Morgunblaðið - 26.03.1981, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 26.03.1981, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981 Forsíða Daily Mail á mánudag, þegar skýrt var frá því að Sir Roger Hollis. fyrrum yfirmaður MI5 hefði hugsanlega verið sovéskur njósnari. Var fv. formaður Verkamanna- flokksins sovéskur njósnari? Lundúnum, 25. marz. AP. NJÓSNAHNEYKSLIN á Bretlandi gerast sifellt umfang.smeiri. Chap- man Pincher, blaðamaður The Dai- ly Mail, heldur þvi fram í frétt i blaði sínu í dag, að fyrrum formað- ur brezka Verkamannaflokksins, Tom Driberg, hafi verið sovéskur njósnari. Driberg átti sæti á þingi i 32 ár. Hann var aðlaður og hlaut titilinn lávarðurinn af Bradwell. Hann lést árið 1976. Driberg var kynvilltur og að sögn Pinchers, starfaði hann bæði fyrir MI5, brezku gagnnjósnaþjónustuna og einnig KGB, sovésku leyniþjónust- una. Að sögn Pinchers, hafði Driberg ekki aðgang að leyniskjölum, en hann skýrði bæði MI5 og KBG frá kynferðismálum þingmanna, svo og pólitískum málefnum. Síðar í vik- unni verður gefin út bók eftir Piricher og nefnist hún, „Their Trade is Treachery", sem gæti út- lagst „Iðja þeirra er svik“. Upp- ljóstranir Daily Mail eru úr bók þessari. Á mánudag skýrði Daily Mail frá því, að Sir Roger Hollis, fyrrum yfirmaður MI5, hafi hugsan- lega verið sovéskur njósnari. Driberg var eins og áður sagði kynvilltur og um árabil lánaði hann mörgum þingmönnum íbúð sína þar sem þeir gætu verið óhultir með „kynferðisleg leyndarmál" sín. Síðar skýrði Driberg bæði KGB og MI5 frá athöfnum þingmanna. Driberg átti sæti á þingi frá 1942 til 1974 og hann var um tíma Chapman Pincher, blaðamaðurinn sem heldur þvi fram að Sir Roger Hollis, fyrrum yfirmaður MI5, brezku gagnnjósnaþjónustunnar, hafi verið á mála hjá KGB og að þingmaðurinn Tom Driberg hafi bæði starfað fyrir MI5 og KGB. formaður Verkamannaflokksins. Hann átti sæti í Landsstjórn Verka- mannaflokksins í 23 ár. Hvað eftir annað lenti hann í útistöðum við laganna verði vegna kynvillu sinnar, en jafnoft var honum forðað af MI5 frá ákærum. Hann viðurkenndi opinberlega að vera kynvilltur, en þrátt fyrir það kvæntist hann árið 1951. I uppkasti að ævisögu sinni skýrði Driberg frá því, að 11 ára gamall hefði hann upplifað sína fyrstu kynvillureynslu og allar göt- ur síðan hefði hann leitað eftir ástasambandi við karlmenn. Sonur sendiherra afhjúpaði Blunt Þá skýrði The Daily Mail frá því í dag, að Michael Whitney Straight, sonur fyrrum sendiherra Bandaríkj- anna í Lundúnum, hefði komið upp um Anthony Blunt, sem njósnaði fyrir Rússa og var listaráðgjafi Elísabetar drottningar. Fréttamað- ur Daily Mail í Washington, Angus MacPherson, átti viðtal við Straight, sem sagði að hann hefði á árinu 1963 skýrt Robert Kennedy, þáverandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, frá því að Blunt væri sovéskur njósnari. Kennedy sendi William Sullivan, þáverandi næstæðsta mann FBI til Lundúna, til að skýra Bretum frá uppljóstrunum Straight. Sjálfur fór Straight síðar til Lund- úna til yfirheyrslna yfir Blunt. Straight sagði, að Blunt hefði reynt að fá sig til að njósna þegar hann var við nám í Cambridge og hefði hann gert ýmis viðvik fyrir hann. Þegar Straight snéri til Washing- ton, hafði KGB samband við hann. Hann sagðist þá hafa vísað KGB á bug. Blunt var afhjúpaður sem sovésk- ur njósnari en þrátt fyrir það var njósnum hans fyrir Rússa haldið leyndum fyrir brezkum almenningi. Það var ekki fyrr en 1979 að opinberlega var upplýst um njósnir Blunt. íranir sækja fram á tveimur stöðum Varnarmálaráðherrar rlkja Varsjárbandalagsins fylgjast með sameiginlegum æfingum herja bandalags- ins i Póllandi. Heræfingarnar ganga „samkvæmt áætlun“ Berlin. 25.marz. AP. SAMEIGINLEGAR æf- ingar herja Varsjárbanda- lagsríkjanna í Póllandi, Tékkóslóvakíu, A-Þýzka- landi og Sovétríkjunum, gengur „samkvæmt áætl- un“, að því er austur- þýzka fréttastofan ADN skýrði frá í dag. Samkvæmt samkomulaginu munu Svíar eiga kost á kaupum á að minnsta kosti 2 milljónum tonna af hráolíu og olíuvörum þegar kemur fram á árið 1983 og 2,5 milljónum tonna eftir það. Norðmenn munu á móti eiga kost á raforkukaupum frá Svíþjóð, sem nema 2 milljónum kílówattstund- um á ári næstu 15 árin frá 30. júní 1982 að telja. Þá verður settur á Sagði í tilkynningu fréttastof- unnar, að komið hefði í ljós á æfingunum, að „hermennirnir væru þess viðbúnir að berjast við alla óvini sósíalismans og reiða þeim banahögg". Fréttastofan sagði ekki hversu lengi til viðbótar æfingarnar myndu standa. Vestrænum aðilum hefur verið meinað að fylgjast með æfingunum, þrátt fyrir gagn- kvæmt samkomulag NATO og laggirnar iðnlánasjóður og munu Svíar leggja fram 200 milljónir sænskra króna í þann sjóð næstu fjögur árin, en Norðmenn munu leggja fram 50 milljónir sænskra króna. Sjóð þessum er ætlað að lána iðnfyrirtækjum, sem vinna að sænsk-norskum verkefnum og verða lán sérstaklega hagstæð úr sjóðnum. Varsjárbandalagsherjanna þar að lútandi. Veöur víða um heim Akureyri 0 skýjaó Amsterdam 16 skýjaó Aþena vantar Berlín 12 rigning BrUssel 14 heióskírt Chicago 10 heióskírt Feneyjar 15 þokumóða Frankfurt 15 skýjaó Færeyjar vantar Genf 20 rigning Helsinki 6 heióskírt Jerúsalem 18 skýjaó Jóhannesarborg 25 skýjað Kaupm.höfn 8 skýjaó Las Palmas 21 skýjaó Lissabon 21 skýjað London 14 skýjaó Los Angeles 25 heióskirt Madrid 22 heiöskírt Malaga vantar Mallorca vantar Miami 21 skýjaó Moskva 10 heiðskírt New York 13 skýjaó Osló 5 heióskírt París 19 heióskírt Reykjavík 2 alskýjaó Ríó de Janeiro 31 heióskírt Rómaborg 18 heióskirt Stokkhólmur 3 rigning Tei Aviv 22 skýjaó Tókýó 8 rigning Beirút, 25. marz. AP. ÍRANIR héldu því fram í dag, að herir þeirra hafi náð til írösku landamær- anna á tveimur stöðum á tveimur helztu bardaga- svæðunum. Sagði í tilkynningu hersins, að íranskir her- menn hafi sótt fjóra kíló- metra inn í norðurhluta írak og náð þar á sitt vald eftirlitsstöð íraska hersins og dregið íranska fánann að húni. Eftirlitsstöðin er á Kúrdasvæð- um, tæpum 300 kílómetrum fyrir norðan Bagdad. A svæðinu er mikilvæg áveitustífla. Eftirlits- stöðin er gagnstætt borginni Marivan í Iran, en á þessum" slóðum efndi her íraks til sóknar í desember sl. í því skyni að leggja Kúrdum í íran lið í baráttu sinni fyrir sjálfsforræði. Sagði í tilkynningu íranska hersins, að miklir skotbardagar hefðu staðið í tvo daga áður en íranski herinn náði fjalllendinu við Marivan og eftirlitsstöðinni á sitt vald. Eftir þessa sigra eiga Iranir auðvelt með að fylgjast með Geimskutlan: hreyfingum íraska hersins á þess- um slóðum. I fyrri tilkynningu sagði, að íranskar hersveitir hefðu náð Choghalvand-fjalllendinu á sitt vald aftur eftir hörð átök í þrjá daga er kostuðu 800 íraska her- menn lífið, og 80 voru teknir til fanga. Hefði heil deild fallhlífa- hermanna „verið þurrkuð út“. Þær fregnir bárust, að írakar hafi haldið hörðum loftárásum uppi á þessi tvö fjalllendi í dag, og eldflaugum hafi verið skotið að borgum í íran í miklum mæli. Flúðu á sleða Linz, Austurríki. 25. marz. AP. TVÆR FJÖLSKYLDUR frá Tékkóslóvakíu, tvenn hjón og þrjú ung börn, flúðu I dag yfir landamærin til Austurríkis á sleða, sem hestur dró. Sleðinn var fuliur af timbri og heyi og börnin voru falin í heyinu. Fjölskyldurnar höfðu undir höndum pappíra, sem heimiluðu þeim að safna saman timbri á svæði er liggur að einskismanns- landi milli hinna tveggja landa- mæra. Fjölskyldurnar flúðu af „pólitískum ástæðum" og vilja flytjast til Kanada. Velheppnuð áfyll- ing eftir smábilun Canaverahöfða, 25. marz. — AP. EFTIR fjögurra klukkustunda töf vegna smávægilegrar bilunar var í dag hafist handa að fylla eldsneytisgeyma geimskutlunnar fljótandi eldsneyti. Áfyllingin tekur fjórar klukku- stundir og er gerð í tilraunaskyni. Að áfyllingunni lokinni á að tæma geyma skutlunnar og ganga úr skugga um hvort einangrun á eldsneytisgeymunum yrði fyrir skakkaföllum við eldsneytisáfyll- ingu. Hið fljótandi eldsneyti, súr- efni og vetni, vegur um 750 smálestir, og gekk áfyllingin að óskum. Þegar hefjast átti handa við áfyllinguna virkaði ekki rofi, sem tengdur var við sérstakan gufu- skynjara, sem vara átti við hættu- legum gufum. Tveir sérfræðingar klifruðu um borð í stjórnklefa skutlunnar og lagfærðu rofann. 20 ára samstarfssamn- ingur Svía og Norðmanna Osló, 25. marz AP. FORSÆTISRÁÐHERRAR Noregs og Svíþjóðar, þau Thorbjörn Fálldin, Svíþjóð og Gro Harlem Brundtland, Noregi, undirrituðu í dag 20 ára samstarfssamning landanna á sviði efnahagsmála. Jafnframt undirrituðu þau samning um olíusölu Norðmanna til Svíþjóðar, raforkusölu Svía til Norðmanna og stofnun iðnlána- sjóðs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.