Morgunblaðið - 09.12.1980, Side 29

Morgunblaðið - 09.12.1980, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980 29 JólaglöKK á Esjuberjíi. Jólastemmning á Esjubergi NÆSTU heliíar verður gestum á Esjubersi buðið upp á danskt veisluhlaðhorð og jólaii'lögg verð- ur á boðstólum eins og fyrri ár. Jónas Þórir mun leika á orgel og Esjutrióið mun koma fram. Barnakórar munu einnig syngja næstu sunnudaga í tilefni jól- anna. Á níundu hæð í Skálafelli verða haldnar tískusýningar á fimmtu- dögum og ýmsir skemmtikraftar munu koma fram um helgar. Árið sem nú er að líða hefur verið tvöfalt afmælisár fyrir Hót- el Esju. I sumar voru tíu ár liðin frá opnun hótelsins og nýlega voru fimm ár frá því að matsölustaður- inn Esjuberg opnaði í núverandi mynd sinni. Á Esjubergi hafa að undan- förnu verið haldnir sérstakir þjóðadagar og nýlega var haldin „Amerísk vika“, þar sem kúrekar komu fram og fleira. Eina vikuna var boðið upp á sjávarrétti í miklu úrvali og ný- lega var lögð sérstök áhersla á villibráð. Tveir einþáttungar sýndir á Húsavík Fráleitt að styrkja nema áhugaleikhús á landsbyggðinni Húsavik. 8. dos«*mhor. LEIKFELAG Ilúsavíkur hóf vetrarstarf sitt síðastliðinn föstu- dag með sýningu tveggja einþátt- unga. Vals eftir Jón Hjartarson, leikstjóri Ingimundur Jónsson, og „Því meira sem við kaupum" eftir danska höfundinn Jan Jens- en, i þýðingu fimm kvenna og 30 manna hóps leikfélaga. sem vinna að þessari sýningu og stjórna henni. Félagið er með þessari sýningu að gefa yngra fólkinu tækifæri á því að koma fram og þar með að finna nýja krafta og hæfileikafólk til starfa. Vals sýndi leikfélagið hér á síðasta leikári og fór með hann í leikför til Finnlands í apríl síðastliðinn og var það fjórða leikför félagsins til útlanda. Aðal- verkefni félagsins verður tekið fyrir eftir áramótin, nýtt leikrit eftir Jónas Jónasson, sem verða mun allforvitnilegt, en María Kristjánsdóttir mun stjórna því. Leikfélag Húsavíkur er starf- samt áhugaleikfélag og ég tel fráleitt að starfrækja úti á lands- byggðinni leikhús nema með áhugamönnum. Þar verður eitt yfir alla að ganga, það er ekki eðlilegt að áhugamenn vinni í hóp með atvinnumönnum, fórni mikl- um tíma og fé á meðan starfsfé- lagar þeirra gegna svipuðum hlut- verkum og fá fyrir það fullt kaup. Atvinnuleikhús á ekki að vera nema þar sem allir eru launaðir og hið opinbera getur ekki stutt atvinnuleikhús í einu bæjarfélagi frekar en öðru. Áhugaleikfélögin á að styrkja til að koma sér upp aðstöðu en ekki til að launa fáa leikara og þjóðin hefur ekki bolmagn til að styrkja atvinnuleikhús nema í höfuðborginni að mínu áliti. — Kréttaritari. Einn sækir um Ólafsvik PRESTSKOSNINGAR verða vænt- anlega í Olafsvík innan tíðar. Umsóknarfrestur um embætti sóknarprests þar rann út 1. des. Umsækjandi var einn; Guðmundur Karl Ágústsson, f. 1. apríl 1953 í Reykjavík, sonur Ágústs Karls Guðmundssonar og Ástríðar Haf- liðadóttur. Guðmundur Karl lauk stúd- entsprófi frá M.R., 1975, og guð- fræðiprófi frá Háskóla Islands vorið 1980. Kona hans er Hjördís Birgisdóttir hjúkrunarfræðingur og eiga þau fárra mánaða son. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson, sem þjónað hefur Ólafsvíkur- prestakalli sl. 8 ár, hefur nú tekið við þjónustu Ásprestakalls í Reykjavík. Á sama tíma var einnig útrunn- inn umsóknarfrestur um Bólstaða- hlíðarprestakall í Húnavatnspróf- astsdæmi en þar sótti enginn um. (Fréttatilkynning) Fimm skip seldu ytra FIMM skip lönduðu ísuðum fiski í Bretlandi og V-Þýzkaiandi í gær og fékkst allgott verð fyrir afl- ann. Bjartur NK seldi 125,7 tonn í IIull fyrir 112 milljónir króna, meðalverð á kíió 891 króna, 1. flokkur. Jakob Valgeir ÍS seldi 65,4 tonn í Fleetwood fyrir 53,2 milijónir króna, meðalverð á kíló 814 krónur, 2. (lokkur. Vestri BA seldi 84,7 tonn í Grimsby fyrir 93 milljónir, meðalverð 1098 krón- ur, 1. flokkur. Viðey seldi 177,4 tonn í Bremer- haven fyrir 110,4 milljónir króna, meðalvérð á kíló 623 krónur. ísleifur IV seldi 55,9 tonn í Cuxhaven fyrir 30,5 milljónir króna, meðalverð á kíló 546 krón- •hv.m - -r Viðskiptaráðuneytið: „Margyfirlýst að að- lögunargjaldið yrði ekki framlengt“ SVOHLJÓÐANDI fréttatil- kynning barst Mbl. i gær frá viðskiptaráðuneytinu: „Samkvæmt lögum fellur 3% aðlögunargjald niður um næstu áramót eins og lofað var, þegar gjaldið var lagt á 1. júlí 1979. Þessi ákvörðun hefur sætt gagn- rýni formanns íslenskra iðnrek- enda og er því nauðsynlegt að gefa nánari skýringar á henni. Áður en aðlögunargjaldið var lagt á, var rætt við fulltrúa EFTA og Efnahagsbandalagsins. EFTA-ráðið samþykkti gjaldið, ekki vegna óhagræðis af rangri gengisskráningu, sem fulltrúar iðnaðarins töldu sig búa við, heldur vegna eindreginna óska ríkisstjórnarinnar og yfirlýs- ingar hennar um, að gjaldið yrði fellt niður í árslok 1980. Hins vegar mótmælti Efnahagsbanda- lagið þessu gjaldi og taldi það brot á fríverslunarsamningnum. Á fundum sameiginlegu nefndar íslands og Efnahagsbandalags- ins, sem síðan hafa verið haldnir, hafa fulltrúar Efnahagsbanda- lagsins ítrekað þessa skoðun, þar til á síðasta fundinum 3. desem- ber sl., að tilkynnt var, að gjaldið félli niður. Telja má, að aðal- ástæðan fyrir því, að Efnahags- bandalagið hefur ekki gripið til mótaðgerða er sú, að gjaldið var tímabundið og því var marg yfirlýst af fulltrúum Islands, að það yrði ekki framlengt. Þegar iðnaðarráðherra hóf máls á því, að aðlögunargjaldið yrði afnumið í áföngum, ræddi Tómas Árnason, viðskiptaráð- herra, þessa hugmynd strax ítar- lega við Charles Múller, fram- kvæmdastjóra EFTA. Fram- kvæmdastjórinn sagði, að fram- lenging á gjaldinu væri brot á yfirlýsingunum, sem EFTA-ráð- inu voru gefnar og samþykkt þess byggðist á. Að hans dómi væri því ekki stætt á því fyrir ríkisstjórnina að fara fram á framlengingu gjaldsins. Við- skiptaráðherra ræddi einnig málið við marga fulltrúa á EFTA-ráðherrafundinum í nóv- ember og var afstaða þeirra sú sama. Sendiherrar íslands hjá EFTA og Efnahagsbandalaginu hafa einnig kynnt sér afstöðu samtak- anna og vara þeir mjög eindregið við því, að farið sé fram á framlengingu gjaldsins. í bréfi Henriks Sv. Björnssonar, sendi- herra hjá Efnahagsbandalaginu, segir m.a.: „Telja má fullvíst að bandalagið sætti sig ekki við framlengingu aðlögunargjaldsins og geti jafnvel gripið til mótað- gerða sem skaði mikilvæga viðskiptahagsmuni íslands." Þessi sjónarmið hafa ráðið afstöðu stjórnvalda og þá ekki síst skyldan að standa við gefnar yfirlýsingar. Einmitt á það atriði lagði Einar Ágústsson, fyrrver- andi utanríkisráðherra, sérstaka áherslu í umræðunum um aðlög- unargjaldið á Alþingi maí 1979, en Einar hefur verið fulltrúi ríkisstjórnarinnar í kynningar- viðræðum við EFTA og Efna- hagsbandalagið. Hann sagði m.a.: „Annað atriði, sem mjög mikil áhersla var lögð á og ég legg höfuðáherslu á miðað við þann málflutning sem ég leyfði mér að hafa uppi í þessari ferð og við sem hana fórum, er að þetta gjald verði fellt niður í árslok 1980. Það er ekki hægt að fara fram á svona undanþágur á fölskum forsendum. Alþingi og ríkisstjórnin verða því á því eina og hálfa ári, sem til stefnu er, að gera aðrar ráðstafanir, ef iðnað- urinn íslenski þarf þá enn á áframhaldandi vernd að halda. Það er ekki hægt að svíkja gerða samninga, það megum við ekki láta henda okkur.“ „Framlenging á engan hátt stangast á við gefín loforð“ - segir iðnaðarráð- herra um aðlögun- argjaldið „ÉG HEF flutt um það bæði formlegar og óformlegar tillögur, að aðlögunargjaldið verði fram- lengt. í ríkisstjórn flutti ég form- lega tillögu um að gjaldið yrði framlengt og síðan lagt niður í áföngum, þ.e. það yrði 2% á næsta ári, 1% árið 1982 og félli síðan niður í lok þess árs,“ sagði Hjörleifur Guttormsson iðnað- arráðherra í viðtali við Mbl. í gær um aðlögunargjaldið. „Ég tel að þetta gæti orðið mjúk lending og hef trú á því að það sé hægt. í því tilefni vísa ég til tilurðar gjaldsins árið 1979. Þá var einnig sagt bæði af erlendum aðilum og fulltrúum utanríkis- þjónustunnar að það væri ekki mögulegt. Það var samt sem áður samþykkt einróma þá og ég tel, að það væri einnig hægt að ná því marki nú. Hjörleifur sagði, að ýmsar iðngreinar stæðu höllum fæti gagnvart erlendum og okkur bæri að skjóta skildi fyrir iðnað okkar, en þó sagðist hann ekki mæla með tollmúrum. „Það sem ég vildi leggja áherslu á er, að menn geta ekki ætlast til að fá jákvæð viðbrögð við framlengingunni á fyrsta stigi.“ — Telur þú að unnt verði úr þessu að ná fram frestun á niðurfellingunni? „Viðskiptaráðuneytið þarf að vera virkt ef til slíks á að koma, svo ég reikna ekki með að úr því verði. Ég tel að menn eigi eftir að athuga með hækkun á jöfnun- argjaldi í staðinn. Það kæmi til með að virka á svipaðan hátt. Hjörleifur sagðist telja, að nauðsyn bæri til að vinna að uppbyggingu iðnaðar í landinu. Þá sagði hann: „Framlenging aðlögunargjaldsins og niðurfell- ing í áföngum hefði á engan hátt stangast á við gefin loforð, það veit ég.“ „Því var lofað - Gæti reynst hættulegt að gera annað“ - sagði viðskipta- ráðherra um niður- fellingu 3% aðlögunargjalds „ÉG HEF ætíð talið það sjálfsagt að aðlögunargjaldið yrði lagt niður um áramótin. Því var lofað,“ sagði Tómas Árnason viðskiptaráðherra, er Mbl. ræddi við hann í gær í tilefni af yfirlýsingu viðskiptaráðuneytis- ins um niðurfellingu 3% aðlögun- argjalds. Mbl. spurði Tómas, hvort hann teldi að til ætti að koma einhvers konar aðstoð við iðnaðinn í stað niðurfellingarinn- ar. „Hér er eiginlega um tvö að- skild mál að ræða. Annars vegar aðlögunargjaldið og hins vegar aðstöðu íslenzks iðnaðar. Mér finnst vel koma til greina að láta kanna stöðu iðnaðarins í sam- keppnislöndunum. Ef við slíka könnun sannreynist sem íslenzkir iðnrekendur halda fram, að iðn- aður þar njóti stuðnings fram yfir íslenzkan iðnað, þá munum við áskilja okkur allan rétt til að styðja við okkar.“ — Á hvern hátt yrði staðið að slíkri aðstoð? „Þar getur margt komið til greina, s.s. lánafyrirgreiðsla, þróunaraðgerðir o.fl. Mér finnst sjálfsagt að taka þetta upp við aðildarlöndin.“ Þá sagði Tómas, að mál þetta hefði verið rætt í ríkisstjórninni og menn þar haft misjafnar skoðanir á niðurfell- ingunni. Ég vil ítreka, að mín skoðun er sú, að okkur beri að standa við gefin loforð því með því sköpum við okkur traust og ég tel, að það geti reynst hættulegt fyrir markaði okkar að gera annað,“ sagði viðskiptaráðherra í lokin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.