Morgunblaðið - 26.03.1981, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 26.03.1981, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981 7 Bílatorg auglýsir: Volkswagen Pick-up, árgerö 1975. Nýtt lakk. Allur nýyfirfar- inn. Til sýnis og sölu hjá Bílatorgi, sími 13630, á horni Borgartúns og Nóatúns. ■liMl Aðalfundur Aöalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavík- ur veröur haldinn aö Hótel Esju í kvöld, fimmtudaginn 26. marz kl. 20.30. Dagskrá samkvæmt félagslögum. Verzlunarmannafélag Reykja víkur. HCybernet Micro200 Verö kr. 14.327, 200 RMS wött Fjarstýring „*Pjrógram“ minni c'«': segulbandi BENCO Bolholti 4, sími 91-21945 / 84077 Tómas í útvarpinu Á fimmtudaKskvöld i síöustu viku var flutt í hljóðvarpi viötal við Tómas Árnason. við- skiptaráðherra, i tilefni af Kagnrýni, sem fram hafði komið hjá Davíð Sch. Thorsteinssyni á ársþingi iðnrekenda. Tómas hafði að sjálf- sögðu ýmislegt við rœðu Davíðs að athuga og notaði jafnvel stór orð i þvi samhandi. t þessu viðtali við Tómas Árna- son, viðskiptaráðherra, kom þó ekkert athyglis- vert fram. Hitt er eftir- tektarvert, að viðtalið var tekið upp áður en Davíð Sch. flutti ræðu sina. viðskiptaráðherra hafði ekki fengið hana afhenta, áður en viðtalið fór fram. en engu að siður taldi ráðherrann sér fært að fjalla um ræðuna áður en hún var flutt og áður en hann vissi hver boðskapur formanns FÍI var. Tóm- asi Árnasyni er margt til lista lagt, það má nú segja! Finnbogi og Svavar Þjóðviljinn birti sl. laugardag viðtal við Finnboga Hermannsson. varaþingmann Fram- sóknarflokksins i Vest- fjarðakjördæmi, i tilefni af staðhæfingum hans, um að „leynisamningur- inn“ sé til. 1 viðtali þessu segir Finnbogi Her- mannsson: „Ég vil hins vegar bæta því við, að mér finnst ráðherrar AI- þýðubandalagsins af- skaplega linir 1 varn- armáium. Svavar Gests- son hefur til dæmis látið að því liggja. að bygging flugskýlanna geti flokk- ast undir eðlilegt við- hald. Þetta borðhald átti sér stað i Fréttabréfi miðstjórnar Alþýðu- bandalagsins. Það er þvi þegar búið að éta þessi 3 flugskýli.“ Þeir Þjóðviljamenn hafa hrokkið iíla við vegna þessara ummæla Finnboga Hermannsson- ar og er bersýnilegt. að þeir þora ekki að birta þau nema gefa Svavari Tómas Árnason Gestssyni kost á þvi að svara fyrir sig 1 sama blaði! Svavar segir: „Mér skilst að Finnbogi sé i þessu viðtali að reyna að drepa málinu á dreif með svigurmælum um ráðherra Alþýðubanda- lagsins og er það ekki i fyrsta sinn, sem menn reyna að hefna þess í héraði, sem hallast á á Alþingi. Afstaða Al- þýðubandalagsins i þess- um efnum hefur komið mjög skýrt fram. m.a. í viðtali. sem Þjóðviljinn átti við mig fyrir nokkr- um dögum Ég hirði þess vegna ekki um að elta ólar við ummæli Finn- boga Ilermannssonar. Hann virðist nú vera að átta sig betur en áður á þeim flokki. sem hann hefur lagt lag sitt við, Framsóknarflokknum. og er það fagnaöarefni. Hann gæti kannske á grundvelli þeirrar reynslu kvatt dyra á ný hjá sinum gamla flokki. Ég fullyrði. að þrátt fyrir allt yrði hann boð- inn velkominn.“ Þessi texti allur vckur upp þrjár spurningar: í fyrsta lagi vaknar sú spurning, af hverju Þjóðviljinn birtir þetta viðtal við Svavar Gests- son úr þvi að hann „hirðir ekki um að elta ólar við ummæli Finn- boga IIermannssonar“. í oðru lagi er ástæða til að beina þeirri fyrirspurn Svavar Gestsson til Steingrims Her- mannssonar. hvort hann ætli að sitja þegjandi undir þvi, að samráð- herra hans og samstarfs- maður i rikisstjórninni reyni að „stinga undan“ honum heilum varaþing- manni og tæla hann yfir 1 Alþýðubandalagið. í þriðja lagi vaknar sú spurning. hvernig á þvi stendur, að Finnbogi Hermannsson fær sent Fréttabréf miðstjórnar Alþýðubandalagsins. Það skvldi þó aldrei vera, að hann sé útsend- ari kommúnista i Fram- sóknarflokknum? Hógværð Ólafs Ragnars Hógværð Ólafs Ragn- ars er við brugðið. Eins og allir vita er hann einn hæglátasti þingmaður Alþýðubandalagsins. lætur lítið yfir sér og framkoma hans Oll ein- kennist af hæversku. Þessi hógværð kom vel i ljós fyrir nokkrum vik- um, þegar þingmaður- inn var staddur á flug- vellinum i Giasgow á leiö til Lundúna, en komst ekki áfram með áætlun- arflugvél af sérstökum ástæðum. f hógværð sinni vakti hann athygli starfsmanna Flugieiða í Glasgow á þvi, að hann Olafur Ragnar væri „formaður sam- göngunefndar Alþingis“ og fór fram á það af litillæti sinu að verða fluttur i litilli einkavél til Lundúna. Að sjálf- sögðu var orðið við þess- um hógværu óskum þingmannsins og flaug hann ásamt nokkrum oðrum til Lundúna með þeim hætti. Ilæverska Olafs Ragnars kemur enn fram i ummælum hans í viðtali við Morg- unblaðið sl. þriðjudag. Þar gefur hann eftirfar- andi skýringu á þvi, hvers vegna alþýðuband- alagsmenn hafi ekki opnað munninn i um- ræðum á Alþingi á dög- unum um leynisamning- inn: „... ástæða þess. að Alþýðuhandalagið hefði ekki tekið þátt i umræð- unum, væri sú. að „þa r voru fyrir neðan okkar standard“, eins og þing- maðurinn orðaði það. Ilann var þá spurður. hvort rétt væri skilið, að umræður á Alþingi ís- lendinga væru stundum fyrir neðan virðingu Álþýðubandalagsins. „Já. yfirleitt þa‘r umrasV ur er stjórnarandstaðan stendur fyrir,“ svaraði Ólafur ...“ Það fer ekki á milli mála, að Ólafur Ragnar Grimsson hefur tileink- að sér þá hógværð og þann „standard“ í opin- beru lífi. sem hæfir formanni þingflokks Al- þýðubandalagsins. Af valdamönnum Tómas Árnason viöskiptaráöherra veitir Ríkisútvarpinu viötal um ræöu, sem hann hefur ekki heyrt. Svavar Gestsson reynir aö stinga varaþingmann undan samstarfsmanni sínum í ríkisstjórn, Steingrími Hermannssyni. Ólafur Ragnar tekur upp nýjan „standard“ í opinberu lífi. As\ Guös 09 ábvrgb manns Sjónvarpshugleiðingar og prédikanir eftir sr. Pál Þórðarson. Tilvalin tækifæris- og fermingargjöf BÓKAVERZLUN SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR AUSTURSTRÆTI 18 Sími 18S80 1 VANTAR ÞIG VINNU (n) VANTAR ÞIG FÓLK 2 ÞÚ ALGLÝSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUG- LÝSIR í MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.