Morgunblaðið - 09.12.1980, Síða 25

Morgunblaðið - 09.12.1980, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980 25 Ljósm. Kristján E. iur á fullri ferð í gegn um vörn Fram og er ákveðinn í að skora. átti aldrei gegn Víkingi ðsins er nú gja sér tvö stig Kegn Fram á leikinn er staða liðanna hin fast við botninn, en Víkingur En staða Fram hefur aldrei ta i áiinn hjá liðinu. Liðið átti ) meistararnir iéku ekki eins 1 25 —17 fyrir Viking, eftir að Það var reyndar Fram sem gaf tóninn fyrstu mínúturnar og þá lék liðið betur. Víkingarnir virk- uðu þá þreyttir. En forysta Fram varð aldrei slík að einhverju tali tók, liðið var aðeins á undan til að skora allt upp í 3—2. En síðan ekki söguna meir, utan hvað Fram komst einnig í 5—4, eftir að Árni brenndi af úr vítakasti. En þegar hér var komið sögu, skoruðu Víkingarnir sex mörk gegn tveim- ur og breyttu stöðunni í 10—6. Þrjú gegn einu í viðbót breytti stöðunni í 13—8 og var þar með útséð hvort liðið myndi ganga með sigur af hólmi, þrátt fyrir að leikurinn væri ekki hálfnaður. Þó að Fram léki á köflum þokkalega, benti ekkert til þess að liðið myndi veita Víkingi keppni, Víkingsliðið virtist svo miklu, miklu betra. í síðari hálfleik dró síðan enn í sundur með liðunum og bætti ekki úr skák, að fjórir Framarar voru reknir af leikvelli með skömmu millibili. Gerðu þeir ekki annað af sér á meðan, en Víkingar bættu mjög við sig undir lokin, eins og liðið gerir jafnan, þegar draga tekur af andstæðingnum. Víkingur hafði umtalsverða yf- irburði í leiknum, eins og marka- Staðaní 2. deild Afturelding — Breiðablik 19-20 Týr - Þór, Ak. 25-21 HK - Þór, Ak. 29-19 HK 6 3 2 1 126-104 8 KA 5 4 0 1 111-89 8 Breiðahlik 6 3 1 2 125-134 7 Aftureiding 6 3 0 3 120-116 6 Týr 6 3 0 3 111-112 6 ÍR 5 13 1 97-91 5 Ármann 5 2 1 2 94-95 5 Þór, Ak. 7 0 1 6 135-178 1 vonlítil Fram - OE Víkingurlf— talan gefur til kynna, en engu að síður lék liðið alls ekki eins og það getur best. Einhver þreyta hefur áreiðanlega setið í leikmönnum eftir erfiða leiki að undanförnu og lái þeim það enginn. Steinar átti ágætan leik, einkum þó í vörninni, þar sem hann var þó full harð- hentur. Var hann útilokaður frá leiknum áður en yfir lauk. Þor- bergur var kröftugur framan af og fyrsta markið sem hann skoraði, fyrsta mark Víkings, var með fallegri mörkum sem sést hafa, þrumufleygur sem þaut þrívegis á milli stanganna áður en hann hafnaði í netinu. Annars voru þeir bestir hjá Víkingi, Páll Björg- vinsson og Ólafur Jónsson. Ungu mennirnir fengu töluvert að spreyta sig og þeir Gunnar og Heimir komust vel frá sínu. Það var fátt um fína drætti hjá Fram. Theodór Guðfinnsson gat þó vel við frammistöðu sína unað, hann lék mjög vel í hægra horn- inu. Atli átti góða spretti, einnig Axel og Egill Steinþórsson varði þokkalega í síðari hálfleik. En hlutskipti hans var ekki öfunds- vert, vörnin fyrir framan hann í molum. í stuttu máli: íslandsmótið í handknattleik, 1. deild: Fram — Víkingur 17—25 (9-14) Mörk Fram: Axel Axelsson 7, 5 víti, Theodór Guðfinnsson 5, Atli Hilmarsson 4 og Erlendur Dav- íðsson eitt mark. Mörk Víkings: Páll Björgvinsson 7, 3 víti, Þorbergur Aðalsteinsson 6, 2 víti, Ólafur Jónsson 5, Steinar Birgisson 3, Gunnar Gunnarsson 2, 1 víti, Heimir Karlsson eitt mark, Árni Indriðason eitt víti. Brottrekstrar: Steinar Birgisson í 4 mínútur plús útilokun, Þorberg- ur Aðalsteinsson, Axel Axelsson, Jóhann Kristinsson, Hannes Leifsson og Erlendur Davíðsson í 2 mínútur hver. Víti í súginn: Árni Indriðason brenndi tvívegis af í fyrri hálfleik. -gg- Valsmenn gersigruóu slaka KR-inga ^ 17-34 „VIÐ heimtum endurgreiðslu“, hrópuðu reiðir áhangendur KR í Laugardalshöll á laugardaginn, þegar Valsmenn gersigruðu ömur- lega lélegt KR lið i 1. deildinni i handbolta með ótrúlegum yfirburðum, 34 mörkum gegn 17. Þetta er leikur sem verður Valsmönnum og þá sérstakiega Brynjari Harðarsyni minnisstæður en KR—ingar vilja örugglega gleyma þessum leik sem fyrst, framistaða þeirra var hneykslanlega léleg. Valsmenn mættu mjög ákveðnir til þessa leiks og þeir tóku strax forystuna. Mótstaðan var engin hjá KR—ingum alveg frá fyrstu mínútu. Sóknarleikur þeirra var mjög einhæfur, sem sterk vörn Valsmanna réð auðveldlega við. Þau skot sem fóru í gegn lentu mörg í öruggum höndum ólafs Benediktssonar markvarðar, sem var í miklu stuði og varði alls 20 skot. En það skal reyndar haft í huga að mörg skotin voru máttl- aus og því auðveld viðfangs. Ósjaldan misstu KR—ingarniur boltann í hendur Valsmanna, sem brunuðu upp í hraðaupphlaup og skoruðu auðveldlega. í sókninni sýndu Valsmenn sínar beztu hlið- ar og gengu út og inn um afspyrn- ulélega vörn KR. Markvarzla KR var líka í molum, markverðir liðsins vörðu aðeins 5 skot sam- anlagt í leiknum en markverðir Vals vörðu 25 skot. I stuttu máli má segja, að Valsmenn hafi verið mörgum gæðaflokkum betri en KR—ingar á öllum sviðum hand- knattleiksins í þessum leik. Valsmenn tóku strax forystuna í leiknum og þeir juku hana stöðugt þegar á leikinn leið. Valsmenn komust í 3:0, 6:2, 13:6, 16:7 og í hálfleik var staðan 18:9. Ótrúlegar tölur. KR skoraði tvö fyrstu mörkin í seinni hálfleik og staðan varð 18:11 en þá tóku Valsmenn mikinn sprett og breyttu stöðunni í 27:12. Lokatöl- urnar urðu 34:17, helmings munur. Valsmenn léku eins og þeir sem valdið hafa að þessu sinni. í heild lék liðið vel en engir betur en Brynjar Harðarson og Ólafur Benediktsson. Brynjar hefur lítið leikið með í vetur en er kominn í Valsliðið að nýju og blómstraði í þessum leik, skoraði alls 15 mörk. Voru mörk hans skoruð á hinn margvíslegasta hátt, utan af velli, með gégnumbrotum, af línu, úr horninu og úr vítaköstum. Um KR liðið er bezt að hafa sem fæst orð. Það lék langt undir getu og leikurinn á laugardaginn hlýt- ur að verða alvarlegt umhugsun- arefni fyrir leikmenn og þjálfara. Mörk KR: Konráð Jónsson 4(2 v), Jóhannes Stefánsson 3, Þorv- arður Guðmundsson 3(2 v), Hauk- ur Ottesen 2(1 v), Árni Stefánsson 2, Haukur Geirmundsson, Björn Pétursson og Friðrik Þorbjörnss- on eitt mark hver. Mörk Vals: Brynjar Harðarson 15(4 v), Steindór Gunnarsson 6, Jón Pétur Jónsson 3, Gunnar Lúðvíksson 3, Þorbjörn Jensson 2, Þorbjörn Guðmundsson 2, Stefán Halldórsson 2 og Gísli Blöndal eitt mark. Brottvísanir af velli: Þorbjörn Guðmundsson 6 mínútur(útilokað- ur) og Þorbjörn Jensson 2 mínút- ur. Misheppnuð vítaköst: Konráð Jónsson skaut í þverslá úr einu vítakasti og yfir markið úr öðru. Brynjar Harðarson skaut yfir. -SS. Armenningar voru eins og börn í höndum UMFN NJARÐVÍKINGAR unnu sinn tí- unda leik í röð í úrvalsdeildinni i körfuknattleik, er liðið gersigr- aði Ármann 131—78 í Hagaskól- anum á laugardaginn. Var þetta jafnframt auðveldasti sigur liðs- ins í vetur, enda Ármenningar heillum horfnir. Þá hjálpaði það ekki upp á sakirnar. að James Breeler lék ekki með Ármanni, er sagður meiddur í baki. En hann sat ekki einu sinni á bckknum hjá Ármenningum. Stjórnlausir voru Ármenning- arnir eins og börn í höndunum á UMFN, sem sýndi sig vera mörg- um gæðaflokkum betra lið. En hvorugt liðið verður í raun dæmt af þessum leik, sérstaklega ekki lið UMFN. Liðið komst í 19—0 og 33—5. Voru yfirburðirnir svo óheyrilegir, að engu tali tók. Bilið jókst smám saman, staðan í hálf- leik var 66—36 og loks 53 stiga Kðrluknattlelkur V------------------------- Einkunnagjöfin Lið Ármanns: Guðmundur Sigurðsson 3 Valdemar Guðlaugsson 5 Hörður Arnarson 5 Davíð Ó. Arnar 4 Atli Arason 5 Bogi Franzson 3 Hannes Hjálmarsson 3 Kristján Rafnsson 6 Kári Schram 3 Lið UMFN: Jón Helgason 4 Brynjar Sigmundsson 5 Guðsteinn Ingimarsson 7 Gunnar Þorvarðarson 7 Jónas Jóhannesson 9 Valur Ingimundarson 6 Þorsteinn Bjarnason 6 Július Valgeirsson 7 munur er upp var staðið. Njarð- víkingarnir léku við hvern sinn fingur að þessu sinni og fengu allir að spreyta sig. Jónas Jóhannesson sýndi snilld- artilþrif í liði UMFN, hirti hann hvert frákastið af öðru og skoraði margar glæsilegar körfur. Þá var Shouse góður, en aðrir mjög jafn- ir, sem einmitt er styrkur UMFN. Kristján Rafnsson var bestur hjá Ármanni, Atli þokkalegur, en aðr- ir slakir. Stig Ármanns: Kristján Rafns- son 18, Valdemar Guðlaugsson 15, Hörður Arnarsson og Atli Arason 13 hvor, Davíð Ó. Arnar 8, Hannes Ármann - UMFN 78-131 Hjálmarsson 5 og Bogi Franzson 4 stig. Stig UMFN: Danny Shouse 32, Jónas Jóhannesson 24, Guðsteinn Ingimarsson 16, Júlíus Valgeirs- son og Gunnar Þorvarðarson 14 hvor, Þorsteinn Bjarnason 12, Valur Ingimundarson 10, Brynjar Sigmundsson 7 og Jón Helgason 2 stig. —gg Úrvalið af íþróttatöskum er hjá okkur Ódýrar íslenzkar töskur m/Fram, K.R. og Valsmerkj- um. v—Sundtöskur léttar og fallegar næl- ontöskur frá Puma mjög hentugar fyrir sundfötin og ýmislegt fleira. Verð aöeins kr. 4.800,- Höfum •innig fyrirliggjandi mikiö úrval af allskonar íþróttatöskum frá Puma í mörgum stsarðum. I vöryiwrslpiim Inqolf/ Ó/korf/Ofusr KLAPPArtSTIG 44 SIMI 11 783 r

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.