Morgunblaðið - 11.11.1980, Qupperneq 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1980
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1980
25
• Fjórir leikir fóru fram í Laugardalshöllinni í 1. deild íslandsmótsins í handknattleik um helgina. Liðin sem hér sjást leika
saman, Haukar og KR. voru bæði í sviðsljósinu. Lið Hauka tapaði fyrir Fram og lið KR gerði óvænt jafntefli við Fylki.
VíkinKar unnu hins vegar öruggan sigur á FH og Þróttur bar sigurorð af Val. Næsti stórleikur á fjölum hallarinnar verður
landsleikurinn gegn Vestur-Þjóðverjum á föstudagskvöldið.
EINS MARKS SIGUR ÞRÓTTAR GEGN VAL
— Valsmenn misstu niður 3 marka forskot síðustu 5 mínúturnar
-"125:24
Bættu Valsmenn sjðunda markinu
við og var farið að líta út fyrir
öruggan sigur Vals. En Þróttarar
létu ekki deigan síga, þeir skoruðu
þrjú mörk í röð og jöfnuðu leikinn
í 7—7. Bjarni kom Val aftur yfir,
en Páll og Sveinlaugur svöruðu og
Þróttur náði forystunni í fyrsta
skiptið. En það voru sviptingar, og
allan leikinn út skiptust liðin á um
að jafna og komast yfir. Var
virkilega gaman að þessum leik og
nokkrir leikmenn fóru á kostum,
eins og t.d. Sigurður Sveinsson og
Bjarni Guðmundsson. í hálfleik
stóð síðan 13—11 fyrir Val og
skoraði Þróttur þó síðasta mark
hálfleiksins.
Meiri hasar
Það fór nú heldur betur að
færast fjör í leikinn og eftir að
Sigurður Sveinsson hafði sent
þrumufleyg í Valsnetið í byrjun
síðari hálfleiks, varði Sigurður
Ragnarsson víti og tveir Vals-
menn voru reknir af leikvelli með
stuttu millibili. Þróttur náði for-
ystunni, 14—13. Valsmenn jöfn-
uðu þó og síðan var jafnt á öllum
tölum upp í 20—20, en þá skriðu
Valsmenn þremur mörkum yfir.
En hraðinn í leiknum var slíkur,
að allt gat gerst og allt gerðist.
Eða næstum allt. Siggi Sveins
skoraði tvö í röð með ægiföstum
neglingum og síðan náði Þróttur
skyndisókn sem endaði með marki
Sveinlaugs, 23—23. Síðan var enn
jafnt 24 —24, en lokakaflanum
hefur þegar verið lýst.
Stórleikur
Leikur þessi var mikil og góð
auglýsing fyrir handknattleik á
Íslandi og áhorfendur kunnu vel
að meta glæsimörkin sem skoruð
voru. Sigurður Sveinsson var
stórkostlegur, svolítið gráðugur á
köflum að vísu, en það er fljótt að
gleymast næst þegar hann skorar
mark. En í þessum leik sýndu
Þróttarar, að af engum þeirra má
líta og þrátt fyrir 12 mörk Sigurð-
ar, var hann ekki einn í heiminum,
Sveinlaugur, Lárus, Páll og Ólafur
H. Jónsson léku allir mjög vel, auk
þess sem markvörðurinn Sigurður
Ragnarsson er að ná sér á strik á
ný eftir meiðsli. Valsmenn áttu
sín augnablik í leik þessum, en
miðað við markvörsluna, var lé-
legt hjá þeim að vinna ekki leik
þennan. Ólafur Benediktsson
sýndi markvörslu á heimsmæli-
kvarða og Bjarni sýndi einnig
stórkostleg tilþrif í sóknarleikn-
um. Þá áttu Jón Pétur og Stefán
Halldórsson ágæta spretti.
í stuttu máli:
íslandsmótið í 1. deild, Þróttur
- Valur 25-24(11-13)
Mörk Þróttar: Sigurður Sveins-
son 12, 3 víti, Páll Ólafsson og
Lárus Lárusson 3 hvor, Ólafur H
Jónsson og Sveinlaugur Krist-
jánsson 2 hvor, Einar Sveinsson,
Gísli Asgeirsson og Jón Viðar
Jónsson eitt hver.
Mörk Vals: Bjarni Guðmunds-
son 7, Þorbjörn Guðmundsson 6, 1
víti, Stefán Halldórsson 4, 2 víti,
Jón Pétur Jónsson 3, Steindór
Gunnarsson 2, Gunnar Lúðvíksson
og Ólafur Benediktsson eitt hvor.
Víti í súginn: Óli Ben. varði víti
frá Sigurði Sveinssyni og Sigurður
Ragnarsson varði annað frá Þor-
birni Guðmundssyni.
Brottrekstrar: Jón Pétur í 4
mínútur plús útilokun, Þorbjörn
Guðmundsson, Ólafur H. Jónsson
og Páll Ólafsson í 2 mínútur hver.
-KK-
— Alfreð Gíslason skoraði 15 mörk fyrir KR
Alfreð Gíslason KR sem á myndinni lyftir sér og reynir skot, skoraði 15 mörk gegn
Fylki. Það er markamet í einum leik í íslandsmótinu til þessa.
a. ftt
Elnkunnagjðfln
Liö Fylkis: Lið Þróttar Lið Víkings Lið Fram
Jón Gunnarsson 6 Sigurður Ragnarsson 7 Kristján Sigmundsson 8 Sigmar Óskarsson 5
Haukur Sigurðsson 4 Sigurður Sveinsson 8 Þorbergur Áðalsteinsson 7 Sigurður Þórarinsson 4
Gunnar Baldursson 6 Páll Ólafsson 6 Árni Indriðason 6 Jóhann Kristinsson 4
Magnús Sigurðsson 4 Ólafur H. Jónsson 7 Steinar Birgisson 6 Theódór Guðfinnsson 5
Stefán Gunnarsson 5 Lárus Lárusson 6 Páll Björgvinsson 6 Jón Árni Rúnarsson 4
Einar Ágústsson 7 Magnús Margeirsson 6 Guðmundur Guðmundsson 8 Björgvin Björgvinsson 7
Ásmundur Kristinsson 5 Jón Viðar Jónsson 6 Stefán Halldórsson 6 Ilermann Björnsson 5
Örn Hafsteinsson 4 Sveinlaugur Kristjánsson 6 Ólafur Jónsson 7 Hinrik Óiafsson 4
Andrés Magnússon 4 EinarSveinsson 5 Atli Ililmarsson 6
Jóhann Ásgeirsson 4 Gísli Ásgeirsson 5 Erlendur Daviðsson 6
Kristinn Atlason 3 Axel Axelsson 6
Hannes Leifsson 4
Lið Hauka
Lið FII Gunnar Einarsson 4
LiÖ KR Lið Vals Heimir Gunnarsson 4 ólafur Guðjónsson 4
Pétur Hjálmarsson 3 ólafur Benediktsson 9 Gunnlaugur Gunnlaugsson 6 Guðmundur Haraldsson 4
Brynjar Kvaran 3 Þorlákur Kjartansson 5 Geir Hallsteinsson 6 Viðar Simonarson 5
Konráð Jónsson 5 Jón Pétur Jónsson 6 Kristján Arason 5 Ilörður Harðarson 6
Þorvarður Guðmundsson 6 Þorbjörn Jensson 5 Valgarður Valgarðsson 6 Árni Hermannsson 5
Haukur Ottesen 4 Þorbjörn Guðmundsson 5 Sæmundur Stefánsson 5 Árni Sverrisson 4
Haukur Geirmundsson 4 Gunnar Lúðvíksson 4 Þórir Gíslason 4 Svavar Geirsson 5
Friðrik Þorbjörnsson 4 Bjarni Guðmundsson 8 Sveinn Bragason 5 Sigurgeir Marteinsson 5
Árni Stefánsson 4 Jón Karlsson 3 Guðmundur Árni Stefánsson 4 Július Pálsson 4
Alfreð Gíslason 9 Stefán Halldórsson 6 Guðmundur Magnússon 5 Lárus Karl Ingason 6
Jóhannes Stefánsson 4 Steindór Gunnarsson 6 óttar Mathiesen 4 Sigurður Sigurðsson 4
ÞAÐ HITNAÐI heldur betur í kolunum undir lok leiks Þróttar og
Vals í 1. deild íslandsmótsins í handknattleik á laugardaginn, en þar
vann Þróttur nauman sigur i æsispennandi hörkuleik. Þannig var
nefnilega mál vexti, að þegar rúmar 100 sekúndur voru til leiksloka
voru Valsmenn i hraðaupphlaupi. Staðan var 24 — 24. Stefán
Halldórsson stökk inn úr vinstra horninu, en Sigurður Ragnarsson
varði vel skot hans. Fór knötturinn af markverðinum yfir
hliðarlínuna og hugðust Valsmenn hefja sókn á ný upp úr innkastinu.
En þá kom babb i bátinn. Dómararnir dæmdu Þrótti knöttinn og úr
næstu sóknarlotu skoraði Þróttur sigurmarkið. Voru Valsmenn æði
heitir i leikslok, t.d. var Jón Pétur Jónsson útilokaður fyrir kjaftbrúk.
Var það mál Valsmanna að þarna hafi verið vendipunkturinn i
leiknum. Undirritaður er ekki alveg sammála þvi, þó auðvitað hafi
þessi einu alvarlega mistök þeirra Rögnvalds Erlingssonar og Björns
Kristjánssonar komið á versta tima. Var það ekki frekar vendipunkt-
urinn er staðan var 23—20 fyrir Val þegar nokkrar minútur voru
eftir, en liðið missti forskotið niður?
------------------------------ Nú, en þrátt fyrir að Valsmenn
fengu á sig mark þetta, var enn
tími til stefnu. Sem fyrr segir voru
100 sekúndur eftir þegar Páll
Ólafsson skoraði 25. mark Þróttar.
Það sem eftir lifði leiktímans
reyndu leikmenn Vals ákaft að
finna smugur í varnarvegg Þrótt-
ar. Voru gífurlegar sviptingar og
þegar 23 sekúndur voru eftir var
Ólafur H. Jónsson rekinn af leik-
velli. Síðustu sekúndurnar voru
Þróttarar því einum færri. En
með rosalegri baráttu og með því
að brjóta ört af sér, héldu þeir
Valsmönnum í burtu. Síðan gall
flautan og allt fór í háaloft.
Sviptingar
Það voru strax gífurlegar svipt-
ingar í þessum leik, hraði mikill
og stórkostlegur sóknarhandbolti.
Varnarleikurinn vildi gleymast og
mikið var skotið. Sést þetta best á
því, að þrátt fyrir hátt markaskor,
var markvarsla beggja liða stór-
góð og hreinlega á heimsmæli-
kvarða hjá Val.Oli Ben. gerði sér
lítið fyrir og varði 24 skot. Er það
hálf nöturlegt hlutskipti að verja
af slíkri snilld, en standa síðan
uppi í tapliðinu. En Valsmenn
komust í 3—1 og komst meira að
segja ÓIi Ben. á blað, þeytti
knettinum yfir völlinn og beint í
mark Þróttar! Síðan stóð 6—4
fyrir Val og varði óli Ben. þá
vítakast frá Sigurði Sveinssyni.
FYLKIR KRÆKTI í dýrmætt stig í 1. deildar keppninni í
handknattleik á sunnudagskvöldið, er liðið tók stig af KR. Voru það
óvænt úrslit. En þó að Fylkir hafi lengst af haft forystuna í lciknum.
var heppnin með liðinu á lokasekúndunum. Staðan var 24 — 23 fyrir
KR og 20 sekúndur til leiksloka. er KR fékk víti. Alfreð fékk það
hlutverk að skora og hafði hann þegar skorað úr sjö vítaköstum. En
Alfreð brást hogalistin, skaut í stöng og Fylkismenn fengu knöttinn
síðustu sekúndurnar. Þeir nýttu tímann vel, skoruðu jöfnunarmark
sitt er fjórar sekúndur voru til leiksloka. Ilefði Alfreð skorað hefði
Fylkir ekki átt sér viðreisnar von. En Alfreð ætti ekki að láta sér líða
illa. Ilann skoraði 15 mörk í leiknum og var eini maðurinn sem
eitthvað kvað að í liði KR. Án hans hefði KR hreinlega tapað þessum
leik.
Sem minnst ætti að segja um
gang leiksins, liðin skiptust á um
forystuna í fyrri hálfleik, en undir
lok hálfleiksins náði Fylkir afger-
andi þriggja marka forystu. Var
leikurinn afar lélegur, einkum var
hroðalegt að sjá til KR-inga. Er
illt til þess að vita hversu stuttan
tíma liðið hélt út, en eftir stórleiki
liðsins gegn Víkingi og Val í
haust, mátti ætla að fram væri að
koma stórlið. En leikmenn liðsins
virðast hreinlega sprungnir, að
Alfreð Gíslasyni frátöldum. í síð-
ari hálfleik komst Fylkir meira að
segja tvívegis fjórum mörkum
yfir. En þó að Fylkir hafi þarna
sýnt þokkalega takta á köflum,
var leikur liðsins ekki sterkari en
svo, að það tók KR-inga aðeins
tvær mínútur að vinna upp mun-
inn. Síðan var jafnt á flestum
tölum frá 18—18. KR komst að
vísu tveimur mörkum yfir, 23—21,
þegar rúmar sex mínútur voru til
leiksloka, en Fylkir vann upp þann
mun.
Jafntefli var það sanngjarnasta
sem gat komið út úr leik þessum.
Þó hefðu KR-ingar ekki getað
kvartað ef Fylkir hefði unnið, því
barátta og hreinn og klár áhugi
fyrir leiknum var mun meiri í
herbúðum Árbæjarliðsins. Lang
besti maðurinn á vellinum var þó í
röðum KR, það var Alfreð Gísla-
son, sem bar höfuð og herðar yfir
aðra á vellinum. Enginn hefur
skorað meira af mörkum í einum
og sama leiknum á þessu keppn-
istímabili heldur en Alfreð gerði
gegn Fylki. 15 mörk, en Sigurður
Sveinsson i Þrótti og Axel Axels-
son úr Fram hafa skorað 14 mörk
L'" 24:24
í leik í haust. Aðrir hjá KR voru
beinlínis lélegir og áhugalausir.
Markvarsla var því sem næst
engin og vörnin eins og ginnunga-
gap. Hjá Fylki bar mest á Einari
Ágústssyni, einnig var markvarsla
Jóns Gunnarssonar mjög góð
framan af, en dofnaði mjög er á
leikinn leið.
í stuttu máli:
íslandsmótið 1. deild, Fylkir —
KR 24 - 24 (13-10)
Mörk Fylkis: Einar Ágústsson 6,
Ásmundur Kristinsson 6, 4 víti,
Gunnar Baldursson 5, Andrés
Magnússon 2, Jóhann Ásmunds-
son, Örn Hafsteinsson og Stefán
Gunnarsson eitt hver.
Mörk KR: Alfreð Gíslason 15, 7
víti, Konráð Jónsson 4, Þorvarður
Guðmundsson 3, Haukur Geir-
mundsson og Jóhannes Stefánsson
eitt hvor.
Víti í súginn: Einar Ágústsson
skaut í þverslá og Alfreð skaut
einu víti í stöng.
Brottrekstrar: Stefán Gunnars-
son, Ásmundur Kristinsson og
Einar Ágústsson í 2 mínútur hver.
— KK-
Víti í súginn á elleftu
stundu og KR tapaði stigi
fsiandsmðtlð 1. delld I
Seigla FH í síóari
hálfleik var ekki nóg
VÍKINGAR bættu stöðu sína heldur betur í 1. deildar keppninni í
handknattleik, er liðið lagði FH að velli með 22 mörkum gegn 16. i
geysilegum baráttuleik um helgina. Þrátt fyrir að sigur Víkinga hafi
verið öruggur. munaði litlu að FH ynni upp 7 marka forystu Víkinga
frá fyrri hálfleiknum. Staðan í hálfleik var 10—3!, en um tíma i síðari
hálfleik munaði aðeins tveimur mörkum og allt var sannarlega og
heldur betur á suðupunkti. Fjölmargir áhorfendur voru vel með á
nótunum og hitinn í leiknum á köflum slikur, að brottrekstrar voru
um tima fleiri heldur en mörk.
Yfirburðir Vík-
inga í byrjun
Víkingar höfðu ótrúlega yfir-
burði framan af leiknum og gaf
liðið tóninn strax á fyrstu mínút-
unni, er Steinar Birgisson komst
inn í sendingu FH-inga, brunaði
upp og skoraði. Víkingar bættu ört
við forskotið, staðan komst í 5—0.
Víkingar léku vörnina ekki síður
snilldarlega en sóknina og var
FH-ingum gersamlega fyrirmun-
að að skora framan af leiknum.
Þannig varði Kristján Sigmunds-
son vítakast Kristjáns Arasonar
snemma í leiknum. Það var ekki
fyrr en á 16. mínútu, að FH-ingum
lánaðist að komast á blað, þá
skoraði Geir Hallsteinsson með
góðu skoti. FH-ingar tóku smá-
kipp og minnkuðu muninn í 6—3,
en síðan ekki söguna meir það sem
eftir lifði fyrri hálfleiks, Víkingur
komst í 10—3 og Kristján mark-
vörður varði annað víti frá nafna
sínum Arasyni eftir að leiktími
var runninn út.
FH-iní?ar taka sig á
FH-ingar hófu síðari hálfleik-
inn með því að taka bæði Pál
Björgvinsson og Þorberg Aðal-
steinsson úr umferð. I fyrstu
virtist bragðið ætla að enda með
skelfingu, Víkingar skoruðu samt
tvö fyrstu mörkin í hálfleiknum og
var staðan þá orðin 12—3. En
herbragð FH-inga hafði þau áhrif,
að sóknarleikur Víkinga riðlaðist
algerlega. Sæmundur og Kristján
Arason skoruðu fyrir FH, 12—5,
og þegar Gunnlaugur Gunnlaugs-
son varði vítakast Páls Björgvins-
sonar, fór allt í baklás hjá Víkingi.
Árni Indriðason var rekinn út af
og Geir minnkaði muninn í 12—8.
Þá var Steinar rekinn út af, einnig
Þorbergur og loks Árni aftur. Og
FH minnkaði muninn enn, nú í
12—9 og var allt á suðupunkti.
Var staðan óbreytt um hríð, en
loks reif Ólafur Jónsson sig upp og
skoraði. Kom nú til kasta Krist-
jáns Sigmundssonar, sem reyndist
Víkingum betri en enginn, er hann
varði tvívegis frá Geir Hall-
steinssyni, sem kominn var í
dauðafæri í báðum tilvikum. í
kjölfarið komu þrjú Víkingsmörk í
röð og staðan því orðin 16—9. Má
segja að þegar hér var komið sögu,
hafi ekki lengur verið spurning
hvar stigin myndu hafna. En það
var heitt í mönnum og FH-ingar
eiga hrós skilið fyrir að berjast af
fullum krafti fram á síðustu
mínútu.
Sveiílukenndur leikur
Það voru miklar sveiflur í þess-
um hörkuleik. í fyrri hálfleik léku
Víkingar af mikilli snilld, greini-
lega komnir upp úr þeim öldudal
sem liðið var í framan af haustinu.
FH-ingar voru þá eins og byrjend-
ur í höndunum á Víkingunum. En
Geir var klókur og með breyttri
vörn í síðari hálfleik munaði um
tíma sáralitlu að FH tækist að
næla í.annað stigið, eða þaðan af
meira. Handknattleikurinn sem á
boðstólum var í síðari hálfleik, var
ekki eins fágaður og í þeim fyrri,
en í staðinn kom þrúguð spenna og
gífurleg barátta, sem hreif
áhorfendur með. Með seiglu tókst
FH næstum að bjarga einhverju.
Hjá Víkingi lék Guðmundur Guð-
mundsson sinn langbesta leik og
“«"22:16
var á köflum hreint stórkostlegur.
Hraði hans og leikni kom FH-ing-
um hvað eftir annað í opna
skjöldu. Þá varði Kristján Sig-
mundsson mjög vel í leiknum,
einkum í síðari hálfleik, því ekkert
reyndi á hann í þeim fyrri. Sem
dæmi má geta þess, að fyrstu 15
mínútur leiksins þurfti hann að-
eins að glíma við eitt skot, víta-
kast Kristjáns Arasonar, sem
hann varði meistaralega! Að öðru
leyti var það hin sterka liðsheild
sem tryggði Víkingi stigin. Hjá
FH stóð helst upp úr markvarsla
Gunnlaugs í síðari hálfleik. En
með samheldni í síðari hálfleik
náði liðið vel saman. Þó stóð
enginn upp úr, en allir gerðu sitt
og gáfu allt sem þeir áttu.
í stuttu máli:
íslandsmótið í 1. deild,
Víkingur - FH 22-16 (10—3).
Mörk Víkings: Guðmundur Guð-
mundsson 5, Þorbergur Aðal-
steinsson og Steinar Birgisson 4
hvor, Árni Indriðason og Páll
Björgvinsson 3 hvor, Árni þar af j
með tvö úr vítum, Ólafur Jónsson
2 og Stefán Halldórsson eitt mark.'
Mörk FH: Kristján Arason 4, 3
víti, Sæmundur Stelansson 3, Geir
Hallsteinsson 3, 2 víti, Valgarður
Valgarðsson 2, Óttar Mathiesen,
Guðmundur Magnússon, Guð-
mundur Árni Stefánsson og
Sveinn Bragason eitt hver.
Brottrekstrar: Árni Indriðason og
Páll Björgvinsson í 4 mínútur.
Eftirtaldir leikmenn hvíldu sig í
tvær minútur hver: Þorbergur
Aðalsteinsson, Steinar Birgisson,
Sveinn Bragason, Guðmundur
Magnússon og Þórir Gíslason.
Víti í súginn: Kristján Sigmunds-
son varði tvívegis vítaköst Krist-
jáns Arasonar og Gunnlaugur
varði víti frá Páli Björgvinssyni.
— KK-
krækti
Fram
sér í tvö
FRAM vann sinn fyrsta sigur í
íslandsmótinu i handknattleik.
er liðið sigraði Hauka i Laugar-
dalshöll á sunnudagskvöldið með
20 mörkum gegn 17. Sigur Fram
var sanngjarn. Þeir voru betra
liðið i leiknum sem var lengst af
frekar illa leikinn. Ba>ði liðin
gerðu sig sek um mikið af
mistökum. En það má vera að
mikil taugaspenna hafi hrjáð
leikmenn þar sem liðin eru bæði i
haráttunni á botni deildarinnar.
Allur fyrri hálfleikur var mjög
jafn. Jafnt var á öllum tölum en
Fram náði að hafa eitt mark yfir,
12—11, þegar flautað var til hálf-
leiks. Varnir beggja liða svo og
markvarslan voru frekar slök, sér
í lagi hjá liði Fram. Allur síðari
hálfleikurinn var jafn og spenn-
andi og sama jafnræðið var með
liðunum þar til að 8 mínútur voru
til leiksloka. Þá ná Framarar
tveggja marka forskoti, 17—15,
með mörkum Erlendar og Hann-
esar. Haukar fóru mjög illa með
sóknarlotur sínar síðustu 10 mín-
útur leiksins og ýmist glopruðu
Hmíka~ 20:17
þeir boltanum í hendur andstæð-
inga sinna eða köstuðu út af.
Fram náði 3 marka forskoti þegar
2 mínútur voru eftir af leiknum og
Axel innsiglaði sigur liðsins með
með því að skora 20. markið úr
vítakasti.
Lið Fram er greinilega heldur
að hressast eftir mjög svo slaka
byrjun í mótinu. Samt er allur
leikur liðsins frekar ráðleysislegur
ennþá. Sérstaklega var þó varnar-
leikurinn slakur í leiknum gegn
Haukum. Það var ekki fyrr en á
síðustu 10 mínútum leiksins sem
vörnin var sæmilega leikinn. Þá
var of oft um ótímabær skot að
ræða í sóknarleiknum. Bestu
menn Fram í leiknum voru þeir
Björgvin og Atli. Sigmar Þröstur
varði sæmilega.
Lið Hauka var slakt, og ljóst er
að róður liðsins í 1. deild verður
stig
erfiður í vetur. A köflum brá fyrir
sæmilegum leikköflum en þess á
milli var varla heil brú í því sem
leikmenn voru að gera. Hörður
Harðarson og Lárus Karl voru
einna skástir í liðinu.
I stuttu máli: Islandsmótið 1.
deild, Laugardalshöll.
Fram—Haukar 20—17 (12—11)
Mörk Fram: Axel Axelsson 6, 4v.,
Atli Hilmarsson 4, Björgvin
Björgvinsson 3, Theodór Guð-
finnsson 3, Erlendur Davíðsson 2,
Jóhann Kristinsson 1 og Hannes
Leifsson 1.
Mörk Hauka: Viðar Símonarson 4,
2v., Hörður Harðarson 4, Júlíus
Pálsson 2, Árni Hermannsson 2,
Sigurður Sigurðsson 2, Sigurgeir
Marteinsson, Árni Sverrisson og
Lárus Ingason 1 mark hver.
Brottvísun af velli: Erlendur Her-
mannsson Fram í 2 mín.
Misheppnuð vítaköst: Sigmar ver
víti frá Herði Harðarsyni Hauk-
um, Viðar Símonarson skaut yfir
og Gunnar Einarsson Haukum
varði hjá Atla Hilmarssyni.
— ÞR.