Morgunblaðið - 09.12.1980, Blaðsíða 11
Galeiðan
Ný bók eftir Ólaf
Ilauk Símonarson
GALEIÐAN, ný bók eftir Ólaf
Hauk Símonarson. er komin út
hjá Máli (»k menningu. Þetta er
þriðja skáldsaga Ólafs Hauks, en
áður hefur hann sent frá sér
sögurnar Vatn á myllu Kölska og
Véjarbilun i næturgalanum.
Á bókarkápu segir um efni
bókarinnar: „Galeiðan er nútíma-
skáldsaga ... Lesandinn slæst í
hóp nokkurra stúlkna, sem vinna í
dósaverksmiðju, og lifir með þeim
súrt og sætt fáeina daga. Hann
kynnist aðstæðum þeirra heima
fyrir og á vinnustað og einnig
yfirboðurum þeirra, hærri sem
lægri.“
Galeiðan er 193 bls. Sigrid
Valtingojer myndskreytti bókina
og gerði kápumynd. Bókin er sett
og prentuð í Prentsmiðjunni
Odda. Sveinabókbandið annaðist
bókband.
Bókaforlagsbækur:
Salómon
svarti og
þrenning
BÓKAFOIiLAG Odds Björns-
sonar hefur sent frá sér tvær
bækur, aðra eftir íslenzkan
höfund, Hjört Gíslason. Bók
Hjartar heitir Salómon svarti
og er saga handa börnum.
Þetta er önnur útgáfa bókar-
innar. Myndir gerði Halldór
Pétursson.
Hin bókin, sem blaðinu hefur
borizt frá Bókaforlagi Odds
Björnssonar, heitir Þrenning og
er eftir Ken Follett, en Her-
steinn Pálsson íslenzkaði. Þetta
er önnur skáldsaga Folletts sem
kemur út á íslenzku, hin fyrri
var Nálarauga.
Á bókarkápu er sagt að
Þrenning sé njósnasaga og í
henni sé reynt að ímynda sér
raunverulega ástæðu þess að
Sadat, forseti Egyptalands,
sótti heim forna fjandmenn,
ísraela, í Jerúsalem. Leyniþjón-
usta Israels hafi 1968 komizt að
því, að Egyptar muni innan
nokkurra mánaða eignast
kjarnorkusprengju með aðstoð
Sovétríkjanna -r og þyrfti þá
ekki að spyrja að leikslokum, ef
ekki yrði að gert. Um þessi efni
fjallar sagan.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980
11
Ein í þessari
fjölskyldu er
Við eigum auðvitað við Philco, - vegna þess að
Philco þvottavélarnar hafa unnið sér þýðingar-
mikinn sess í fleiri þúsund íslenskum fjölskyld-
um. Þess vegna er Philco talin til fjölskyldunnar.
tökubam
Philco er sþarneytin á vatn og orku. Hún tekur inn
á sig þæði heitt og kalt vatn og sparar þannig tíma
og rafmagn sem annars færi í upþhitun vatnsins.
Að auki þvær hún jafnvel erfiðustu þvotta með
einstöku jafnaðargeði dag eftir dag, - skólaföt,
vinnuföt, spariföt og hvers konar þvott, jafnt
grófan sem fínan.
Philco - ein af fjölskyldunni heimilistæki hf
HAFNARSTR/ETI 3 - 20455 — SÆTÚN 8 — t5655
Forysta í f ramförum
SEGULL HF.
Einkaumboð á Islandi
Nýlendugötu 26
Sími: 13309-19477