Morgunblaðið - 09.12.1980, Síða 35

Morgunblaðið - 09.12.1980, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980 Jón Víglundsson: Það skýtur nokkuð skökku við að leyfa frjálsan innflutning á kökum og brauði, þegar við fáum ekki að flytja egg og þurrmjólkurduft inn á heimsmarkaðsverði. Þessu veld- ur auðvitað landbúnaðarstefnan, sem er eins og heilög kýr, sem alls ekki má hrófla við. Við erum alveg tilbúnir til þess að gera verðsamanburð á kökum og brauðum hér og á öðrum vesturlöndum og ég er nokkuð viss um, að hann verður okkur ekki í óhag. Við höfum unnið að því sjálfir að halda verðinu niðri og frá 1976 hófu bakarar sjálfir að flytja inn sekkjavörur án milliliða og jafnframt hefur verið leitað eftir lægsta verði. Þetta hefur valdið því að verðhækkanir á brauðum hafa ekki fylgt verðlag- inu. Við bakarar allir rekum svo sameiginlega smjörlíkis- og efna- gerð, „Sultu- og efnagerð bakara". Þar framleiðum við allt okkar smjörlíki, sultur, hunang, súkku- Verðlagning vísitölu- brauðanna beinlínis til að falsa vísitöluna Hækkanabciðnir okkar oftast svæfðar í ríkisstjórninni „ÞAÐ ER ekkert nýtt að verði á vísitöluhrauðunum sé haldið niðri, það hefur verið gert í áraraðir og er beinlínis til að falsa vísitöluna,“ sagði Jón Víg- lundsson bakarameistari f Árbæj- arhakaríi. Að vísu höfum við fengið nokk- uð frelsi á öðrum sviðum, höfum fengið að verðleggja sjálfir aðrar brauðtegundir og ég álít, að bakarar hafi ckki verið staðnir að þvi að misnota það frelsi. Þrátt fyrir að verðlagsráð hafi samþykkt hækkanabeiðnir okkar, hafa ríkisstjórnirnar venjulega setið á þeim, þar til þær eru orðnar úreltar og þá loks samþykkt þær og þannig reynt að halda verðlag- inu niðri. Slíkt er að sjálfsögðu ekki viðunandi. Höfum sjálfir haldið verðinu niðri með samvinnu og hagkvæmni Hvað viltu segja um innflutning á brauði? laði og fleira. Þetta hefur gert okkur kleift að halda verðinu á smjörlíkismarkaðinum niðri og hafa betra eftirlit með gæðunum. Afkoma bakara þokkalcga góð Afkoma bakara hér á landi er þokkalega góð, en það hefur út- heimt geysilega mikla vinnu. Bak- arar hafa vélvætt brauðgerðir sín- ar mun betur en kollegar þeirra á Norðurlöndunum og þannig sýnt mikla hagsýni og reynt að minnka tilkostnað í rekstri. Ég er til dæmis í mínu bakaríi, sem er aðeins af miðlungsstærð, með al- sjálfvirka brauðvél og mér er það til efs, að slík vél fyrirfinnist í bakaríum af þessari stærðargráðu á Norðurlöndunum. Brauðmatur veitir alhliða nær- ingu fyrir mannslíkamann og hef- ur verið undirstöðufæða þjóða gegnum aldirnar og að gefnu tilefni, einnig næring fyrir tenn- urnar. Jafnt brauð úr hvítu hveiti og öðru korni, og ég vona, að fólk geti haldið áfram að fá þær brauðtegundir sem það óskar. 35 Rosenthal stækkar við sig Rosenthal-verzlunin að Laugavegi 85 stækkaði fyrir nokkru um helming og mun betri aðstaða er nú til að sýna vörur verzlunarinnar. Á boðstólum eru vörur frá hinu heimsþekkta fyrirtæki Rosenthal í V-Þýzkalandi, en einnig selur verzlunin vörur frá fyrirtækinu WMF og verður vöruúrvalið aukið enn eftir áramót. Á meðfylgjandi mynd eru Árndís Björnsdóttir, eigandi verzlunarinnar, Aldís Þórðardóttir og Valgerður Sigurðardóttir. Emiit«) Ný unglingabók: „Ég er köll- uð Ninna“ ÚT ER komin unglingasagan Ég er kölluð Ninna eftir sænska höfundinn Önnu-Gretu Winberg. IÐUNN gefur bókina út. Höfundur sögunnar hefur samið allmargar unglingabækur sem kunnar hafa orðið á Norðurlöndum, en þetta er fyrsta saga hennar sem út kemur á íslensku. — Sagan segir frá unglingsstúlku sem býr hjá móður sinni, en faðir hennar hafði farist af slysförum áður en hún fæddist. Fjölskyldu hans hefur stúlkan aldrei kynnst og veit fátt um hana, enda hefur móðir hennar aldrei viljað tala um slíkt. Stúlkan unir þessu illa og tekur sjálf að afla sér upplýsinga um föður sinn og frændfólk. Völundur Jónsson þýddi söguna Ég er kölluð Ninna. Bókin er 136 blaðsíður. Prisma prentaði. Drauma- ráðningar BÓKAFORLAGIÐ Hagprent hf. sendir nú fyrir jólin frá sér nýja draumaráðningabók i samantekt Þóru Elfu Björnsson, og nefnist bókin Uglu draumaráðningabókin. í formála segir meðal annars að slíkar bækur hafi verið ófáanlegar að undanförnu, þótt margar hafi áður komið út. Þær fyrri hafi jafnan selzt upp. Efni í þessa nýju draumaráðn- ingabók er safnað víða að úr prent- uðu máli, segir í formála, bæði erlendu og innlendu. Mikið er um mannanöfn í bókinni, og þar segir til dæmis um nafnið Jóhann: Gott nafn í draumi, sem merkir gæfu og gengi. Sjóðheitt kaffi góðan daginn! Það er notalegt að vakna á morgnana og fá gott heitt kaffi og ristað brauð. Þessi frábæra kaffivél og brauðristin valda þér ekki vonbrigðum . . . nývöknuðum. Kaffivélin er 45 sek. að hella upp á hvern bolla af frábæru heitu kaffi. Þýsk gæða framleiðsla. Margar stærðir: 12, 10, 8, 6 og 18 bolla. Einnig með innbyggðum hitabrúsa og tölvuklukku (sjálfvirk uppáhelling eftir minni). Verð frá: 38.000 kr. hessi brauðrist er með nýjum búnaði, lítilli tölvu sem tryggir að brauðið sem þú glóðar, brennur ekki. Hljóðlaus brauðrist, tvær sneiðar af brauði á 90 sek. Verð: 37.000 kr. 2 FÁLKIN Jkúudi&teúi SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.