Morgunblaðið - 26.03.1981, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 26.03.1981, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981 VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF — umsjón: SIGHVATUR BLÖNDAHL Félag viðskipta- og hagfræðinga: Mikil gróska framundan í félagsstarfinu MIKIL GRÓSKA hefur verið í starísemi Félajís viðskiptafræðinRa og hagfræðinga i vetur ok hafa verið haldnir fjolmarKÍr fundir um ýmis málefni. í drog að áa-tlun félaKsins kemur fram, að á þessu ári eru áætlaðir tíu fundir. 26. marz nk. verður haldinn fyrri fundur af tveimur um tolvur ok haKnýtinKU þeirra og verða framsoKumenn þeir Oddur Einarsson, Páll Brajíi Kristjónsson ok Ejífíert Hauksson. Seinni fundurinn um tölvur og hagnýtingu þeirra verður svo haldinn 2. apríl nk. og verða framsögumenn þá Oddur Einars- son og Páll Bragi Kristjónsson. Fundur, þar sem fjallað verður um gerð þjóðhagsreikninga, verð- ur haldinn í Lögbergi 29. apríl nk. og verða framsögumenn þeir Ólaf- ur Davíðsson, Gamaliel Sveinsson og Hallgrímur Snorrason. í apríl er svo hugmyndin að fá hingað erlendan gest, en ekki er ljóst hver það verður. Einnig er hugsanlegt, að þeirri heimsókn verði frestað fram á haustið. Jákvæður hagvöxtur í Finnlandi TALIÐ ER. að Finnar vcrði einir fárra þjóða i Evrópu með jákvæðan hagvöxt á yfir- standandi ári, en efnahags- mál þeirra verði að öðru leyti í svipuðum farvegi og ann- arra Evrópuþjóða. Á árinu 1979 var verðbólga um 3% undir meðalverðbólgu- stigi í Vestur-Evrópu og um 2,5% undir stiginu á síðasta ári og á yfirstandandi ári er búizt við, að verðbólga í Finn- landi verði svipuð og meðal- talsverðbólgustigið í Vestur- Evrópu. Dagana 17.—18. ágúst nk. verð- ur haldið norrænt hagfræðinga- mót í Helsingfors í Finnlandi. Á fundi 17. september að Lág- múla 7 munu svo Jónas Haralz og Þráinn Eggertsson ræða um Nor- ræna hagfræðingamótið. Á fundi, sem haldinn verður 8. október verður fjallað um þjóð- hagskjarna viðskiptadeildar Há- skóla íslands og munu kennarar í deildinni hafa framsögu. Fundur- inn verður haldinn í Lögbergi. Þá er hugmyndin að verða með fundaröð um rekstur í verðbólgu- þjóðfélagi. Fyrsti fundurinn verð- ur 22. október að Lágmúla 7, og mun Hörður Sigurgestsson vænt- anlega fjalla um fjármálastjórn. Á öðrum fundinum, sem haldinn verður 29. október að Lágmúla 7, mun Eggert Ág. Sverrisson fjaila um áætlanagerð og á síðasta fundinum, sem haldinn verður 5. nóvember að Lágmúla 7, mun Ingjaldur Hannibalsson hafa framsögu um framleiðni. Af þessari uppRalningu er því ljóst, að mikið verður um að vera hjá Félagi viðskiptafræðinga og hagfræðinga á þessu ári. Stjórn félagsins skipa þeir Tryggvi Páls- son, formaður, Björn Björnsson, varaformaður, Páll Bragi Krist- jónsson, ritari, Kirsten Flygen- ring, gjaldkeri og meðstjórnandi Þórður Friðjónsson. Þá er Gunn- laugur M. Sigmundsson formaður kjaranefndar og Pétur J. Eiríks- son er formaður fræðslunefndar. Rekstur Wichmann gengur mjög vel WICHMANN, báta- og skipavéla- verksmiðjurnar norsku. sem m.a. hafa framleitt mikinn fjölda véla í íslenzk skip, lenti eins og skýrt var frá á sínum tíma í miklum greiðsluerfiðleikum haustið 1979 vcgna mikils og óvænts samdrátt- ar cr varð í smíði fiskiskipa og mikils kostnaðar, sem fyrirtækið hafði lagt í vegna honnunar á nýrri V-byggðri tvígengisvél. Mikil blaðaskrif urðu um málið hér á landi, sem í Noregi, og þá miklu þýðingu sem þjónusta við Wichmann-notendur hefði að segja, þá kannski ekki sízt hér á landi, þar sem um 70 stór fiskiskip og togarar eru búnir vélum frá Wichmann. Stjórnvöldum í Noregi varð fljótlega ljós hin mikla þýðing þess að rekstrargrundvöllur verk- smiðjanna yrði tryggður. Unnið var því strax að lausn málsins og leystist það snemma árs 1980, þegar þrjú stærstu fyrirtæki Nor- - egs sameinuðust um rekstur verk- smiðjunnar og stofnuðu fyrirtæk- ið A/S Wichmann. T Síðan A/S Wichmann tók til starfa hefur náðst góður árangur í sölu véla, sérstaklega til Banda- ríkjanna og Mið-Evrópu og þá sérstaklega vél, er notuð er í skip til þjónustu fyrir oll'uiðnaðinn. í grein í „Norges Handels og Sjöfartstidena" segir m.a., að öll framleiðsla ársins 1981 sé seld og mikill hluti framleiðslunnar á næsta ári. Sýnishorn af ullarfatnaði Hildu fyrir kvenfólk. Noregsfréttir: Hagstæður viðskipta- jöfnuður NORSK yfirvöld tilkynntu fyrir skömmu að loðnukvóti norskra sjómanna við Jan May- en á veiðiárinu 1981 —1982 yrði 83 þúsund tonn, sem er tölu- verð minnkun frá því sem var á síðasta ári, en þá var kvótinn 116 þúsund tonn. Samdráttur- inn er um 28,5%. Á síðasta ári var hlutur Norð- manna í heildarkvótanum í kring- um 15%, en þá var heimilt að veiða um 775 þúsund tonn af loðnu við Jan Mayen. Heildarkvótinn á svæðinu við Jan Mayen hefur nú verið ákveð- inn 660 þúsund tonn, þannig að hlutur Norðmanna er um 12,58%, eða um 2,42% minnkun frá því sem áður var. Hagstæður viðskipta- jöfnuður í janúar Vöruskiptajöfnuður Norðmanna var hagstæður um 1,657 milljónir norskra króna í janúar sl., en sambærilegar tölur á síðasta ári voru hagstæður vöruskiptajöfnuð- ur upp á 1,112 milljónir norskra króna. Innflutningur nam alls um 6,413 milljónum norskra króna í janúar, en útflutningur nam alls um 8,070 milljónum norskra króna. 28% söluaukning hjá Hildu hf. á síðasta ári: Reiknum með um 30% aukningu á þessu ári - segir Þráinn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins „VIÐ GERUM ráð íyrir um 30% söluaukningu, í dollurum talið, á þessu ári miðað við söluna á árinu 1980, og gerum við þá ráð fyrir að selja hreinlega allt það magn, sem fyrirtækið getur annað,“ sagði Þráinn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Hildu hf., sem sérhæft hefur sig í sölu ullarvarnings á erlendan markað. „Við seljum um 80% af allri okkar vöru til Norður-Ameríku, og sá markaður hefur verið mjög góður undanfarið, auk þess sem gengisþróun hefur verið mjög hag- stæð til viðskipta í þessum heims- hluta. Það munaði á tímabili um 15% á Evrópugjaldmiðlunum og dollurum og stóðum við því vel að vígi miðað við marga aðra. Þá er það merkilegt, að eftir- spurn hefur aldrei verið meiri frá nýjum viðskiptavinum í Banda- ríkjunum og Kanada. Þetta eru þá gjarnan viðskiptavinir, sem leitað hafa fyrir sér í Evrópu, og verið sagt þar, að íslenzki ullarfatnað- urinn sé það sem koma skal,‘ sagði Þráinn. Þráinn sagði aðspurður, að Hilda hf. seldi á erlenda markaði 85 einstakar flíkur, og væri stöð- ugt verið að bæta og breyta þeim. Ein flík væri í tízku þetta árið og önnur það næsta. Það væri því töluverð áhætta tekin með mark- aðssetningu hverrar flíkur. Hilda hf. rekur eigin sauma- stofu, auk þess sem fyrirtækið yfirtók Max hf. á síðasta ári. Þessar tvær saumastofur fram- leiða um 20—25% af því magni sem fyrirtækið selur. Hitt fram- leiða 12 aðilar víðs vegar um landið. Ef spá Þráins um 30% sölu- aukningu á þessu ári stenzt, þá er það svipuð söluaukning og milli áranna 1979 og 1980, eða tæplega 30%. Velta fyrirtækisins á síðasta ári var um 8 milljónir dollara, og var markaðshlutdeildin þá 29% af heildinni, en 33% séu Rússlands- viðskipti undanskilin. Sýnishorn aí herrafatnaðinum. Aðspurður um hugsanlegar breytingar í rekstrinum, sagði Þráinn, að breytingar fælust fyrst og fremst í ýmis konar hagræð- ingu, enda væri nauðsynlegt, að hugsa til „mögru áranna". Það væri augljóst að ekki væri hægt að búast við góðæri eins og nú er um ókomna framtíð. — „Ég tel t.d. að við séum komnir að hættumörk- um, hvað verðlagningu ullarvara almennt varðar. Við höfum yfir- leitt reynt að taka okkur hækkun svipaða verðbólgunni í viðskipta- löndum okkar, en ég tel útséð með, að það verði hægt strax á næsta ári. Mismuninn verðum við ein- faldlega að taka á okkur hér á landi," sagði Þráinn. Sem dæmi um hagræðingu í fyrirtækinu nefndi Þráinn, að tölvuvæðing þess hefði staðið yfir að undanförnu og væri það t.d. í „online" vinnslu við Rekstrar- tækni. Væru þegar komnir fjórir skermar upp og tveir prentarar, en heilinn sjálfur er hjá Rekstr- artækni. Vinnan fer svo fram í gegnum símalínur. „Ég held, að það sé alveg nauðsynlegt fyrir fyrirtækið, að hagræða sínum rekstri eins og bezt verður á kosið meðan þetta góðæri varir. Þeir, sem það ekki gera munu að mínu viti hreinlega sitja eftir, þegar aukningin verður ekki eins mikil eins og nú,“ sagði Þráinn Þorvaldsson, fram- kvæmdastjóri Hildu hf., að síð- ustu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.