Morgunblaðið - 09.12.1980, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980
31
flytjendur fallin úr gildi? Er
búið að breyta? Á kannski að
segja: Sælli eru
stríðsæsingamenn. Er það
boðskapur nýbyrjaðrar að-
ventu? Mikið má þjóðin
fagna hernaði og illdeilum í
löndum Gyðinga og Araba.
Þar er nú ekki verið að
hlaupast undan herskyldu.
Daglega berast fregnir um
hervirki og þjáningar, reyk
og rústir stríðsþjáðra borga
og bæja.
Ungir nemendur Sjó-
mannaskólans ganga fylktu
liði á fund dómsmálaráð-
herra. Afhenda áskorun-
arskjal um að Gervasoni
verði hvergi þyrmt, en hann
fluttur úr landi. Skaut Ger-
vasoni úr vélbyssu á skips-
höfn Fróða? Sökkti hann
Dettifossi eða Goðafossi?
Nyti hann náðar og fyrir-
greiðslu farmanna ef hann
væri Geneverbrúsi, fluttur
með ólögmætum hætti til
landsins? Væri honum þá
búinn notalegur staður í
skipsmastri eða milli þilja?
Ætlar þessi gráðuga, gír-
uga þjóð að kafna í ágirnd og
eigingirni styrjaldarhyggju
og hernaðaranda? Skrípla á
skötu útgerðarauðvalds og
renna niður rassinn á smjör-
fjallinu. Er frystikistan
komin í hjartastað?
Gæfusnauð og hirðulaus
um drengskap sinn dansar
hún kring um gullkálfinn.
Hremmir og hamstrar.
Bækluð á sál og sinni, húkir í
höm undir stýri, höktir á
bensínfæti og raunvaxta-
fæti, siðblind af sjón-
varpsglápi, ærð af orgi
diskósöngva. Bölvandi og
ragnandi ekur hún um torg
og traðir í leit að bílastæð-
um, spúandi eimyrju og eitri.
Drukkinn skríll reitir upp
gróður á Austurvelli við and-
dyri sjálfs Alþingis fyrir
augum landsfeðra. Og niður-
talningarmenn verðbólgunn-
ar, sem hækka nauðsynja-
vörur daglega og svíkja öll
kosningaloforð sín hafa það
efst á minnislista sínum að
hrekja umkomulausan ungl-
ing af landi brott og dæma
til dýflissuvistar.
Þar kom að því að útvegs-
menn gátu veitt stuðning.
Fjölmennur landsfundur
þeirra lýsir stuðningi við
brottvísun Gervasonis. Þess-
ir sömu aðilar sem hafa í
hótunum dag hvern og
heimta stuðning og hjálp til
hverskonar athafna, þeir
urðu allt í einu aflögufærir
um stuðning. Hvílík hetju-
dáð. Að sameinast um að
berja á fingur þess er reynir
að ná taki á kjölnum og
bjarga sér úr háska. Það er
sjóferðabæn að tarna.
Eru Makki hnífur og
Breddubeitir fulltrúar Guðs
kristni og þjóðarinnar á jóla-
föstu 1980?
Er jólaguðspjallið herút-
boð?
Megum við heyra biskups-
boðskap er friðarhátíð fer að
höndum?
Pétur Pétursson þulur
BabyRuth
Hid velÞekkta ameríska sælgæti
Heildsölubirgðir:
Agnar Ludvigsson hf.
Nýlendugötu 21, sími 12134.
--------------------------- ' -------------------------------------
V •■>’■■: •f.V. 'k- ■'£■■'& ÍfV .
;. w-w * v .
Steingrlmur Baldvinsson
Steingrímur í Nesi var merKiiegt 3káid, og
trtóöurmákd lék honum á tungu. Hér er aö
flnna afburðakvæöi svo sem Heiðmyrkur. sem
hann orti ar hann belð dauða slns I gjá i
Aöatdalshrauni f fimm dægur og var bá
bjargaö fyrir tHvíljun
Steingrfrmir bjó á bökkum Laxár og var mlkiti
vetöJmaöur Skyldi einhver hata lýst betur því
andartakí þegar laxinn bítur á en hanri gerir í
þessarf vísu:
tfgar Btríkkar atangartaumur ftÉífejgjjj
atöngin avignar, h/ólió malar,
þýtur um eaóar þungur atraumur
þanin taug vió taxinn hjalar *J*&*Í,
Almenna
bókafélagið
Austurstræti 18. - Simi 255í bt
Skenttnuvegi 36, Kóp. Sínti 7305.1.
NÝÖLD
ÖLDIN SEXTÁNDA
Oldin
Minnisverð tíðindi 150M550
Út er komið nýtt bindi í hinum
geysivinsæla bókaflokki „Aldirnar“.
Það er Öldin sextánda, fyrri hluti, sent
Jón Helgason hefur tekið sanian.
Hér eru raktir á lifandi og
aðgengilegan hátt atburðir áranna
1501 — 1550, siðskiptatímans, sent er
eitt mesta átakaskeið í sögu
þjóðarinnar. 1 bókinni er fjöldi mynda.
margar fáséðar.
„Aldirnar“ eru lifandi saga liðinna
atburða í máli og mynduni. Þau níu
bindi sem áður eru komin gera skil
sögu þjóðarinnar frá 1601 1970. í
formi samtímafréttablaðs. En þau eru:
Öldin sautjánda 1601 1700
Öldin átjánda 1701 — 1760
Öldin átjánda 1761-1800
Öldin sent leið 1801 — 1860
Öldin sem leið 1861— 1900
Öldin okkar 1901-1930
Öldin okkar 1931—^1950
Öldin okkar 1951 1960
Öldin okkar 1961-1970
Þeir ntörgu sem lesið hafa þessar
bækur sér til mikillar ánægju og
fróðleiks munu fagna því að geta nú
bætt Öldinni sextándu í safnið.
Bræðraborgarstig 16 Sími 12923 - 191%