Morgunblaðið - 19.12.1980, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980
Skagamaður í úr-
vaðsliði Danny Shouse
Úr\;*.isliO Danny Shouse mætir
íslrnska landsliðinu í körfu-
knattleik tvívegis um helgina. Er
þaó skipaö hæði erlendum og
Alkmaar
vinnur enn
AZ'67 Alkmaar vann enn einn
sigurinn i hollensku deildar-
keppninni i gærkvöldi, en þá fóru
fjórir leikir fram i 1. deild.
Alkmaar sigraói GAE Deventer
3—1 með mörkum Piet Tol (2) og
Jos Jonker, eftir að Win
Woutsma hafði náð forystunni
fyrir Deventer. Úrslit annarra
leikja urðu sem hér segir:
FC Utrecht — Pec Zwolle 1—0
FC Tvente — Maastricht 3—3
Roda JC — FC Den Haag 3—2
ÍBK sigraði
EINN leikur fór fram i 1. deild
íslandsmótsins i körfuknattleik i
fyrrakvöld. ÍBK sigraði Grinda-
vik örugglega með 84 stigum
gegn 72. Stigahæstir i liði IBK
voru þeir Reed með 30 stig. Axel
með 20 og Jón með 9 stig.
Frasella skoraði 30 stig fyrir
Grindavik, Eyjólfur 18 og ólafur
6. Staðan í hálfleik var 42—37
fyrir ÍBK.
- þr
Bok um
Pelé
komin út
EIN AF mörgum hókum sem út
koma fyrir jólin er h<>k sem
Formprent gefur út og heitir
Pelé líf mitt og knattspyrna.
Bókin um Pelé sem Ásgeir Ing-
ólfsson þýddi er 248 sfður og
fjallar um Pelé í máli og mynd-
um. Flestar myndir í bokinni eru
úr einkasafni Pelés og eru marg-
ar þeirra stórkostlegar. bá er
fjallað á mjög kommtilegan hátt
um feril Pelé írá þvi har var
litill drcngur og allt ' n til
ársins 1ÍV74.
Pelé r Kktasti iþróttamaður
i heimi. Enginn annar hefur
þrisvar orðið heimsmeistari.
Hann er jafnþekktur á afskekkt-
um sva'ðum í Asiu eins og í
stórhorgum Evrópu og Ameríku.
Bókin um Pelé lýsir vel flestum
þeim stórleikjum sem hann tók
þátt i sem knattspyrnumaður frá
hans eigin brjósti.
innlendum leikmönnm og vekur
athygli að leikmenn frá Akranesi
og Borgarnesi eru i hópnum. Að
visu er hér um þá John Johnson
og Dakarsta Webster að ræða. En
úrvalslið Dannys er annars skip-
að eftirtöldum leikmönnum:
Danny Shouse UMFN
Dakarsta Webster UMFS
John Johnson ÍA
Júlíus Valgeirsson UMFN
Þorsteinn Bjarnason UMFN
Bjarni Jóhannsson KR
Geir Þorsteinsson KR
Bjarni G. Sveinsson ÍS
Gísli Gíslason ÍS
Jón Steingrímsson Val
Þórir Magnússon Val
Jóhannes Magnússon Val.
Leikir þessir eru liðir í undir-
búningi landsliðsins fyrir lands-
leikina gegn Frakklandi sem fara
fram milli jóla og nýárs. Hópurinn
hefur þegar verið valinn og áður
Nadig stigahæst
Svissneska skíðakonan Maria
Teresa Nadig hefur forystuna i
stigasöfnuninni á heimsbikar-
keppninni á skíðum. en sjö um-
ferðum er nú lokið. Hefur María
hreppt 136 stig og er það mun
meira heldur en næsta kona
hefur önglað í. Það er Fabienne
Serrat hin franska sem er i öðru
sæti eins og er með 94 stig og
landi hennar. Perrine Pelen hef-
ur 89 stig. Fjórða er Irene Epple
frá Vestur býskalandi með 71
stig, Erika Hess frá Sviss hefur
65 stig og Krista Kinshofcr frá
Vestur býskalandi hefur 56 stig.
Enn er það mikið eftir af heims-
bikarkeppninni. að allt getur
gerst.
í landskeppninni sem fram fer
samhliða heimsbikarkeppninni,
hefur Sviss forystuna eins og er,
með 445 stig. Austurríki hefur 349
stig og Frakkland 236 stig.
María Teresa Nadig.
Góður sigur
Portúgala
PORTÚGALIR sigruðu ísraels-
menn 3—0 í landsleik í knatt-
spyrnu sem var liður í undan-
keppni HM. Fór leikurinn fram í
Lissabon, höfuðborg Portúgal og
var aldrei spurning hvort liðið var
sterkara. Coehlo (2) og Jordao
skoruðu mörkin.
kynntur. Fyrri leikur landsliðsins
og úrvalsliðs Danny Shouse fer
fram í Hagaskólanum á morgun
og hefst hann klukkan 14.00.
Síðari leikurinn fer síðan fram á
Selfossi klukkan 16.00 á sunnu-
daginn. í þessu sambandi er rétt
að geta þess að úrvalsdeildarleik
Ármanns og KR, sem fram átti að
fara í Hagaskólanum á morgun
klukkan 14.00, hefur verið frestað
um óákveðinn tíma.
Guðríður
skoraði sjö
Guðriður Guðjónsdóttir skoraði
sjö mörk fyrir Fram, er liðið
tryggði sér Reykjavíkurmeist-
aratitilinn i meistaraflokki
kvenna í fyrrakvöld. Fram mætti
þá Val i úrslitaleik og sigraði
Fram með 15 mörkum gegn 12,
eftir að staðan i hálfleik hafði
verið 10—7. Auk Guðríðar skor-
aði Oddný 3 mörk, Jóhanna og
Margrét tvö hvor og Sigrún eitt.
Fyrir Val skoraði Harpa Guð-
mundsdóttir 8 mörk, Sigrún
Bergmundsdóttir tvö og þær
Erna Lúðviksdóttir og Marin
Jónsdóttir eitt mark hvor.
Heiden kjörinn
Eric Heiden. fimmfaldur gull-
verðlaunahafi frá vetrarólympíu-
leikunum i Lake Placid. hefur
verið kjörinn íþróttamaður árs-
ins af AP — fréttastofunni.
Sigur Heidens í atkvæðagreiðsl-
unni var nokkuð öruggur, en
næstu menn voru þeir Miruts
Yifter, langhlauparinn knái frá
Eþiópiu, Björn Borg, Steve Ovett
og Sebastian Coe. AP kaus einnig
iþróttakonu ársins og varð Hanni
Wenzel, skiðakonan frá Licht-
enstein hlutskörpust og hafði
yfirburði.
Ali keppir aftur
Mohammad Aii, þrefaldur heims-
meistari i hnefaleikum. keppir
innan tíðar við Evrópumeistar-
ann John L. Gardner frá Bret-
landi. Var gengið frá samningi
þeirra fyrir skömmu. Keppnis-
dagur hefur ekki verið ákveðinn,
né heldur keppnisdagur.
Ásgeirog
árita
Tveir hinna fræknu atvinnu-
knattspyrnumanna íslands. þeir
Ásgeir Sigurvinsson og Atli Eð-
valdsson voru á ferðinni i höfuð-
borginni í gærdag. Ásgeir var
staddur i Pennanum við Hallar-
múla og áritaði hann bók þeirra
Sigmundar Steinarssonar og
Róberts Ágústssonar. sem fjallar
um knattspyrnuferil hans, fyrir
þá sem þess óskuðu. Auk þess
gafst gestum Ásgeirs og Pennans
kostur að fylgjast með leik Dyn-
amo Dresden og Standard Liege i
UEFA — keppninni, á myndseg-
ulbandi. en i þeim leik skoraði
Ásgeir þrjú glæsileg mörk.
Atli var hins vegar staddur í
íþróttavöruversluninni Bikarnum
á Skólavörðustíg og þar áritaði
hann bæði myndir og ýmsan
varning, allt eftir óskum við-
skiptavina. Á myndinni til vinstri
má sjá Ásgeir árita eintak af bók
sinni, en til hægri tekur Atli á
móti tveimur ungum knattspyrnu-
áhugamönnum. Ljósmyndirnar
tók Kristján.
Valencia lagöi Forest
VALENCIA frá Spáni va-ð stór-
bikarmeistari Evrópu í knatt-
spyrnu í fyrrakvöld. er liðið
sigraði Notthingham Forest 1—0
á heimavelli sinum. Forest vann
fyrri leikinn 2—1, þannig að
spænska liðið hreppir bikarinn
vegna útimarksins. Morena skor-
aði sigurmark Valencia í fyrra-
kvöld. Trevor Francis lék sinn
fyrsta ieik með aðalliði Forest i
marga mánuði og lék vel þó ekki
hjargaði það liði hans.
Lið ÍR:
Kristinn Jörundsson
Jón Jörundsson
Guðmundur Guðmundsson
Sigmar Karlsson
Jón Indriðason
Kristján Oddsson
Óskar Baldursson
Lið UMFN:
7 Valur Ingimundarson 7
8 Gunnar borvarðarson 8
7 Jónas Jóhannesson 6
6 Guðsteinn Ingimarsson 7
3 borsteinn Bjarnason 4
4 Jón Viðar Matthiasson 4
5 Július Valgeirsson 6
Ipswich féll
gegn Tottenham
TOTTENHAM gerði sér lítið
fyrir og vann góðan sigur gegn
Ipswich i 1. deild ensku knatt-
spyrnunnar í fyrrakvöld. Loka-
tölur leiksins urðu 5—3, en Ieikið
var á White Hart Lane í Lundún-
um, heimavelli Tottenham. betta
er aðeins annar tapleikur Ips-
wich á þessu keppnistimabili, en
liðið hafði áður tapað 0—1 fyrir
Brighton.
begar aðeins um tíjj mínútur
voru til leiksloka. var staðan jöfn
eða 3—3 og skoruðu þeir Garth
Crookes, Glenn Iloddle og Steve
Perryman mörk Tottenham, en
Paul Mariner (2) og Eric Gates
mörk Ipswich. Gates var síðan
vikið af leikvelli og á síðustu
mínútunum leiksins skoruðu þeir
Steve Archibald og Osvaldo Árd-
iies sigurmörk Tottenham ...
Gleymdist
að boða
Matthías?
HÉR Á siðunni til hægri er mynd
af því iþróttafólki sem hlaut
útnefningu sem íþróttafólk árs-
ins 1980. bað er ISÍ og íþrótta-
blaðið sem standa i sameiningu
fyrir þessari útnefningu. Tvo
íþróttamenn vantar þó á mynd-
ina, Pétur Yngvason glimumann
sem sá sér ekki fært að vera
viðstaddur, og knattspyrnumann
ársins, Matthias Hallgrimsson
Val. Mbl. hafði samhand við
Matthías og hann sagði að eng-
inn hefði boðað sig til þess að
taka við viðurkenningu þessari
og það þætti sér leitt. Hann hefði
svo sannarlega mætt á staðinn.
Spurningin er hvort að stjórn
KSÍ eða einhver annar hafi átt að
sjá um boðun Matthiasar. Aila-
vega gleymdist það og er það
raiður.
- þr.