Morgunblaðið - 09.12.1980, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980
39
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Gálga-
frestur
Ljóð eftir Aðal-
stein Ásberg
GÁLGAFRESTUR heitir ný
ljóðabók eftir Aðalstein Ásbers
Sigurðsson, sem Fjölvaúteáfan
hefur gefið út. Þetta er þriðja
ijóðabók höfundar. hinar fyrri
eru Ósánar lendur og Förunótt.
I tilkynningu útgáfunnar segir:
„í ávarpsorðum spyr skáldið: Er
líf okkar þrotlaust þrælafár?" Og í
umsögn á bókarspjaldi segir: „Við
lifum í ótta við tortímingu. Er
maðurinn í óða önn að leggja
snöruna um eigin háls? Hvar
endar þessi leikur?"
Á bókarkápu segir að stíll
höfundar verði fágaðri og undir-
aldan máttugri. Bókin er
myndskreytt af ungri listakonu,
Önnu Gunnlaugsdóttur. Gálga-
frestur er 80 bls. og hefur að
geyma 30 ljóð. Setningu og prent-
un annaðist Prentstofa G. Bene-
diktssonar.
Veljið ekki hljómplötur til gjafa af handahófi
-| • ->* Góð hljómplata er frábær jólakveðja, í verslunum okkar er
\7 O I /'i úrval hljómplatna af flestum tegundum. Við bjóðum alla
V ClrXX V>/ okkar aðstoð og bendum á þessa flokka tónlistar
s
Islenskar plötur
Það er alltaf af nógu að taka í
íslenskri hljómplötuútgáfu.
Jafnframt því að eiga allt það
nýjasta reynum við einnig að
bjóða allar eldri íslenskar
hljómplötur. í verslunum okk-
ar er að finna íslenskar popp-
plötur, dægurtónlist, harmon-
ikkuplötur, einsöng, kórsöng,
kvarteta, þjóðlög, leikrit, upp-
lestur og klassíska íslenska tón-
list svo að dæmi séu nefnd.
Jazz
Á undanförnum árum hefur
jazzinn orðið æ sterkara afl
meðal tónlistarfólks. Samhliða
því höfum við leitast við að
fylgja eftir þessari endurvakn-
ingu á jazztónlistinni með
auknu og betra úrvali af hljóm-
plötum. Vonumst við til að
boðið sé upp á eitthvað af öllu.
ANNE MURRAY’S
GREATEST HITS
Létt tónlist
Eins og ávallt höfum við fjöl-
breytt úrval af léttri og bland-
aðri tónlist. Hvort sem þú ert
að leita að „countrytónlist",
gítarplötum, suður-amerískri
músík, vinsælum söngvurum,
söngkonum eða kvartetum,
kvikmyndatónlist eða öðru í
svipuðum dúr ættir þú að finna
það hjá okkur.
Klassík
Fyrir jólin er úrvalið af klass-
ískri tónlist í búðum okkar jafn-
an mest og fjölbreyttast. Um
þessar mundir erum við að taka
upp stórar sendingar frá mörg-
um af helstu útgáfufyrirtækjum
heims svo sem His Masters
Voice, Deutsche Grammo-
phon, Decca og R. C. A. Þar á
að vera að finna nýjar plötur,
endurútgáfur og viðurkenndar
hljóðritanir af mörgum af
helstu tónverkum sögunnar.
Popptónlist
í popptónlistinni eru sífelldar
hræringar og alltaf eitthvað að
gerast. Við höfum leitast við að
fylgjast sem best með öllu því
nýja sem skýtur upp kollinum
auk þess sem gamlar og rót-
grónar stefnur eru alltaf á boð-
stólum. Það er sama hvort um
er að ræða nýjar eða gamlar
rokkstefnur, reggae eða diskó,
við vonumst til þess að þú finnir
eitthvað hjá okkur.
FALKINN LAUGAVEGI SUÐURLANDSBRAUT AUSTURVERI I
__________________________ Cu
L( i ii ii
1 11 j
, 1 Jl'HI