Morgunblaðið - 09.12.1980, Síða 16

Morgunblaðið - 09.12.1980, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980 Fyrsti dagur fyrsta bankamannaverkfallsins: Ein gjaldeyrisundanþága vegna slyss veitt í gær VERKFALLSVARZLA félaKa í Samhandi íslenzkra hanka- manna hófst í Karmorjíiin klukkan 08.30 með því að verk- fallsverði hankamanna ma ttu á öllum vinnustöðum. Settu hankamenn upp límmiða á allar dyr hanka og sparisjóða. þar sem þeir skýra sin sjónarmið fyrir viðskiptavinum hank- anna. sem huKsanlejca kæmu að læstum dyrum. Á miðanum stendur: „LOKAÐ — vegna verkfalls bankamanna. Við biðjum viðskiptavini velvirð- ingar á þeim óþægindum, er þetta kann að valda þeim. Verkfall reyndist óumflýjanlegt til þess að knýja fram leiðréttingu á kjörum okkar. Starfsfólk." Samkvæmt upplýsingum Jóns ívarssonar, fulltrúa í verkfalls- nefnd bankamanna þótti rétt að setja slíka miða á dyr allra vinnustaða bankamanna til þes3 að milda sjónarmið viðskiptavin- anna, sem kæmu að lokuðum dyrum. Verkfallsverðir gengu síð- an inn í þær stofnanir, sem verkfallið náði til og fylgdust með því, að þar ynnu ekki aðrir en þeir, sem rúmuðust innan þess ramma, sem leyfilegt er. Jón kvað ekkert hafa verið um verkfalls- brot, en til slíkra brota teljast aðeins þau tilvik, að framkvæmd- ar yrðu einhverjar afgreiðslur, sem væru ekki heimilar sam- kvæmt samningi við bankana. Ágreiningur var um hvaða fólk mætti vinna og mættu nokkrir aðilar í vinnu, sem máttu ekki vinna samkvæmt skilningi SIB. Þá bárust í gær þrjár formlegar undanþágubeiðnir, nokkrar bár- ust símleiðis og voru væntanlegar skriflegar og einnig bárust bankamönnum bréf, þar sem lýst var hugsanlegum undanþágu- beiðnum, sem myndu berast og var þá jafnframt farið fram á að þeim yrði tekið með velvilja. Ein þessara undanþágubeiðna, sem barst var frá Póstgíróstofunni, þar sem óskað var eftir sérstök- um gögnum, sem unnin hafa verið í reiknistofu bankanna, tölvuvinnsla, og óskaði Póstgíró- stofan eftir að fá þessi gögn afhent. Var beiðninni hafnað, þar sem að mati SÍB var ekki unnt að flokka beiðnina til neyðartilvika. Þá barst undanþága almenns eðlis frá Félagi íslenzkra stór- kaupmanna um innflutning á lyfjum og varahlutum. Henni var hafnað, þar sem bankamenn töldu hana of almenns eðlis, en kváðust myndu skoða hvert ein- stakt tilvik, er það kæmi upp. Loks barst undanþága um gjald- eyrisyfirfærslu vegna læknis, sem fylgja átti slösuðum Græn- lendingum til Kaupmannahafnar. Var það eina undanþágubeiðnin, sem bankamenn samþykktu. Þessi undanþága var vegna brunaslyss, sem varð í Scoresby- sund á austurströnd Grænlands í fyrradag og voru hinir slösuðu fluttir til Reykjavíkur á Land- spítalann. Samkvæmt mati lækn- is á gjörgæzludeild voru líflíkur mannnanna meiri, ef unnt væri að koma þeim í sjúkradeild, þar sem væri fólk sérþjálfað í með- ferð brunasára. Á laugardag hófst sáttafundur i deilu bankamanna og bankanna og fylktu hankamenn þá liði við „Karphúsið“, hús sáttasemjara ríkisins i Borgartúni. Þurftu samningamenn að ganga inn milli bankamannanna, sem vildu með þessu sýna samstöðu sina i deilunni. - Ljósm.: Emilia. Bankamenn að verkfallsstörfum í húsakynnum SÍB. LOKAÐ VEGNA VERKFALLS BANKAMANNA Við biðjum viðskíptavini velvirðingar á þeim éþægindum er þetta kann að valda þeim. Verkfalt reyndist óumtlýjaniegt til þess að knýja fram leiðréttingu á kjörum okkar. Starfsfólk. Limmiðinn, sem bankamenn limdu á byr banka og sparisjóða árdegis i gær. Bankamenn notuðu tæknina til hins ítrasta við verkfallsvörzlu sína og voru á talstöðvarbílum á ferli í bænum. Jón ívarsson kvað marga bankamenn vera með tal- stöðvar í bílum sínum og væru í Félagi farstöðvaeigenda. Buðu þeir strax sína þjónustu að þessu leyti „og þáðum við hana, þar sem hún skilar miklum og góðum árangri," sagði Jón Ivarsson. Hann kvað margt fólk hafa kom- ið á skrifstofu SIB í gær og boðið aðstoð sína. „Verðum við seint uppiskroppa með starfsfólk, sem vill vinna að okkar málum. Það er greinilega mikill einhugur meðal bankamanna um þetta verk- fallsmál og þeir standa mjög vel saman." Samkvæmt samningi bank- anna og bankastarfsmanna um kjaradeilu aðilanna mega 5% starfsmanna vinna að öryggis- vörzlu og við afgreiðslu á erlend- um skuldbindingum bankanna sjálfra og ríkisins. Þannig unnu aðeins 6 menn í Seðlabankanum í gær auk bankastjóra og aðstoðar- bankastjóra og forstöðumanns hagdeildar Seðlabankans. Búnaðarbankinn i fyrsta verkfalli bankastarfsmanna, aðeins dyravörður er í salnum. - Ljósm.: ói.K.M. Tómlegt var um að litast i Landsbankanum i gærdag. Afgreiðslusalur Landsbankans um miðjan dag i gær. Hjappcflrætfió „Islenzk listaverk 1980“ Muniö gíróseölana. Greiöa má þá í peningastofnunum eöa pósthúsum, sem næst þér eru eöa koma greiöslu til skrifstofu Sjómannadagsráös aö Hrafoistu í Reykjavík. Sjómannadagsrád

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.