Morgunblaðið - 26.03.1981, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1981
t
Allir þurfa híbýli
★ Vesturborgin
Nýleg 2)a herb. íbúð á 2. hæö
við Ásvallagötu. Falleg íbúð.
★ Hamraborg, Kóp.
Falleg 3ja herb. íbúð. íbúðin er
1 stofa, 2 svetnherb., eldhús og
bað. Bílskýli. íbúöin er laus.
★ Vesturborgin
4ra herb. íbúð viö Lynghaga á
2. hæð í tvíbýlishúsi. íbúðin er
tvær stofur, 2 svefnherb., eld-
hús og bað. Ný eldhúsinnrétt-
ing. Falleg íbúð. Bílskúr fylgir.
★ Seljahverfi
Raðhús í smíðum. íbúðin er á 2
hæðum, auk jarðhæðar með
2ja herb. íbúð og innbyggöum
bílskúr. Húsiö er íbúöarhæft.
★ Iðnaðarhúsnæði
260 ferm iönaöarhúsnæði við
Smiðjuveg Kóp. Stórar inn-
keyrsludyr. Húsið er fullfrá-
gengið, en býður uppá mikla
möguleika.
★ Sérhæö óskast
Hef fjársterkan kaupanda að
sérhæð.
Hef fjársterka kaupendur að öllum stærðun. eigna.
Hef fjársterkan kaupanda að sérhæð.
HÍBÝLI & SKIP
Garöastræti 38. Sími 26277.
Sölustjóri Gísli Ólafsson, heimasími 20178. Lögm. Jón Ólafsson.
^Eigoaval** 29277
Hafnarhúsinu- Grétar Haraldsson hrl. Bjarni Jónsson (20134)
Þessi glæsilegu verslunar- og iðnaðarhús við Nýbýlaveg í Kópavogi
höfum við til sölu: Stærra húsið er 400 ferm. verslunarhæö og 380
ferm. efri hæð. Innkeyrsla er á báðar hæðirnar.
Minna húsið er 280 ferm. hvor hæð og er einnig með innkeyrslu á
báöar hæðir. Byggingarframkvæmdir eru að hefjast Húsin veröa
selt í einingum eða í einu lagi. Allar nánari upplýsingar gefur
Eignaval af.
31 801 ]- 3 >180 '1
tsi fEII SNAM IIÐU JN
Sverrir Kristjánsson HREYFILSHÚSINU -FELLSMÚLA 26, ( 3.HÆÐ
Fasteignaeigendur
Hef á skrá vandaða kaupendur að eftirtöldum
eignum.
Sér hæö
Ca 140 til 160 fm ásamt bílskúr. Æskileg staösetning er Vesturbær
og allt Innaö Elliðaám. Útb. viö samning 300 til 400 þús.
Sér hæð
eða vandaöri efri hæð í þrí- til fjórbýlishúsi, stærð 150 til 200 fm,
(4 til 5 svefnherb ). Bílskúr æskilegur.
Hvassaleiti, Háaleiti, Vesturbær
Ca 130 til 150 fm íbúð má vera í sambýlishúsi. Æskilegt er að
bílskúr fylgi. Útb. við samning allt að 250 þús.
2ja til 3ja herb. íbúö í Háaleiti. Raöhús í Fossvogi
eða Seljahverfi
Til greina kemur að upp í kaupin gangi sérlega vönduö ca 135 fm
efri hæð ásamt bílskúr.
Seltjarnarnes einbýlishús
Hef í einkasölu svo til fullgert vandað einbýlishús ca 150 fm á einni
hæð ásamt ca 50 fm bílskúr. Húsið skiptist í forstofu,
gestasnyrtingu, skála, stofu og boröstofu. Eldhús með borðkrók
þvottaherb. og búr innaf eldhúsi Mjög skemmtilegan sjónvarp-
skála, 5 svefnherb. og baö. Til greina kemur aö taka 130 til 150 tm
sér hæð, með 4 svefnherb. uppí. Teikning og nánari uppl. á
skrifstofunni.
Einbýlishús Seltjarnarnes
Til sölu vandaö 150 fm einbýlishús ásamt bílskúr í nágrenni
Kjarvalshússins á Seltjarnarnesi. Húsið er forstofa, skáli, stofa og
boröstofa. Gott eldhús með borðkrók. Á sér gangi eru 4 til 5
svefnherb. og bað. í hluta bílskúrs er innréttað gott vinnuherb. og
þvottaherb., og pláss fyrir 1 bíl. Lóð frágengin. Til greina kemur að
taka 120 til 150 fm sér hæð með bílskúr í Vesturbæ og Austurbæ
allt aö Stórageröi uppí. Nánari uppl aöeins á skrifstofunni.
MÁLFLUTNINGSSTOFA:
SIGRÍÐUR ÁSGEIRSDÓTTIR hdl.
HAFSTEINN j3ALDVINSSON hrl.
Gestgjafinn - nýtt
tímarit um mat
GESTGJAFINN, tímarit um
mat, hefur nýletfa hafið KönKU
sina og eru útgefendur, áhyrgð-
armenn og ritstjórar hjónin
Elin Káradóttir og Hilmar
Bragi Jónsson. Hilmar er mat-
reiðslumaður með meistararétt-
indi og Elín lauk prófi i Kaup-
mannahöfn í gluggaskreyting-
um og skiltagerð.
í frétt útgefenda um ritið
segir m.a.: Með tilkomu þessa
blaðs er gerð tilraun til þess að
mæta þörf, sem áreiðanlega er
fyrir hendi, ekki eingöngu fyrir
uppskriftum um mat heldur líka
fyrir öllu, sem snertir mat,
matargerð, borðhald og gesta-
boð, eða er á einhvern hátt tengt
eldhúsi eða borðstofu. Leitast
verður við að fá góðborgara til
þess að sýna í máli og myndum
hvernig þeir taka á móti gestum
sínum. Kennt verður að úrbeina
kjöt og greinar verða um marg-
vísleg efni, allt tengt mat og
matargerð. Veitingahús verða
kynnt og matvörufyrirtæki.
Fjöldinn allur verður af upp-
skriftum um mat, sem allar eru
prófaðar og staðfærðar af að-
standendum blaðsins.
Ráðgert er að Gestgjafinn
komi út fjórum sinnum á ári og
er tímaritið prýtt fjölda mynda,
en það er rúmar 60 blaðsíður.
Djúp:
Samfelld
ísbreiða út
fyrir Hrútey
Bæjum, 24. marz.
GÍFURLEGUM snjó hefur kyngt
hér niður í samfelldri stórhríð í
heila viku. Djúpbáturinn braust
fyrir Djúpið i dag, þá aðeins
slotaði versta veðrinu.
Ófært er hér á ferjubryggjuna
vegna snjóa og urðu bændur, með
aðstoð skipshafnar djúpbátsins,
að draga á smásleðum 70 brúsa af
mjólk til skips. Ófært var að
komast sjóleiðina inn Mjóafjörð
fyrir ís, sem samfellt nær út fyrir
Hrútey. Urðu Mjófirðingar því að
brjótast við illan leik út í Ögur
með mjólk sína og til aðdráttar.
Jens i Kaldalóni.
Isafjörður:
Vandræðaástand ef Ern
ir væri ekki til staðar
IsafirAi, 24. marz.
FLUTNINGAR hingað frá
Reykjavík hafa verið mjög stop-
ulir undanfarið og ef marka má
ummæli flugmanns Flugleiða i
dagblaði að nýverið hefði skapast
hér algjört vandraðaástand. ef
Flugfélagið Ernir væri ekki til
staðar. Stormur og éljagangur
hefur háð fluginu og virðist að
minni flugvélarnar eigi hetra
með að athafna sig við þessi
skilyrði.
Mánudaginn 16. marz fóru Ern-
ir eina ferð án erfiðleika. Flugleið-
ir urðu frá að hverfa, en komust
þó eina ferð um kvöldið. Þriðju-
daginn 17. fóru Ernir eina ferð en
Flugleiðir sáu sér ekki fært að
fljúga nema þeir létu vél, sem fór
til Þingeyrar, hafa hér viðdvöl á
bakaleið og taka nokkra farþega
suður. Miðvikudag 18. flugu Ernir
eina ferð en Flugleiðir enga. Á
fimmtudag fóru Ernir tvær ferðir
með farþega en Flugleiðir eina,
auk þess sem Ernir sóttu sjúkling
til Bíldudals og fóru með til
Reykjavíkur. Vélin lenti hér í
myrkri um kvöldið þar sem reynt
er að hafa hér ávallt til reiðu
flugvél í neyðartilvikum. I þetta
sinn kom það í góðar þarfir því
morguninn eftir komst vélin á loft
við erfiðar aðstæður milli élja með
slasaðan mann, eins og kom fram
í frétt Mbl. sl. laugardag.
Sl. laugardag fóru Ernir tvær
ferðir, Flugleiðavél varð að snúa
við en þó tókst þeim að fljúga
Miöhusum 25. mars.
ERFIÐLEGA gekk að opna Gils-
fjörðinn, byrjað var að moka
hann i gærmorgun og var þvi
vcrki lokið kl. 5 í morgun.
í óveðrinu féllu tvö snjóflóð í
Gilsfirði og töfðu þau mokstur.
Konráð Konráðsson, læknir,
komst ekki héðan til Búðardals
tvisvar seinni part dagsins. Á
sunnudag og mánudag var ekkert
flug. Á þriðjudag var gott veður og
flugu Ernir þá tvær ferðir með
farþega og eina ferð með sjúkling.
Flugleiðir fóru þá tvær ferðir og
er þá búið að koma öllum farþeg-
um sem beðið hafa, en nánast
engin „frakt“ hefur borist hingað
allan tímann.
Úlfar.
fyrr en í gær, en ástæðulaust var
talið að fara fyrir Gilsfjörð meðan
óveðrið geysaði, nema lífsnauðsyn
stæði til.
Sú frétt að Konráð væri einn við
þjónustu í Búðardalslæknishéraði
reyndist á misskilningi byggð, en
Sigurður Sveinsson læknir var
heima í Búðardal og sinnti sjúkl-
ingum Dalasýslu. Hlutaðeigendur
eru beðnir velvirðingar á þessum
mistökum, sem má að mestu leyti
rekja til lélegs símasambands, er
fréttaritari var að afla sér heim-
ilda fyrir frétt sinni. Sveinn
Stykkishólmur:
Gæftaleysi,
afli tregur
Stykkishólmi, 24. mars.
UNDANFARID hefur verið treg-
ur afli, enda gæftaleysi mikið og
það svo að bátar, sem voru búnir
að fá 400 tonn á sama tíma i
fyrra, hafa nú aðeins fengið 100
tonn.
Bátarnir hafa oft lagt upp afla í
Rifi þar sem styttra er þaðan á
miðin. Er aflinn þá sóttur þangað
á bílum og unninn hér. Menn eru
að vonast til þess að með batnandi
veðri fari eitthvað að glæðast.
_________^ t '____Árni
Sýna Gildruna á
Suðurnesjum
LEIKFÉLAG Fjölbrautaskóla
Suðurnesja mun frumsýna Gildr-
una cftir Robert Tomas, í byrjun
april.
Leikstjóri er Höskuldur Skag-
fjörð, en þetta er fyrsta verkefni
leikfélagsins. Sýningar verða á
Suðurnesjum og verða þær kynnt-
ar síðar.
. y -
Sælkerahátíð
í Nausti
Ilin áriega hátíð sælkeraklúbbsins, verður haldin
laugardaginn 28. marz nk.
Matreitt verður eftir hinni nýju línu
„La Nouvelle Cuisine“
Matseðill kvöldsins:
Sælkerasalat
- O -
Fisk-Paté
- O -
Rauðvínssteikt lambalæri
- O -
Glóðaður Port Salute ostur
- O -
Heimalagaður vanillu ís með Peter Heering
Jóhannes Kristjánsson eftirherma skemmtir.
Stuðlatríó leikur fyrir dansi til kl: 2.
Nánari upplýsingar og boröpantanir í síma 17759.
P.s. allir velkomnir meðan húsrými leyfir.
Verið velkomin í
Snjóflóð töfðu
mokstur í Gilsf irði