Morgunblaðið - 09.12.1980, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 09.12.1980, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980 Við sendum þér nýjustu plöturnar hvert á land sem er! 1. I hatiðarskapi Gunnar Þórðafson & Co -SÖNG-^ R p/iy'.h i ty (iirt/i 4. I hakanum Mezzoforte BESSI segir txxnunum srigur 5. Bessi segir börnunum sögur Hljómplötuþjónusta Heimllistækja h/f gefur þér kost á því aö panta allar nýjustu plöturnar i síma eöa bréflega. Merktu viö plöturnar sem þú vilt fá, og við sendum þær til þín um hæl í póst- kröfu. Þú getur líka hraðpantað sím- leiðis, síminn er 20455. ------— Pöntunarseöill —------— Nafn: Heimili: Póstnr. Staöur: Já takk.. Sendiö mér eftirfarandi plötur meö póstkröfu: □1 [□□adhns Sendu pöntunarseöilinn strax i dag til: Heimilistæki h.f„ Sætunl 8, Reykjavík. heimilistæki hf Hafnarstræti 3 — Sætúni 8. Almenn óánægja meðal bakara EINS OG FRAM hefur komið í fréttum ríkir nú mikil óánægja meðal bakara vegna verðlagningar vísitölubrauðanna svokölluðu. Telja þeir sig neydda til að selja þau undir kostnaðarverði og íhuga þeir nú sameiginlegar aðgerðir og mun hafa verið rætt um það að hætta alveg bakstri vísitölubrauðanna. Mbl. hafði í þessu tilefni samband við þrjá bakarameistara og fara viðtölin hér á eftir: Vísitalan á brauðunum er hreint rugl. Fólk virðist kunna vel við öll önnur brauð og því er enginn greiði gerður með því að gera okkur ókleift að baka vísitölubrauðin, þar sem við erum skikkaðir til að selja þau undir kostnaðarverði. Frelsið og samkeppnin veita okkur mun betra og eðlilegra aðhald. Erum fyllilega samkeppnis- færir við innflutninginn Ég vona að ríkið reyni að skilja afstöðu okkar bæði í sambandi við vísitölubrauðin og innflutninginn. Við viljum verzlun verði frjáls hér, það er sá verzlunarmáti sem ríkja ætti. En með frelsinu verður maður að taka á sig einhverjar byrðar. Ein af þessum byrðum er innflutningur- inn, við höfum ekkert á móti honum og erum fyllilega samkeppnisfærir við innflutt brauð og kökur. Það sem Guðmundur Hlynur Guðmundsson: Erum neyddir til að selja vísitölubrauðin undir kostnaðarverði „VÍSITÖLUBRAUÐIN eru vinsæl og mér likar vel að baka þau, en miður að selja þau undir kostnað- arverði,“ sagði Guðmundur Illynur Guðmundsson bakarameistari i Breiðholtsbakarii. Það fer mikill og dýr timi í bakstur þeirra. því þau eru aðallega bökuð í nætur- vinnu. en það hefur ekki fengizt viðurkennt í verðútreikningum. Við viljum að fólk geti fengið nýtt brauð á hverjum morgni og því erum við að þessu. Vísitalan á brauðunum er hreint rugl Þetta er mikið barnahverfi hér og því mikil eftirspurn eftir vísitölu- brauðunum og það hefur staðið rekstrinum fyrir þrifum hve mikið við höfum þurft að baka af vísitölu- brauðunum sðast liðin 8 ár. okkur gremst hins vegar, er það, að við fáum ekki að kaupa egg og þurrmjólkurduft á sama verði, það er heimsmarkaðsverði, og þeir sem síðan fá að flytja kökur og brauð hingað inn. Það hjálpar heldur ekki að leggja þunga skatta á þá sem framleiða egg og aðrar landbúnað- arvörur fyrir okkur. Landbúnað- arstefnan er ekki beinlínis til að bæta ástandið. Ein vitleysan er svo sú að þeir bakarar, sem ekki hafa mjólkursöluleyfi, fá ekki mjólk í heildsölu, heldur verða þeir að greiða smásöluverð fyrir hana. Þetta er auðvitað fáránleg mismun- un. Ég vona svo bara að bakarar standi saman um þær aðgerðir, sem verða ákveðnar og að við fáum skilning á okkar málum. Við höfum gert vel þrátt fy.rir þessi höft en það getur ekki gengið endalaust." Sigurður Bergsson: Hætti að baka vísitölubrauðin „Vísitöluhrauðin hafa alltaf verið á of lágu verði og það er sízt betra nú. Ég leysti þetta mál cinfaldlega með því að hætta að baka þau, en það hefur alls ekki minnkað viðskiptin, fólk kaupir bara meira af hin- um brauðunum. svo varla verð- ur þessi vitleysa til að lækka vísitöluna,“ sagði Sigurður Bergsson bakarameistari í Bernhöftsbakaríi, er Mbl. ræddi við hann. „Mér finnst að þessi vísitölu- binding á ákveðnum brauðteg- undum ætti ekki að eiga sér stað, hvers vegna má fólk ekki ákveða sjálft hvaða brauðtegundir það kaupir? Mér finnst einnig ástæðulaust að gera einstaka stétt að vísitölu- þrælum, þegar aðrar stéttir fá að selja framleiðslu sína á því verði sem þær vilja. Ekkert baktjaidamakk, engar niðurgreiðslur Varan á bara að kosta það sem hún þarf að kosta, það ætti að sleppa öllu baktjaldamakki og niðurgreiðslum. Selja kjöt og fisk á því verði, sem framleiðendurn- ir þurf að fá. Allar þessar verðlagningar aðferðir eru bein- línis orðnar hættulegar þjóðfé- laginu. Þá er nú ein vitleysan með smjörið og smjörlíkið. Á meðan allt er fullt af smjöri í landinu og það liggur undir skemmdum, er það selt á svo háu verði, að fjöldi fjölskyldna verður að nota smjörlíki ofan á brauðið. Það ætti hreinlega að banna smjör- líkissölu og feitmetisinnflutning á meðan smjör er til í hundruð- um tonna í landinu. Ég álít að við þurfum ekkert að vera hræddir við innflutning á kökum og brauði, ég er fylgjandi frjálsræði, en það verður þá að vera fyrir alla. Við fáum ekki að kaupa egg og þurrmjólkurduft á heimsmarkaðsverði, heldur verð- um við að greiða mun meira verð fyrir það hér heima. Það sjá allir að þarna er um einkennilegt frjálsræði að ræða. Við gerum kröfur til þess að fá þessar og margar aðrar vörur á sama verði og þeir sem baka brauðið erlend- is og fá að selja það hér. Ég veit ekki heldur til hvers við erum í efnahagsbandalaginu, ef við njótum ekki sömu réttinda og aðrir innan þess. Ég efa það einnig að brauðin sem koma frá Danmörku séu ekki niðurgreidd." Frumvarp um banda rískan sjávarútveg WashlnKton, 6. des. AP. BANDARÍSKA þjóðþingið hefur Eftir öll þessi ár BÓKAÚTGÁFAN Hildur hefur gef- ið út bókina „Eftir öll þessi ár“ eftir Essie Summers. Á bókarkápu segir svo: „Þegar Thomasína frétti að hún hafði unnið samkeppnina, og að verðlaunin voru m.a. ferð til Nýja- Sjálands, var gleði hennar meiri en orð fá lýst. Þarna bauðst henni tækifæri til að fara með systkini sín í stórkostlegt ferðalág, og loksins mundi hún hitta Eb frænda. Og þannig varð það, þau urðu yfir sig hrifin af landinu og Eb frænda sem vildi endilega að þau yrðu áfram hjá sér. Öðru máli gegndi um Luke Richmond, sem gerði Thomasínu það fyllilega ljóst að hann efaðist stór- lega um tilgang heimsóknarinnar og áhuga hennar á Eb frænda. En hvers vegna stóð henni ekki á sama um álit Lukes á sér?“ samþykkt frumvarp um verndun og eflingu sjávarútvegs í Banda- rikjunum og sent það Jimmy Cart- er forseta til undirritunar. Samkvæmt frumvarpinu fær sjávarútvegurinn tímabundna að- BREZKIR fornleifafræðingar hafa grafið upp vígvöll i Austur- Englandi, þar sem fornbrezki ætt- flokkurinn Iceni barðist til síðasta manns gcgn innrásarliði Rómverja 47 f.Kr. stoð til að mæta alvarlegum efna- hagserfiðleikum að sögn stuðnings- manna þess. I frumvarpinu er gert ráð fyrir að erlend fiskiskip hætti veiðum í bandarískri landhelgi í áföngum og að bandarískir eftir- litsmenn verði um borð í erlendum skipum, sem veiða við Bandaríkin, til að fylgjast með veiðum þeirra. Skammt frá hafa fundizt leifar rómverskrar hallar og stjórnar- miðstöðvar, sem sennilega var reist um 100 árum eftir orrustuna. Vígvöllur fundinn Stonea, Englandi, G. des. AP. Orrustunni er lýst í ritum róm- verska sagnfræðingsins Tacitus. Ekki bara okkar stolt. . heldur líka þitt. 11 Þegar þú býður gestum þínum í Þingholt. Leitaðu upplýsinga hjá okkur, nœst þegar þú þarft á húsnœði að halda fyrir brúðkaup, fermingu, árshátíð eða hverskonar mannfagnað. Síminn er 2 10 50.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.