Morgunblaðið - 09.12.1980, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 09.12.1980, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980 47 Veriö velkomin í stærri og betri búð að Laugavegi 66, 1. og 2. — huOmtækjadeildJ TwrnTkfTá LAUGAVEG 66 SIMI 25999 Portúgal: Lissabon. 8. des. AP. „ÉG LEYFI mér að staðhafa að þessi sigur sé sigur lýðræðisins i Portúgal.“ sagði Kamalho Eanes, við fagnandi stuðningsmenn sína, er ljóst var laust eftir miðnætti aðfaranótt mánudags, að hann hafði verið endurkjörinn forseti landsins með um 57,2 prósent atkvæða og var það mun meira en búizt hafði verið við. Soares Carn- eiro, frambjóðandi Alianca Demo- ratica fékk 39,5 prósent var það á hinn bóginn mun minna en margir höfðu ætlað fyrir kosningarnar. Á sunnudaginn var það hald manna að Portúgalar myndu snúast meira til fylgis við Soares Carn- eiro vcgna fráfalls forsætisráð- herrans á fimmtudagskvöldið, en sú varð ekki raunin á. Fyrstu tölur bentu þó til þess að úrslitin yrðu mjög tvisýn og fram eftir talningu munaði oft litlu á þeim Soares Carneiro og Eanes, en eftir að tölur fóru að berast úr borgum og bæjum. einkum í suðri var sýnt að Eanes myndi ná tilskildum og lögmætum meirihluta atkvæða. Kjörsókn var um 88,5 prósent og svipuð víðast hvar um landið hlut- fallslega. Þegar um fimmtíu pró- sent atkvæða höfðu verið talin lá sigur Eanes fyrir og Soares Carn- eiro viðurkenndi ósigur sinn: „Ég óska Eanes forseta til hamingju og vona að hann muni halda í heiðri þau heit sem hann gaf í kosninga- baráttunni." Þar átti hann meðal annars við þær yfirlýsingar Portú- galsforseta, að hann vonaðist til samstarfs við meirihlutastjórn AD, sem kjörin var til að stjórna landinu næstu fjögur árin, en eins og margsinnis hefur komið fram í fréttum var mjög stirt samkomulag milli Eanes forseta og Sa Carneiro, hins látna forsætisráðherra. Hafði Sa Carneiro hótað að segja af sér ef Eanes næði endurkjöri. Freitas do Amaral sem tók við embætti for- sætisráðherra hafði einnig gefið sams konar yfirlýsingu. í viðtali í portúgalska sjónvarpinu þegar úr- slit lágu fyrir kvaðst do Amaral þó ekki vilja segja til um það, hann myndi íhuga það vandlega og láta frá sér heyra fljótlega. Er getum að því leitt að do Amaral þætti teflt í tvísýnu vegna þess óvissuástands sem er að forsætisráðherra lands- ins látnum, ef hann neitaði að vinna með forsetanum. Ríkisstjórn- in afhenti afsagnarbeiðni sína Ean- es forseta í dag síðdegis. En þar sem AD hefur meirihluta á þingi er trúlegt að Eanes muni snarlega fela einhverjum forystumanna AD að mynda stjórn. Ekki er vitað hvort samstaða verður um að do Amaral tæki að sér myndun slíkrar stjórn- ar, þar sem þingstyrkur PSD-Sósí- aldemókrataflokksins er mun meiri. Nokkrir hafa verið nefndir sem hugsanlegt forsætisráðherra- efni, oftast hefur heyrst nafn Mota Amaral (óskyldur do Amaral með öllu) frá Azoreyjum, maður liðlega fertugur og nýtur mikils álits innan Sósíaldemókrataflokksins. I fréttum frá Lissabon segir að ríkisstjórnin hafi á fundum sínum um helgina komizt að þeirri niður- stöðu, að ekki tjóaði annað en reyna til þrautar samstarf við forsetann, ella gæti allt farið í ringulreið og voða í landinu og orðið aðeins vinstri mönnum og kommúnistum til framdráttar. Fjórir aðrir frambjóðendur við forsetakjörið voru Carvalho fyrr- verandi hershöfðingi og frægur í byltingunni 1974, Pires Veloso, Roderigues og de Melo og fengu þeir sáralítið atkvæðamagn enda hafði fyrirfram verið búizt við því að meginbaráttan stæði milli Soares Carneiro og Eanesar forseta. Kosningarnar fóru yfirleitt fram með friði og spekt, en nokkur hópur manna gerði þó hróp að Eanes er hann kom á kjörstað og kallaði hástöfum að hann væri morðingi og hellti yfir hann skömmum. Engin svipbrigði sáust á forsetanum. I kosningunum 1976 fékk Eanes um 61 prósent atkvæða. í fréttum frá Lissabon segir að almenningur hafi áreiðanlega hyllzt til að kjósa hann, vegna þess að þrátt fyrir hik sem hann hafi sýnt í pólitísku tilliti, hafi hann þó traust megin- þorra almennings, hann sé öllum þekktur og ekki hvað sízt hafi kosningabarátta hans þótt sérdeilis prúðmannleg. Eanes forseti er fæddur 25. janú- ar 1935. Hann er giftur og tveggja barna faðir, en mjög sjaldgæft er að fjölskylda hans koma fram með honum. f Veður Akureyri -5 snjókoma Amsterdam 0 sól Aþena 15 heiðskírt Barcelona 11 heiöskírt Berlín +7 sólskin Brussel 3 snjókoma Chicago 15 skýjað Denpasar 32 skýjað Dublin 3 heiöskírt Feneyjar 4 léttskýjað Færeyjar 7 rigning Frankfurt +12 skýjað Genf 4 skýjað Helsinki +7 heiðskírt Hong Kong 21 heiðskírt Jerúsalem 17 heiðskírt Kaupmannahöfn -5 skýjað Kairó 21 heiöskírt Las Palmas 19 skúrir Lissabon 15 heiöskírt London 4 sólskin Los Angeles 18 skýjað Madrid 9 sólskir Mexicoborg 22 heiðskírt Moskva +10 skýjað Nýja Dehli 24 heíðskírt New York 16 heiðskirt Ooló +4 skýjað París 4 skýjrð Perth 24 skýjað Reykjavík 4 rigning Ríó de Janeiro 33 skýjaö Rómaborg 5 bjart Stokkhólmur +4 skýjað Sydney 25 rigning Vancouver +5 skýjaö Vínarborg +3 skýjað Forseti hylltur — Stuðningsmenn Antonio Ramalho Eanes forseta, sigurvegarans í forsetakosningunum i Portúgal, óska honum til hamingju. Þetta gerdist 9. desember 1625 — Englendingar og Hollend- ingar ákveöa að styðja Kristján IV í baráttu hans gegn Þjóðverjum. 1798 — Karl Emmanúel af Sardiníu leggur niður völd. 1824 — Her Símons Bolivars sigrar her Spánverja við Ayacucho, Perú. 1905 — Aðskilnaður ríkis og kirkju í Frakklandi fyrirskipaður. 1917 — Uppgjöf Tyrkja í Jerúsalem — Rúmenar semja vopnahlé við Miðveldin. 1919 — Bandaríkin hætta þátttöku í Versalaráðstefnunni. 1934 — Átök milli eþíópískra og ítalskra hermanna á landamærum ítalska Somalilands og Eþíópíu. 1940 — Áttundi brezki herinn hefur sókn í Norður-Afríku. 1944 — Her Bandamanna rýfur varnarlínu Þjóðverja skammt frá Aachen. 1946 — Bandalag múhameðstrú- armanna hundsar stjórnlagaráð- stefnuna á Indlandi. 1955 — Adnan Menderes myndar stjórn í Tyrklandi. 1962 — Tanganyika verður lýðveldi í brezka samveldinu. 1971 — Indverskt herlið umkringir Dacca, höfuðborg Austur-Pakistan. 1976 — Allsherjarþingið hvetur til friðarráðstefnu ísraels og Araba- ríkja með þátttöku Frelsissamtaka Palestínu (PLO). Afmæli. Gustaf Adolf Svíakonungur (1594—1632) — John Milton, enskt skáld (1608—1674) — Douglas Fair- banks Jr., bandarískur leikari (1909----) — Kirk Douglas, banda- rískur leikari (1916--). Andlát. 1641 Anthony Van Dyck, listmálari. Innlent. 1749 Skúli Magnússon skipaður landfógeti — 1926 Sjö hús brenna á Stokkseyri — 1932 Helgi Tómasson verður aftur yfirlæknir á Nýja Kleppi — 1956 Olíuflutn- ingaskipið „Hamrafell" kemur — 1958 Olafi Thors falin stjórnar- myndun — 1967 Hegrinn hverfur — 1978 Trúarfeður mótmæla sænskri bók um Jesúm. Orð dagsins. Sameiginlegt böl mannkynsins: heimska og fáfræði — William Shakespeare, enskt leikskáld (1564-1616). OPTONICA orrofon Kaupendur geta nú einnig hlust- aö á okkar ágætu hljómburðar- tæki í sérstöku hljómstúdíói þar sem hljómburöur er nánast full- kominn. Sigur Eanes varð meiri en ætlað hafði verið I Opnum nýja, stærri og betri búö aö Laugavegi 66. Höfum einnig tekiö í notkun stórt hús- næði á 2. hæð viö Laugaveg 66. ,i.i . , i,i' . i ■. . . r ■ 'ii ^ar sýnum viö hljómtæki, X- « : • •.•.• • ••: ••• sjonvorp, mikrofona, reikmvelar, tölvur, pick-up, videotæki o.fl. frá ^PIONEER ✓ i/vno SHARP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.