Morgunblaðið - 09.12.1980, Síða 46

Morgunblaðið - 09.12.1980, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980 Eistland: KGB eykur ofsóknir á hendur andófsmönniun Eistlendingar óttast að verða minnihluti í sinu eigin landi Stokkholmi, 8. de«. AP. RÚSSNESKA óryKfcislöKreKlan hefur að undanförnu handtekið fjölmarKa eistneska andófsmenn <>K >?ert húsleit hjá öðrum, að því er haft er cftir EistlendinKum í Stokkhólmi. SeKja þeir auKljóst, að þessar ofsóknir standi í samhandi við þróun mála í Póllandi á síðustu mánuðum. Ants Kippar, einn af forystu- mönnum eistneskra útlaKa í Sví- þjóð, sagði fréttamanni AP, að sovéska leynilögreglan (KGB) hefði sl. fimmtudag hafið samræmdar aðgerðir gegn andófsmönnum víða um Eistland. I horginni Tartu var arkitektinn Viktor Niitsoo handtek- inn, sakaður um andsovéskan áróð- ur, og leitað var á heimilium ýmissa annarra. Fram til þessa hafði KGB hand- tekið 10 eistneska andófsmenn á þessu ári og þar á meðal einn leiðtoga þeirra, Mart Niklus, sem A1 Asnam skelfur enn AlsirborK. de*. AP. TVEIR MENN létust og 89 slös- uðust í jarðskjálfta. sem varð i gær á jarðskjálftasvæðunum ná- lægt Al Asnam í Norður-Alsír. Upptök skjálftans voru um 20 km fyrir vestan borgina og mældist hann 5,6 á Richter-kvarða. 10. október sl. lagði jarðskjálfti, sem var að styrkleika 7,5, borgina A1 Asnam og nálæg þorp í rúst. A.m.k. á fjórða þúsund manns fórust en margra er enn saknað. Ekki er enn vitað um allar afleið- ingar jarðskjálftans á sunnudag, en eftir embættismönnum er haft, að nokkurt tjón hafi orðið í fjallaþorpum kringum A1 Asnam. verið hefur í fangelsi í marga mánuði, án þess að réttað hafi verið í máli hans. Niklus, sem er fugla- fræðingur að mennt, hóf hungur- verkfall 29. ágúst sl. til að mótmæla ofbeldi yfirvaldanna. 29. ágúst er örlagaríkur dagur í sögu eistnesku þjóðarinnar en þann dag árið 1939 gerðu Rússar og þýskir nasistar með sér griðasáttmála þar sem Eystra- saltsþjóðirnar voru ofurseldar rússneskum kommúnistum. Búist er við, að 40 eistneskir rithöfundar og vísindamenn, sem í október sl. skrifuðu undir opið bréf til stjórnvalda, verði einnig fyrir Salisbury, 8. des. AP EDGAR Tekere. ráðherra I stjórn Mugabes | Zimbabwe, og sjö líf- verðir hans voru í Kær sýknaðir af ákæru um að hafa myrt hvítan hónda. Forseti dómsins, hvítur Olía finnst í Síberíu Stokkhúlmi. 8. des. AP. FRÉTTIR af gífurlegum olíu- fundi í Vestur-Síberíu, sem ollu miklum sviptingum á verðbréfa- markaði víða um heim sl. föstu- dag, voru mistúlkaðar en þó í meginatriðum réttar, sagði tals- maður sænska ráðgjafarfyrirtæk- isins Petrostudies í dag. ofsóknum lögreglunnar. í bréfinu mótmæltu þeir handtöku ung- menna, sem í október kröfðust frelsis fyrir þjóð sína. Þeir bentu einnig á vaxandi áhyggjur eistnesku þjóðarinnar af því að verða að lokum minnihluti í eigin landi. Mörg hundruð þúsund Rússar hafa sest að í landinu á umliðnum árum og er nú svo komið, að Eistlendingar eru aðeins 12.000 fleiri í sjálfri höfuðborginni, Tall- inn. Margt er gert til að troða á móðurmáli þeirra, eistneskunni, og á barnaheimilum er það bannað, þar gildir rússneskan ein. maður. vildi sakfella Tekere fyrir morðið en tveir svartir meðdóm- endur hans voru á öndverðri skoð- un. Mikil fagnaðarlæti brutust út í réttarsalnum þegar sýknudómurinn var kveðinn upp og stuðningsmenn Tekeres báru hann á höndum sér syngjandi og dansandi. Tekere og lífverðir hans voru handteknir í ágúst sl. fyrir morðið á bóndanum og einn lífvarðanna hafði viður- kennt að hafa skotið hann. Hvítir menn í Zimbabwe óttast nú mjög, að afleiðingar dómsnið- urstöðunnar verði þær, að hinum herskárri í Þjóðarfylkingunni, sem fer með völd í landinu, vaxi ásmeg- in og telji sér allar leiðir greiðar. Játningar í Peking Styrkur til norsks sjávarútvegs: Zimbabwe: Ráðherra sýknað- ur af morðákæru 137 milljarðar kr. á næsta ári Óslú. 8. des. Frá fréttaritara Mbl. EFTIR langar og strangar samn- ingaviðra-ður náðist samkomulag um helgina milli norsku ríkis- stjórnarinnar og Samtaka út- gerðarmanna og sjómanna um styrk ríkisins við sjávarútveginn á næsta ári. Samtals mun hann nema um 137 milljörðum ís- lenskra króna. 50 milljörðum kr. verður varið til tekjuuppbótar hjá þeim, sem stunda þorskveiðar, 17 milljarðar fara til síldveiðimanna og rúmum 54 milljörðum verður varið til að draga úr auknum kostnaði við veiðarnar og til ýmissa félags- mála. Einnig verður miklum fjár- hæðum varið til að auðvelda fækkun í norska fiskveiðiflotan- um. bremiir biargað úr rústum í Salerno: Drukku vín og átu pip- arávexti - og lifðu af Salerno. Italíu. 8. dea. AP. ÞRJÁR aldurhnignar manneskj- ur, sem grófust í kjallara húss síns fyrir fimmtán dögum, var bjargað lifandi í dag. Kváðust þau hafa lifað á sterkum pipar og víni, en þó var verulcga af þeim dreKÍð. að sögn lækna. Þetta voru þau Pasquale Calza- retta og Maria kona hans, bæði 73 ára og Fiore systir húsbónd- ans, rúmlega sextug. Þau bjuggu á bóndabæ á því svæði þar sem eyðileggingin varð einna mest í jarðskjálftunum. Björgunarmenn segja að það sé allt að því kraftaverk að fólkið skyldi vera lífs eftir allan þennan tíma þrátt fyrir vínið, en það var til þurrðar gengið þegar þau náðust upp úr kjallararústunum. Fólkið var með háan hita og snert af lungna- bólgu og lagt inn á sjúkrahús tafarlaust. Nú greina opinberar heimildir frá því að 3.105 hafi látizt í jarðskjálftunum, 1.575 er saknað og flestir þeirra taldir af, og 7.671 slasaðist. Peking. 8. des. AP. PEKING-útvarpið sagði í dag, að fyrrverandi yfirmaður kínverska herráðsins, Huang Yong-shenK, hefði játað fyrir rétti í dag að hafa samþykkt pólitískar ofsóknir á hendur mörg þúsundum manna, sem haft hefðu dauðann i för með sér fyrir marga þeirra. Við réttarhöldin í dag játaði einnig Yao Wen-yuan, bókmennta- gagnrýnandi, sem með skrifum sínum markaði upphaf menningar- byltingarinnar, að hafa kynt undir ólgu og upplausn og lagt blessun sína yfir rógsskrif, þar sem ýmsir leiðtogar þjóðarinnar voru kallaðir „sporgöngumenn kapitalismans". Ásamt Huang eru fjórir aðrir fyrrv. herforingjar í „klíku Lin Piaos" fyrir rétti, sakaðir um samsæri um að hafa ætlað að myrða Maó og taka völdin í sínar hendur fyrir 10 árum. Huang er •' ' i-- bono a oryn OU IIUM* rancrlpcra ákært marga flokksmenn fyrir að vera „útsendarar óvinarins" og „njósnarar* C* ofsótt 7100 menn og valdið dauða 85 þeirra. Frjálslyndur hers- höfðingi hættir San Salvador. 8. dfH. AP. ALFONSO ADOLFO Majano, hers- höfðingi, sem hefur verið álitinn frjálslyndastur fimm manna her- foringjastjórnar E1 Salvador, sagði fréttamönnum um helgina að hann væri ekki lengur meðlimur stjórn- arinnar, samtíma því að tveir af þremur óbreyttum borgurum í stjórninni hótuðq að segja af sér, ef ekki linnti ofbeldisverkum. Útför forsætisráðherra Portúgals, Fransico Sa Carneiro, var gerð i Lissabon á laugardaginn. Ráðherrann fórst i flugslysi á fimmtudaginn. „Farðu vel, vinur - baráttunni verð- ur haldið áfram“ Útför Sa Carneiro hin fjöl- mennasta í sögu Portúgal LÍHsabon 8. des. AP. ÚTFÖR Sa Carneiro forsætis- ráðherra var hin fjölmcnnasta í sögu Portúgals, að því er segir í fréttum. Fólk safnaðist saman við klaustrið þar sem kista forsætisráðherrans hafði legið í viðhafnarhörum og siðan fór likfylgdin 15 km leið um Lissa- bonhorg og þúsundir manna voru hvarvetna er líkfylgdin fór um. Margir grétu hástöfum, aðrir hrópuðu klökkum rómi: „Sa Carneiro, farðu vel vinur, baráttunni verður haldið áfram." Báru margir flögg og spjöld með viðlika áletrunum. Portúgalskir stjórnmálasér- fræðingar sögðu að forsætisráð- herrann látni hefði aldrei i lifanda lífi tekizt að draga svo marga saman til kosningafund- ar og nú flykktust til útfarar hans. Þegar athöfninni inni í guðs- húsinu var lokið höfðu tugþús- undir safnast saman fyrir utan og lögðu af stað á eftir líkvagn- inum meðfram Tejofljóti og upp í hjarta borgarinnar til Alto do Sao Joao. Fjölskylda Sa Carn- eiro segir að síðar muni jarð- neskar leifar hans verða fluttar til heimaborgar hans, Oporto og jarðsettar þar. Sjónvarpað var frá athöfninni sem stóð yfir í fimm klukkutíma eða langtum lengur en ætlað hafði verið. í fréttum frá Portúgal í dag, mánudag, segir að sem dagar líði finni menn stöðugt meira fyrir því hve þjóðin hafi misst mikið við fráfall Sa Carneiro. Þar setji kvíði og öryggisleysi nokkuð svip sinn á mannlífið, en margir telji þó að endurkjör Eanes forseta muni verða til að þjappa þjóð- inni saman á þessum örlagatím- um — þrátt fyrir allt. Myndin var tekin fyrir nokkru af þeim Snu Abercassis og ot Carneiro, forsætisráðherra. Þau bjuggu saman undanfarin ár, þ< svo að Sa Carneiro væri ekki skilinn að lögum við fyrrverandi koni sína. Snu Abercassis var dönsk, áður gift portúgölskum rnanni. oj lætur eftir sig tvö börn. Með fyrri konu sinni átti Sa Carneiro fimir börn, sem eru uppkomin. Samband þeirra Snu Abercassis oji forsætisráðherrans var umdeilt og nokkuð umtalað, en hvorugt léi það á sig fá. Snu fylgdi honum síðustu árin á kosningaferðalöguni og kom fram við hiið hans sem eiginkona væri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.