Morgunblaðið - 09.12.1980, Síða 26

Morgunblaðið - 09.12.1980, Síða 26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980 26 Fólk og fréttir í máli og myndum • Flestum varnarmönnum þykir ekki árennileKt að eiga viö enska landsliðsframherjann Tony Woodcock. Verra væri öruKKleKa við hann að eiga ef hann mætti leika þrælvopnaður eins og á þessari mynd. Myndu þá miðverðir ok bakverðir hugsa sig um tvisvar áður en þeir nálKuðust hann. Telja má þó nokkuð vist, að Woodcock skilji skammbyssuna eftir heima, ef hann þá á slikan Krip á annað borð. A.m.k. á hann ekki byssuna sem hann ber á myndinni, þannÍK stilltu þýskir ljósmyndarar honum upp er hann heimsótti lystÍKarð nokkurn i Köln, sem færður hefur verið upp á villta vestrið ... Allt frá fyrstu tíð hefur körfuknattleikur verið talinn íþrótt hinna hávöxnu. Hin eilifa barátta í körfuknattleik er baráttan milli hæðar og hraða. Eitt frægasta lið allra tima, Kullaldarlið Boston, Celtics lék mjöK hraðan körfuknattleik. í því liði Iék þó Bell Russel 2,07 m, sem af mörgum er talinn mesti snillinKur allra körfuknattleiksmanna. Frægasti leikmaður allra tíma er er 2,12 m á hæð og var fádæma maður á sínum tíma. Einn frægasti körfuknattleiks- maður Bandaríkjanna nú er Jabb- ar, sem er 2,19 m að hæð. Hann hefur besta nýtingu úr skotum, sem þekkist í NBA eða 56% um ævina. Rússneska landsliðið í körfu- knattleik er ef til vill hávaxnasta lið frá upphafi. Hæstur í því liði er Tsakenko 2,20 m, en Zigili er 2,19 og Belostenny 2,16 m. Þeir eru allir vel þekktir körfuknattleiks- menn. Hæsti landsliðsmaður Rússa var hins vegar „skógar- höggsmaðurinn frá Rigi“, Krum- insk, 2,24 m, sem lék 1961. Hann þótti seinn og hvarf fljótlega úr liðinu. Kínverjar eru oftast taldir lág- vaxnir. Þó mátti sjá 4 liðsmenn um og yfir 2 metra í landsliði Alþýðulýðveldisins Kína, sem heimsótti okkur á dögunum. Hæsti leikmaður þeirra var þó þó án efa Wilt Chamberlain. Hann lipur og snöggur, enda yfirburða ekki í þeim hópi, hann heitir Mu Tijeli Cu og er sagður 2,24 m á hæð. Á þennan hátt má iengi telja. Leikmenn sem eru 2,10 metrar að hæð eða hærri eru ekki sjaldséðir á alþjóðamótum. Hæstu leikmenn allra tíma eru þó ekki að ráði hærri en 2,20 m. Þjálfun þessara stóru manna hefur gjörbreyst síðustu ár. Þeir eru nú oftast snöggir og liprir í hreyfingum og hafa góðan stökkkraft. Pétur okkar Guðmundsson, 2,18, m er þó í hópi allra stærstu leikmanna. Hann er gott dæmi um stóran mann sem er lipur og getur skorað af færi jafnt og undir körfu. Leikmenn, sem eru svona stórir og hafa fengið rétta þjálfun, er erfitt að stöðva, enda má fullyrða að síðustu 2—3 ár hafi einungis einn norrænn leikmaður átt möguleika á að verjast Pétri í sókn, ef hann fékk knöttinn, e það er Svíinn Steen Feldreich, 2,13 m, sem er frábær varnarmaður. Úr viðureign þeirra á Polar Cup 1978 fór Pétur þó með sigur af hólmi. Flosi Sigurðsson, 2,13, m er stór leikmaður, en nær þó ekki hópi þeirra allra stærstu. Hann er 3 cm hærri en Cosic, sem er talinn einn besti leikmaður Júgóslava. Flosi er í hraðri framför, en hefur ekki leikið hér heima í 2% ár. Þeir Pétur, Flosi og Steen samt Birni Rossov frá Noregi, 2,09 m, eru nú hæstu landsliðsmenn á Norðurlöndum. Til gamans má geta þess að Pétur er sennilega næst hæsti Islendingur frá öndverðu og Flosi þriðji. Jóhann Svarfdælingur er enn hærri: Hann var sennilega 2,25 m þegar hann var hæstur. Jóhann stækkaði mjög ört á tímabili og er vafasamt að hann hefði getið sér orð í íþróttum, þó hann hefði reynt. Það verður að segjast alveg eins og er að ég er dyggur stuðningsmaður Arsenal og mæti alltaf á völlinn. Allir mínir aurar fara í aðgöngumiða og bjór á vellinum. Það er því miður ekkert cftir til þess að fara tii tannlæknisins. „Ef ég hata einhvern mann þá hata ég Ron Saunders" — EF ÉG hata einhvern mann, þá hata ég Ron Saunders. Ilann virtist hafa einkennilega nautn af því að auðmýkja leikmenn sína. Hann er alger harðstjóri og þó að slík framkoma hafi gengið í augun á yngstu leikmönnunum. þá vorum við hinir eldri lítið hrifnir. enda bitnaði þessi fram- koma hans meira og minna á okkur. Þetta mælti John Gidman í blaðaviðtali nokkru eigi alls fyrir löngu. Gidman var fyrir um tveimur árum talinn efnilegasti hægri bakvörður Bretlandseyja og sem leikmaður hjá Aston Villa lék hann sinn fyrsta landsleik. En þegar framtíðin virtist blasa við honum björt og aðlaðandi, skellti Ron Saunders, framkvæmdastjóri Villa, honum á sölulista. Everton keypti síðan Gidman og hefur staðið þar fyrir sínu, þó ekki hafi hann haldið áfram sínum hröðu framförum. Gidman vildi nefni- lega alls ekki fara frá Villa og tók mjög nærri sér að yfirgefa félagið. Saunders var mikið gagnrýndur fyrir að selja Gidman, einnig fyrir að selja John Deehan til WBA og ekki síst fyrir að selja hetjuna Andy Gray til Wolverhampton. Um tíma gengu undirskriftalistar meðal áhangenda félagsins þar sem þess var krafist að Saunders yrði umsvifalaust rekinn. En hann stóð af sér öll veður og þrátt fyrir óvinsældir hefur hann byggt upp lið sem margir telja líklegt til sigurs í 1. deild. Að minnsta kosti trónir liðið nú í efsta sæti deildar- RUNE • Ron Saunders innar og náði um tíma fimm stiga forystu. Hvort sem Villa heldur strikinu eða ekki, hefur Saunders sannað áþreifanlega, að hann er snjall framkvæmdastjóri þrátt fyrir harðneskju oft og tíðum í garð leikmanna sinna ... Körfuknattleikur íþrótt hinna hávöxnu Irene Epple sigraði Á FYRSTU stórsvigskeppni kvenna í heimsbikarkeppninni á skíðum. stóð vestur-þýska stúlk- an Irene Epple uppi sem sigur- vogari. Landi hennar Krista Kinshofer hafði besta tímann eftir fyrri ferðina, en það dugði ekki til. Stórsvigsmótið sem um ræðir fór fram í Val D’Iser í Frakklandi. Samanlagður tími Irene Epple var 2:26,92, en Krista Kinshofer féll niður í þriðja sætið. Tími hennar var 2:17,72. Franska stúlk- an Perrine Pellen skaust í annað sætið, fékk samanlagða tímann 2:17,49. Landi hennar, Fabianne Serrat hafnaði í fjórða sætinu, fékk tímann 2:18,61. n tt. u !i% n ti.it n ttu uvtitt 'iiutt.u u^tiTian ur, 11 uit n ivtt nitntivtmit fumit

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.