Morgunblaðið - 11.11.1980, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1980
31
Líffræðifélag íslands:
„Kvæmi innan
trjátegunda“
- efni fyrirlestrar skógrækt-
arstjóra á fundi í kvöld
SIGURÐUR Blöndal skógræktar-
stjóri flytur í kvöld, þriðjudags-
kvöld, erindi á vegum Líffræðiíé-
lags Íslands, sem hann nefnir
nKvæmi innan trjátegunda".
Kvæmi nefnast stofnar innan
tegunda með ákveðnum lífeðlis-
fræðilegum erfðaeiginleikum, sem
mótast hafa af veðurfari á hverj-
um stað. Hvert kvæmi hefur eins
konar meðfæddan hitastilli, sem
ákveður m.a. við hvaða hitastig
einstaklingurinn vaknar af vetr-
ardvala og eftir hvað langan tíma
vextinum lýkur. Ennfremur er
mikill munur eftir kvæmum, hver
vöxtur einstaklingsins verður.
Mun Sigurður fjalla um áður-
nefnt í fyririestri sínum og rekja
dæmi og skýra þýðingu þess fyrir
skógrækt almennt, en einkanlega
hér á landi. Erindið verður haldið
í stofu 158 í húsi verkfræði- og
raunvísindadeildar, Hjarðarhaga
24, og hefst kl. 20.30. Öllum er
heimill aðgangur.
Kvenfélag Breiðholts:
Kynnir öldungadeild
við Fjölbrautaskólann
KVENFÉLAG Breiðholts verður
með kynningu á Öldungadeild
við Fjölbrautaskólann i Breið-
holti i kvöld, þriðjudagskvöld, kl.
20.30. Fundurinn verður haldinn
í samkomusal Breiðholtsskóla.
Öldungadeild við Fjölbrautar-
skólann í Breiðholti tekur til
starfa eftir áramótin og verður
einnig á fundinum í kvöld kynnt
starfsemi Námsflokka Reykjavík-
ur. Þá heldur Kvenfélag Breið-
holts jólafund sinn mánudaginn 8.
des. nk. kl. 20.30 að Seljabraut 54,
og býður félagið öllum 67 ára og
eldri í Breiðholti 1 og 2 til
kaffidrykkju og samverustundar
með félagskonum og fjölskyldum
þeirra.
Lánaði sjálfum sér
fé kommúnunnar
FIMM menn sitja í gæzluvarð-
haldi vegna nokkurra þjófnað-
armála, sem Rannsóknarlögregla
ríkisins hefur nú til meðferðar og
aðrir þrír eru í haldi. Flestir
þessara manna eru sibrotamenn.
Einn þeirra manna, sem inni
sitja, þótti hafa furðumikil aura-
ráð þegar þess var gætt að hann
var ekki í neinni vinnu. Við
réttarhöld í sakadómi Reykjavík-
ur viðurkenndi maðurinn að hafa
tekið fé úr sameiginlegum sjóði
kommúnu einnar í borginni, sem
hann býr í, alls milli 115 og 120
þúsund krónur auk 40 sterlings-
punda. Kvaðst hann hafa fengið
peningana að láni en er hann var
nánar spurður um lánið kom í ljós
að hann hafði sjálfur lánað sér
peningana og enginn annar í
kommúnunni hafði gefið heimild
til lántökunnar.
Ályktun þings Sjómannasambandsins:
Felldur verði niður
söluskattur af ör-
yggisbúnaði skipa
A 12. þingi Sjómannasam-
bands íslands komu fram nokkr-
ar ályktanir um öryggis- og
tryggingamál. Er þar m.a. sett
fram krafa um að sjálfvirkum
sleppibúnaði verði komið fyrir á
öllum gúmbjörgunarbátum og
jafnframt er þess krafist af
rikisstjórn ug Alþingi að felldur
verði niður söluskattur af hvers
kyns öryggisbúnaði til skipa.
Þá fagnar þingið tilkomu nýrrar
Fyrirlestur í
KHÍ um skreyt-
ingar utanhúss
GESTUR Þorgrímsson lektor flyt-
ur erindi í stofu 301 í Kennara-
háskóla íslands kl. 16.15 miðviku-
daginn 12. nóvember. Erindið
fjallar um vinnu og framkvæmd
skreytingar utanhúss við íslensk-
ar aðstæður.
öllum er heimill aðgangur.
þyrlu Landhelgisgæslunnar, en
mótmælir „harðlega þeim fráleitu
vinnubrögðum fjárveitingarvalds,
að skera stórlega niður rekstrarfé
til starfsemi Landhelgisgæslunn-
ar á sama tíma og efling hennar er
þjóðarnauðsyn". Þingið bendir á
nauðsyn betri og fullkomnari
læknisþjónustu en nú er fyrir
sjómenn. „Enda þótt heilbrigðis-
reglugerð mæli svo fyrir, að með
heilsufari sjómanna skuli fylgst,
er í flestum tilfellum, við ráðningu
sjómanns, í engu eftir þessari
reglugerð farið.“
Fagnað er útkomu reglugerðar
um aðbúnað, hollustuhætti og
öryggi í skipum, skipsstjórnar-
menn eru minntir á þann öryggis-
hlekk, sem tilkynningaskyldan er
og hvattir til að sinna henni og
skorað er á útgerðarmenn að
hefjast handa í samvinnu við
sjómannasamtökin um fræðslu
fyrir sjómenn hvað viðkemur
öryggistækjabúnaði um borð og
notkun hans.
Forseti Hæstarétt-
ar Finnlands
staddur hérlendis
- heldur fyrirlestur í Norræna húsinu
Curt Ol8son
IIÉRLENDIS er staddur um
þessar mundir forseti Hæsta-
réttar Finnlands, Curt Olsson.
Hann er hér í boði Norra'na
hússins og Dómarafélags ís-
lands og kemur i tengslum við
ársfund Dómarafélagsins.
Hann mun flytja fyrirlestur i
Norra'na húsinu í kvöld kl.
20.30 og nefnir hann fyrirlest-
urinn „Finlands domstolsvás-
ende, i gár, i dag, i rnorgon**.
Curt Olsson er fæddur í Hels-
inki 1919, og stundaði nám sitt
þar. Hann lauk doktorsprófi í
lögfræði frá Helsinki-háskóla
1950, og stundaði framhaldsnám
í Skandinavíu, Englandi og
Bandaríkjunum. Hann hi-fur
verið prófessor við Sænska
verslunarháskólann í Helsinki
og var rektor skólans um margra
ára skeið. Forseti Hæstaréttar
Finnlands í Helsinki varð hann
1975.
,ETERNA27’
yngir og frískar allan
sólarhringinn
24-Hour Crtaw
withpmgemtt*
CrhmJenrttW
álapnf***
Ltema2T’
revloN j/
„Eterna 27“-24 Hour Cream, með
Progenitin, samlagast húðinni strax,
örvar rakamyndun og mýkir upp þurrar
húðfrumur.
„Eterna 27“ berst gegn öldrunar-
einkennum og gefur húðinni ungiegan
og frísklegan blæ á ótrúlega skömmum
tíma.
„Eterna 27“ kvölds og morgna með
frábærum árangri.
. *
cJénvsriófZci ” *