Morgunblaðið - 19.12.1980, Síða 2

Morgunblaðið - 19.12.1980, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980 Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherra: Mesti munur á^súrálsverði til Noregs og ÍSALs 36% og minnsti munurinn 18% „ÞESSAR tölur eru meðaltalstölur, en munurinn íer minnkandi á árahilinu," sagði Iljörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherra, er Mbl. spurði hann í gær nánar út í ummæli hans á Alþingi í fyrradag. að á því árabili, sem hann hefði látið rannsaka, hefði verð á súráli til Noregs verið 25% læt;ra. en það súrálsverð, sem ÍSAL tfreiddi og í Japan hefði cif-verð á súráli verið 50% læjjra en hér á árunum 1974—78. Hjörleifur sagði, að á árinu 1974 hefði fob-verð súráls til Noregs verið 28% lægra en það verð, sem ÍSAL var gert að greiða, árið 1975 var munurinn 26%, árið 1976 var hann 36%, árið 1977 var hann 21% og árið 1978 var súrálsverð til Noregs 18% lægra en það verð, sem ISAL var gert að greiða. Varðandi samanburð við Jap- an tók Hjörleifur fram, að þar væri um cif-verð að ræða í Japan, en árið 1975 hefði það verið 67% lægra en það verð, sem ÍSAL var gert að greiða, 30% lægra árið eftir, 29% lægra 1977 og 21% lægra árið 1978. Hjörleifur sagði, að þótt ekki væri hægt að fullyrða á þessu stigi, að þessar tölur mætti taka bókstaflega til saman- burðar við verð ISALs, þá gæfu þær engu að síður ákveðna vísbendingu. Mbl. spurði iðnaðarráðherra, hvaða álver væru inni í þessum dæmum, til dæmis í Noregi, hvort í þeim hópi væru álver, sem Alusuisse er eigandi að. Ráðherrann sagðist ekki hafa slíka sundurliðun undir hönd- um og hann kvaðst ekki vilja láta uppi, hverjar heimildirnar væru að baki þessara talna. „Þessar upplýsingar eru fengn- ar frá aðilum í þessum löndum, en ég vil ekkert fullyrða um það, hvaða einstök fyrirtæki eru inni í þessum dæmum,“ svaraði ráðherrann, er Mbl. ítrekaði framangreindar spurn- ingar. Fjöldi manns heimsótti útvarpið í gær, en þar var opið hús og starfsmenn kynntu gestum starísemi útvarpsins, sem verður 50 ára á morgun. Stefán Jón Hafstein leiðir hér einn hópinn í allan sannleika um útvarpið. en stöðugur straumur gesta var frá því snemma um morguninn og fram eftir degi og voru gestir margfalt fleiri en útvarpsmenn áttu von á. Ljómn. Kristinn. Stereo-útsendingar útvarps- ins hef jast á laugardag Stjórn Iðju: Mótmælir harðlega hækkun vörugjalds MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi fréttatil- kynning frá Iðju. félagi verk- smiðjufóiks í Reykjavík: Stjórn Iðju, félags verk- smiðjufólks mómælir harðlega frumvarpi því sem fram er komið á Alþingi um all veru- lega hækkun vörugjalds af öli, gosdrykkjum og sælgæti. Verði frumvarpið að lögum mun það leiða til umtalsverðra hækkana á þeim vörutegundum, sem um er að ræða, og því ærin ástæða til að óttast, að all verulega dragi úr sölu þeirra. Afleiðing- in verður því sú, að fyrirtækin verða að draga úr framleiðsl- unni en það mun óhjákvæmi- lega leiða til fækkunar starfs- fólks í umræddum iðngreinum. Því er afkomu og atvinnuöryggi ófyrirsjáanlegs fjölda fólks stefnt í hættu. Stjórnin tekur heilshugar undir mótmæli þau sem fram- komin eru frá hundruðum fé- lagsmanna varðandi hækkun vörugjaldsins og færir þeim jafnframt þakkir fyrir þeirra framlag og framtakssemi, sem ber vott um framsýni, dugnað og ótvíræða samstöðu. Stjórnin varar ríkisvaldið al- varlega við þeim afleiðingum er koma munu í kjölfarið verði frumvarpið samþykkt sem lög frá Alþingi. Á MORGUN 20. desember á 50 ára afmæli Ríkisútvarpsins hefst tveggja rása útsending eða ster- eoútsending á dagskrárefni á hluta af FM-dreifikerfi þess. Hefst það með útsendingu frá afmælishátið úr Þjóðleikhúsinu kl. 16.00. Þetta kom fram á blaðamannafundi. sem for- svarsmenn Rikisútvarpsins boð- uðu til i gærdag. Um árabil hefur Rikisútvarpið verið að auka við svokallað FM-dreifikerfi sitt. Hefur aukn- ingin farið eftir efnahag á hverj- um tima. Vegna meira tíðnirýmis á 3m bylgjusviðinu sem sent verður út á er leyfilegt að nota þar jafnvel svokallaða breiðbands-tíðni-mót- un, sem ekki er leyfð á lengri bylgjulengdum. Þetta þýðir aukin tóngæði og minna suð í móttöku. Til þessa hefur aðeins verið sent út á einni rás (mono) eins og á lang- og miðbylgjunni. Þýðir það að hlustandi skynjar öll hljóð eins og þau komi úr sama punkti eða úr hátalara viðtækisins. Til þess að hlustandi skynji hljóðin eins og þau komi úr mismunandi áttum (rúmvídd), þarf upptaka, útsending og við- taka að vera minnst tveggja rása og hljóðin auk þess tekin upp á sérstakan hátt eða í þrívídd, og er þá munur á hljóðinu í rásunum. Er tveggja rása útsending á slíkri upptöku því kölluð stereo-útsend- ing. Er þar verið að notfæra sér að menn skynja úr hvaða átt hljóð kemur með því að ákvarða styrk- mun, tímamun og blæbrigðamun sama hljóðs við tvö eyru. Að lokum er hægt að hugsa sér einfalda upptöku (ekki stereo) senda út á tveimur rásum. Yrði þá hljóðið það sama í báðum rásun- um og því engin rúmvídd i móttök- unni, jafnvel þótt notaður sé tveggja rása móttakari með tveimur hátölurum. Yrði slík mót- taka því lík einnar rásar móttöku. Tveggja rása FM-útsending Ríkisútvarpsins verður blanda af þessu tvennu. Stór hluti af dagskrárefninu verður sendur út í tveggja rása stereo. Verður það aðallega tónlist af hljómplötum, segulböndum og beinar útsend- ingar og síðar eitthvað af leikrit- um og öðrum þáttum. Annað efni eins og t.d. fréttir og viðtöl verður að vísu sent út á tveimur rásum, en sama hljóð á báðum. Til að njóta stereo-útsendingar til fulls, þarf hlustandinn að hafa sérstakt tveggja rása stereo-við- tæki. Nú hafa ekki nærri allir hlustendur stereo-viðtæki og ekki hægt að eyðileggja viðtöku hjá þeim. Er því nýja útsendingar- kerfið hannað þannig að það er samræmanlegt. Verður sent út á sömu tíðni og notuð sama rad- io-tíðni — bandvídd á sendunum og áður þótt um tvær hljóðrásir sé að ræða. Allir eldri FM-sendarnir hafa nú verið stækkaðir með tilliti til þessa, en hlustendur verða eigi að síður að koma sér upp útiloftnet- um eða bæta loftnetskerfin í fjölbýlishúsum. Leyfi til reksturs pylsuvagna kost- ar 270 þúsund BORGARSTJÓRN samþykkti I gærkveldi tillögu um að fyrir leyfi til reksturs pylsuvagna ætti að greiða 270 þúsund krónur á ári. Gjalddagar eiga að vera 15. janúar og 15. júlí ár hvert. Atkvæði féllu þannig að 8 borg- arfulltrúar meirihlutans voru til- lögunni sammála en borgarfull- trúar Sjálfstæðisflokksins voru henni andvígir. í upphafi var þess getið að tveggja rása útsending yrði aðeins á hluta FM-dreifikerfisins nú í byrjun. Verður það aðeins 4 þeim hluta þess þar sem notast verður við endurútsendingu frá FM-send- inum í Vatnsendastöðinni. Svæði þetta nær yfir Vestur- land til Vestfjarða og Suðprland til Hornafjarðar. Norður-, austur- og Norðvesturland verða ekki tveggja rása að sinni. En undir- búningsvinna og könnun á hvernig best verður að koma tveggja- rása-dagskrárefni til FM-send- anna á þessum svæðum þegar hafin og stefnt að því að koma slíkri sendingu á fyrir næsta haust. Greenpeace mótmælir flutningi á háhyrning- um til Kanada GREENPEACE samtökin í Kan ada hafa lýst sig andvíg þeirri hugmynd, að háhyrningar frá íslandi verði fluttir þangað, en sa'dýrasafn í Vancouver hefur sýnt því máli áhuga. Samtökin eru andvíg háhyrningaveiðum þar sem þau telja þær valda dýrunum tjóni og að þau sæti illri meðferð. Þá segja Greenpeace samtökin að háhyrningar þoli ekki langa vist í búrum, hún hindri eðlilega starfsemi og þroska þeirra og meðferð þeirra sé þar í mörgu ábótavant. Þá segir einnig í frétt frá samtökunum, að þær háhyrn- ingaveiðar, sem leyft sé að stunda frá íslandi, byggi ekki á vísinda- legum rannsóknum og geti því höggvið nærri stofninum. Fjórir háhyrningar eru nú í vörzlu Sædýrasafnsins í Hafnar- firði og sagði Hrafnkell Ásgeirs- son lögfræðingur að ekki væri gengið frá samningum um sölu dýranna. Kvað hann þau hafast vel við og vera hin sprækustu, éta vel og sýna eðlilega hegðun og hreyfingar. Þá sagði hann há- hyrningaveiðar mikilvægar þar sem þær gæfu góðar gjaldeyris- tekjur og taldi mjög ólíklegt að veiðarnar hér við land gengju nærri stofninum. Boeing 737 mikil aft- urför frá Boeing 727 — segir Kristján Egilsson, formaður FÍA „MIÐAÐ VIÐ Boeing 727, sem annast stærstan hluta millilanda- flugsins i dag, þá teljum við það mikla afturför, að fara að fljúga Boeing 737 yfir hafið. með tilliti til flugöryggis. í Boeing 737 eru aðeins tveir menn i stjórnklefa í stað þriggja í flestum öðrum vélum og hún er aðeins knúin tveimur hreyflum í stað þriggja eða fjögurra á öðrum vélum,“ sagði Kristján Egilsson, formaður FÍA, Félags islenzkra atvinnuflugmanna i samtali við Mbl. er hann var inntur álits á Boeing 737 þotum til flugs til og frá íslandi, en eins og skýrt hefur verið frá i Mbl. hcfur Arnarflug nú pantað slika vél, sem væntanlega verður til afhendingar vorið 1982. .Boeing 737 vélin hefur af- mati að fá góðan varaflugvöll? skaplega takmarkað flugþol og því rýrir það gildi hennar mikið hér á landi, þar sem enginn almennilegur varaflugvöllur er fyrir hendi, og við þurfum því iðulega á vetrum að nota okkur varaflugvelli erlendis. Þessi mynd myndi því óneitanlega breytast til batnaðar væri komið upp hér á landi góðum vara- flugvelli fyrir millilandaflugið," sagði Kristján ennfremur. Er þá nægjanlegt að ykkar „Nei, það er ekki nægjanlegt, þó svo það sé skref í rétta átt. Það er ekki hægt að horfa framhjá þeirri staðreynd, að þessi vél hefur aðeins tvo hreyfla og ég held að enginn sé hrifinn af því að fljúga slíkri vél með 130 farþegum á einum hreyfli yfir hafið bili annar þeirra," sagði Kristján. Flugmenn hafa gagnrýnt mjög fækkun í flugstjórnarklefa úr þremur í tvo, hvað er það helzt sem mælir gegn því? — „I fyrsta lagi sjá augu betur en auga, auk þess sem sífellt er verið að gera meiri kröfur til flugmanna, t.d. með lækkuðum veðurlágmörk- um. Að mínu mati veitir alls ekki af þremur mönnum við að vinna þau verk, sem vinna verð- ur. Þá er hægt að taka dæmi af því, að verði einhver bilun aftur í vélinni, þá þarf annar tveggja í stjórnklefa að yfirgefa hann og því aðeins einn við stjórnvölinn, í stað tveggja. Þá má nefna það, að verði bilun í aðflugi eða fráflugi, þá er ekki fyrir hendi sú staða sem af öllum er talin æskileg, þ.e.a.s. einn flýgur vél- inni og annar fylgist með, því annar tveggja þyrfti að ráða fram úr biluninni," sagði Krist- ján Egilsson, formaður FÍA, að síðustu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.