Morgunblaðið - 04.04.1981, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 04.04.1981, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1981 Sextíu manna kór Lang- holtskirkju æfir nú Messías Hándel undir stjórn Jóns Stefánssonar, en verkið verður frumflutt 11. apríl í Reykjavík. Fyrir skömmu brá kórinn sér í æfingabúðir að Flúðum og var allsnarleg lota tekin þar í söngmennt- inni, en slegið bæði á létta strengi og hina háalvarlegu sem fylgja flutningi þessa kunna tónverks. Það var rífandi stemmn- ing á staðnum og naut hið áhugasama kórfólk sín vel að Flúðum, enda aðstaða þar hin ákjósanlegasta fyrir slíkt starf. Söngur var í fyrirrúmi eins og gefur að skilja og stóðu söngæfingar yfir í allt að 9 kiukkustundir, þar af átta klukkustundir samfellt í eitt skipti. Kór Langholtskirkju mætti á staðinn á föstudagskvöld, en til Reykjavíkur var komið aftur á sunnudag til þess að taka þátt í guðsþjónustu í Langholtskirkju. Hluti kórfélaganna. Æfingum bæði kvöldin lauk með kvöld- vöku og á aðalkvöldvökunni síðara kvöldið var flutt óperan La Go Hem eftir samkomu- lagi og var hún flutt með miklum tilþrifum við fádæma undirtektir, en samkvæmt efnisskrá kvöldvökunnar var hér um að ræða frumútgáfu af systuróperu La Bo- héme. Þá var fluttur fjöldi heimatilbúinna skemmtiatriða, m.a. söng karlakórinn Stjúpmæður en þar var á ferðinni kvenna- blómi kórsins sem þótti karlakórinn Stjúp- bræður vera orðnir alláberandi innan aðal- kórsins. Fluttu Stjúpmæður sýnishorn af efnisvali Stjúpbræðra og urðu þeir síðar- nefndu mjög taugaóstyrkir eftir túlkun Stjúpmæðra enda brá þar fyrir dúndrandi hetjutenórum og kontrabössum en umfram allt brást fyrsti tenór ekki fremur venju. í spjalli við kórfélagana sögðu þeir að ferðir í æfingabúðir reyndust mjög vel, því þá gæfist betri tími en oft í erli hversdags- ins til þess að nota vel allar stundir og einnig sköpuðust betri kynni meðal kórfé- laga. Kváðu viðmælendur okkar að slíkar ferðir væru á við mánaðaræfingu. Kváðu þau þessa ferð í æfingabúðir gera það að verkum að kórinn stæði klár á öllum atriðum þremur vikum fyrir tónleika og því væri unnt að einbeita sér að fínpússning- unni. Þau sögðu að ýmsir hefðu spáð hraklega fyrir kórnum að hefja ekki æfingar á tónverkinu fyrr en um miðjan janúar, en þau sögðu að starfið hefði gengið mjög vel, góð stemmning á öllum æfingum og mikið unnið enda væri í kórnum fólk sem hefði langa reynslu í tónlist og fengi mikið út úr þróttmiklu starfi þar sem unnið væri markvisst. Jón Stefánsson stjórnandi. Kórfólkið tók sumt börn sín með í æfingabúðirnar og þarna er ein hnát- an. Veislumaturinn á aðalkvöldvökunni undirbúinn með viðeigandi tilþrifum af matreiðslumeistara norðursins, Gunnlaugi Snævar. Aðalfundur Sparísjóðs vélstjóra: Innlánsaukn- ing 69,1% Eigið fé jókst um 52,8% Aðalfundur Sparisjóðs vél- stjóra var haldinn að Borgartúni 18, laugardaginn 21. marz sl. Á fundinum flutti formaður stjórn- ar sparisjóðsins, Jón Júlíusson, skýrslu stjórnarinnar fyrir árið 1980 og Hallgrímur G. Jónsson, sparisjóðsstjóri, lagði fram og' skýrði ársreikning sparisjóðsins. Síðast liðið ár var Sparisjóði vélstjóra mjög hagstætt og lagð- ist þar á eitt góð innlánsaukning og prýðileg afkoma, sem hafa styrkt stöðu sparisjóðsins veru- lega. Innistæðuaukning á síðasta ári var 69,1% og voru heildar inni- stæður í árslok 3.864,8 milljónir króna. Hlutdeild sparisjóðsins í innlánsfé sparisjóðanna í landinu var í árslok 6,4%. Tæplega helm- ingur innlánanna voru almenn spariinnlán. Veruleg aukning varð á bundnum innlánum, en þó ekki eins mikil og við var búist, þar sem í júlímánuði var tekinn upp nýr innlánsflokkur, sem ber fulla verðtryggingu samkvæmt lánskjaravísitölu. Binditími þess- ara innlána var ákveðinn 2 ár og fengu þau því dræmar undirtekt- ir sparifjáreigenda. I árslok námu innistæður á þessum reikn- ingum aðeins 2,3% af spariinn- lánum sparisjóðsins. Nýlega var binditíminn styttur í 6 mánuði og á rúmlega einum mánuði hafa innistæður á reikningum þessum í sparisjóðnum þrefaldast. Utlán Sparisjóðs vélstjóra juk- Frá aAalfundl SparisJóAa vélatJAra. Jón JúlluttHon formaAur stjórnar I ræóustól. Tll vinstrl Hallgiimur Jónsson, sparlsjóAsstjórl. ust um 67,8% á árinu og námu þau í árslok alls 2.508 milljónum króna. Vaxtaaukalán eru nú stærsta útlánaform sparisjóðs- ins, en verðtryggðum lánum hef- ur einnig fjölgað mikið. Hins vegar hefur hlutdeild víxla minnkað verulega og var hún á síðasta ári aðeins um 28% heild- arútlána á móti tæplega 90% aðeins 5 árum áður, eða 1976. Innistæða Sparisjóðs vélstjóra hjá Seðlabanka íslands nam í árslok 1.221,8% milljónum króna og hafði hún hækkað frá fyrra ári um 79,2%. Lausafjárstaða á viðskiptareikningi sparisjóðsins var traust á árinu. Rekstrarafkoma sparisjóðsins var mjög góð og nam hagnaður til ráðstöfunar samkvæmt rekstrar- reikningi 198,6 milljónum króna. Alls nam eigið fé sparisjóðsins í árslok 531,2 millj. kr. og hafði aukist frá fyrra ári um 52,8%. Stjórn Sparisjóðs vélstjóra var endurkjörin, en hana skipa Jón Júlíusson, formaður, Jón Hjalte- sted og þriðji stjórnarmaðurinn, sem kjörinn er af borgarstjórn Reykjavíkur, Emanúel Morthens. (Fréttatilkynnlng.) Ow- 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.