Morgunblaðið - 19.12.1980, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980
Ný skattheimta á iðnaðinn:
Atvinnuöryggi 600 manna ógnað
- segja stjórnarandstæðingar
Morgunblaðið til umræðu í ræðustólefri deildar
Nýr skattur, vörugjald á sælgæti, öl og gosdrykki,
sem geía á ríkissjóði 3lÆ milljarð króna 1981, varð
tilefni hvassra skoðanaskipta í efri deild Alþingis í
fyrrakvöld. Hluti þeirrar umræðu verður efnislega
rakinn hér á eftir.
Vörugjald,
sælgæti og
blaðamennska
Ólafur Ragnar Grímsson
(Abl), framsögumaður meirihluta
fjárhagsnefndar efri deildar, sagði
vörugjald fyrst hafa verið lagt á
sælgæti og öl 1939. Árið 1960, á
tímum viðreisnar, sem alþýðu-
flokks- og sjálfstæðismenn lof-
syngi mjög, hafi þetta gjald verið
hækkað um 200%. Væri það gjald
framreiknað til núgildis myndi
það margfalt hærra en það gjald,
sem nú væri talað um að leggja á
þessar vörutegundir.
Ólafur Ragnar sagði að Davíð
Scheving Thorsteinsson hefði sagt
á fundi nefndarinnar að þetta mál
væri „smámál í samanburði við
þörfina á að hækka jöfnunargjald-
ið“. Litið hafi hins vegar farið
fyrir þessari yfirlýsingu formanns
iðnrekenda í Morgunblaðinu, né
hún komist til viðkomandi starfs-
fólks í iðnaði og verksmiðjueig-
enda, sem sent hafi Alþingi harð-
orð mótmæli.
Er hér var komið máli Ólafs
Ragnars hefur honum að líkindum
fundizt þingfréttamaður Morgun-
blaðsins lítt vökull við hlustun, því
hann ávarpar hann úr ræðustól
deildarinnar, efnislega á þessa
leið: „Já, ég vona að þingfréttarit-
ari Morgunblaðsins, sem greini-
lega er iðjulaus við skriftir uppi á
svölum, muni eftir því að koma til
lesenda sinna að formaður iðnrek-
enda, sem mjög er talað við í
Morgunblaðinu, hafi talið þetta
frumvarp smámál og þessa hækk-
un smámál í samanburði við
þörfina fyrir hækkun jöfnunar-
gjaldsins. (Hér greip Eyjólfur
Konráð fram í: Er það formaður
þingflokks sem talar svo?) „Nei,
það er unnandi frjálsrar pressu
sem talar svo við þingfréttamann
þess blaðs, sem oftast og tíðast
hefur talið sig flytja sannar frétt-
ir af umræðum og störfum þings-
ins.“ (Hér grípur Stefán Jónsson
fram í: Og hefur gert í mörg ár.)
„Og hefur staðið sig vel í þeim
efnum samanborið við marga
aðra.“
„Starfsfólki
hótað
uppsögnum“
Óiafur Ragnar sagði að hækkun
Stjórnarliðar og alþýðuflokksmenn:
Samþykktu áfram-
haldandi skatt á gjaid-
eyri til ferðamanna
ALÞINGI
að áfram
gjald á
eyri, svo
hefur samþykkt
skuli lagt 10%
ferðamannagjald-
sem verið hefur
undanfarin ár. Áfram verð-
ur því í gildi tvöföld geng-
isskráning hér á landi, það
Þrenn
ný lög frá
Alþingi
ÞRENN lög voru samþykkt frá
Neðri deild AJþingis í fyrrakvöld,
en þá stóð þingfundur fram yfir
miðnætti og var mikill fjöldi
mála til umræðu.
Lögin sem samþykkt 'voru, eru
Samningur um aðstoð i tollamál-
um. Lög um Lífeyrissjóð starís-
manna rikisins og Lög
manntal.
um
er venjuleg gengisskráning
og skráning gengis til ferða-
manna.
Áður en frumvarp þessa efnis
var samþykkt, var felld að við-
höfðu nafnakalli i Neðri deild
Alþingis, tillaga frá Halldóri
Blöndal um að lækka álagninguna
á ferðamannagjaldeyrinn í 5%. Er
Halldór mælti fyrir tillögu sinni,
kvaðst hann að vsiu vera andvígur
allri skattheimtu á gjaldeyri, en
þar sem hann teldi betra að hafa
skattinn lægri en hærri, flytti
hann tillögu um 5% gjald.
Allir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins í Neðri deild, sem í
stjórnarandstöðu eru, greiddu at-
kvæði gegn framiengingu gjald-
eyrisskattsins, og einnig einn
þingmanna Alþýðuflokksins. Aðr-
ir þingmenn Alþýðuflokksins,
framsóknarmenn, alþýðubanda-
lagsmenn og sjálfstæðismennirnir
Friðjón Þórðarson, Pálmi Jónsson
og Eggert Haukdal, voru fylgjandi
áframhaldandi 10% skatti á gjaid-
eyri til ferðamanna.
á súkkulaði og brjóstsykri aðeins
nema 7,1% til 9,3%. Það er nú öll
hækkunin á sæígætið. Hækkunin
á gosdrykkjum og öli er frá 23,3%
í 26,1%. En þessi vara hækkaði
mun meira á árinu 1980, eða um
72%, en var meðan Alþýðubanda-
lagið fór með verðlagsmál í ríkis-
stjórn. Það eru því ekki líkur á að
þessi viðbótarhækkun muni leiða
til samdráttar og stórfellds
atvinnuleysis í greininni eða sé
tilefni þess að forstjórar þessara
verksmiðja rjúki til með því að
hóta starfsfólki uppsögnum.
Ólafur Ragnar sagði það svo
sérstakan kapítula um atvinnu-
rekendavaldið í þessu landi að
fyrst skuli starfsfólkinu vera sagt
upp — og síðan komið með
undirskriftalista til þess með
áskorun til þingsins um að falla
frá þessu vörugjaldi á öl og
sælgæti.
Atvinnuöryggi
600 manns ógnað
Eyjólfur Konráð Jónsson (S)
sagði formann þingflokks Alþýðu-
bandalagsins senda iðnverkafólki
og formanni Iðju kaldar kveðjur
fyrir það eitt að það uggir um
atvinnuhorfur sínar, ef nýr skatt-
ur kemur til, sem gerir rekstr-
argrundvöll framleiðslunnar erf-
iðari og samkeppnisaðstöðuna
veikari. Efnispunktar í máli Ey.
Kons vóru annars þessir:
• Á sl. sumri vóru gerðar ráðstaf-
anir með bráðabirgðalögum til
að styrkja erfiða stöðu sælgæt-
isiðnaðar í landinu.
• Nú nokkrum mánuðum síðar
söðlar ríkisstjórnin um og telur
framleiðsluna þann veg í stakk
búna, að íþyngja megi henni
verulega með nýjum skatti í
ríkishítina.
• Samhliða er svo ráðgert að fella
niður styrki til íslenzkrar iðn-
þróunar um leið og sú vernd,
sem iðnaðurinn hefur notið
vegna aðlögunar að fríverzlun,
hverfur.
• Með þessum skattaálögum,
ofan á erfiða rekstrarstöðu er
atvinnuöryggi 600 manns ógnað.
• Tekjuáætlun af þessum skatti
nemur 3,4 milljarði króna, sem
er vafalaust of há áætlun vegna
fyrirsjáanlegs samdráttar í
sölu, ef frumvarpið verður sam-
þykkt.
• Þetta nýja gjald mun hinsvegar
hækka vísitölu um 0.26%, sem
skv. áætlun Þjóðhagsstofnunar
leiðir til aukinna launa-
greiðslna í landinu, hjá ríki og
atvinnuvegum, frá 2,1—2,9
milljarði króna. Tekjuaukning-
in (fyrir ríkissjóð) af frumvarp-
Eyjólfur Konráð
Jónsson.
Ólafur Ragnar
Grimsson.
Karl Steinar
Guðnason.
inu fer þá að vera í meira lagi
vafasöm, að ekki sé talað um
„niðurtalningu" og atvinnuör-
yggi viðkomandi starfsfólks.
• Aðdróttanir Ólafs Ragnars í
garð iðnverkafólks, að það láti
kúga sig til undirskriftar á
áskoranir til þingsins, er og
bæði smekklaus og ósanngjörn.
Sama máli gildir um glósur
hans um verðhækkanir í við-
skiptaráðherratíð Tómasar
Árnasonar.
Frumvarp þetta, sem er að vísu
dropi í skattahafið, og því smámál
borið saman við 60—70 milljarða
skattauka tveggja sl. ára, er enn
einn vitnisburðurinn um stjórn-
leysið og upplausnina, aðförina að
atvinnuvegunum og fjármálakerfi
landsins og í samræmi við þrælút-
færða verðbólgustefnu núverand
ríkisstjórnar. Loks gerði Ey. Kon
grein fyrir stöðu einstakra at
vinnugreina: sjávarútvegs, land
búnaðar, iðnaðar og verzlunar
Undirstaðan væri hvarvetna að
gliðna, fyrst og fremst vegna
skatta- og dýrtíðaraukningar, sem
væru ær og kýr þessarar vinstri
stjórnar.
Verkafólk
lítilsvirt
Karl Steinar Guðnason (A)
sagði Ólaf Ragnar hafa lítilsvirt
verkafólk á þann hátt sem fátítt
sé í þingsölum, er hann staðhæfi
að undirskriftir 400 iðnverka-
manna, til mótmæla á þessu
gjaldi, séu „tilkomnar vegna hót-
ana atvinnurekenda". Við vitum
öll að atvinnuástandið í landinu er
orðið ótryggt og mótmæli stjórnar
Iðju og iðnverkafólks gegn því að
gera atvinnuástandið í þessari
iðngrein enn ótryggara eru gerð af
ríkulegu tilefni. Hann las mót-
mæli stjórnar Iðju en þar stendur
m.a. „Verði frumvarpið að lögum
mun það leiða til umtalsverðar
hækkana á þeim vörutegundum.
Ástæða er til að ætla að allveru-
lega dragi úr sölu þeirra. Afleið-
ingin verður sú að fyrirtækin
verða að draga úr framleiðslunni
sem mun óhjákvæmilega leiða til
fækkunar starfsfólks í umræddum
iðngreinum ...“ „Stjórnin varar
ríkisvaldið alvarlega við þeim af-
leiðingum er koma munu í kjölfar-
ið verði frumvarpið samþykkt sem
lög frá Alþingi."
Ég mótmæli umsögn Ólafs
Ragnars um mótmæli iðnverka-
fólks og skora á stjórnarsinna að
draga þetta frumvarp til baka,
sagði Karl Steinar. Við Alþýðu-
flokksmenn munum standa gegn
þessu frumvarpi vegna þess að við
erum sannfærðir um að það muni
leiða til atvinnusamdráttar.
Stjórnarliðar vildu ekki
fella niður barnaskattana
TILLAGA Halldórs Blöndal, eins
þingmanna Sjálfstæðisflokksins,
um að barnaskattar á árinu 1980
verði felldir niður. var felld á
Alþingi í gær. Tillaga llalldórs
gcrði ráð fyrir þvi að skattar á
börn og ungiinga yrðu gefnir eftir
að þessu sinni, vegna þess hve
seint álagningin kom, og vegna
þess að fólki hefði ekki verið
nægilega Ijóst að umræddir skatt-
ar myndu bætast við skattbyrði
þcss, sem væri ærin fyrir. Minnti
Halldór í þessu samhandi á for-
dæmi fjölmargra sveitarfélaga, er
hefðu fellt niður útsvör barna og
unglinga.
Þeir sem greiddu atkvæði með
tillögu Halldórs, og vildu fella
barnaskattana niður, voru eftir-
taldir þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins: Halldór Blöndal, Sverrir Her-
mannsson, Albert Guðmundsson,
Birgir ísl. Gunnarsson, Friðrik
Sophusson, Geir Hallgrímsson, Jós-
ef H. Þorgeirsson, Matthías Bjarna-
son, Matthías Mathiesen, Ólafur G.
Einarsson og Steinþór Gestsson.
Einnig eftirtaldir þingmenn Al-
þýðuflokksins: Benedikt Gröndal,
Jóhanna Sigurðardóttir og Magnús
H. Magnússon.
Þeir þingmenn Neðri deildar, sem
vildu ekki fella niður skatta á börn,
voru Alexander Stefánsson (F),
Eggert Haukdal (S), Friðjón Þórð-
arson (S), Guðrún Hallgrímsdóttir
(Abl). Guðm. G. Þórarinsson (F),
Guðrún Helgadóttir (Abl), Halldór
Ásgrímss. (F), Hjörleifur Gutt-
ormsson (Abl), Ingólfur Guðnason
(F), Ingvar Gíslason (F), Ólafur
Þórðarson (F), Páll Pétursson (F),
Pálmi Jónsson (S), Ragnar Arnalds
(Abl), Skúli Alexandersson (Abl),
Stefán Valgeirsson (F), Sigurgeir
Bóasson (F), Svavar Gestsson
(Abl), Vilmundur Gylfason (A) og
Þórður Sigurjónsson (F).