Morgunblaðið - 26.03.1981, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.03.1981, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981 Elín Eggerz-Stefánsson: Hjúkrunarmál Sú staðreynd blasir nú við, að hér er tilfinnanlegur skortur hjúkrunarfræðinga og lítil hugg- un, þótt víðar í heiminum sé ástandið engu betra eða öllu verra. Þeir, sem afskipti hafa af mál- efnum fatlaðra vegna ellisjúk- dóma, geðsjúkdóma eða af öðrum orsökum, hafa vissulega kynnst því með ýmsu móti, hversu hjúkr- unarþörfum þessara hópa er oft lítt eða illa sinnt. Víðar er þó pottur brotinn, eins og t.d. má merkja við lestur baksíðufréttar dagblaðsins Vísis 19. mars sl., þar sem erfiðleikar Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri eru raktir á sviði hjúkrunarþjónustu almennt. Skorts hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða mun gæta innan flestra, ef ekki allra, sjúkrastofn- ana og heilsugæslustöðva hvar sem er á landinu, ef grannt er skoðað. Lagalega heimild til að stunda hjúkrun hérlendis hefur enginn nema sá, er til þess hefur hlotið leyfi frá ráðherra og lokið hefur viðurkenndu námi í hjúkrunar- fræði, en heimilt er að mennta sjúkraliða til aðstoðar við hjúkr- un, starfi þeir undir stjórn hjúkr- unarfræðings. Akvæði þessi er að finna í lögum nr. 8 frá 13. mars 1974 og er þeim tvímælalaust ætlað að gagna í margþættri viðleitni til að tryggja landsmönn- um þann rétt að fá notið svo fullkominnar heilbrigðisþjónustu, sem á hverjum tíma eru tök á að veita til vérndar andlegri, líkam- legri og félagslegri heilbrigði. Þegar skortur umönnunar veld- ur í senn andlegri, líkamlegri og félagslegri þjáningu, er ekki nema von að menn spyrji, hver tök samfélagsins séu í raun á þessum málum opnberrar þjónustu. Hvað er að baki hugsana sem þeirra, er bærast innra með formanni starfsmannafélagsins Sóknar, þegar hann í bréfi til fram- kvæmdanefndar stofnana í þágu aldraðra, ds. 12. febrúar sl., ritar eftirfarandi: „Getur faglært fólk bæði neitað að vinna við hjúkrun aldraðra og meinað öðrum að gera það? Er hér ekki um of mikla eftirlátssemi að ræða?“ Greinilegt er, að formanni Sóknar finnst ekki rétt að hjúkrunarfræðingum ein- um sé heimilt að stunda hjúkrun, en e.t.v. leggja menn misjafnan skilning í orðið hjúkrun. Sé vísað til skilgreiningar bandaríska hjúkrunarfræðingsins Virginíu Henderson, í þýðingu Ingibjargar R. Magnúsdóttur, er hjúkrun það, að hjálpa einstakl- ingnum, sjúkum sem heilbrigð- um. i öllu, sem stuðlar að heil- brigði og bata eða friðsælum dauðdaga. Veita aðstoð við það, sem hann sjálfur myndi gera. hefði hann til þess nægan vilja, þrótt eða þekkingu. Þetta þarf hjúkrunarfræðingurinn að gera á þann hátt, að það örvi skjól- stæðinginn til sjálfsbjargar. Með framangreinda skilgrein- ingu í huga er áríðandi að menn gjöri sér ljóst, að hjúkrunarstarf- ið er kerfisbundin heild athafna, er stjórnast af fagþekkingu hjúkrunarfræðings, þar sem markvisst skal leitast við að ná fram bestu fáanlegu sjálfsbjarg- argetu skjólstæðingsins og að- standenda hans. Aðgreindir þætt- ir þessarar kerfisbundnu heildar eru: 1) upplýsingasöfnun um heilsufarsleg vandamál; 2) mat þess, hvort hjúkrunarafskipti séu líkleg til að veita greindum vanda- málum úrlausn, þ.e. svonefnd hjúkrunargreining, sem jafnframt tekur til forgangsröðunar hjúkr- unarþarfa skjólstæðingsins; 3) hjúkrunaráætlun, sem byggð er á hjúkrunargreiningunni, og við gerð hennar á að setja ákveðin tímamörk fyrir væntanlegar at- hafnir og mat árangurs; 4) hjúkr- unarmeðferð, sem oftast er sinnt í samvinnu við aðra, t.d. með skipu- lagðri hópvinnu undir handleiðslu hjúkrunarfræðingsins; og 5) sam- fara öllu þessu skal leggja faglegt mat á réttmæti og árangur ein- stakra atriða í framvindu allra nefndra þátta frá upphafi til enda hjúkrunarafskiptanna í hverju til- felli. Þegar sjúkraliðum, starfsstúlk- um eða öðrum samstarfsaðilum hjúkrunarfræðinga er falin þátt- taka I umönnun skjólstæðinga með hjúkrunarþarfir, er fásinna að ætla þeim að annast hjúkrun- argreiningu, hjúkrunaráætlun eða faglegt mat á hjúkrunaraðgerð- um. Því ekki er búið að mennta og þjálfa viðkomandi einstaklinga til slíkra ábyrgðarstarfa. Sömuleiðis er ósvinna að veita hjúkrunar- fræðingi starfsleyfi í hjúkrun nema fagkunnátta hans sé metin næg til að axla þá hjúkrunar- ábyrgð, sem honum er ætluð. Kröfur um símenntun hjúkrunar- fræðinga fara því stöðugt vaxandi, þótt mismiklar séu í hinum ýmsu löndum eða svæðum heims. Við framkvæmd alhliða þjón- ustugreiningar í þágu nýrra skjól- stæðinga heilbrigðisstofnana, þurfa fleiri aðilar en hjúkrunar- fræðingar að starfa saman, því ekki er í upphafi ljóst hvort úrlausn vandans fæst endilega með hjúkrunaraðgerðum, að minnsta kosti ekki alltaf. Innan heilbrigðisþjónustunnar er sam- starf afar mikilvægt, enda skarast störf og ábyrgð heilbrigðisstétta all verulega. Þegar um hjúkrun er að ræða, bera hjúkrunarfræðingar þó ítvíræða ábyrgð á að greina þjónustuþörfina, skipuleggja með- ferðina og sjá til þess að hún verði veitt á réttan hátt. Með framansagt í huga ættum við, lesandi góður, að huga ögn nánar að tökum þjóðfélagsins á hjúkrunarmálum og gætum við reynt að gjöra það með því að varpa fram eftirtöldum spurning- um: 1. spurning. Hver er menntunar- legur aðbúnaður hjúkrunar- fræðinga á íslandi? Hjúkrunarfræði er kennd í Hjúkrunarskóla íslands, í Nýja hjúkrunarskólanum og í Háskóla Islands. Menntunarleg undirbún- ingsskilyrði eru ekki þau sömu hjá þessum stofnunum. Hjúkrunarfé- lag íslands og Félag háskólmennt- aðra hjúkrunarfræðinga eru sam- mála um að sem allra fyrst þurfi allt nám hjúkrunarfræðinga að verða innan sama skólstigs og þá í Háskóla íslands, þannig að bæði aðfaranámið og sjálf fagfræðin verði í viðunandi horfi. Bætt menntun samfara fjölgun innan hjúkrunarstéttarinnar eflir lík- indin til að auðnast megi að virkja fleiri aðila til hagkvæmrar sam- vinnu, m.a. með því að nýta kennsluhæfileika og leiðsögn hjúkrunarfræðinga fyrir aðstoð- arfólk á sviði hjúkrunar, bæði til starfsundirbúnings og samfara daglegri starfsönn innan stofn- ana. Mikil tregða af hálfu yfir- Endurskoða þarf úr- elt verðlagsákvæði Gunnar Snorrason formaður Kaupmannasamtakanna. Útdráttur úr ræðu Gunnars Snorrasonar á aðalfundi Kaupmannasamtakanna Á síðasta aðalfundi Kaup- mannasamtaka Islands, fyrir ári, var samþykkt ályktun um megin- hagsmunamál smásöluverslunar- innar þá, en þau eru í stórum dráttum þau sömu í dag. Fundurinn vakti athygli á þeirri höfuðskyldu stjórnvalda, að tryggja atvinnuvegum lands- manna starfsskilyrði þannig að blómlegt þjóðlíf fái þrifist í land- inu. I verðbólgu undanfarinna ára hefur eigið fé fyrirtækja brunnið upp og verðgildi vörubirgða stór- lega rýrnað, vegna óeðlilegra opin- berra afskipta. Fundurinn gerði einnig þá kröfu að þá þegar væri fyrirtækjum heimilt að selja vör- ur sínar á raunvirði. Stjórnvöld hafa stefnt að því að útlánsvextir séu í samræmi við verðbóigustig. Kaupmannasamtök Islands telja eðlilegt að þessari stefnu sé fylgt, en jafnframt verði tekið hæfilegt tillit til þess, þegar smásöluálagn- ing er ákveðin, og að fyrirtækjum sé ekki mismunað í þessu tilliti. KÍ telja brýnt að komið verði á, hér á landi, stéttarlegu jafnvægi, og að atvinnurekendur í landinu sameinist í baráttunni gegn verð- bólgunni, svo komið verði í veg fyrir óheillavænleg áhrif ein- stakra stétta á efnahagsmál þjóð- arinnar. KÍ benda á að þær ásakanir, sem hafa verið hafðar uppi í garð smásöluverzlunarinn- ar, um að hún sé valdur að hækkandi verðlagi í landinu, hafa ekki við rök að styðjast, þar sem að hlutur smásöluverzlunarinnar, í vöruverði hefur farið síminnk- andi á síðustu árum. KÍ telja það höfuðnauðsyn að nú verði stjórn- málalegur flokkakrytur lagður til hliðar, en Alþingi sameinist um að ná tökum á höfuðmeini íslenzks efnahagslífs, seiji er verðbólgan. Fundurinn benti sérstaklega á vanda dreifbýlisverzlunarinnar og að hér verður ekki haldið uppi menningarþjóðfélagi nema því að- eins að verzluninni sé gert fært að inna af höndum þá þjónustu, sem lífsnauðsynleg er fyrir hinar dreifðu byggðir landsins. Mér þykir rétt að draga fram í stuttu máli hvernig þessi mál standa í dag. Allir vita að verð- bólgan hefur geisað áfram líkt og áður og það með að eigið fé fyrirtækja hefur brunnið upp líkt og fyrr. Það sem einkenndi reksturinn öðru fremur var skortur á fjár- magni. Ástæðan fyrir því er m.a. að verzlunininni var gert skilt að selja vörur sínar á gömlu inn- kaupsverði, og þá vantar fjármagn þegar nýjar vörur eru keyptar inn. Stjórn KÍ lét þetta mál alveg sérstaklega til sín taka á sl. ári og átti marga fundi með ráðamönn- um þjóðarinnar því viðkomandi. Þann 3. desember sl. samþykkt loks Verðlagsráð að heimila fyrir- tækjum að selja vörur sínar á raunvirði. Endanlegt samþykki ríkisstjórnarinnar liggur þó ekki enn fyrir og hlýtur það að vera okkar krafa að ekki öllu lengur verði við það unað og endanleg afgreiðsla liggi á borðinu. Þau úreltu verðlagsákvæði sem í gildi eru hafa ekki verið endur- skoðuð síðan í apríl 1979, þrátt fyrir stóraukin reksturskostnað. Tel ég brýna nauðsyn á að ákvæð- in verði endurskoðuð í heild sinni hið fyrsta og frjáls verðmyndun látin ríkja, þar sem næg sam- keppni er fyrir hendi að mati yfirvalda. Einnig fari fram heild- arendurskoðun á dreifingarkostn- aði vísitölu- og landbúnaðarvara. Ég tel með öllu ástæðulaust að hafa á hendi dreifingu á vörum, hverjar svo sem þær eru, með álagningu sem er langt undir dreifingarkostnaði. Um vanda verzlana í dreifbýli er það að segja, að Kaupmanna- samtökin hafa nýlega sent frá sér umsögn varðandi tillögu til þings- ályktunar, um bætt skilyrði til verzlunarþjónustu í dreifbýli. Það mál er í okkar anda og eins og ritað beint út úr fundargerð frá ráðstefnu sem KÍ boðuðu til á haustdögum árið 1979 um vanda- mál dreifbýlisverzlana. En ef vitn- að er í ályktun samtakanna, þar sem bent var á ásakanir í garð smásöluverzlunarinnar og henni beinlínis kennt um hækkandi verðlag í landinu, vil ég segja þetta: Þennan hugsunarhátt höf- um við svo sem heyrt fyrr og annað álíka gáfulegt, enda virðist það hafa verið eitt aðal verkefni ákveðinna manna og fjölmiðla að reyna að troða þessum rógi jafnt og þétt inn í almenning í landinu, með það fyrir augum að gera verzlunina í landinu sem tor- tryggilegasta. Til að sporna við fótum og leiðrétta slíkt og vonandi um síðir að uppræta, urðu samtökin Við- skipti og verzlun til, en þeirra verk er að upplýsa almenning í landinu um hvaða hlutverki verzlunin gegnir. Nýlega var kynning á starfi kaupmannsins og um leið því mikilvæga hluterki sem smá- söluverzlunin gegnir í þjóðfélag- inu. Þessi kynning tókst að mínum dómi mjög vel, þó fleiri kaupmenn hefðu mátt senda frá sér greinar, en við hvöttum kaupmenn látlaust til að setja hugmyndir sínar niður á blað, nokkrir gerðu það en því miður of fáir. Ég vil í þessu sambandi þakka öllum þeim sem hlut áttu að máli þessu, einkum þó framkvæmdastjóra Viðskipta og verzlunar, frú Jónínu Michaels- dóttur, en þunginn hvfldi hvað mest á henni hvað alla fram- kvæmd snerti. Ég ætla nú að fara nokkrum orðum um starfsemi KÍ. Starfsemin hefur í gegnum árin einkennst af varnarbaráttu gagn- vart ríkisvaldi og opinberum aðil- um. Ástæðan fyrir þessu er m.a. sú að aðild að KÍ hefur ekki verið nógu víðtæk, þrátt fyrir það að stjórn samtakanna hefur á sl. árum unnið markvisst að upp- byggingu kaupmannafélaga um allt land, auk nýrra sérgreinafé- laga í Reykjavík. Óneitanlega styrkir það mjög samtökin og vettvang þeirra og er þegar komið í ljós að KÍ hafa fengið þar til liðs við sig dugmikla félaga og er áhrifa af starfi þeirra nú þegar farið að gæta. Vona ég að fram- hald verði hér á. Síðast var Kaupmannafélag Suðurnesja stofnað, en það var 29. maí á sl. ári. Starfsemi Kaupmannafélags Hafnarfjarðar hafði legið niðri síðustu árin, en er nú með nýjum mönnum orðið virkt á ný. Stefnt er að því að endurnýja starfsemi kaupmannafélags á Siglufirði og Sauðárkróki og viðræður hafa staðið yfir varðandi Norðurland vestra. En þrátt fyrir þessa öru uppbyggingu hefur kaupmönnum leyfst það að starfrækja stórar verzlanir, víðsvegar um landið, án þess að vera aðilar að KI. I þessu sambandi vil ég benda á ákvæði í kjarasamningunum, sem KI gerir f.h. kaupmanna við sína viðsemj- endur, en það hljóðar þannig. „Félagar í viðkomandi verzlun- armannafélagi skulu ekki vinna hjá öðrum vinnuveitendum en þeim, sem eru meðlimir þeirra atvinnurekendasamtaka, sem eru aðilar samnings þessa." Tilvitnun lýkur. Þessu ákvæði hefur ekki verið beitt til þessa og tel ég tíma til kominn að láta reyna á þetta ákvæði, að öðrum kosti að fella það út úr samningunum. Fámenn og ósamstillt félaga- samtök eru óæskileg, en fjölmenn, sterk og virk samtök eru heilla- drjúg fyrir heildina. Ef fjármál KÍ komast á fastari og traustari grunn sem ég vona svo sannar- lega, megna samtökin að láta meira til sín taka en verið hefur. Kaupmannasamtök íslands eru

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.