að velli. Leikur
liðanna var mjöK skemmtileKur á að horfa ok bauð upp á mikla
spennu í síðari hálfleik. Enda var mikil stemmninK í höllinni hjá þeim
fjölmörKU áhorfendum sem á leikinn horfðu.
Leikmenn KR komu ákveðnir trl
leiks og tóku þegar forystuna í
leiknum. Léku þeir vel bæði í vörn
og sókn. Lið Vals hélt lengst af vel
í við þá en þegar fyrri hálfleikur
var hálfnaður kom slakur kafli
hjá Val og allt heppnaðist hjá KR.
Á þessum tíma n.áði KR-liðið 21
stigs forskoti í leiknum, staðan
var um tíma 49—28. Á þessum
tíma voru bæði Torfi og Ríkharður
á bekknum hjá Val. Ríkharður
byrjaði leikinn mjög vel og hitti
þá úr svo til hverju skoti, og því
var skrýtið að honum skildi vera
skipt útaf. Er Torfi og Rikharður
komu inná aftur sigu Valsmenn
smátt smátt og smátt á KR og
þegar flautað var til hálfleiks var
staðan 44—56 KR í hag.
{ síðari hálfleiknum börðust
Valsmenn mjög vel og leikur
liðanna jafnaðist. Jón Sigurðsson
KR var kominn með fjórar villur
og byrjaði því ekki inná í síðari
hálfleiknum og það munar um
minna fyrir KR. Þegar 9 mínútur
voru eftir af leiknum var aðeins
þriggja stiga munur á liðunum,
62—65. Og skömmu síðar náðu
Valsmenn að jafna, 65—65. Gífur-
leg spenna var nú kominn í leikinn
og hart barist. Jón Sig. kom inná
hjá KR og dreif félaga sína áfram
ásamt Bandaríkjamanninum
Keith Yow sem átti mjög góðan
leik. Valsmenn urðu- hinsvegar
fyrir því að missa sinn Kana, Brad
Miley, útaf með 5 villur. Þrátt
fyrir það var leikurinn í járnum
og þegar 3 mínútur voru eftir af
leiknum var staðan jöfn, 77—77.
Þá mistókst sókn hjá Val og dæmt
var víti á þá. Garðar skoraði tvö
stig og í næstu sókn var svo dæmt
sóknarvíti á Val og Yow bætti
einu stigi við. Staðan orðin 80
gegn 77. Þegar svo Valsmönnum
mistókst í sinni þriðju sókn í röð
og Yow náði boltanum, brunaði
upp og skoraði fallega, var KR
búið að gera út um leikinn, 82—77.
Lokatölur urðu eins og áður sagði
86—80. KR lék mjög vel í lok
leiksins, leikmenn héldu boltanum
vel og vörn liðsins var sterk.
Bestu leikmenn KR-inga sem
sýndu að þeir verða í toppbarátt-
unni í vetur voru Keith, Jón
Sigurðsson, Ágúst og Garðar. Þá
Valur — KR
80:86
(KðrluKnattlelKur)
átti Bjarni góðan leik, sérstaklega
framan af. Var sterkur í fráköst-
um. Þá var mikil og góð barátta í
öllum leikmönnum liðsins.
Lið Valsmanna getur gert betur.
Það var eins og leikmenn vantaði
meiri neista. Þá voru innáskipt-
ingar Hilmars á köflum dálítið
skrýtnar. Ríkharður og Torfi áttu
báðir góðan leik, þá lék Kristján
allvel. Bandaríkjamaðurinn Brad
Miley var og sterkur, sér í lagi í
fráköstunum. Þá spilar hann fé-
laga sína oft vel uppi.
Stig Valsmanna: Ríkharður
Hrafnkelsson 22, Brad Miley 16,
Torfi Magnússon 16, Kristján
Magnússon 15, Jóhannes Magn-
ússon 6, Þórir Magnússon 3 og Jón
Steingrímsson 2.
Stig KR: Keith Yow 33, Jón
Sigurðsson 17, Ágúst Líndal 13,
Garðar Jóhannsson 11, Bjarni
Jóhannesson 6, Geir Þorsteinsson
4, Gunnar Jóakimsson 2.
- þr
Loks kom að því
að Fram-stúlkurnar
töpuðu leik, höfðu
leikið 35 leiki án taps
Einkunnagjöfin
LOKS kom að því að hinar
sigursa lu Framstúlkur í meist-
araflokki í handknattleik töpuðu
leik. Liðið hafði leikið 35 leiki i
röð án þcss að tapa er Fram
mætti FH-stúlkunum i íslands-
mótinu i handknattleik á lauKar-
dag i LauKardalshöllinni. FII
sÍKraði með cinu marki i leiknum
eítir æsispennandi leik 17 — 16.
SólveÍK BirKÍsdóttir skuraði sík-
urmark FH þegar 20 sek voru
eftir af leiktimanum.
Fram byrjaði leikinn af miklum
krafti og komst fljótt í yfirburða-
stöðu 6—1. En með seiglu minnk-
uðu FH-stúlkurnar muninn og
staðan í hálfleik var 9—7 fyrir
Fram. í síðari hálfleiknum hafði
Fram alltaf forystuna og lengst af
skildu þrjú mörk liðin af. Þegar
sex mínútur voru eftir af leiktím-
anum náðu FH-stúlkurnar að
jafna metin 15—15, og komast
síðan yfir 16—15. Jóhanna jafnaði
fyrir Fram þegar 1 mínúta var
eftir en í síðustu sókn sinni
skoraði FH sigurmarkið. Leikur
liðanna var allgóður og oft brá
fyrir glæsilegum tilþrifum.
Katrín Danivalsdóttir átti mjög
góðan leik með liði FH bæði í sókn
og vörn. Skoraði hún mörg falleg
mörk af línunni. Þá voru Krist-
jana og Margrét góðar. Gyða átti
góðan leik í markinu. Ljóst er að
lið FH á góða möguleika á að rjúfa
hina löngu sigurgöngu Fram í
íslandsmótinu í vetur og taka af
þeim titilinn. Bestar í liði Fram
voru Oddný og Kolbrún markvörð-
ur. Mörk FH: Katrín 6, Margrét 4,
Kristjana 4, Kristín, Sólveig og
Hildur 1 mark hver. Mörk Fram:
Guðríður 6v, Oddný 3, Margrét 3,
Jóhanna 2, Sigrún 2.
— ÞR.
Fram — FH
16:17
Hanðknaltlelkur
Lið UMFN
Jón V. Matthíasson
Guðsteinn Ingimarsson
Gunnar Þorvarðarson
Jónas Jóhannesson
Sturla örlygsson
Valur Ingimundarson
Júlíus Valgeirsson
Árni Lárusson
Brynjar Sigmundsson
Lið Ármanns
Valdimar Guðlaugsson
Atli Arason
Guðmundur SÍKurðsson
Hörður Arnarson
Kristján Rafnsson
Davíð Arnar
LIÐ KR:
7 Jón SÍKurðsson
7 ÁKÚst I.índal
7 Bjarni Jóhannsson
7 Garðar Jóhannsson
6 Gunnar Jóakimsson
5 Bjarni Jóhannesson
Geir Þórsteinsson
LIÐ VALS:
Rikharður Hrafnkelsson
Kristján ÁKÚstsson
Torfi Magnússon
Jóhannes Magnússon
Þórir Magnússon
Jón SteinKrímsson
SÍKurður Hjörleifsson
Wm
• Jóhanna Halldórsdóttir átti góðan leik með liði Fram gegn FH. Hér hefur hún
brotist í gegn og skorar.
Jafntefli
hjá HK og
Armanni
HÖRKULEIK HK ok Ár
manns í 2. deild sem lcikinn
var að Varmá i Mosfellsveit
á iaugardaK lauk með jafn-
tefli 19-19. í hálfleik hafði
HK þriggja marka forystu
12—9. Leikur liðanna var
mjög spennandi i siðari hálf-
leik og ekki mátti á miili sjá
hvort liðið myndi ganga með
sÍKur af hóimi.
Ármannsliðið hafði frum-
kvæðið í fyrri hálfleiknum
framan af, en HK tók foryst-
una upp úr miðjum hálfleikn-
um og hafði yfir þegar flaut-
að var til leikhlés. Þegar
síðari hálfleikurinn var hálf-
naður var staðan jöfn 15—15
og allt á suðupunkti. Liðið
höfðu bæði átt mikið af
góðum marktækifærum sem
fóru í súginn. Ármenningar
misnotuðu til dæmis þrjú
vítaköst. HK náði tveggja
marka forskoti 19—17 rétt
fyrir leikslok. Ármenningar
brugðu á það ráð að leika
maður á mann og gafst það
vel.
Lið HK var mjög jafnt í
leiknum. Leikmenn hefðu þó
mátt leika af meiri rósemi og
yfirvegun. Einar markvörður
varði 10 skot og stóð sig
sæmilega. Lið Ármanns átti
þokalega góðan leik. Friðrik,
Einar og Óskar áttu allir
ágætan leik.
Mörk HK: Ragnar Ólafsson
5, Bergsteinn Þórarinsson 4,
Sigurður Sveinsson 4, Hilmar
Sigurgíslason 3, Hallvarður
Sigurðsson 3.
Mörk Ármanns: Friðrik Jó-
hannsson 5, Einar Eiríksson
4, Björn Jóhannsson 4, Óskar
Ásmundsson 3, Kristinn Ing-
ólfsson 2, Kristinn Rúnars-
son 1.