Morgunblaðið - 26.03.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981
3
Afgreiðsla málsins
frámunalega f autaleg
— segir Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir um
synjun meirihluta borgarráðs um við-
ræður við Sókn um leiðréttingu launa
Slökkviliðsmenn í Vestmannaeyjum brugðu hart við er eldur kom upp í ibúðarhúsinu Lyngíelli oj? tókst
þeim að ráða niðurlögum hans á skömmum tima. Ljósmynd: SiKurxeir
Hjón með fjögur börn sakaði ekki
ELDUR kom upp í íbúðarhúsinu
að LynKfelli í Vestmannaeyjum
um klukkan 02.40 aðfaranótt
miðvikudaKsins. Hjón með fjrtKur
börn voru i húsinu, en þau
komust ómeidd út. Eldurinn kom
upp i baðherberjri en náði ekki að
breiðast verulega út vegna þess
að húsbóndinn, Guðni Svan Sig-
urðsson. náði að loka ölium
hurðum og hefta þannig út-
breiðslu hans.
Tjón af völdum eldsins var ekki
verulegt, en talsvert af völdum
reyks og sóts. Slökkvistarf gekk
vel þrátt fyrir að 12 vindstig væru
af austri og munaði því miklu hve
fljótt slökkviliðið kom á staðinn.
Rafmagn fór af húsinu, en í gær
vann Guðni Svan að því að koma
rafmagni á hænsnabú sitt, en
hann er með um 2.000 hænsn og
mun þau ekki hafa sakað.
Hjúkrunarfélag íslands undirbýr úrsögn úr BSRB
„MEÐ ÞESSARI synjun sinni
mismunar borgarráð greinilega
starfsfólki borgarinnar eftir því
í hvaða stéttarfélagi það er og
mér finnst afgreiðsla þessa máls
frámunalega fautaleg; að ekki sé
hægt að tilkynna okkur þetta
öðruvísi en í gegn um blöðin
finnst mér einstaklega kaldrana-
legt,“ sagði Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir, formaður starfs-
mannafélagsins Sóknar er Morg-
unblaöió ranidi við hana um
Tónleikar:
Dorriet Kavanna
í Gamla bíói
DORRIET Kavanna, sópransöng-
kona, heldur tónleika í Gamla biói i
kvöld kl. 19.00 með aðstoð Ólafs
Vignis Albertssonar, sem annast
píanóundirleik.
Dorriet Kavanna er fædd í Barcel-
ona á Spáni. Hún er amerískur
ríkisborgari en býr á Ítaiíu. Kavanna
lauk námi frá Tulane-háskólanum í
New York svo og leiklistarskólanum
Neighbourhood Playhouse og Man-
hattan-tónlistarskólanum sem einnig
eru í New York.
Eftir átta ára feril sem leikkona í
amerískum leikhúsum, sjónvarpi og
kvikmyndum, tók hún að leggja stund
á söng sem aðallistgrein. Hún stund-
Dorrlet Kavanna
aði söngnám m.a. hjá Ascencion
Capella á Spáni, Carolina Serera í
New York og Maestro Ettore Campo-
galliani á Ítalíu.
Kavanna hefur unnið til fyrstu
verðlauna í alþjóðasöngkeppnum á
Spáni og á Italíu. Hún mun syngja á
næsta leikári í óperum, s.s. Coq d’Or
eftir Rimsky Korsakov í Venice-
leikhúsinu í Feneyjum og Hamlet
eftir Ambrosi Thomas í Filarmonice-
leikhúsinu í Verona.
Skákmótið í Tallin:
Jafntefli og
tap hjá Margeiri
MARGEIR Pétursson gerði jafn-
tefli við Sovétmanninn Gufeld.
alþjóðlegan stórmeistara i 14.
umferð alþjóðlega skákmótsins i
Tallinn í Eistlandi. í 13. umferð
tapaði hann hinsvegar fyrir
ungverska stórmeistaranum
Barczay eftir að hafa haft yfir-
höndina um tima, en varð að gefa
skákina eftir að hafa lcikið af sér
i timahraki. Þegar ein umferð er
eftir á mótinu er Margeir í 8. sæti
með 7 vinninga.
Gipslis og Tal eru nú efstir með
9 vinninga hvor, Gufeld er annar
með 8 vinninga, Nei og Flacnik í 4.
og 5. sæti með 7,5 vinninga og
biðskák, Bagirov er í 6. sæti með
7,5 vinninga, Bronstein í 7. með 7
vin.iinga og 2 biðskákir og Mar-
geir í 8. með 7 vinninga.
viðbrögð meirihluta borgarráðs
við ósk Sóknar um viðræður um
samsvarandi launahækkanir og
aðrir starfshópar borgarinnar
hafa þegar fengið.
„Mér finnst það líka einkenni-
legt,“ sagði Aðalheiður, „að meiri-
hluti borgarráðs skuli hafa kúvent
svo gjösamlega síðan hann var í
minnihluta, þá var þetta sama
fólk stöðugt með kröfur um kaup-
hækkanir til þeirra lægstlaunuðu.
Ég vil taka það fram að ég er ekki
að telja eftir þessa 2% hækkun,
sem BSRB hefur þegar fengið, það
fólk sem er á beinum kauptöxtum
í lægstu flokkunum hefur tæplega
mannsæmandi kaup og því veitir
ekki af hækkun, en mér finnst
einkennilegt að þeir, sem hærri
laun hafa, skuli hafa fengið 6%
hækkun. Mér finnst rök meirihlut-
ans fyrir synjuninni í meira laga
vafasöm, það hlýtur að teljast
eðlilegt að við, sem vinnum við
hlið starfsmanna ríkis og bæja,
fáum sömu laun og þeir og þá er
rétt að benda á það að þessi
hækkun til BSRB kom á miðju
samningstímabili bandalagsins,
svo allar hugmyndir um að ekki
beri að hækka laun á slíkum tíma
hafa þegar verið gerðar ómerkar
af borgaryfirvöldum sjálfum.
Ég vil að lokum taka það fram
að málinu er ekki lokið, við bíðum
átekta eftir viðbrögðum borgar-
stjórnar og fjármálaráðuneytis-
ins, sem enn hefur ekki séð ástæðu
til að neita okkur um viðræður."
TILLAGA um að Hjúkrunarfélag
íslands undirbúi úrsögn úr
BSRB liggur fyrir fulltrúafundi
félagsins, sem hefst í dag og mun
þessi tillaga fram komin vegna
verulcgrar óánægju hjúkrunar-
fræðinga. sem telja sig hafa
dregizt mjög aftur úr hvað laun
varðar miðað við aðrar heilbrigð-
isstéttir.
Tillagan er komin frá Reykja-
víkurdeild HFÍ og er svo hljóð-
andi:
„Fulltrúafundur HFÍ, haldinn
dagana 26. til 27. marz 1981,
samþykkir að kosin verði 5 manna
nefnd til að kanna möguleika á
úrsögn HFI úr Bandalagi starfs-
manna ríkis og bæja.“
Tillögunni fylgir greingerð þar
sem segir meðal annars að til-
gangur hennar sé að kannað verði
hvaða áhrif það hefði fyrir HFÍ að
segja sig úr BSRB og ennfremur
með hvaða hætti úrsögnin gæti átt
sér stað.
Ennfremur mun liggja fyrir
fundinum tillaga um að HFÍ segi
sig úr Bandalagi íslenzkra kvenna.
Kaupmáttarþróun
síðustu missera
ÁSGARÐUR, 2. tölublað 30. ár-
gangs er komió út og ritar þar
Björn Arnórsson, hagfræðingur
Bandalags starfsmanna rikis og
bæja, grein, sem nefnist „Kaup-
máttarþróun frá des. '77 — febr.
’81“ og birtir með línurit yfir
þróunina frá því í desemher 1977
miðað við tvo launaflokka, 5.-6.
launaflokk og 13. launaflokk. í
Ásgarði er linuritið prentað með
lit og er þar 13. launaflokkur
prentaður með rauðu. Hér i
Morgunblaðinu er því miður ekki
unnt að birta línuritið i lit, en 13.
flokkurinn er neðri linan i ritinu.
Björn segir í greininni: „Yfirlit
yfir þróun kaupmáttar launa hafa
verið birt reglubundið í Ásgarði.
Viðfangsefni þetta má nálgast á
ýmsa vegu og höfum við nú valið
að sýna þróun kaupmáttar launa
þeirra, sem voru í efsta þrepi 5. og
13. launaflokks í desember 1977 og
hafa ekki fengið launaflokkshækk-
anir umfram það, sem segir í
aðalkjarasamningi (starfsmaður í
5. lfl. hækkar í 6. lfl. eftir tveggja
ára starf skv. síðasta aðalkjara-
samningi).
Desember 1977 er valinn sem
grunnur, því að hækkanirnar frá
júlí-desembcr komu mjög misjafnt
á launaflokkana og hefði því
myndin yfir þetta tímabil algjör-
lega ráðist af því, hvaða launa-
flokkar hefðu verið valdir til um-
fjöllunar. Þá var kaupmáttur hvað
mestur í desembermánuði.
Ef við lítum á meðfylgjandi
línurit, sjáum við, að mjög hefur
hallað undan fæti, en kaupmáttur-
inn í febrúar 1981 er rúmlega 12%
minni en í desember 1977 hjá þeim,
sem voru í 5. lfl. og tæplega 17%
minni í 13. lfl. Rýrnunin heldur
síðan áfram í marsmánuði, en
þegar þetta er skrifað liggja ekki
fyrir upplýsingar um framfærslu-
vísitöluna í marsmánuði. Um
kjaraskerðinguna 1. mars var hins
vegar fjallað í siðasta tölublaði
Ásgarðs.
Línuritið endurspeglar einnig
jafnlaunastefnu BSRB, þar sem
skerðingin hefur ekki verið eins
mikil hjá láglaunafólkinu og þeim,
sem betur eru settir.
Athyglisvert er að sjá í línurit-
inu afleiðingar þess, að vísitölu-
bætur eru ekki greiddar nema á
þriggja mánuða fresti, en þeir
mánuðir eru merktir sérstaklega
inn á línuritið. Þar stekkur kaup-
mátturinn upp, en fellur þess á
milli og sveiflast kaupmátturinn
um fleiri prósentustig á þessum
þriggja mánaða tímabilum.
Rétter að lokum að geta þess, að
inn í þessa mynd koma ekki
veigamikil atriði eins og t.d. áhrif
vaxtahækkana á kaupgetu hús-
byggjenda, breytingar á sköttum
eða áhrif mikilsverðra félagslegra
ávinninga, sem unnist hafa á þessu
tímabili. Hér er einvörðungu fjall-
að um kauptaxta í hlutfalli við
framfærsluvísitölu."
o L J.
1*77
M A M
J_ _J_ A _8_ 0_tL
1978
D J F M A M
_J_ Á _S_
1979
0_ N_D_ F M_A M
J _J A
1980
_0_N_D _ J
F
1981