Morgunblaðið - 09.12.1980, Side 10

Morgunblaðið - 09.12.1980, Side 10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980 10 Mím fyrstu bók skrifaði ég eiginlega í vestisvasanum GuAmundur L. Friðfinnsson rithöfundur er sjötíu og fimm ára í daK. Hann er fæddur að EkíIsA, Noröurárdal. Skaga- firði, 9. desember 1905, ólst þai upp <m hefur búió þar alla sina tíð. Guómundur stundaði nám við héraðsskólann að Laujjar- vatni ok tók próf frá hænda- skólanum á Ilvanneyri 1931. Hann gerðist bóndi að Ltdlsá 1932 og er það enn. Kona Guðmundar er Anna S. Gunn- arsdóttir. Þau ráku um skeið barnaheimili um sumartímann að Lirilsá <m var þá stundum man't í heimili, um hundrað manns þegar mest var. Guðmundur hefur jafnan stundað ritstörfin jafnframt húskapnum. Ilann hefur skrif- að skáldsöKur, smásöKur, leik- rit ok Ijóð. Framhaldsleikrit eftir hann hafa verið leikin í útvarp ok sjálfur hefur hann lesið eina skáldsoKU sína, Mátt- ur lífs ok moldar. upp í útvarp. Blaðamaður MorKunblaðsins ra ddi við Guðmund er hann var á ferð í Reykjavík fyrir skömmu. Við hófum samtalið á því að ræða þær samfélaKs- breytinKar sem orðið hafa á íslandi undaníarna sjö áratUKÍ. — Ég hef í raun lifað tvær aldir, kyrrstöðuöld og tækniöld," sagði Guðmundur. „Kyrrstöðu- öldin var alls ekki breytingalaus, þó ég nefni hana svo, en þá voru allar breytingar ákaflega hæg- fara. Að vísu hefur margt farið úrskeiðis við aldahvörfin en þær breytingar, sem leiddu til þeirra, fela í sér viðleitni til að bæta heiminn og vissulega hafa orðið framfarir á mörgum sviðum. Maður verður alltaf að lifa í nútíðinni og þegar hlutlaust mat kemur til finnst mér heimurinn hafa batnað. Nú er meiri sam- hjálp og að sjálfsögðu hefur fólk meira af öllu. Áður þurftu menn til dæmis að greiða fyrir sig hjá lækni og ef þeir fóru á sjúkrahús — það var oft mjög erfitt því flestir höfðu svo lítil auraráð. Fólk fór ekki á sjúkrahús fyrr en í seinustu lög og ég man að það að lenda á sjúkrahúsi þótti ganga næst því að deyja. Þrátt fyrir þetta get ég ekki neitað að ég sakna margs sem horfið er. Baðstofulífið hafði sinn sjarma og það eru hugljúfar minningar sem tengjast kvöld- vökunum. Það var mikið tjón fyrir íslenzkt menningarlíf að þær lögðust af. Ég man að stundum stóðu kvöldvökurnar fram á nótt, oft var til dæmis lesið eða sagðar sögur eftir að fólk var háttað og komið upp í rúm. Menn gáfu sér betri tíma þá. Ég man að það var nokkuð algengt að sveitungar okkar komu og gistu, sérstaklega fyrri hluta vetrar. Þeir gerðu sér venjulega eitthvað til erindis en voru fyrst og fremst að þessu sér til gamans. Skepnurnar áttu líka stóran þátt í þessu samfélagi, þær voru meira en bara atvinnu- tæki. Fólkið leit á þær sem félaga og vini. Hundinn, köttinn, hestinn og kindina svo ég tali ekki um blessaðar kýrnar. Þó verð ég að játa að maður horfir ef til vill um of á gamla tímann gegn um rómantísk gleraugu — gleraugu sem maður vill þó helzt ekki taka ofan. Með fólksfækkun í sveitum brast mikilsverður hlekkur í þjóðlífinu. Sjóndeildarhringur- inn var furðanlega breiður hér áður fyrr. Menn töluðu um bækur og menningarstrauma, meira að segja heimspólitík, fóru með ljóð og sögðu sögur. Búmenningin var hins vegar á lægra plani, kannski jafnvel ekkert aðalatriði. Þar hefur fiestu farið fram a.m.k. tækni- lega. — Það getur vel verið að finna megi framleiðsluform sem gefur fleiri fljótandi krónur. En það er menningarlegt viðhorf að halda öllu landinu í byggð. Frekari byggðaröskun en orðin er fyrirgefur framtíðin aldrei. Það er ég viss um. Það er fleira en gömul hús sem ber að varð- veita. En trúarbrögðin — hafa þau ekki líka tekið breytingu? — Jú, þau voru dálítið öðruvísi á þessum tíma, bókstafstrúin gamla var á undanhaldi en það er eins og hún sé að sækja á aftur núna. Það var mikil virð- ing borin fyrir trúarbrögðum og bænrækni var innrætt börnum. Menn voru yfirleitt trúaðir, að ég held, og efuðust fáir eða engir um framhaldslíf. En gagnvart eilífðarmálunum- verður mann- legur skilningur líklega ávalt þröngur. Ég trúi á Guð og Island það máttu hafa eftir mér. Þú ert semsé enginn kreddu- trúarmaður, Guðmundur? — Nei, mér er illa við allar kreddur. Það þurfa að sjálfsögðu að vera reglur og form en formið getur orðið aðalatriðið áður en menn vita af. Innihaldið er hins vegar það sem skiptir máli fremur en umbúðirnar. Frelsið til að leita og skoða er aðall manneskjunnar. — Leitin að því óhöndlanlega hefur leitt okkur út úr frumskógum og hellum. Ég virði trúarbrögð og skoðanir annarra og ætlast til þess sama af öðrum gagnvart mér. Kristur segir: „Það sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skulið þið og þeim gjöra." Þetta var ég að reyna að segja krökkunum mínum á barnaheimiiinu þegar ég las með þeim bænirnar á kvöldin. En ég tók líka fram að vegna ófullkomleika okkar væri ekki að vænta skjótfengins ár- angurs. En betra væri að vita en vita ekki og viðleitnin leiddi þó oftast til einhvers árangurs ef ekki væri gefist upp. Kannski eru þau búin að gleyma þessu núna — þau voru svo ósköp lítil. Mér þótti alltaf vænt um börnin og þykir enn, og óska þess af alhug að þeim vegni vel. Sama vil ég segja um starfsfólkið — þetta var oft ströng vinna en samstarfið yfirleitt mjög gott. Konan mín, Anna Gunnarsdótt- ir, stóð við hliðina á mér í þessu sem öllu öðru. Nú erum við hætt með barnaheimilið enda hefur hún misst heilsuna. Mér finnst ég verði að nota þetta tækifæri til að senda öllum þessum börn- um og fólki kveðju okkar með þakklæti fyrir samveruna. Þú vilt semsé að menn beiti sig sjálfsgagnrýni jafnt í trú- málum sem öðru? — Sjálfsgagnrýni og leit, þetta tvennt er móðir allra framfara — ef manneskjan hefði aldrei farið að grufla út í hið ókunna byggjum við sjálfsagt enn í hellum. Og það er áreiðanlega margt sem maðurinn á eftir að uppgötva ekki síst í sambandi við sjálfan sig. Maðurinn þekkir ekki nema brot af heiminum og enn minna af sjálfum sér — sennilega erum við enn að grufla einhversstaðar á grunnslóð. Áttu þá við þessa dulrænu hæfileika sem sumir virðast hafa til að bcra? — Bæði og. Mannshugurinn býr sennilega yfir mikilli orku — í Biblíunni stendur að trúin geti flutt fjöll. En er það ekki máttur Guðs sem Kristur átti við? — Að sjálfsögðu. Einar á Einarsstöðum, sem landskunnur er fyrir huglækningar sínar, hefur alltaf tekið það skýrt fram að sá máttur, sem hann notar til huglækninga, sé ekki frá sér kominn, heldur sé hann aðeins verkfæri í höndum Guðs. Því skyldum við ekki líka vera verk- færi hins yfirskilvitlega máttar. Það er oft komist svo að orði að Guð sé á bak við allt — en ætli ekki sé óhætt að segja að hann sé í öllu. Ég trúi alveg skilyrðis- laust á Guð sem einhverja ókunna stærð. En að skilgreina þá stærð, ja, það er náttúrlega manninum eiginlegt að glíma - Rætt við Guðmund L. Friðfinnsson í tilefni af sjötíu og fimm ára afmæli hans stöðugt, hversu stórt sem verk- efnið er — en ef hann væri eitthvað sem hinum mannlega heila með sinum takmörkunum og aftur takmörkunum, væri unnt að skilja — þá væri það alls ekki Guð. Maðurinn er örlítill hlekkur í lífkeðjunni. í því er ábyrgðin fólgin. Við Guðmundur höfðum alveg gleymt okkur í umræðum um andann og eilifðarmálin þegar ég minnist þess um síðir að ég hafði ætlað að tala við hann um ritstörf hans. Ilvað varð til þess að þú byrjaðir að fást við ritstörf? „Ég veit það eiginlega ekki en þetta hlýtur að hafa verið ein- hvern veginn í manni. Sem unglingur iifði ég í hálfgerðum draumaheimi og það kom af sjálfu sér að ég fór að pára niður það sem ég var að hugsa — mér kom þá alls ekki til hugar að ég yrði nokkurn tíma rithöfundur. Mína fyrstu bók skrifaði ég eiginlega í vestisvasanum, enda bar handritið þess glögg merki. Ég hef ævinlega haft mikið að starfa. Það var ekki um annað að ræða en sameina ritstörfin öðr- um störfum þannig að ég var að hripa hjá mér þegar ég var við gegningar og önnur verk hvenær sem hlé varð á. Ég brenndi þessu fyrsta handriti mínu — það er ekki laust við að ég sjái dálítið eftir því. Hvers vegna brenndirðu því? — Já, það kom þannig til, skal ég segja þér, að ég sýndi það kunningja mínum sem var bók- menntamaður. Hann sagði að sér þætti tvennt athyglisvert við þetta handrit — hvað málið væri gott og svo hvað það væri óskaplega skítugt. Mér þótti lofið að sjálfsögðu gott en skammaðist mín svo fyrir síðari einkunnina að ég brenndi hand- ritinu. Það var reyndar ekki furða þótt blöðin væru velkt. Ég gekk með þau í vestisvasanum, skrifaði við alls konar störf og var þá ekki alltaf hreinn á höndunum eins og þó skilur. En þú hélzt áfram að skrifa? — Já, fáeinar vetrarvikur sem oft hafa þó verið úrgangssamar. Viðfangsefni mín hafa fyrst og fremst verið sveitalífssögur því það umhverfi þekki ég bezt. Mest hef ég fengist við skáldsöguna en einnig skrifað smásögur, leikrit og ljóð. í rauninni veit ég varla hvernig eða ég hef stolið tíma í þetta — ég hef alltaf haft margt að sýsla og verið svo margskipt- ur. Menn þurfa líka að eiga sér mörg áhugamál til að vera almennilega lifandi, ertu ekki sammála því? En þú hefur samt gefið þér tlma til að sinna þessu. Á veturna hægðist alltaf dálít- ið um. Það er ekki ótrúlegt að bækur mínar hafi goldið þess hve ég hef haft lítinn tíma. Annars þarf vissa hörku til að ráðast í að skrifa skáldsögu. Maður þarf eiginlega að skipta yfir á aðra bylgjulengd og það getur tekið alllangan tíma. Ég hef ævinlega verið fanginn af vorinu og aldrei getað setið við ritstörf eftir að komið er framá vor — ég efast um að ég hefði getað setið inni við ritstörf að sumarlagi jafnvel þá ég hefði getað leyft mér það. Það fylgir því svo mikið frelsi að fara út í vorið. Þá er líka svo margt sem togar í mig. Ég hef alltaf haft gaman af ræktun og skógrækt, — og trén hafa sprottið vel hjá mér, hvort sem það er vegna þess að ég hef hugsað ve! til þeirra eða út af einhverju öðru. Hvað vilt þú segja um bók- menntir nú til dags? — Ég les nú ekki nema brot af þessu, hef hreinlega ekki tíma, því miður. í raun er tíminn það eina sem maður á og þess vegna fylgir því nokkur ábyrgð hvernig með hann er farið. Menn hafa alltaf verið að þreifa fyrir sér á þessu sviði sem öðrum. Eins og ég hef þegar sagt virði ég leitina og breytinguna. Kyrrstaða er sama og dauði — ef hún er þá nokkur til. En það er engum greiði gerður þegar „sérfræð- ingar" taka einhverja slíka til- raun fyrir og segja að þarna sé sjálfur fullkomleikinn kominn. Það sem er nýtt í dag verður orðið gamalt á morgun og í staðinn komnar nýjar breyt- ingar. Lífið er síbreytilegt og þannig er allur góður skáldskap- ur — eins og sífelld endurfæð- ing. Endurfæðing — trúirðu að menn fæðist aftur? — Hvort við fæðumst aftur og aftur hingað á jörðina? — Já, það getur svo sem vel verið. Ég hef ekki hugmynd um það. Sjálf- ur hefði ég anzi gaman af því að fæðast aftur og myndi jafnvel gera mér að góðu þó það væri bara á þessa fallegu jörð. Og ég myndi snúa á aldurinn ef ég gæti það, en það er ekki svo auðvelt. Ég er viss um að vel er séð fyrir öllu, hvort sem við fæðumst aftur hér eða í einhverjum öðrum heimi. Það eru allstaðar lögmál í náttúrunni og að brjóta lög náttúrunnar — það er áreið- anlega synd. Kannski er þetta allt nokkurs konar hringur. En þetta er allt í góðum höndum — því treysti ég full- komlega. — bó.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.