Morgunblaðið - 09.12.1980, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 09.12.1980, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980 Grímnir sýn- ir Markólfu eftir Dario Fo Stykkishólmi. 5. des. 1980. LEIKFÉLAGIÐ Grímnir í Stykk- ishólmi er nú að æfa gamanleik- inn Markólfu, eftir Dario Fo, en Signý Pálsdóttir, kennari hér, hefir snúið honum á íslensku. Leikstjóri þessa gamanleiks er Jakob S. Jónsson. Ætlunin er að frumsýna verkið í félagsheimili Stykkishólms, laugardaginn 20. des. nk. og síðan sýna hann áfram bæði i Hólmmum og eins víðar, eftir því sem tækifæri bjóðast um jólin og eftir áramót. Leikarar eru 7, Elín Jónasdóttir, Svanhildur Jónsdóttir, Guðrún Hanna Ólafsdóttir, Jóhannes Björgvinsson, Vignir Sveinsson, Björgvin Guðmundsson og Guð- mundur Agústsson. Ágætt færi er nú um allt Snæfellsnes. Mjólkurbílar hafa haldið sinni rútu í allt haust og svo er einnig um áætlunarferðirn- ar. Baldur fer nú yfir Breiðafjörð einu sinni í viku, og fer hann frá Stykkishólmi á föstudögum kl. 9 um morguninn. Er Baldur nú nýkominn úr slipp þar sem ýmis- legt var lagfært. Þótt nú sé ekki langt til jóla vantar hér mest allan jólasvip, og ef til vill hafa menn ekki áttað sig á hversu jólin eru nærri. Þó er jólavarningurinn farinn að berast og með hverjum deginum sem líður eykst vöruúr- valið og þá koma skreytingarnar og helgisvipurinn færist jafnóðum yfir. Fréttaritari Guðbjörg frá ísafirði með 576,5 tonn i nóvember GUÐBJÖRG frá ísafirði kom að landi með 576,5 tonn af fiski í siðasta mánuði og er það óvenju- lega mikill afli. Guðbjörg var aflahæst Vestfjarðatogaranna í mánuðinum, en í nóvember i fyrra var Páll Pálsson frá Hnífs- dal aflahæstur með 354,2 lestir. Guðbjörg landaði fjórum sinn- um í nóvember í 4 eða 5 túrum. í yfirliti frá skrifstofu Fiskifé- lags íslands á ísafirði um afla- brögð og sjósókn í Vestfirðinga- fjórðungi í nóvember kemur fram, að Ólafur Friðbertsson frá Suðureyri var aflahæstur línu- bátanna með 165 lestir í 21 róðri, en í fyrra var Orri frá Isafirði aflahæstur í nóvember með 214,5 lestir í 20 róðrum. í yfirlitinu segir, að tíðarfar hafi verið fremur hagstætt til sjósóknar í nóvember miðað við árstíma og afli yfirleitt góður. Heildaraflinn í mánuðinum var 7.889 lestir, en var 7.330 lestir í fyrra. Heildaraflinn á árinu er þá orðinn 88.176 lestir, en var 83.728 lestir á sama tíma í fyrra. 19 Guðlaugur Bergmann: Slíðrið sverðin — sættist heilum sáttum — ef þið gerið það ekki... Þar sem nafn mitt hefur komið fyrir almenningssjónir á síðum Morgunblaðsins í sam- bandi við boð um ráðherrastöðu í núverandi ríkisstjórn, byggt á heimildum úr bókinni „Valdatafl í Valhöll", finnst mér rétt að upplýsa minn litla þátt í þessu ógeðfellda (svo ekki sé meira sagt) sjónarspili. Ég hef ekki lesið umrædda bók. Þess þarf ég eðlilega ekki til að upplýsa eftirfarandi, þar sem ég á sjálfur í hlut. Ég er sjálfstæðismaður, einn fjörutíu — fimmtíu þúsund Islendinga. Ég hef mjög takmarkað starfað við flokksstarfið. Til þess hafa valist aðrir menn. Ég hef litið á Sjálfstæðisflokkinn, sem eina aflið í þessu landi til að berjast við höfuðóvin okkar (og alls heimsins) „kommúnismann". Þegar „r'úblu“-leiðarinn frægi birtist í Morgunblaðinu, daginn eftir að ljóst var, að Gunnar Thoroddsen vildi reyna stjórn- armyndun, fannst mér, sem og fjölmörgum öðrum sjálfstæðis- mönnum að þessi leiðari og síðan samskonar leiðarar og skrif í Morgunblaðinu, málgagni Sjálf- stæðisflokksins (allra sjálfstæð- ismanna), væru ótímabær og til þess eins fallin að hella olíu á eld og gætu orðið flokknum og framtíð hans stórhættuleg. Varaformaður flokksins vildi reyna stjórnarmyndun og sóttist eftir fulltingi. Það var allt og sumt. Ég fór á fund annars ritstjóra Guðlaugur Bergmann. þessa blaðs, Styrmis Gunnars- sonar, og lét mörg þung orð falla í hans garð. Ekki urðum við á eitt sáttir, en viðræður okkar urðu til þess, að við vildum reyna sættir milli stríðandi afla. Ég er málkunnugur Gunnari Thoroddsen og frú og syni þeirra, Ásgeiri. Það er skemmst frá að segja að þessi tilraun okkar bar engan árangur, enda til hennar stofnað af mér, meira af kappi en forsjá, þar sem ég telst vægast sagt leikmaður á pólitískum vettvangi. Ég varð reynslunni ríkari. Pólitísk sið- fræði er öðruvísi en ég hélt. Þetta voru mín einu afskipti af þessu máli. Sverri Hermanns- son þekki ég ekki. Við hann hef ég aldrei taíað og nóg um það. Ekki get ég sagt að það gleðji mig, þótt ég geti í dag sagt að hrakspár mínar hafi reynst rétt- ar. Gunnar Thoroddsen og sam- ráðherrar úr Sjálfstæðisflokkn- um eru komnir út í horn í vinstri ríkisstjórn. Kommúnistar vaða uppi. Það sem þeir þorðu áður aðeins að segja á „sellu“-fundum segja þeir nú á Alþingi Islend- inga. Innan Sjálfstæðisflokksins eiga sér nú stað flokkadrættir á hæsta stigi. Barist er um völd á öllum hugsanlegum sviðum. Lágkúran í algleymingi og stefnuskráin fallin í gleymsku. Hinn almenni kjósandi Sjálf- stæðisflokksins horfir á þá menn, sem kosnir hafa verið til forsvars í flokknum, til baráttu fyrir lýðræði, til baráttu við þau öfl sem vilja fótum troða lýð- ræðið í landinu, berast á bana- spjótum og nota flokkinn í eig- ingjörnum tilgangi í valdabrölti og metingi. Mér finnst ég tala fyrir hönd flestra almennra kjósenda Sjálf- stæðisflokksins, þeirra sem skapa flokkinn, er ég segi: Slíðr- ið sverðin. Sættist heilum sátt- um. Ef þið gerið það ekki höfum við ævarandi skömm á ykkur og munum beita því eina valdi sem þið skiljið, atkvæði okkar. Alpa kemur mjúkt inn úr kuldanum Veistu aö Alpa kemur mjúkt inn úr kuldanum? Þess vegna er auðvelt að smyrja því á brauðið, beint úr ísskápnum. Veistu að Alpa er einstaklega gott til að steikja og baka úr? Við steikingu og bakstur kemur hið Ijúffenga Alpabragð vel fram, og gerir matinn sérlega bragðgóðan og girnilegan. Veistu aö á botni hverrar Alpa- öskju er uppskrift? Þú getur safnað uppskriftum af gómsætum réttum og kökum. Með hverri öskju færö þú nýja uppskrift. Veistu aö litarefniö í Alpa er B-karotin? Það er unnið úr gulrótum og þrungið A-vítamíni Aö auki er svo D-3 vítamíni, bætt í Alpa. Nú veistu að allt þetta og meira til, gerir Alpa ómissandi á brauðið, í baksturinn, á pönnuna. 4 4 t «4Ay • smjörlíki hf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.