Morgunblaðið - 09.12.1980, Page 38

Morgunblaðið - 09.12.1980, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980 + Móöir okkar GUDRUN JÓNSDÓTTIR frá Skaftafelli, Hverageröi, andaöist að Elliheimilinu Grund laugardaginn 6. desember. Börnin. t ALDÍS ÓLAFSDÓTTIR, Álfheimum 72, lést að heimili sínu þann 4. desember Fyrir hönd systra, Halla Ólafadóttir. + Faöir minn og bróöir, PÁLL HANNESSON, andaöist aö Hrafnistu 25. nóvember. Jaröarförin hefur fariö fram. Harry Pálsson, Rósey Helgadóttir. + Elskuleg móöir okkar, SIGURBORG STURLAUGSDÓTTIR, frá Tindum, andaöist í sjúkrahúsinu í Stykkishólmi 5. desember sl. Guölaug Guömundsdóttir, Kjartan Guömundsson. + innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúö og hlýhug viö andlát og jaröarför SIGURÐAR KRISTJÁNSSONAR, framreiðslumanns, Miklubraut 13, Reykjavík. Stefanía Aöalsteinsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Faöir okkar, SNORRI GUDLAUGSSON, Hátúni 10 A, andaðist aö heimili sínu, laugardaginn 6. desember. Jarðarförin auglýst síöar. Börnin. + Móöursystir mín, GUÐRUN NIKULASDOTTIR, áöur til heimílis aö Öldugötu 19, Hafnarfiröi, andaöist aö Sólvangi föstudaginn 5. des. Fyrir hönd vandamanna, Ólafur Vigfússon. + Eiginmaöur minn, og faöir, GEORG BURAWA, Laurel, Maryland, USA, andaöist 4. desember. Jaröarförin fór fram 8. desember. Áslaug Hermanníusdóttir Burawa, Christofer Burawa. + Móöir okkar, ANNA ÞÓRARINSDÓTTIR, Borgarholtsbraut 45, Kópavogi, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 10. desem- ber kl. 1.30. Unnur Bjarnadótti;, Erla Bjarnadóttir, Auöur Bjarnadóttir. Minning: Sigurbjörg Jónas- dóttir frá Fjalli Fædd 4. nóvember 1885 Dáin 25. april 1980 Ég minnist þín er sé ég sjóinn glitra við sólar hvel og þegar mánans mildu geislar titra ég man þig vel. (MJ) Að heilsast og kveðjast svo er lífsins saga. Mér er bæði ljúft og skylt að minnast tengdamóður minnar, sem lokið hefur sinni löngu lífsgöngu, hátt á tíræðis aldri. Öllum er visst takmark sett, hver á sinn enda tíma. Sigurbjörg átti langan starfsdag að baki. Að síðustu hafði allur lífsþróttur fjarað út og óminnið sest að. Þá er öll lífslöngun horfin og ættingjar og vinir bara í blámóðu. Þá er hvíldin kærkomin og ferðin langa hafin. Nú bítur ekkert stundlegt á hana, hún nýtur alsælu hjá Guði eftir dagsverk lokið með sóma. Þessi kveðjuorð verða engin ætt- artala, enda henni verið það síst að skapi. Víst heyrir það sögunni til, þó er mest um þann orðstír vert, sem hver á og þá mynd sem hver skilur eftir í sporaslóð sinni. Hún var búin að lifa tvenna tíma, þegar lífssól hennar gekk til viðar. Hún bjó í mörg ár á afskekktum sveitabæ, þar sem erfitt var að- dráttar. Þar ól hún börn sín upp við töfrandi fegurð hárra fjalla, þar sem kvöldblíðan lognværa kyssti hvern reit. Mann sinn, Jónas Þorvaldsson, missti hún 1941, tvö afabörn hlutu skírn yfir kistu hans; nokkurra vikna sonur minn og lítil afa stúlka. Þar kom annar Jónas. Maður kemur 1 manns stað, þetta er lögmál lífs- ins. Vel man ég tengdamömmu á þessari sorgar stund. Þá var mitt heimili á Fjalli hjá þeim hjónum. Ég naut tengdapabba skammt, aðeins tvö ár. Hans var sárt saknað. Sigurbjörgu og Jónasi varð fimm barna auðið. Af þeim lifa þrjú. Son misstu þau í blóma lífsins. Tel ég það hafa verið þeim sár, sem aldrei greri. Gestrisni mikil var á heimili þeirra. Oft komu menn kaldir og hraktir af langri göngu, þar var nóg rúm, hjartahlýja og góðvild, 5VAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Ilvað álítið þér um fljúgandi diska? Margar sannanir eru fyrir því, að þeir séu til. Fyndist yður ekki, að Biblian væri sennilegri, svo og kraftaverkin, sem hún segir frá, ef menn viðurkenndu tilveru fljúgandi diska? Yfirvöldin hafa varið töluverðum tíma og fé til þess að rannsaka fljúgandi furðuhluti. í niðurstöðunum er ekki mikill stuðningur við þá kenningu, að fljúgandi diskar séu til. Eg hef ekkert á móti þessari hugmynd um hluti utan úr fjarlægum geimnum, en það stoðar ekki að vera trúgjarn og gera ráð fyrir tilveru slíkra hluta, nema sannanir séu til. Eg veit, að augu okkar geta blekkt okkur, og við segjum stundum: „Eg trúi ekki mínum eigin augum.“ Þér spyrjið, hvort Biblían verði ekki trúlegri, ef gert er ráð fyrir, að fljúgandi furðuhlutir séu til. Eg á ekkert erfitt með að trúa Biblíunni, því að eg tek hana eins og orð Guðs, og trú mín á henni styrktist ekkert við það, þó að fljúgandi diskar væru á þeytingi kringum húsið mitt á hverjum degi. Eg trúi kraftaverkum Biblíunnar, ekki vegna þess að þau séu trúleg eða hafi verið sönnuð, heldur vegna þess, að frá þeim er sagt í orði Guðs. Eg ber skilyrðislaust traust til höfundarins. Biblían greinir frá því, að sá dagur renni, er Kristur kemur aftur til þessarar jarðar sem friðarhöfðinginn, konungur konunga og drottinn drottna. Þetta er sú „geimferð“, sem eg er að bíða eftir, og sú, sem við ættum öll að búa okkur undir. + Konan mín, NELLY THORA MJÖLID SKÚLASON, andaöist föstudaginn 5. desember í Nesbyen í Noregi. Skúli Skúlason. t Útför eiginmanns míns, SVERRIS SVENDSEN, Hvassaleiti 23, fer fram frá Fossvogskirkju, miövikudaginn 10. desember kl. 3. e.h. Kristín Steínsdóttir. þau bæði kát og skemmtileg í viðræðum og glöð í vinahópi. Þótt Sigurbjörg virtist á ytra- borði fáskiptin og dul, þá var annað er að kjarnanum var komið. Hún var hreinskilin, trygglynd, athugul og skýr í hugsun. Hún unni söng og hafði fallega söng- rödd. Ekki er mér fært að telja upp öll þau börn er athvarf áttu hjá henni lengri eða skemmri tíma. Þar verða aðrir að taka við, en þau voru mörg og nutu þess öll í ríkum mæli hve barngóð hún var. 1943 urðu þáttaskil í lífi hennar. Þá brann bærinn og hún missti allt, sem hún átti, einnig dóttir hennar sem þá bjó á Fjalli. Þetta var þung reynsla fyrir Sigur- björgu og tók hún þetta sér mjög nærri. En hún stóð þennan storm af sér sem aðra. Eftir þetta flutti hún hingað í Höfðakaupstað og hefur átt hér heima síðan. Þó að Sigurbjörg væri búin að koma upp sínum börnum, átti hún eftir að taka að sér tvær litlar systur, tvíbura, sem hún tók af dóttur sinni sem átti í erfiðleikum. Þessum stúlkum reyndist hún sem eigin börn væru. Hjá ömmu sinni og fóstru voru þær þar til þær festu ráð sitt. Þær eru Guðrún og Sigurbjörg Angantýsdætur, báðar búsettar hér í Höfðakaupstað, mannkosta manneskjur og mynd- arlegar húsmæður. Þær launuðu henni vel uppeldið, hugsuðu alla tíð vel um hana. Þær voru ömmu sinni alltaf mjög kærar. Er Sigur- björg fluttist hingað og tók að sér systurnar, byggðu synir hennar Skafti Fanndal, eiginmaður minn og Ólafur Ágúst, nú látinn, lítið hús hér á mölinni niður við sjó. Það hét Bræðraminni. Þarna í litla húsinu leið henni vel og ekki mikils krafist. Og nóg að starfa fyrir hana, orðin fullorðin og þreytt á barningi lífsins. Litlu systurnar bættu henni margt upp. Oft var gestkvæmt í litla húsinu er ömmu börnin og vinir komu í heimsókn. Sigurbjörg var fríð kona sýnum. Hún var frábærlega létt í spori og snögg, sviflétt í öllum hreyfingum. Hún hafði ákaflega gaman af að dansa, það gerði hún sem ung væri fram á efri ár og naut sín vel í vinahópi. Fyrir 10 árum varð hún fyrir því áfalli að falla og bein- brotna. Eftir það steig hún aldrei heilum fæti á jörð. Þessu tók hún sem öðru með jafnaðargeði. Eftir að hún gat ekki verið án hjálpar, en áður en hún fór á spítalann, naut hún umönnunar Guðrúnar, fósturdóttur sinnar, og manns hennar, Indriða Hjaltasonar. Þar leið henni vel og hún ánægð og glöð í návist langömmu barnanna. I návist þeirra átti hún margar gleðistundir, þar til spítalinn tók við hlutverki þeirra. Oft mun hún hafa hugsað heim. Það var hugsað hlýtt til hennar af öllum ömmu- börnunum og langömmubörnum og vinum sem hún átti góða. Nú er hennar jarðvist lokið. Eflaust munu fósturbörnin henn- ar tvö, sem ekki gátu verið við útför hennar, geyma minningu hennar. Orðstír hennar lifir í hugum þeirra er þPkktu hana best. Sigurbjörg eignaðist fimm börn með manni sínum, Jónasi Þor- valdssyni frá Fjalli. Þau eru þessi: Ólafur Ágúst, Hjalti, dó ungur, Skafti Fanndal, Jóhanna og Guð- ríður. Nú er þessi aldna kona horfin af sjónarsviðinu. Margir hafa ólík viðhorf til lífsins, sýna ólíklegustu myndir af baráttunni fyrir tilver- unni. Sú saga hverfur með hverj- um og einum og verður aldrei sögð. Hér er kvödd mæt kona, sem vissi hvað lífið var. Slíkrar konu er gott að minnast. Afkomendur hennar eru orðnir margir og minning hennar lifir. Ég þakka hehni allt gott og samveruna gegnum árin, eins sonur hennar og ömmubörnin. Ég veit, að hún hefur átt góða heimkomu hjá honum, sem stýrir stjarnaher og himins gætir. Hjá henni hefur hann kveikt hið bjarta, eilífa ljós sem aldrei slokknar. Ástvinir allir kveðja Sigur- björgu með söknuði og innilegri hjartans þökk. Guð blessi minn- ingu hennar. Jóna Guðrún Vilhjálms- dóttir, Lundi, Skagaströnd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.