Morgunblaðið - 09.12.1980, Page 24
51
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980
Sigurlás skoraði 17 mörk gegn Þór
Þorbergur Aðalsteinsson keni
Sigurlás brýst í gegn og skorar. Ljósm. Sigurgeir.
SIGURLÁS Þorleifsson, landsliðskappinn í knattspyrnunni, var
heidur betur i essinu sínu á laugardaginn þegar hann lék með félagi
sinu Tý gegn Þór Ak. i 2. deildinni í handboltanum. Að skora mörk er
sérgrein Sigurlásar. ekki síður í handboltanum en knattspyrnunni og
hann gerði sér lítið fyrir kappinn og skoraði 17 mörk gegn Þórsurum.
Ekki iítið afrek því Týr sigraði i leiknum 25—21.
Þórsarar gerðu engar sérstakar
ráðstafanir til þess að stöðva
Sigurlás og má það teljast all
furðulegt því Lási skoraði 10 mörk
í f.h. Svo er að sjá sem Þórsarar
séu þegar lagðir af stað niður í 3.
deildina, alla vega verður liðið að
taka sér ærlegt tak ef það á að
eiga sér viðreisnar von.
Leikur þessi var lengst af nokk-
uð slakur en fyrir brá þó nokkrum
góðum köflum hjá báðum liðum en
þeim fleiri frá Týrurum. Þórsarar
komust yfir í byrjun en síðan
jafnaðist leikurinn og í lokin á
fyrri hálfleiknum sigu Týrarar
framúr og höfðu yfir í hlénu
15—12. Þórsarar náðu að minnka
muninn niður í eitt mark á fyrstu
mín. s.h. en Týrarar hleyptu þeim
aldrei of nærri og náðu að halda
3—4 marka forskoti út leikinn.
Lokatölurnar sem fyrr segir 25—
21 og þriðji sigur Týs í röð var
innsiglaður. Þórsarar hírast enn
einir á botninum með aðeins eitt
stig og horfa eflaust með nokkrum
hrolli til næstu mánaða.
»TÉ Ak 25-21
Sigur Týs var öruggur en þrátt
fyrir það lék liðið ekki sérlega vel
að þessu sinni. Sóknarleikurinn
var nokkuð góður og framlag
Sigurlásar var stórkostlegt. Varn-
arleikurinn var ekki nægilega
sannfærandi og því ekki mikið
varið hjá markvörðunum. Sigurlás
Þorleifsson átti sannkallaðan
stórleik, ekki árennilegur þegar
hann er í þessum ham. Olafur
Lárusson átti góðan leik en var
óheppinn með skotin.
Þórsarar mega heldur betur
taka sig á ef þeir ætla að forða sér
frá falli. Leikur liðsins var ákaf-
lega óöruggur og einhæfur. Liðið
byggir nærri eingöngu á einstakl-
ingsframtaki og ekki er því að
neita að liðið á skyttur góðar þar
sem þeir Sigurður Sigurðsson og
Sigtryggur Guðlaugsson og áttu
þeir báðir nokkuð góðan leik en
besti maður liðsins var samt
línumaðurinn snjalli Árni Gunn-
arsson.
Mörk Týs: Sigurlás Þorleifsson
17 (6 víti), Ólafur Lárusson 3, Logi
Sæmundsson 2, Davíð Guð-
mundsson 2, Magnús Þorsteinsson
1.
Mörk Þórs: Sigurður Sigurðsson
6, Árni Gunnarsson 5, Sigtr.
Guðlaugsson 4, Guðmundur
Skarphéðisson 3, Einar Arason 1,
Sigurður Pálsson 1, Davíð Þor-
steinsson 1.
Góðir dómarar leiksins voru
Rögnvald Erlingsson og Guð-
mundur Kolbeinsson.
— hkj.
• Heimir Karlsson Víkingi og Atli Hilmarsson
Fram berjast um boltann.
Fram«
glætu {
- og staða li
Víkingur var ekki í erfiðleikum að tryg
íslandsmótinu i handknattleik og eftir
sama. að því leyti, að Fram situr enn blý
er á grænni grein, lang efst í deildinni.
verið erfiðari og er veruiega farið að syn
aldrei glætu gegn Víkingi, þrátt fyrir a<
og þeir best geta. Lokatöiur leiksins urði
staðan í hálfleik hafði verið 14—9.
ÍA tapaði í Eyjum
ÞÓR í Vestmannaeyjum vann
sigur á Akranesi i 3. deildinni
20—19 í leik sem fram fór í
Eyjum á föstudagskvöldið. Sigur
Þórs var á tæpasta vaði í lokin,
því Skagamenn ruddust upp í
hraðaupphlaup þegar innan við
10 sek. voru eftir af leiknum en
góður markvörður Þórs, Einar
Birgisson, varði og tryggði félagi
sínu sigurinn. Annars var það
merkilegt útaf fyrir sig að þetta
varð svo knappt í lokin því
Þórsarar höfðu haft algjöra yfir-
burði i öllum leik fram í miðjan
hálfleik hinn síðari og komust
mest i sjö marka forskot. En þá
kom enn einn slæmur kafli liðs-
ins sem hefur svo mjög plagað
liðið að undanförnu og Skaga-
menn, sem höfðu fram að því
KR:
Pétur Hjálmarsson 3
Jóhannes Stefánsson 5
Konráð Jónsson 4
Haukur Ottesen 3
Björn Pétursson 2
Friðrik Þorbjörnsson 4
Árni Stefánsson 5
Þorvarður Guðmundsson 2
Ragnar Hermannsson 2
Haukur Geirmundsson 4
Brynjar Kvaran 3
Valur:
Ólafur Benediktsson 8
Brynjar Harðarson 9
Gunnar Lúðvíksson 6
Jón Pétur Jónsson 6
Stefán Halldórsson 6
Jón H. Karlsson 4
Steindór Gunnarsson 7
Þorbjörn Jensson 6
Gísli Biöndal 4
Þorbjörn Guðmundsson 6
Þorlákur Kjartansson 5
verið ákafiega slakir, náðu að
minnka muninn niður í aðeins
eitt mark og höfðu svo tækifæri á
að jafna i lokin. Albert Ágústs-
son átti bestan leik Þórsara og
skoraði 4 mörk en þeir Ásmund-
ur og Andrés skoruðu einnig
fjögur mörk. Einar varði vel í
markinu.
Draumur Skagamanna um
sæti í 2. deildinni truflaðist veru-
lega við þetta tap þó sjálfsagt sé
að viðhalda voninni. Leikur liðs-
ins var lengst af mjög ráðleysis-
iegur og ómarkviss. Eini maður-
inn sem stóð uppúr i liðinu var
Kristján Hannibalsson sem skor-
aði 7 mörk hvert öðru glæsilegra,
Haukur Sigurðsson skoraði 5
mörk öll úr vitaköstum.
— hkj.
Lið Víkings:
Kristján Sigmundsson 5
Páli Bjorgvinsson 8
Árni Indriðason 6
Steinar Birgisson 6
Þorbergur Aðalsteinsson 7
ólafur Jónsson 7
Guðmundur Guðmundsson 5
Stefán Halidórsson 4
Gunnar Gunnarsson 5
Brynjar Stefánsson 4
Heimir Karisson 5
Lið Fram:
Sigurður Þórarinsson 4
Egill Steinþórsson 6
Axel Axelsson 6
Atli Hilmarsson 6
Erlendur Davíðsson 5
Hermann Björnsson 4
Björgvin Björgvinsson 4
Hannes Leifsson 4
Jón Árni Rúnarsson 4
Theodór Guðfinnsson 7
Jóhann Kristinsson 5
Egill Jóhannesson 4
Einkunnagjöfín
islandsmötlð 2. delld
Breióablik kom á
óvart og sigraði
-stórtap hjá Þór Akureyri
UBK - UMFA
20-19 (9-8)
HIÐ UNGA og efnilega lið Breiðabliks í handknattleik sem vann sér
rétt til þess að leika i 2. deild i fyrra, kom mjög á óvart er liðið sigraði
lið UMFA 20-19 að Varmá í Mosfellssveit á laugardag. Sigur
Breiðahliks var sanngjarn. Allan leikinn hafði liðið frumkvæði í
leiknum og lék mun betur en Afturelding gerði. Það veikti lið UMFA
verulega að Einar Magnússon puttabrotnaði illa í ieiknum og óvíst
mun vera hvort hann leikur meira með í vetur.
Breiðablik náði strax yfirhönd-
inni í leiknum og hafði eitt mark
yfir í hálfleik 9-8. Björn Jónsson
átti mjög góðan leik og dreif
félaga sína með sér. Af sjö fyrstu
mörkum UBK skoraði Björn sex.
Allur síðari hálfleikur var mjög
spennandi og hart var barist.
Hinir ungu og efnilegu leikmenn
UBK létu þó engan bilbug á sér
finna og börðust ótrauðir til sig-
urs.
Afturelding náði að jafna metin
18- 18 þegar fimm mínútur voru til
leiksloka. Ólafur kom UBK aftur
yfir 19-18, og spennan var í
hámarki. Afturelding jafnaði met-
in, og var þar Gústaf að verki
19- 19. Lokaorðið í leiknum átti svo
Breiðablik er Ævar skoraði glæsi-
lega með þrumuskoti. Sanngjarn
sigur var í höfn. Vonbrigði UMFA
voru mikil, enda minnka mögu-
leikar þeirra á sigri í 2. deild
verulega við þetta tap.
Bestu leikmenn Breiðabliks í
leiknum voru Björn og Ævar báðir
stórskemmtilegir leikmenn. Þá
átti Benedikt Guðmundsson ágæt-
an leik í markinu. Lið UBK
barðist vel allan leikinn og gaf
hvergi eftir.
Lið UMFA hefur oft leikið
betur. Baráttan var í lágmarki í
varnarleiknum og sóknarleikurinn
ekki nægilega beittur. Sigurjón
var einna bestur og skoraði 10
mörk í leiknum. Gústaf og Steinar
áttu ágætan leik.
Mörk Breiðabliks: Björn 8,
Ævar 7, Júlíus 2, Aðalsteinn,
Ólafur og Brynjar eitt mark hver.
Mörk UMFA: Sigurjón 10,
Gústaf 4, Steinar 3, Björn og
Magnús eitt hvor.
- þr.
HK — Þór Akureyri
29-19 (14-8)
HK SIGRAÐI Þór frá Akureyri
með miklum yfirburðum í 2. deiid
á sunnudag er iiðin léku að
Varmá. Sigur HK var bœði ör-
uggur og síst of stór miðað við
gang leiksins. Svo til allan leik-
inn var um algjöra einstefnu að
ræða hjá HK. Er ljóst að Þórsar-
ar verða að taka sig verulega á ef
liðið ætlar ekki að faila niður i 3.
deild i ár. Liðið er mun lakara en
oftast áður.
HK náði strax forystu í leiknum
og lék mun betur. Sex marka
munur var á liðunum í hálfleik.
Og þegar upp var staðið hafði HK
10 marka forskot. Besti maður í
liði HK var Hallvarður en Sig-
tryggur var skástur í liði Þórs.
Mörk HK: Sigurður 8 6v, Hall-
varður 5, Jón 6, Gunnar 3, Krist-
inn 3, KRistján 2, Hilmar 2.
Mörk Þórs: Sigtryggur 5, Guð-
mundur 4, Davíð 2, Sigurður 3,
Einar 2, Rúnar 2 og Árni 1.
- þr.