Morgunblaðið - 04.04.1981, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 04.04.1981, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1981 3 Stúdentaráð HÍ: Viðræður Umbóta- sinnaðra og vinstri manna í strand Umbótasinnar heíja viðræður við fulltrúa Vöku í dag VIÐRÆÐUR Umbótasinnaðra stúdenta við Háskóla íslands og Félags vinstri manna um hugsanlegt meirihlutasamstarf i stúdentaráði hafa nú siglt í strand. Umbótasinnaðir og fulltrúar Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, munu hefja samningaviðræður i dag. Stefán Matthiasson, formaður Félags umbótasinnaðra stúdenta, sagði í viðtali við Mbl. í gær, að fulltrúar vinstri manna hefðu ekki verið tilbúnir að slaka i nokkru frá eigin málum og hefðu þeir ekki viljað neinar breytingar á núverandi starfsháttum og myndu því viðræður hefjast með viðræðunefnd Vöku i dag. Félag umbótasinnaðra stúdenta sendi frá sér í gær svohljóðandi yfirlýsingu: „Fundur viðræðu- nefndar Umbótasinnaðra stúd- enta haldinn í Árnagarði kl. 15, 3. apríl 1981 samþykkir eftirfarandi: „Viðræðunefnd umbótasinnaðra stúdenta hefur haldið marga fundi með fulltrúum Félags vinstri manna um hugsanlegt meiri- hlutasamstarf í stúdentaráði, þar sem sjónarmið Umbótasinnaðra stúdenta hafa verið skýrð í öllum helstu málaflokkum. I gær og í dag hefur viðræðunefndin fundað með þeirri nefnd Félags vinstri manna sem veitt var „umboð til umræðna um gerð málefna- samnings" á fundi í félaginu 31. marz sl. Á fundi í dag hefur þessi viðræðunefnd Félags vinstri manna hafnað málamiðlunartil- lögu viðræðunefndar Umbótasinn- aöra stúdenta um Stúdentablaðið og lýst því yfir að hún sé ekki tilbúin til neinna verulegra frá- vika frá stefnu Félags vinstri manna í öllum helstu málaflokk- um. Umbótasinnaðir stúdentar geta ekki fallist á óbreytt ástand í málefnum stúdenta. í ljósi ofan- greinds telur viðræðunefnd Umbótasinnaðra stúdenta ekki réttlætanlegt að halda áfram við- ræðum við viðræðunefnd Félags vinstri manna á þeim grundvelli sem viðræðurnar hafa verið." Sjómannasamningar víðast afgreiddir BÚIST er við að farmenn gangi endanlega frá samningum sinum um helgina, en atkvæðagreiðslur hafa farið fram. Sjómannasamn- ingarnir voru felldir i Grindavik, eins og skýrt hefur verið frá, en annars staðar hafa þeir verið samþykktir. Um helgina verður væntanlega haldinn fundur i Grindavik um næsta skref i kjaramálunum. Á Snæfellsnesi hafa sjómenn og útgerðarmenn undanfarið rætt um ýmis mál, sem eru utan við rammasamninginn og er nú aðeins eftir að skrifa undir samkomulag og bera samningana undir at- kvæði. í Vestmannaeyjum var óskað eftir viðræðum við útgerð- arbændur vegna frávika í sam- bandi við helgarfrí á trollbátum. Á Austfjörðum hefur verið leitað eftir sameiginlegri atkvæða- greiðslu. Vertíðarflotinn: Þorskveiðibannið stytt um þrjá daga ÁKVEÐIÐ var í gær, að stytta þorskveiðibann bátaflotans um þrjá daga og hefst það 14. april, en ekki 11. april, eins og áður hafði verið ákveðið. t frétt frá sjávarútvegsráðuneytinu segir, að gæftir hafi verið óvenjulega slæmar um allt land á yfirstand- andi vetrarvertið og aflabrögð bátaflotans hafi i síðasta mánuði verið mun lakari en i fyrra. í frétt ráðuneytisins segir: „Samkvæmt því verða öllum skipum, öðrum en skuttogurum og togskipum sem eru 39 metrar og lengri, bannaðar þorskveiðar frá kl. 18.00 þriðjudaginn 14. apríl til kl. 12.00 á hádegi þriðjudaginn 21. apríl. Það að þorskveiðar eru bannaðar þýðir að hlutfall þorsks í afla í hverri veiðiferð má ekki nema meiru en 15%, og auk þess er bannað að hafá þorskfisknet í sjó á ofangreindu tímabili. Af sömu ástæðum og lágu til þess að páskastoppið hefur þannig verið stytt um þrjá daga, hefur einnig verið ákveðið að falla frá þeim ákvæðum leyfisbréfa til netaveiða, að í samningsbundnum leyfum sjómanna og á skipum sem ekki landa daglega, beri að fækka netum um 20%. Arnarflug með tvær vél ar í millilandafluginu „ÞESS misskilnings hefur nokkuð gætt í umræðunni undanfarna daga um hugsanlegt verkfall Flugleiða- flugmanna innan FlA, að Island verði nær sambandslaust við Evr- ópu,“ sagði Magnús Gunnarsson, framkva’mdastjóri Arnarflugs, i samtali við Mbl. „Við munum eftir sem áður sinna öllum okkar verkefnum, þ.e. innan- landsfluginu og því leiguflugi, sem við höfum þegar samið um eins og sólarlandafluginu, sem hefst um miðjan mánuðinn," sagði Magnús ennfremur. Magnús sagði, að Boeing 720-þota félagsins kæmi úr reglubundinni skoðun einhvern næstu daga og myndi hún fara í sólarlandaflugið. Auk þess verður félagið með á lausum kili Boeing 707-vélina, sem var í leigu í Sviss. „Við getum því auðveldlega sinnt ýmsum leiguverk- efnum, ef til okkar verður leifað og fólk aétti því ekki að þurfa að óttast að landið verði sambandslaust við útlönd," sagöi Magnús Gunnarsson að síðustu. V' : ■■ : W - . - >■„ -K *: S s-r%i Snorri Snorrason, flugmaður og ljósmyndari var á ferð í Olafsfjarðarmúlanum rétt áður en slysið gerðist og smellti þá af þessari mynd af fólkinu. ÓHAPP „ÉG GERI mér varla grein fyrir því sem gerð- ist. Þó virtist sem stýri vélarinnar hefði fest og mér tókst með einhverju móti að koma mér út úr vélinni," sagði Gylfi Ragnarsson m.a. í samtali við Mbl. sem birtist í gær, en hann varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu, að snjóruðningstæki, sem hann stjórnaði flaug fram af veginum við Ólafsfjarð- armúla í sjó fram í fyrra- dag. Gylfi sagði ennfrem- ur í viðtalinu, að það hefði verið honum til happs, að mun auðveldara var að komast út úr tækinu þeim megin, sem hann fór. Gylfi Ragnarsson. Á þessari mynd má sjá hvaða leið tækið hefur farið, en greina má veginn efst fyrir miðri mynd og tækið Í f jöruborðinu. Ljósmynd Mbl. Svavar Mavrnússun. Gylfi við leifar tækisins í f jöruborðinu. Ljósmynd Mhl. Svavar Ma^nússon.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.