Morgunblaðið - 04.04.1981, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1981
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr.
Hjalti Guðmundsson. Kl. 2 ferming-
armessa. Sr. Þórir Stephensen.
LANDAKOTSSPÍTALI: Messa kl.
10. Organleikari Birgir Ás Guð-
mundsson. Sr. Þórir Stephensen
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barna-
samkoma í Safnaöarheimili Árbæj-
arsóknar kl. 10:30. Fermingarguðs-
þjónusta í Safnaöarheimilinu kl. 2.
Altarisganga fyrir fermingarbörn og
vandamenn þeirra þriðjudagskvöld
7. apríl kl. 20:30 í Safnaöarheimil-
inu. Sr. Guömundur Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL: Fermingarguðs-
þjónusta í Laugarneskirkju kl. 2.
Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSPREST AK ALL:
Sunnudagaskóli kl. 10:30. Fjöl-
skylduguösþjónusta kl. 14. Ferm-
ingarbörn og aöstandendur þeirra
sérstaklega hvattir til aö koma. Sr.
Lárus Halldórsson.
BÚST ADAKIRK JA: Fermingar-
guösþjónustur kl. 10:30 og kl.
13:30. Altarisganga þriöjudags-
kvöld kl. 20:30. Sr. Ólafur Skúla-
son.
DIGRANESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaöarheimilinu viö
Bjarnhólastíg kl. 11. Fermingar-
guösþjónusta í Kópavogskirkju kl.
14. Sr. Þorbergur Kristjánsson.
FELLA- OG HÓLAPRESTAKALL:
Laugardagur: Barnasamkoma f
Hólabrekkuskóla kl. 2 e.h. Sunnu-
dagur: Barnasamkoma í Fellaskóla
kl. 11 f.h. Guðsþjónusta í safnaöar-
heimllinu aö Keilufelli 1 kl. 2. Sr.
Hreinn Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA: Fermingar-
messur kl. 10:30 og kl. 14:00.
Organleikur Jón G. Þórarinsson.
Altarisganga þriöjudaginn 7. apríl
kl. 20:30. Almenn samkoma n.k.
fimmtudagskvöld kl. 20:30. Sr.
Halldór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 1.
Sr. Karl Sigurbjörnsson. Engin
messa kl. 2. Þriöjud. 7. apríl:
Fyrirbænaguösþjónusta kl. 10:30
árd. Beöiö fyrir sjúkum. Miövikud.
8. apríl: Föstumessa kl. 20:30. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson. Kvöld-
bænir með lestri Passíusálma virka
daga kl. 18:15 nema miövikudaga
og laugardaga. Kirkjuskóli barn-
anna er á laugardögum kl. 2 í
gömlu kirkjunni.
GUOSPJALL DAGSINS:
Lúk. 1.: Gabríel engill sendur
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Laugardagur:
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Sr.
Tómas Sveinsson. Sunnud.: Messa
kl. 10:30. Ferming. Messa kl. 2.
Ferming. Prestarnir. Fötstuguös-
þjónusta fimmtudaginn 9. apríl kl.
20:30. Sr. Arngrímur Jónsson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í Kársnesskóla kl. 11
árd. Fermingarguösþjónusta kl.
10:30. Altarisganga þriöjudag kl.
20:30. Sr. Árni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Söngur, sögur, mynd-
ir. Ferming kl. 13:30. Sóknarnefnd-
in.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl.
10:30. Ferming og altarisganga.
Messa kl. 2 í umsjá Ásprestakalls.
Ferming og altarisganga. Mánud.
6. apríl: Afmælisfundur Kvenfélags
Lauganessóknar aö Norðurbrún 1
kl. 20:00. Þriöjudagur: Bænaguös-
þjónusta á föstu kl. 18. æskulýös-
fundur kl. 20:30. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
10:30. Sr. Frank M. Halldórsson.
Fermingarmessur kl. 11 og kl. 2.
Prestarnir.
SELJASÓKN: Barnaguösþjónusta
aö Seljabraut 54 kl. 10:30. Barna-
guösþjónusta í Ölduselsskóla kl.
10:30 . Guösþjónusta að Seljabraut
54 kl. 2. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN Í REYKJAVÍK: Messa
kl. 2. Ferming. Organleikari Sigurö-
ur isólfsson. Prestur sr. Kristján
Róbertsson.
FÍLADELFÍUKIRKJAN: Almenn
guösþjónusta kl. 8 síðd. Ræöu-
maöur Hallgrímur Guömannsson.
Organisti Árni Arinbjarnarson. —
Fórn fyrir Afríkutrúboöiö. Einar J.
Gíslason.
DÓMKIRKJA KRISTS Konungs
Landakoti. Lágmessa kl. 8.30 árd.
Hámessa kl. 10.30 árd. Lágmessa
kl. 2 síöd. Alla rúmhelga daga er
lágmessa kl. 6 síöd. nema laugar-
daga þá kl. 2 síöd.
FELLAHELLIR: Kaþólsk messa kl.
11 árd.
KIRKJA ÓHÁDA aafnaðarina:
Fermingarmessa kl. 13.30. Organ-
isti Jón ísleifsson. Sr. Emil Björns-
son.
GRUND, elli- og hjúkrunarheimili:
Messa kl. 10 árd. Sr. Lárus Hall-
dórsson.
KFUM & K, Amtmannsstíg 2 B:
Fórnarsamkoma kl. 20:30. — Helgi
Elísson bankaútibússtjóri talar.
HÁSKÓLAKAPELLAN: Þemaguös-
þjónusta meö altarisgöngu kl. 2
síöd. í umsjá Kristilegu skólahreyf-
ingarinnar. Organisti Ástríður Har-
aldsdóttir. — Prestur sr. Gísli
Jónasson skólaprestur.
HJÁLPRÆOISHERINN:
Sunnudagaskóli kl. 10 árd. Bæn kl.
20 og hjálpræðissamkoma kl.
20.30.
KIRKJA JESU Krists hinna síðari
daga heilögu, Mormónar, Skóla-
vörðustíg 46: Sakramentissam-
koma kl. 2 síöd. Sunnudagaskóli kl.
3 sfðd.
GARÐAKIRKJA: Barnasamkoma í
skólasalnum kl. 11 árd. — Ferm-
ingarguösþjónustur kl. 10.30 árd
og kl. 14. Sr. Bragi Friöriksson.
KAPELLA St. Jósefssystra <
Garðabæ: Hámessa kl. 2 síöd.
VÍÐIST AD ASÓKN: Fermingar-
guösþjónustur í Hafnarfjaröarkirkju
kl. 10 árd og kl. 14. Sr. Siguröur H.
Guömundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Föstu-
vaka kl. 20.30 fjölbreytt efnisskrá í
tali og tónum. Ræðumaöur sr.
Heimir Steinsson rektor. Gítarsnill-
ingurinn Josep Fung leikur og
Margrét Pálmadóttir syngur ein-
söng. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN Í HAFNRARFIRDI:
Barnatíminn kl. 10.30 árd. Guös-
þjónusta kl. 14. Guömundur Ein-
arsson framkvæmdastjóri Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar talar. — Eftir
messu veröur kirkjukaffi í góð-
templarahúsinu. Safnaöarstjórn.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl.
8.30 árd. Rúmhelga daga er messa
kl. 8 árd.
KAPELLAN St. Jóeefsspítala:
Messa kl. 10 árd.
YTRI-NJAROVÍKURKIRKJA: Ferm-
ingarguðsþjónusta kl. 10:30 árd.
Altarisganga. Sóknarprestur.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Ferming-
arguðsþjónustur kl. 10.30 árd og
kl. 14. Altarisganga mánudags- og
þriöjudagskvköld. Sóknarprestur.
HVALSNESKIRKJA. Barna-
guösþjónusta kl. 11 árd.
UTSKÁLAKIRKJA: Barnaguös-
þjónusta kl. 13.30.
HVERAGERÐISKIRKJA. Messa kl.
2 síöd. Aöalsafnaöarfundur aö lok-
Inni messu. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA: Fermingar-
guösþjónusta kl. 10:30 árd. og kl.
14 sr. Björn Jónsson.
Jonathan Motzfeldt eftir Bandarikjaför:
Áhersla lögð á gott sam-
band við heimastjórnina
Frá fréttaritara Mbl. i Julianehaab
Grænlandi Henrik Lund.
JONATHAN Motzfeldt, formað-
ur nrænlensku heimastjórnar-
innar, var i Bandartkjunum 9.
til 23. janúar í boði Bandarikja-
stjórnar. Á meðan hann dvald-
ist þar fór hann meðal annars i
NORAD-herstjórnina i Color-
ado Springs og f bandariska
varnarmálaráðuneytið. Þar var
honum greint frá því hernaðar-
lega eftirlitsstarfi, sem Banda-
rikjamenn reka á Norðurslóð-
um, þar á meðal á Grænlandi.
Motzfeldt lagði á það áherslu,
að ekki stæði fyrir dyrum að
auka hernaðarstarfsemi á
Grænlandi. Á það hefði ekki
verið minnst við sig. Hins vegar
hefði verið rætt um mikilvægi
handarisku stöðvanna i Græn-
landi (i Syðra Straumfirði og
Thule) fyrir almennar sam-
göngur. Hugsanlegt er, að dreg-
ið verði úr starfseminni í Syðra
Straumfirði eftir nokkur ár.
í samtali komst Jonathan
Motzfeldt svo að orði: — Á ferð
minni sannfærðist ég um mikinn
áhuga Bandaríkjamanna á
Grænlandi. Ég átti þess kost að
ræða við stjórnmálamenn í
fremstu röð, þar á meðal fyrr-
verandi varaforseta, Walter
Mondale, og einnig fulltrúa
Jonathan Motzfeldt
bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins. Á fundi með sérfræðingum,
sem hafa sérhæft sig í græn-
lenskum málefnum, greindi ég
frá skipan og hlutverki heima-
stjórnarinnar.
— Eftir þessar viðræður og
fundi, hélt formaður heima-
stjórnarinnar áfram, er ég þeirr-
ar skoðunar, að Bandaríkjamenn
líti á Grænlendinga sem góða
nágranna og þeir vilja leggja sig
fram um að ná sem bestu
sambandi við heimastjórnina.
Næstum allir, sem við hittum,
voru undrandi yfir því, að í
Grænlandi hefði þróast lýðræð-
islegt stjórnkerfi, þar sem situr
þjóðkjörið þing og landsstjórn.
Kurt Waldheim, aðalritari Sam-
einuðu þjóðanna, sýndi til dæmis
mikinn áhuga á stjórnkerfi
okkar í tengslum við þau al-
þjóðasamtök.
Jonathan Motzfeldt iagði á
það áherslu í viðræðum við
fulltrúa bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins og varnarmála-
ráðuneytisins, að af hálfu Græn-
lentíinga ríkti ánægja með það,
að Bandaríkjamenn hefðu ekki
blandað sér í skattamál þau sem
risið hafa milli heimastjórnar-
innar og þeirra Dana, sem vinna
í bandarísku herstöðvunum á
Grænlandi. Jonathan Motzfeldt
spurðist fyrir um það, hvort
hugsanlegt væri, að Bandaríkja-
stjórn væri reiðubúin að greiða
gjald til grænlensku heima-
stjórnarinnar vegna bandarísku
stöðvanna á Grænlandi.
— Okkar von var sú, að slík
gjaldtaka væri tíðkuð í öðrum
löndum, þar sem Bandaríkja-
menn hafa herstöðvar. Svo
reyndist ekki vera, sagði Jonath-
an Motzfeldt. Bandaríkjamenn
líta þannig á, að stöðvar þeirra
séu einnig til að auka öryggi
viðkomandi landa.
Grohe-skákmót í Borgarnesi
GROHE-skákmót verður haldið á
vegum skákdeildar UMF Skalla-
grims i Borgarnesi á morgun,
sunnudag. Mótið hefst kl. 13 i
Hótel Borgarnesi og verða tefld-
ar 15 mínútna skákir, ellefu
umferðir eftir Monradkerfi.
Verðlaun gefur Þýzk-íslenzka
verzlunarfélagið og er þátttaka
öllum heimil og þátttakenda-
fjöldi ótakmarkaður.
Aðalverðlaun eru veglegur far-
andbikar, sem vinnst til eignar
sigri sami maður þrisvar í röð eða
fimm sinnum alls. Þrír fyrstu
menn fá verðlaunapeninga, einnig
fá þrír unglingar, fæddir 1964 og
síðar, sem beztum árangri ná,
verðlaunapeninga. Auk þess eru
sérstök kvennaverðlaun.
Skákstjóri verður Guðjón Ingvi
Stefánsson framkvæmdastjóri
Sambands sveitarfélaga á Vestur-
landi. Þá mun Jónas Þorvaldsson
skákmeistari tefla fjöltefli við þá
þátttakendur í mótinu sem mæta
kl. 10 f.h. á mótsstað. Æskilegt er
að væntanlegir þátttakendur taki
með sér töfl og klukkur.
P31800 - 31801p
FASTEIGNAMIÐLUN
Sverrir Kristjánsson heimasími 42822.
HREYFILSHÚSINU -FELLSMÚLA 26, 6.HÆÐ
Opið 2—5 í dag — Lokað sunnudag
Heimasími 42822
Hef á skrá fjársterka kaupendur aö eftirtöldum
fasteignum:
Sérhæö í Vestur- eöa Austurbæ
Æskileg stærö 140—160 fm ásamt bílskúr. Staösetning: Vesturbær
allt inn aö Elliöaám. Útborgun við samning kr. 300—400 þús. Upp
í kaupin gæti komiö mjög vönduö ca. 135 fm efri hæö ásamt
bftskúr, (gott þvottaherbergi á hæöinni) í Austurbæ.
Hefi einnig kaupanda aö vandaöri efri hæö (helst sér) í tví-fjórbýli,
stærö 150—299 fm. Æskileg staösetning í Austurbæ. (í íbúöinni
þyrftu aö vera 4 svefnherbergi). Upp í kaupin gæti komiö
einbýlíshúsalóö i Rauögeröi.
Óskast
5—6 herb. íbúö í sambýlishúsi í
Austur- eöa Vesturbæ
Stórar stofur æskilegar. Útborgun við samning allt aö kr. 250.000.
í Fossvogí — Bökkum — Seljahverfi
óskast vandaö raöhús
Skipti koma til greina á 130—140 fm efri hæð í 4býli ásamt bílskúr.
Mosfellssveit — Dvergholt
Til sölu hús, sem er ca. 350 fm. ásamt 50 fm. bílskúr. Miklö útsýni.
( húsinu eru í dag 4 íbúöir. Húsið er ekki fullgert en vel íbúöarhæft.
Skipti æskileg á einbýlishúsi í Smáíbúöahverfi eöa í Fossvogi.
Æsufell
Góö 2ja herb. íbúö á 5. hæö. Mikiö útsýni. Laus
strax.
Nýlendugata
Til sölu lítiö einbýlishús. Verö aöeins ca. 300 þús.
Seltjarnarnes — Einbýlishús — Einkasala
Hef í einkasölu svo til fullgert vandaö einbýlishús ca. 150 fm á elnni
hæö ásamt ca. 50 fm bftskúr. Húsiö skiptist í forstofu,
gestasnyrtingu, skála, stofu og borðstofu. Eldhús með borökrók,
þvottaherb. og búr innaf eldhúsi. Mjög skemmtilegur sjónvarps-
skáli, 5 svefnherb. og baö. Til greina kemur aö taka 130 til 150 fm
sérhæö, meö 4 svefnherb. upp í. Teikningar og nánari upplýsingar
á skrifstofunni.
MALFLUTNINGSSTOFA:
SIGRÍÐUR ÁSGEIRSDÓTTIR hdl. .
HAFSTEINN BALDVINSSON hrl. ■
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU