Morgunblaðið - 09.12.1980, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 09.12.1980, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980 28 Liverpool hefur leikift vel að undanförnu og liðið er nú efst í 1. deild. Hér fagna nokkrir leikmanna liðsins enn einu marki. sínum og það var Andy Ritchie sem skoraði sigurmark Brighton á 65. mínútu. Áður hafði Mick Robinson náð forystunni fyrir liðið í fyrri hálfleik, en Gordon Chisholm jafnað. Leicester vanmnjög eftirtekt- arverðan sigur gegn Birming- ham, sem lék arinars ömurlega. Jim Melrose, sem Leicester keypti frá Partick Thistle síð- asta sumar, skoraði bæði mörk Leicester, nánar tiltekið á átt- undu og þrettándu mínútu. Komu mörkin eins og köld vatnsgusa framan í leikmenn og áhangendur heimaliðsins, sem náði sér aldrei á strik. Þó tókst liðinu að minnka muninn seint í leiknum og var þar á ferðinni bakvörðurinn Geoff Scott. Og Leeds vann einnig athygl- Liverpool er komið á toppinn a nýjan leik — Botnliðin sýndu tennurnar LIVERPOOL náði forystunni í cnsku deildarkeppninni í knatt- spyrnu á laugardaginn, er liðið lagði Tottenham að vclli á Anficld Road. Aston Villa. sem hefur leitt deildina um nokkurra vikna skeið, tapaði fyrir Middlesbrough og hefur aðeins hreppt 5 stig í siðustu sex lcikjum sinum. Ekki beinlínis meistarataktar þar á ferðinni. En Ipswich stendur liklega best að vígi, Iiðið hefur aðeins tveimur stigum minna en Liverpool og Villa, cn hefur leikið þremur leikjum minna. Með hundrað prósent nýtingu í þeim leikjum gæti Ipswich náð fjögurra stiga forskoti 4 deildinni. Annars urðu ýmis óvænt úrslit á laugardaginn og na-gir að benda á sigur Leicester á útivelli gegn Birmingham. einnig útisigur Leeds gegn WBA. Þá reif Brighton sig upp og sigraði Sunderland. En lítum á úrslit leikja áður en lengra er haldið. Arsenal — Wolves 1—1 Birmingham — Leicester 1—2 Brighton — Sunderland 2—1 Liverpool — Tottenham 2—1 Man. City — Ipswich 1—1 Middlesbr. — Aston Villa 2—1 Norwich — Man. Utd 2—2 Nott. Forest — Cr. Palace 3—0 Southampton — Coventry 1—0 Stoke — Everton 2—2 WBA - Leeds 1-2 1. DEILD Liverpool 21 10 9 2 44 2G 29 Aston Vilia 21 12 5 4 30 20 29 Ipswich 18 10 7 1 30 13 27 Arsenal 21 9 8 4 32 22 20 WBA 21 9 8 4 28 20 2fi Man. United 21 6 13 2 29 16 25 Everton 21 9 6 6 31 25 24 Nott. Forest 21 9 6 6 31 22 24 Southampton 21 8 5 8 35 32 21 BirminKham 20 7 7 6 27 2 4 21 Stoke 21 6 9 6 24 29 21 Tottenham 20 7 6 7 35 33 20 Middlesbroagh20 8 4 8 30 30 20 Wolves 21 7 5 9 21 27 19 Man. City 21 0 6 9 28 31 18 Coventry 21 7 4 10 23 33 18 Leeds 21 7 4 10 20 33 18 Sunderland 21 6 5 10 27 29 17 Norwich 21 6 5 10 20 39 17 llrÍKhton 21 5 4 12 23 37 14 1 Leicester 21 5 2 14 17 36 12 1 | Crystal Palace 21 4 2 15 33 43 10 1 2. DEILD West Ilam 21 13 5 3 3fi 16 31 Chelsea 21 11 7 3 38 19 29 Notts County 21 10 8 3 25 19 28 Swannea 20 8 8 1 27 18 24 Derby 21 8 8 5 30 27 24 Sheffield Wed. 21 10 4 7 27 25 24 Blackburn 20 9 5 6 25 19 33 C'ambridKe 21 11 1 9 28 30 23 Orient 21 8 6 7 30 35 22 Bolton 21 7 fi 8 35 30 20 Luton 21 7 fi 8 20 20 20 Grimsby 21 5 10 0 17 20 20 Newcastle 20 7 fi 7 17 27 20 Shrewsbury 21 5 9 7 22 22 19 Wrexham 21 7 5 9 19 33 19 Cardiff 21 8 3 10 23 29 19 QPR 21 fi 6 9 27 22 18 Preston 21 5 8 8 19 30 18 Watford 20 7 3 10 24 27 17 Oldham 21 4 8 9 13 20 16 Bristol City 21 3 7 11 15 .32 13 BrLstol Rov. 21 1 9 11 16 33 11 Ekki unnið í 08 ár Tottenham sótti Liverpool heim, en síðast vann Tottenham á Arifield árið 1912. Það voru því fastir liðir eins og venjulega, er Liverpool sigraði í líflegum og spennandi leik. Liverpool náði forystunni á 19. mínútu, er Dave Johnson skoraði fallega, eftir sóknarlotu sem fimm leikmenn Liverpool stóðu að. Var Totten- ham-vörnin steinrunnin meðan á þessu stóð. En leikmenn Tott- enham neituðu að gefa sig og liðið jafnaði áður en leikhlé rann upp. Var þar á ferðinni Skotinn Steve Archibald. Liverpool hélt áfram uppteknum hætti í síðari hálfleik, sótti mun meira og hafði betri tök á leiknum. Á 59. mínútu skoraði Ray Kennedy síðan glæsilegt mark og reyndist það vera sigurmarkið. Villa í basli Aston Villa hefur hrakáð mik- ið síðustu vikurnar og á laugar- daginn fékk liðið skell í Middles- brough. Boro er mjög sterkt lið heim að sækja og það fengu Ieikmenn Villa að reyna. Ekkert var þó skorað fyrr en á síðustu mínútunum. Þá tókst Ástralíu- manninum Craig Johnstone að pota knettinum í netið hjá Villa. Voru þá sex mínútur til leiks- loka. En aðeins mínútu síðar jafnaði Villa og var þar á ferðinni Gary Shaw. En Boro hafði ekki sagt sitt síðasta orð, á síðustu sekúndum leiksins barst knötturinn fyrir mark Villa og David Shearer sendi hann rétta boðleið, 2—1. Er þetta annar tapleikur Villa á skömmum tíma, þar sem sigurmark and- stæðinganna hefur komið á síð- ustu sekúndunum. Gekk upp ok ofan Öðrum toppliðum gekk upp og ofan. Ipswich fékk það erfiða hlutverk að sækja Manchester City heim, en City hefur leikið framúrskarandi vel síðustu vik- urnar. En Ipswich er ekkert slorlið og á 13. mínútu náði liðið forystunni með glæsilegu marki Hollendingsins Arnold Muhren. City sótti sig hins vegar og á 63. mínútu jafnaði liðið verðskuldað með marki Gerry Gow, fjórða mark hans í jafn mörgum leikj- um. Arsenal fékk Úlfana í heim- sókn og sótti sleitulaust frá upphafi til enda. Voru Úlfarnir oft grátt leiknir, nema hvað framherjar Arsenal voru hroða- legir klaufar og nýttu sér alls ekki yfirburði sína. Þó tókst Frank Stapleton að skora snemma í leiknum, en Úlfarnir svöruðu umsvifalaust með marki John Richards. Þar við sat þrátt fyrir mýmörg góð marktækifæri. Áhorfendur bauluðu undir lokin á leikmenn Arsenal, en klöppuðu Úlfunum lof í lófa. Manchester Utd sýndi Nor- wich hvar Davíð keypti ölið í fyrri hálfleik og lék liðið þá við hvern sinn fingur. Kevin Bond byrjaði á því að skora sjálfs- mark, en Steve Coppell bætti öðru marki við fyrir hlé. Hins vegar hrundi leikur liðsins í síðari hálfleik og kom það veru- lega á óvart. Síðari hálfleikurinn byrjaði ekki gæfulega fyrir Un- ited, þar sem Nikki Jovanowic sendi knöttinn í eigið net. Og það var ekki langt til leiksloka, er Justin Fashanu jafnaði með lag- legu skallamarki, 15. mark hans á þessu keppnistímabili. Crystal Palace byrjaði frísk- lega gegn Forest og tókst hvor- ugu liði að skora í fyrri hálfleik. En ekki byrjar Palace gæfulega undir stjórn Malcolm Allisons, því í seinni hálfleik hrundi liðið eins og spilaborg. Frank Gray skoraði fyrst úr víti, en síðan bætti ungur nýliði, Colin Walsh, öðru marki við. Lokaorðið átti Peter Ward, er hann skoraði þriðja mark Forest á 78. mínútu. SlaRurinn á botninum æsist Ljóst er, að spennan í botnbar- áttunni verður mikil áður en yfir lýkur. Leeds, Brighton og Leic- ester unnu góða sigra um helg- ina og Sunderland er að sogast í slaginn, eftir mjög góða byrjun í haust. Hefur liðið dalað verulega síðustu vikurnar. Brighton lagði Sunderland að velli á heimavelli isverðan útisigur. Sótti liðið WBA heim og hafði á brott með sér bæði stigin. Remi Moses náði forystunni fyrir WBA með góðu skoti af 20 metra færi. Það stóð ekki lengi, Carl Harris jafnaði með skalla aðeins mínútu síðar. Meira var ekki skorað í fyrri hálfleik, en í þeim síðari skoraði Arthur Graham sigurmark Leeds, vippaði laglega yfir markvörðinn, sem hafði hætt sér of framarlega. Aðrir loikir Southampton og Coventry áttu með sér hörkuleik. South- ampton tókst að knýja fram sigur með marki Nick Holmes á 44. mínútu leiksins. En Coventry var ekki lakara liðið á vellinum og jafntefli hefði verið sann- gjarnt. Mick Channon, framherji Southampton, fór illa með víta- spyrnu í síðari hálfleik, sendi þrumufleyg mikinn hátt upp í áhorfendastæðin. Loks má geta leiks Stoke og Everton, sem þótti hörkuspenn- andi. Joe McBride náði foryst- unni fyrir Everton á 12. mínútu, en Lee Chapman jafnaði metin tíu mínútum síðar. Síðan var ekkert skorað fyrr en á 62. mínútu, er Imre Varadi skoraði fyrsta mark sitt fyrir Everton. Piltur þessi mun vera enskur, en greinilega af ungversku bergi brotinn. Stoke sótti mjög loka- kaflann og reyndi að fá eitthvað fyrir sinn snúð. Það virtist ætla að takast, er liðið fékk víti þegar skammt var til leiksloka. En Ray Evans brenndi af. Engu að síður tókst Stoke að jafna, markið skoraði Brendan Ó’Callaghan. 2. deild: Bolton 3 (Whatmore, Kidd 2) — Orient 1 (Taylor) Bristol Rov. 0 — Wrexham 1 (Edwards) Cambridge 1 (Taylor) — QPR 0 Cardiff 1 (Kitchen) — Grimsby 1 (Waters) Chelsea 0 — Swansea 0 Newcastle — Blackburn fr. Oldham — Luton 0—0 Preston 0 — Derby 3 (Hector, Swindlehurst, Biley) Shrewsbury 4 (Biggins, Tong, Atkins, Edwards) — Bristol City 0 Watford 2 (Callagham, Jenkins) — N. County 0 West Ham 2 (Brooking, Holland) — Sheffield Wed. 1 (Mirocevic). Knatt- spyrnu- úrslit England. 3. deild: Blackpool — Exetcr 0—0 Brentíord — Swindon 1 —t ('arlisle — Colchester 4—0 Chester — Walsall I —0 Chesterfield — Millwall 3—0 Fulham — Huddersfieid 2—2 Gillingrham — Charlton 0—1 Hull - Kradins? 2-0 Newport — Barnsley 0—0 Oxford — Burnley 0—2 Plymouth — Rotherham 3—1 Sheffield lítd — Portsmouth 1 —0 England. 4. deild: Aldemhot — Hallfax 2—1 Bournrmouth — Doncaster 1 — 2 Hradford — York 1—1 I.inroln — Bury 2—1 Manxfield — Stockport 1 —0 I’eterhrouiíh — Hereford 3—0 liochdalc — Southend 0—2 Torquay — Northampton 3—3 Wigan — Scunthorpe 1—1 Wimbledon — Darlington 1 — 1 Skotland, úrvalsdeild: Airdrie — St. Mirren 1—2 Hearta — Kilmarnoek 2—0 Morton — Aberdeen 1—0 Partick — Celtic 0—1 Dundee — Dundee Utd 0—3 Slðaxt nefndi lelkurinn var úrslita leikurinn i skooku deildarbikarkeppn- inni. þar áttust vlð Dundee-liðin og sigraði United OruKKlega. Aberdeen hefur enn 3 stiga forystu, þar sem nœsta llð, Rangers. átti fri um helg- ina. Jansen fékk grýlukerti i augað. Wim Jansen var lykilmaður i liði Feyenoord í Ilollandi i 15 ár. Á siðasta keppnistimahili fór hann að leika með handarisku félattl. en gekk siðan óva-nt tfl liðs við Ajax fyrir skömmu. Átti Jansen að leika sinn fyrsta leik fyrir Ajax á sunnudaKÍnn ok fyrir einkennileKa tilviljun átti Ajax ein- mitt að mæta Keyentsird. Ýmslr áhanKrnda Feyenoord virðast ekki betur innrættir en svo, að hótunar- slmtölum ok bréfum Ilnnti ekki til Jansens siðustu daxanna fyrir leikinn ok um þverhak keyrði. er einn þeirra kastaði Krýlukerti i ntiKuð á honum meðan á upphitun stóð. Var Jansen fluttur á sjúkrahus ok lék þvi ekki með hinu nýja liði sinu. Ajax fékk skell Kegn Feyenoord. Kichard Budding (2), Jan Peters ok Pierre Vermaulen skoruðu mörk Feyenoord, sem komst i 4 — 1. Pict IlamberK skoraði fyrir Ajax á siðustu stundu. áður hafði Willem Kleft skor- að fyrir liðið. Annars var flestum leikjunum i úrvaLsdeiIdinni hollcnsku frestað vegna snjókomu ok frost- kulda. Úrslit annara lelkja urðu sem hér seKÍr: PSV Kindhoven — Sparta 0—0 Nac Breda — Excelsior 1 — 1 Willem 2. — Nec NljmeKen 1—1 Alkmaar átti að mæta Go Ahead Eaglcs Deventer á sunnudaainn. en leiknum var frestað. Alkmaar er enn efst með 27 atÍK- Feyenoord er i öðru sa'ti sem áður með 24 stÍK. Alkmaar hefur leikið 14 leiki. Feyenoord 15 lelki. t>au skera sík verulega úr I hollensku deildinni. hafa þar mikla yfirburði. Til raarks um það má benda á. að liðið i þriðja stetinu, Phiilips Sportverein Eindhoven, hefur aðeins 18 stÍK að 15 leikjum loknum. Spánn: Úrslitin i 1. deild á Spáni um helgina urðu þcssi: Rcal Zarag. - Atl. Madrid 0-1 R. Madrid - Salamanca 2-0 Valladolid - Barcel. 1-1 Almeria - Ilercules 0-3 Atl. Bilbao - Real Betis 2-0 Sevilla - Rcal Socied. 0-0 Murcia - Las Palmas 1-2 Espanol - Osasuna 0-0 Sport. Gijon - Valencia 0-0 Belgía: Úrslit í Belgiu: Anderl. - Beringen 2-1 Gent - Beerschot 1-1 Beveren - Molenh. 3-0 Watcrschei - Lokeren 1-1 Waregem - FC Licge 1-1 Standard - Courtrai 1-1 CS Brúgge - Wintersl. 0-1 Berchem - Lierse frestað Antwerp. - FC Brtigge fr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.