Morgunblaðið - 09.12.1980, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980
41
fclk f
fréttum
Rakir
sveinar
+ Hér sést hvar hópur jólasveina fer yfir Times Torg í
New York, eftir að hafa fengið frí þann daginn.
„Sjálfboðaliðar Amerískra Jólasveina" voru að fara að
hefja söfnun sína á götum úti en þeir voru sendir heim
sökum rigningar. „Sjálfboðaliðar" þessir taka við framlög-
um, sem síðar eru notuð í jólamáltíðir til handa fátækum
og einnig til jólagleði fyrir lömuð börn.
Foot og 40.000 aðrir
+ Hér sjáum við hinn nýja
foringja „Verkamannaflokksins"
breska, Michael Foot (fyrir
miðju fremstur) í mótmæla-
göngu í Liverpool. Meira en
40.000 manns tóku þátt í þessari
göngu, sem var farin til að
mótmæla vaxandi atvinnuleysi í
Bretlandi. „Verkamannaflokkur-
inn“ vonast til að þetta sé aðeins
ein af mörgum göngum sem
gengnar verða til að mótmæla
stjórn Margrétar Thatcher. í lok
göngunnar hélt Foot ræðu. Sagði
hann meðal annars: „Við munum
halda þessarri baráttu áfram
landshorna á milli. Til þess að
virkja styrk fólksins til að koma
þessari Thatcher-stjórn frá og
hyggja upp sannan sósíalisma."
Ganga þessi var ein fjölmenn-
asta á Bretlandi í áraraðir.
Undrabarn
+ Þessi kínverska stúlka heitir
Shi Meigin og þykir „undrabarn
í dýfingum". Það vakti gífurlega
athygli í íþróttaheiminum, er
hún sigraði ólympíumeistara
Rússa, Irenu Kalininu, á móti,
sem haldið var í Crystal Palace í
London nýlega. Þjálfarar þess-
arar 18 ára gömlu stúlku frá
Shanghai, segja að hún sé alls
ekki komin á toppinn. Það hefur
lengi verið almannarómur að
Kínverjar ættu dýfingamenn,
sem hefði getu til að sigra þá
bestu í heiminum í dag. Svo
virðist því að þeirra tími sé
kominn.
„Gullskalli“
í vanda
+ Telly „Gullskalli" Savalas, sem
hérlenskir þekkja betur undir
nafninu „Kojak" stendur í ströngu
um þessar mundir. Kona nokkur
Sally Savalas hefur höfðað mál á
hendur honum vegna ógeidds líf-
eyris og barnameðlaga. Sally þessi
bjó með „Gullskalla" á árunum
1969—1978 og tók upp ættarnafn
hans. Hún fer fram á 5 milljónir
dollara í lífeyri til handa sér og 17
ára gamalli dóttur sinni Nicolette;
sem reyndar er ekki barn Tellys. I
málssókn segir að Sally hafi gefið
sinn eigin feril á bátinn til þess að
halda heimili fyrir „Kojak“. Einnig
segir að þau hjúin hafi sæst á að
Telly myndi sjá Sally fyrir lífeyri
svo og Nicolette þar til hún giftist
eða yrði fjárráða. Sally Savalas
býr nú á heimili Tellys. Fyrir
tveimur mánuðum hóf hann mál-
sókn gegn henni og krafðist þess
að hún yrði að yfirgefa húsið. Ekki
mun þeim málarekstri lokið.
Lennon lætur
móðan mása
+ Bítillinn frægi, John Lennon seg-
ir í viðtali við blaðið „Leiksveinn"
(Playboy), að hann muni aldrei
aftur halda, eða leika á fjáröflun-
arhljómleikum. Þó svo að Lennon
hafi ekki tekið greiðslur fyrir
hljómleika sína síðan 1966, er hann
margfaldur milljónamæringur. í
stað þess að halda hljómleika til
styrktar einhverju málefni, segir
Lennon, að hann og kona hans
Yoko Ono, muni einfaldlega gefa
hluta þess fjár, sem þau þéna til
verðugra málefna. „Ekki senda
eitthvað um að koma og bjarga
Indíánum og Svertingjum. Þeim,
sem ég vil hjálpa, mun verða
hjálpað með framlagi okkar, en það
mun verða 10% af tekjum okkar,“
sagði hann í viðtali við tímaritið
ágæta. Yoko sem segist vera sósíal-
isti sagði: „Það er ekki hægt að
neita því, að við lifum ennþá í
kapitalískum heimi. Ég tel, að til
þess að komast af og breyta
heiminum verði maður fyrst að
hugsa um sjálfan sig.“
BÆKUR
SEM HITTA
ÍMARK
Asgeir
Sigurvinsson
Knattspymuævintýri Eyjapeyjans eftir Sigmund Ó. Steinarsson
og Guöjón Róbert Ágústsson. Þetta er sérstæöasta íþróttabók
sem gefin hefur verið út á íslandi, þar sem Ijósmyndir og texti,
vinna sameiginlega aö kynningu á hinum þekkta knattspyrnu-
kappa Ásgeiri Sigurvinssyni, allt frá þvi aö hann var lítill peyi í
Vestmannaeyjum og haföi meö sér bolta til þess aö geta æft sig
í kaffitímunum.til þess aö hann veröur einn þekktasti og besti
knattspyrnumaður Evrópu. Þetta er sannarlega óskabók allra
íþróttaunnenda, ungra jafnt sem aldinna.
Komin er út ný bók í bókaflokknum Frömuðir landafunda,
bókin um hinn mikia sæfaranda og landkönnuö KÓLUMBUS.
Bókin er prýdd af Kristínu R. Thorlacius, en umsjón meö útgáfunni
haföi Örnólfur Thorlacius. Þetta er bók um eitt mesta
landkönnunarafrek mannkynssögunnar, um mikilmenni sem lét
ekki skilningsleysi og þekkingarleysi samtíma síns setja sér
skoröur, heldur lagöi út á hin óþekktu miö, og markaöi þar meö
óútmáanleg spor í sögu mannkynsins.
Fjallakúnstner
segir frá
Stefán frá Möðrudal rekur sögu sína eftir Pjetur Hafstein
Lárusson. Sérstæö bók um sérstæöan listamann, sem ekki
bindur bagga sína sömu hnútum og samferðamennirnir. Stefán
hefur lifaö margbreytilegu lífi og ber svip uppruna síns, hinna
hrikalegu Möörudalsöræfa, þar sem bjarndýr hafa sótt
bæjarfólkiö heim meö óskemmtilegum afleiöingum, og Mööru-
dals-Manga gerir sig heimakomna, löngu eftir aö jarövistardögun-
um er lokiö. Stefán Jónsson, fjallakúnstner, segir frá á sinn
skemmtilega og sérstæöa máta, og kemur í bókinni, eins
og í myndum sínum, til dyranna eins og
hann er klæddur.