Morgunblaðið - 04.04.1981, Page 1

Morgunblaðið - 04.04.1981, Page 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK 79. tbl. 69. árg. LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Reagan eykur hernaðaraðstoð Washington. 3. april. AP. STJÓRN Ronald Reagans heíur farið þess á leit við Bandaríkjaþing, að sam- þykkt verði 1,2 milljarða aðstoð við NATO-ríkin Tyrkland, Grikkland, Spán og Portúgal. Sagði einn af aðstoðarmönnum Haigs utanríkisráðherra, Raymond C. Ewing, að nauðsynlegt væri að efla varnir þessara landa og styrkja þar með stöðu þeirra innan NATO. Samkvæmt upplýsingum utanríkisnefndar öldungadeild- arinnar eru Tyrkjum ætlaðar 703,5 milljónir dollara til að endurnýja ýmsan vopnabúnað og til að treysta efnahag landsins. Grikkjum eru ætlaðar 260 milljónir til hergagnakaupa, Spánverjum 159 milljónir doll- ara og Portúgölum 82,2 milljón- ir. Jafnframt er Kýpur ætluð 7,5 milljóna dollara efnahagsaðstoð. Bylting í Bangkok brotin á bak aftur Bangkok, 3. apríl. AP. SVEITIR, hliðhollar Prem Tinsulanonda, brutu á bak aftur byltingartilraun herforingja, sem reyndu að steypa stjórninni í fyrradag. I dögun í morgun réðust þús- undir hermanna inn í Bangkok og náðu á sitt vald höfuðstöðvum hersins og helztu stjórnstofnun- um landsins, einnig flugvellinum og útvarps- og sjónvarpsstöðvum borgarinnar. Aðeins tveir féllu.í byltingartilrauninni, óbreyttur borgari og hermaður í liði bylt- ingarmanna. Jafnframt særðust þrír í liði byltingarmanna í skot- bardaga við konungshöllina. Hersveitir stjórnarinnar höfðu yfirbugað sveitir byltingarmanna og náð öllum stofnunum á sitt vald aðeins tveimur klukkustund- um eftir að látið var til skarar skríða. Byrjað var á því að umkringja flugvöllinn og síðan sótt til miðborgar Bangkok, sem byltingarmennirnir höfðu á valdi sínu. í yfirlýsingu sem Prem Tinsul- anonda birti í dag, sagði að forsprakki byltingarmanna hefði flúið til Burma í þyrlu, en aðrir leiðtogar þeirra hefðu gefið sig fram. A flestum þeim stöðum sem byltingarmenn höfðu á valdi sínu kom ekki til skotbardaga, þeir gáfust upp eftir að þeir höfðu verið umkringdir. Komið úr róðri. Ljósm. Snorri Snorrason. Sovézkar innrásarsveitir í viðbragðsstöðu við Pólland Washington, Varsjá. Moskvu, 3. april, AP. SOVÉZKIR innrásarherir eru í viðbragðsstöðu allt umhverfis Pólland. og eru tilbúnir að láta til skarar skriða á hverri stundu, að þvi er fram kemur i tilkynningu handaríska utanrikisráðuneytisins i kvöld. William Dyess, formælandi ráðuneytisins, sagði að ástandið i Póllandi hefði versnað til muna síðustu daga. væri liklega alvarlegra en i desember er handarísk yfirvöld töldu sovézka innrás i Pólland yfirvofandi. Dyess varaði Sovétmenn við af- leiðingunum af innrás, sem sérfræð- ingar í Pentagon telja að gerð verði frá vesturhluta Rússlands, en þar hefur sovézki herinn verið með mikinn viðbúnað að undanförnu. Samkvæmt upplýsingum bandarísku leyniþjónustunnar, eru um 20 her- fylki sovézkra hersveita og sveita frá öðrum ríkjum Varsjárbandalagsins, ekki einvörðungu í viðbragðsstöðu á landamærum Póllands, heldur bein- línis í árásarstöðu og tilbúin til að hlýða kalli með nánast engum fyrir- vara. Bandarísk yfirvöld óttast nú meir en fyrr, að innrás í Póllandi sé í deiglunni. Samt sem áður höfðu Haig utanríkisráðherra og Wein- berger varnarmálaráðherrra ekki í hyggju að fresta ferðalögum sínum til Miðausturlanda og Vestur- Evrópu í kvöld. Bush varaforseti tilkynnti í dag, að í undirbúningi væri að veita Pólverjum nýja aðstoð til matvælakaupa og til athugunar væri að veita þeim enn frekari efnahagsaðstoð. Bandaríkin og önn- Júgóslavía: Óeirðir í Kosovo valda áhyggjum BelRrað, 3. apríl. AP. HIN OPINBERA fréttastofa Júgóslavíu. Tanjug, skýrði frá þvi i dag, að helztu leiðtogar Júgóslavíu hefðu verið kvaddir saman til skyndifundar til að fjalla um óeirðirnar i héraðinu Kosovo er liggur að landamær- um Albaniu. Komið hefur til ofbeldisað- gerða síðustu vikurnar í hérað- inu, og sagði héraðsstjórinn í dag, að skotið hefði verið að lögreglunni í héraðinu nýlega. í héraðinu eru 85% íbúanna Alb- anir, og hefur aðskilnaðarsinn- um í þeirra röðum verið kennt um ólætin. Yfirvöld í Júgóslavíu eru sögð hafa þungar áhyggjur af ástand- inu í Kosovo, en uppþot þar og ofbeldisverk hófust þar að ráði fyrir mánuði. Fregnir frá hérað- inu herma, að búast megi við áframhaldandi mótmælum og ofbeldisverkum. A síðustu fjór- um vikum hafa 35 manns a.m.k. særst i uppþotum og 21 hefur verið handtekinn. Embættismenn skýrðu frá því í dag, að ferðir blaðamanna til Kosovo hefðu verið bannaðar. Mikil fátækt ríkir í Kosovo, en íbúar þar eru um tvær milljónir. Krafa uppreisnarmanna, er að Kosovo verði fullvalda lýðveldi. Óstaðfestar fregnir frá Belgrað herma, að herinn hafi verið kvaddur til aðstoðar af lögregl- unni í Kosovo. ur vestræn ríki hafa upp á síðkastið aukið aðstoð við Pólland á þeirri forsendu, að eftir því sem efnahags- ástandið í Póllandi versni, því erfið- ari verði sambúð stjórnvalda og óháðu verkalýðsfélaganna þar í landi, og líkur á friðsamlegri lausn mála minnki. Dyess sagði í dag, að eftirtektar- vert væri, að viðbúnaður Sovét- manna við landamæri Póllands hefði aukist verulega siðustu þrjá daga, á sama tíma og spenna væri að minnka í Póllandi í kjölfar ákvörð- unar Samstöðu um að fresta all- sherjarverkfalli sl. þriðjudag. Stanislaw Kania flokksleiðtogi og aðrir háttsettir fulltrúar pólska kommúnistaflokksins mættu harðri gagnrýni á fundum við námur og í verksmiðjum víða í Póllandi í dag, en efnt var til þessara funda að kröfu miðstjórnar flokksins. Þá stönguðust á fullyrðingar Stef- ans Olszowskis ritara miðnefndar flokksins og Andrezejs Zabinski flokksstjórnarmanns á fundi, og þykir það benda til klofnings í flokksstjórninni. Zabinski sagði að togstreita um völd og áhrif ætti sér stað, en Olszowski sagði að flokks- stjórnin væri samrýnd. Kacala landbúnaðarráðherra átti í dag fund með bændum er verið hafa í setuverkfalli í miðstöð Sameinaða bændaflokksins í Bydgoszcz í tæpan mánuð. Bændur krefjast þess að óháð samtök þeirra verði viður- kennd. Fregnir frá Varsjá herma, að Kacala hafi ekki haft umboð til að semja við bændurna eða taka neinar ákvarðanir, honum hafi verið falið það eitt að hlýða á mál bænda. Sovézk blöð sögðu í dag, að þótt spennan í Póllandi færi ef til vill eitthvað minnkandi, krefðist alþýða landsins þess að tekið yrði af hörku á málum „og starfsemi óvinveittra afla brotin á bak aftur". Blöðin birtu hvassyrtar greinar um málefni Pól- iands þriðja daginn í röð. Á einum stað var sagt, að ef Samstaða hótaði aftur allsherjarverkfalli yrði litið á það í Moskvu sem úrslitahótun verkalýðshreyfingarinnar við stjórn landsins, sem hreyfingin miðaði að því að steypa. Reagan með hita Washington, 3. npril. AP. REAGAN Bandarikjaforseti var með hita þegar hann vakn- aði ó sjúkrahúsi i Washington i morgun. Læknar segja að al- gengt sé að menn fái hita eftir uppskurð. og þvi sé ekkert að óttast. og sagði í tilkynningu þeirra að forsetinn væri ó eðlilegum batavegi. Formælandi sjúkrahússins sagði þó, að Reagan mundi ekki hafa náð sér að fullu fyrir 23. apríl næstkomandi, en þá hyggst hann halda til Kaliforníu og Mexíkó til fundar við Mexíkó- forseta. Forsetinn gekk fjórum sinn- um um vistarverur sínar í sjúk- rahúsinu í gær, en jafnan voru tengdar við hann slöngur og snúrur sjúkrahússtækja. Kona hans Nancy, gekk við hlið hans á einum göngutúrnum, sem var 50 metra langur. Deng Xiaoping, varaformaður kínverska kommúnistaflokks- ins, sagði í dag, að kínversk yfirvöld hefðu boðið Reagan til Kína og hefði boðinu verið komið á framfæri við bandarísk yfirvöld. Zhao Ziyang, forsætis- ráðherra Kína, hefur verið boðið til Bandaríkjanna. Búist er við að Reagan heimsæki Kína á næsta ári.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.