Morgunblaðið - 09.12.1980, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980
Ráðstefna um Land-
spítalann til aldamóta
LANDSF’ÍTALINN á 50 ára af-
mæli hinn 20. desember nk., en
þá er liðin hálf öld frá því fyrsti
sjúklingurinn var laKÖur þar
inn. Afmælisins vcrður minnzt
með ýmsum hætti og verður
þannig haldin ráðstefna í Há-
skólabiói föstudaginn 12. desem-
ber nk. um efnið Landspítalinn
til aldamóta.
Ráðstefnan hefst kl. 9 og er
boðið til hennar núverandi og
fyrrverandi starfsmönnum ríkis-
spítalanna ásamt fleiri gestum og
er öllum heimill aðgangur meðan
húsrúm leyfir. í lok ráðstefnunnar
verður móttaka fyrir ráðstefnu-
gesti í matsal Landspítalans og
hefst hún með ávarpi heilbrigðis-
ráðherra. Þá verður skemmtun á
vegum starfsmannaráðs, laugar-
dagskvöldið 13. desember.
I byrjun næsta árs kemur út
Landspítalabókin og lýsir hún
sögu og þróun spítalans í 50 ár.
Gunnar M. Magnús rithöfundur
hefur tekið bókina saman og hafa
ýmsir fleiri lagt hönd á plóginn.
Fyrst í stað voru aðeins 3 deildir
við Landspítalann, röntgendeild,
lyflækningadeild og handlækn-
ingadeild, en hluti hennar var
einnig ætlaður sængurkonum. Var
spítalinn upphaflega ætlaður 92
sjúklingum, en brátt þurfti að
fjölga og herbergi, sem ætluð voru
til annarra nota, voru notuð sem
stofur og tala sjúklinga komin í
125 án þess að nokkuð hefði verið
byggt við spítalann.
Þá segir í frétt frá stjórnar-
nefnd ríkisspítalanna, að margt
hafi breytzt á þessum 50 árum,
sjúkradeildir séu nú orðnar 12,
sjúkrarúm komin í 530, betri tæki,
betri lyf og ný viðhorf í lækning-
um hafi stytt meðallegutíma
sjúklinga að miklum mun og
þjónusta við sjúklingana hafi auk-
ist jafnt og þétt. Dagana 27. og 28.
desember verður þeim, sem áhuga
hafa, gefinn kostur á að heim-
sækja spítalann og skoða og er
fólk góðfúslega beðið um að til-
kynna þátttöku.
Stjórn SHÍ fordæmir
ákvörðun dómsmálaráðherra
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
cftirfarandi fréttatilkynning írá
Stúdentaráði Háskóla lslands:
„Stjórn Stúdentaráðs Háskóla ís-
lands vill minna á fyrri ályktanir
Stúdentaráðsfunda til stuðnings
Patrick Gervasoni (frá 6. júní og frá
24. september 1980). Stjórn SHÍ
ályktar ennfremur eftirfarandi:
1. Það eru sjálfsögð mannréttindi
hvers manns að neita að bera vopn
og þar með að neita að gegna
herþjónustu, hvort sem það er
vegna trúar, pólitískra skoðana eða
annarra ástæðna.
2. Það er ekkert sem bendir til
þess að Gervasoni sé velkominn
gestur í Danmörku. Þvert á móti er
hann talinn óæskilegur af þarlend-
um yfirvöldum, sbr. bréf sem þau
hafa sent honum. Danmörk er því
enginn griðastaður fyrir hann og
ekki ólíklegt að honum verði vísað
þaðan úr landi.
3. Vegna þess að Gervasoni hefur
neitað að sinna herkvaðningu og því
verið úrskurðaður til fangelsisvist-
ar, hefur hann aldrei átt vegabréf.
Hann er landlaus maður. Griðastað
á hann engan, nema svarthol
franska ríkisins.
Aðventukvöld
á Húsavík
Húsavik, 8. des.
KIRKJUKÓR Húsavíkur efndi til
aðventutónleika í gær. Athöfnin
hófst með orgelleik Sigríðar
Schiöth og fiðluleik Peter Gyles.
Sr. Pétur Þórarinsson prestur á
Hálsi flutti ræðu. Hólmfríður
Benediktsdóttir söng með aðstoð
Elínar Dungal. Kirkjukórinn söng
undir stjórn Sigríðar Schiöth en
einsöngvari var Sigurður Frið-
riksson og athöfninni lauk með
ávarpi sóknarprestsins, sr. Björns
H. Jónssonar.
4. Verði Gervasoni vísað frá
Islandi, eins og nú er ljóst, er líklegt
að hann muni innan tíðar hrekjast
til Frakklands og verða hnepptur í
fangelsi þar, vegna neitunar hans á
að sinna kalli hernaðarsinna.
5. í ljósi þessa fordæmir stjórn
SHÍ harðlega þá ákvörðun dóms-
málaráðherra að vísa Patrick
Gervasoni úr landi. í þessari
ákvörðun lokar ráðherrann augun-
um fyrir mannúðlegum þáttum
málsins, en einblínir á veika laga-
bókstafi og reynir þannig að skjóta
sjálfum sér undan ábyrgð í þessu
máli. Þetta ábyrgðarleysi og þessi
uppgjöf fyrir lagabókstaf ber vott
um þröngsýni og ómannúð. Þarna
eru mannréttindi virt að vettugi."
Rétt er að láta þær ályktanir sem
fundir Stúdentaráðs samþykktu og
minnst er á í ofangreindri ályktun,
fylgja með. Ályktun sem samþykkt
var 6. júní 1980 með 10 atkvæðum
gegn 1:
„Með tilvísun til afrits af bréfi
Patrick Gervasoni til dómsmála-
ráðherra þ. 8. maí sl. skorar Stúd-
entaráð Háskóla íslands á Friðjón
Þórðarson dómsmálaráðherra að
beita sér fyrir því sem fyrst að
Gervasoni verði veitt hæli á íslandi
sem pólitískum flóttamanni."
Á Stúdentaráðsfundi sem hald-
inn var 24. september 1980 var
eftirfarandi ályktun samþykkt með
15 atkvæðum gegn 4.
„Stúdentaráðsfundur haldinn 24.
september 1980 skorar á íslensk
stjórnvöld að veita Patrick Gerva-
soni landvist og grið á íslandi af
mannúðarástæðum."
Undirritaður vill undirstrika að
einstaklingar í báðum fylkingunum
innan Stúdentaráðs greiddu þess-
um tveimur síðar nefndu tillögum
jáyrði sitt, þ.e. fulltrúar bæði Vöku
og Félags vinstri manna sameinuð-
ust um þessar ályktanir. Segir það
hugsanlega nokkuð um viðhorf
, Kvenl>l*gid FramtíAm
Akureyri
Framtíðin gef-
ur út jólamerki
AÐ VENJU gefur Kvenfélagið
Framtíðin á Akureyri út jóla-
merki, sem nú er komið á
markaðinn. Jólamerkið teikn-
aði að þessu sinni Einar Helga-
son kennari. Merkin eru til
sölu á pósthúsinu á Akureyri
og í Frímerkjamiðstöðinni og
Frímerkjahúsinu í Reykjavík.
Allur ágóði af sölu merkisins
rennur í Elliheimilissjóð fé-
lagsins.
Nokkur orð um
nashyrninga
FYRIR ALLMORGUM árum
sýndi Þjóðleikhúsið áhrifa-
mikið leikrit eins fremsta
nútímahöfundar. Leikritið
fjallaði um múgsefjun og
ofsóknir. A skömmum tíma
breyttust venjulegir smá-
borgarar í nashyrninga. ís-
lenskir leikhúsgestir klöpp-
uðu leikendum lof í lófi.
Hver og einn gekk til síns
heima, sæll í sinni trú:
Aldrei gæti slíkt og annað
eins hent á landi hér. En nú
sannast hið fornkveðna.
Maður á aldrei að segja
aldrei.
Undanfarna daga hefir
það sannast áþreifanlega að
einmitt hér virðist jarðvegur
fyrir grimmar og hatursfull-
ar ofsóknir svo sem
undirskiftasöfnun og fjöldi
greina bera með sér um
áskoranir þess efnis, að
meinlausum unglingi og
marghrjáðum sé vísað úr
landi þá er hátíð fer að
höndum.
Fjöldi einstaklinga, starfs-
mannafélög og hjúkrunar-
fólk á Vífilsstöðum tekur sig
saman og hefst handa með
blaðagreinum, símhringing-
um og sendinefndum. Um-
stangið minnir helst á
ofsóknir Rómverja gegn
kristnum mönnum, þeim er
neituðu að skrá sig til her-
þjónustu á dögum Róma-
veldis.
Helgi Yngvarsson, ungur
flugmaður, ritar nafnlausa
grein í annað síðdegisblaðið.
Hann bregður Gervasoni um
hugleysi og heigulshátt.
Sjálfur kýs hann að leyna
nafni sínu. Ber það vott um
hugrekki flugmanna, að
varpa sprengjum úr háloft-
um yfir íbúðarhverfi borga
og eyða þar lífi borgarbúa,
barna jafnt sem gamal-
menna?
Eru friðflytjendur hug-
leysingjar?
Miðaldra kona, Ásdís á
Bjargi, ritar grein í Morgun-
blaðið fyrir skömmu. Hún
stráir ritningartilvitnunum
á víð og dreif um grein sína,
en kemst svo að eftirfarandi
niðurstöðu: „Það er ekki
meira að skjóta úr byssu, en
að aka bíl.“ Um vígdjarfan
son annarar Ásdísar á
Bjargi, Gretti Ásmundarson
var sagt þá er hann yfirgaf
æskustöðvar: „Margir báðu
hann vel að fara en fáir aftur
koma.“ Var það friðarást
Grettis er hrakti hann úr
héraði?
Var ávarp meistarans til
postulans: Slíðra þú sverð
þitt, vottur um hugleysi?
Eru orðin: Sælir eru frið-
Verð á íslenskum æðar-
dún hefur tvöfaldast
Á AÐALFUNDI /Eðarræktarfé-
laKs íslands. sem haldinn var aö
Hótel Esju nýlcKa. kom fram að
heimsmarkaðsverð á islenskum
æðardún hefur tvöfaldast á árinu
ok er kilóið nú komið i um 400.000
islenskar krónur. fslenskur æðar-
dúnn hefur sérstöðu fram yfir
annan dún hvað verð og gæði
varðar og er þekktur sem einstök
gæðavara.
I skýrslu formanns félagsins,
Ólafs E. Ólafssonar, kom fram að á
síðastliðnu vori var stofnuð deildin
ÆÍ í Strandasýslu og eru þá aðeins
eftir óstofnaðar deildir á suð-
vesturhorni landsins og á Aust-
fjörðum, sem væntanlega verða
stofnaðar að vori.
Árni G. Pétursson, ráðunautur,
greindi frá tilraunum um uppeldi
æðarunga, sem voru framkvæmdar
á nokkrum stöðum á landinu á
þessu sumri og eru þær sagðar hafa
lofað góðu.
Gestur fundarins var Pálmi
Jónsson, landbúnaðarráðherra, og
alls sóttu fundinn um 60 manns.
Stjórn félagsins skipa nú Ólafur
E. Ólafsson, formaður, Sigurlaug
Bjarnadóttir og Eysteinn G. Gísla-
son. I varastjórn eru séra Þorleifur
Kristmundsson á Kolfreyjustað og
Sigurður Eiríksson í Garðabæ.
Ráðunautur í æðarrækt er Árni G.
Pétursson.
Yiðgerðir á
DNA-kjarnasýru
JÓRUNN Erla Eyfjörð flytur
erindi í dag á vegum Líffræðifé-
lags íslands. sem hún nefnir
„DNA viðgerð og stökkbreyt-
ingar“.
Erfðaefni allra lífvera, kjarna-
sýran DNA, verður fyrir margs
konar utanaðkomandi áhrifum.
Geislun og ýmis efni geta t.d.
valdið skemmdum á DNA. Hættu-
legustu mengunarvaldar eru þeir
sem skaðað geta sjálft erfðaefnið.
í öllum frumum, sem rannsakaðar
hafa verið hafa hins vegar fundist
viðgerðarkerfi, sem gera við ólík-
ustu DNA skemmdir. Svo virðist
sem engin lífvera komist af án
DNA viðgerða.
Áhugi á rannsóknum á DNA
ustu árum, einkum vegna þess að
komið hefur í ljós að flest það sem
veldur skemmdum á DNA sam-
eindum veldur einnig aukningu á
fjölda stökkbreytinga og eykur
líkur á krabbameini í dýrum og
mönnum.
I erindinu verður gerð grein
fyrir nokkrum viðgerðarferlum í
örverum og lýst rannsóknum á
tengslum DNA viðgerðar og
stökkbreytinga. Loks verður fjall-
að um DNA viðgerð í mönnum og
getið nokkurra erfðagalla þar sem
um er að ræða skerta hæfileika til
DNA viðgerðar.
Erindið verður haldið í stofu 158
í húsi verkfræði- og raunvísinda-
deildar, Hjarðarhaga 2—4, og
hefst kl. 20.30. Öllum er heimill
Erindi um líf-
efnafræði fiska
DR. VIGGO Mohr, dósent I efna-
íræði við Norges Tekniske
Högskole, dvelst nú hér á landi á
vegum Rannsóknarstofnunar
fiskiðnaðarins og efnafræðiskor-
ar verkfræði- og raunvísinda-
deildar Iláskóla íslands og flytur
hann sex fyrirlestra í húsa-
kynnum stofnananna á næstu
dögum. Starísvettvangur dr.
Mohrs er á sviði lifefnafræði
fiska og lífefnaverkfrseði í tengsl-
um við fiskiðnað og fiskveiðar.
Fyrirlestrarnir verða sem hér
segir:
Þriðjudaginn 8. desember flytur
hann tvö erindi í Háskóla íslands,
VR-II, stofu 157 kl. 17.15 og nefnir
hann þau „Teaching and research
in fisheries science at the Nor-
wegian Institute of Technology"
og „Structure and chemistry of
fish muscle cells".
Miðvikudaginn 10. desember
heldur hann svo fyrirlestur í
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðar-
ins, sem hann kallar „Production
of ensyme hydrolysates of fish
muscle cells“.
Loks hefur hann fyrirlestur við
Háskóla íslands kl. 17.15 og nefn-
ist hann „Fat depots in fishes andl
• ^*r úkú pUMMW-ftti J iborat knv'V • — —