Morgunblaðið - 09.12.1980, Page 37

Morgunblaðið - 09.12.1980, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980 37 Norrænir bankamenn standa heys hug- ar með starf sbræðrum sínum á Islandi - segir Jan-Erik Lidström, framkvæmdastjóri Norræna bankamannasambandsins „ÉG HEF aldrei kynnst slíku ástandi sem þessu,“ sajfði Jan- Erik Lidström framkvæmda- stjóri Norræna bankamannasam- bandsins, en hann er nú staddur hér á landi, en Samband is- lenzkra bankamanna er eitt sex aðildarsambanda norræna sam- bandsins. Áður en Lidström kom á ritstjórn Morgunblaðsins síð- astliðinn föstudag, hafði hann heimsótt nokkra banka og séð erilinn þar, sem skapaðist á föstudaginn vegna óvissunnar um verkfall bankamanna á mánudag. „Mitt erindi hingað er að undir- strika, að norræna sambandið stendur heils hugar með íslenzk- um bankamönnum í þeirri bar- áttu, sem þeir nú heyja við viðsemjendur sína og þar með eiga íslenzkir bankamenn stuðning danskra, norskra, sænskra og finnskra bankamanna." Hafa bankamannaverkföll verið á Norðurlöndum fyrr? „Já þrisvar sinnum áður,“ sagði Lidström. „I fyrsta skipti varð það í Finnlandi 1963 og stóð þá verkfall í 3 daga. í annað sinn varð verkfall 10 árum síðar, 1973, einnig í Finnlandi og stóð það þá í 2 vikur. Loks varð bankamanna- verkfall í Noregi 1976 og stóð það í eina viku. Ef af þessu verkfalli verður er þetta 4. bankamanna- verkfall á Norðurlöndum. Þessi verkfðll hafa verið háð að hluta til þess að fá fulla viðurkenningu viðsemjendanna á samtökum bankamanna, sem viðsemjendurn- ir hafa ekki umgengizt sem jafn- réttháan samningsaðila. Öll aðild- arsambönd norræna banka- mannasambandsins hafa verk- fallsrétt, þótt hann sé takmark- aðri hjá starfsmönnum ríkisbank- anna. Hins vegar höfum við enga ríkisbanka á hinum Norðurlönd- unum, nema seðlabankana, bank- arnir eru allir í eigu hlutafélaga. Að þessu leyti er ástandið á íslandi öðruvísi, þar sem 3 við- skiptabankar eru í ríkiseign. Hér skilst mér að tveir þriðju hlutar bankastarfsmanna starfi hjá þess- um þremur bönkum." „Norræna bankamannasam- bandið styður SÍB heilshugar. Deilan snýst um 3%, sem þegar hefur verið samið um og slik stjórnmálaleg aðgerð, sem átti sér stað með lagasetningu, er þau voru tekin af, stríðir gegn frjáls- um samningsrétti. Við í stjórn norræna sambandsins höfum fylgzt náið með framvindu mála á stjórnarfundum, sem haldnir eru tvisvar til þrisvar á ári. í því tekur SÍB þátt og við vitum, að bankarn- ir hafa ekki viljað tala við banka- starfsmenn frá því um mánaða- mótin september-október. Það er ljóst, að við slíkt ástand á SÍB ekki annars úrkosti en boða til verk- falls ...“ Jan-Erik Lidström kvaðst hafa heyrt um tilmæli ríkisstjórnarinn- ar um frestun verkfallsins. Hann kvað slíka ályktun ríkisstjórnar furðulega með hliðsjón af því, að ríkisstjórnin ætlaðist til með henni, að bankastarfsmenn frest- uðu verkfalli einhliða, án þess að ríkisstjórnin byðist til þess að tryggja nokkuð á móti. Hann spurði: „Getur það virkilega verið að mennirnir hafi búizt við já- yrði?“ Framkvæmdastjóri norræna bankamannasambandsins kvað sambandið hafa 130 félaga í 6 landssamböndum. í Svíþjóð er eitt samband, í Noregi og Finnlandi einnig, og í Danmörku eru sam- böndin tvö, bankamannasamband og samband starfsmanna spari- sjóða. Síðasta þing sambandsins var haldið í Finnlandi í ár, en fyrir tveimur árum var þingið haldið í Reykjavík. Næsti fundarstaður er Svíþjóð. Þessa fundi sækja 80 til 90 manns. Stjórnin er skipuð 20 manns. Næsta formannaráðstefna verður haldin í Reykjavík í apríl- mánuði. Þá starfa ýmsar nefndir innan norræna sambandins og taka íslendingar þátt í þeim öll- Jan-Erik Lidström. um. Kostnaður við rekstur nor- ræna sambandsins er greiddur með skatti, 5 krónum sænskum á hvern einstakan félaga. Þá ræddi Lidström nokkuð um sameigin- legan verkfallssjóð norrænna bankamanna, sem hann kvað nú vera um 200 milljónir sænskra króna, 26,8 milljarðar íslenzkra króna, en þar af eru 10 milljónir króna, sem eru tiltækar strax sem neyðarsjóður, 1.340 þúsund ís- lenzkar krónur. Hann kvað þessa peninga tilbúna, þegar SÍB þyrfti þeirra með, en þá sem styrkur eða lán. Að lokum ræddi Jan-Erik Lid- ström nokkuð framtíðarmálefni norrænna bankamanna og minnt- ist m.a. á þá tæknibyltingu, sem í vændum væri. Af því starfi sem norræna sambandið hefði unnið á því sviði, myndu íslenzkir banka- menn geta notfært sér ýmislegt. Hann kvað ljóst, að á næstu árum myndi atvinnuöryggi um 30 til 40% bankastarfsmanna verða í hættu vegna tæknibyltingarinnar. Sambandið og aðildarsambönd þess myndu beita sér fyrir því að þessi tækniþróun hefði ekki í för með sér atvinnuleysi meðal banka- manna, þeim hefði fjölgað mikið" undanfarin ár, en fjölgunin hefði nú stöðvazt. Hann kvað sambönd- in myndu beita sér fyrir því að bankarnir útvíkkuðu starfssvið sín og færu að veita viðskiptavin- um sínum meiri þjónustu en þeir hafa gert til þessa, það myndi verða sú leið, sem bankamenn vildu að þessari þróun yrði beint inn á. Myndu þá atvinnutækifæri í starfsgreininni ekki dragast sam- an. Nú eru í Svíþjóð, Noregi og Finnlandi komnir upp nokkurs konar vélrænir bankaafgreiðslu- menn, „sjálfsalar", þar sem fólk getur tekið út úr sparisjóðsbókum án þess að bankastarfsmaður komi þar nærri. í sumum tilfellum eru þessir sjálfsalar utan dyra, þannig að menn geta tekið út af bókum hvenær sólarhrings sem er og um helgar. Þessi þjónusta er enn ekki hafin í Danmörku og Jan-Erik Lidström kvaðst búast við að ekki liði á löngu, þar til þessi þjónusta yrði einnig tekin upp í Danmörku og á íslandi. Skúli HalldórsNon tónskáld og má sjá plötu hans, Sögueyjan, hljómar frá Islandi, i baksýn. Ljósm. KÖE. Verk Skúla Halldórssonar gefin út á plötu í Finnlandi GEFIN hefur verið út í Finnlandi hljómplata með nokkrum verkum Skúla Ilalldórssonar tónskálds. Hefur Skúli útsett 20 lög plötunnar fyrir einleik á pianó og leikur sjálfur á hljóðfærið. Var platan tekin upp hérlendis, en pressuð i Finnlandi og gefin út af fyrirtæk- inu Sauna Musiikki. Fyrirtækið hefur með samningi fengið öll réttindi á þessum verkum Skúla hvar sem er i heiminum nema á tslandi. Skúli Halldórsson greindi Mbl. frá því hvernig plata þessi varð til. Var hann á ráðstefnu í Noregi vorið 1979 þar sem hittust forráðamenn „STEFja" á Norðurlöndum og var þar á meðal Finninn Rauno Lehtin- en tónskáld, sem er eigandi fyrr- nefnds fyrirtækis. Lehtinen samdi m.a. lagið „Jenka“, sem vinsælt var fyrir 10 til 15 árum. Kynntust þeir Skúli og Lehtinen og kvaðst hann hafa áhuga á að gefa verk Skúla út á plötu og varð það úr að Skúli valdi nokkur lög, útsetti þau og lék inn á segulband. Lehtinen var í mörg ár forstöðumaður skemmtideildar finnska sjónvarpsins, en síðustu árin hefur hann helgað sig tónlist- arstörfum. Hljómplata Skúla kom út í Finn- landi síðast í nóvember og var hún þá kynnt fyrir fréttamönnum, lista- fólki og gagnrýnendum og var Skúla og konu hans boðið til Finnlands við það tækifæri. Sagði Rauno Lehtinen útgefandi plötunnar þá að nú væri í fyrsta sinn komin út plata í Finn- landi með islenzkum verkum, leikn- um af höfundi þeirra, finnska þjóðin fengi nú tækifæri til að kynnast verkum Skúla og myndu vonandi aukast menningartengsl þjóðanna. Meðal laga á hljómplötunni eru Smaladrengurinn og Smalastúlkan, Draumljóð og Kyssti mig sól. Skúli nam píanóleik hjá Árna Kristjáns- syni og Rögnvaldi Sigurjónssyni og tónfræði hjá dr. Victor Urbancic. Hefur hann í yfir 30 ár samið ýmis tónverk, kammerverk, hljómsveitar- verk og sönglög, alls milli 150 og 160 verk. Hljómplata Skúla er einnig fáanleg hérlendis og er það Fálkinn hf., sem annast dreifinguna. Islensk tónlist um allan heim Við bjóðum nýja þjónustu, pökkum og sendum vinum þínum eða vandamönnum erlendis íslenska hljómplötu í gjafapappír. Frábær jólakveðja. Gleðjiö vini og vandamenn með stórskemmtilegri jólagjöf sem minnir á ísland. Við bjóðum yður að velja tónlist í hljómplötuúrvali okkar, skrifa nokkur orð á jólakort sem við leggjum til. Við pökkum hljómplötunni í traustan pakka, þér skrifið utan á hann og við póstleggjum. Pakkinn kemst til réttra aðila á jólunum og allir eru ánægðir. SUÐURLANDSBRAUT LAUGAVEGI AUSTURVERI FÁLKINN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.