Morgunblaðið - 04.04.1981, Page 21
I
HVAÐ ER AÐ GERAST UM HELGINA?
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1981
21
Gunnlaugur Stefán
Gíslason
Girikur Arni Inirveldur Hjaltested
Sigtryggsson
Hafnfirsk menningarvaka
í dag hefst í Hafnarfirði
menningarvika með fjölbreyttri
dagskrá.
Kl. 14.00 opnar Eirikur Árni
Sigtryggsson málverkasýningu
að Reykjavikurvegi 66. Á sýn-
ingunni eru 68 myndir, 58
oliumálverk og 10 vatnslita-
myndir. Eirikur Árni hefur
undanfarin ár dvalist i Sviþjóð
og helgað sig myndlistinni.
Hann hélt siðast einkasýningu i
Hafnarfirði 1978. Allar mynd-
irnar á sýningunni eru til sölu.
Kl. 16.00 opnar síðan Gunn-
laugur Stefán Gíslason sýningu
á vatnslitamyndum í húsi
Bjarna riddara Sívertsen á horni
Reykjavíkurvegar og Vestur-
götu. Gunnlaug Stefán þarf vart
að kynna, svo mikla athygli hafa
sýningar hans vakið á undan-
förnum árum, en hann hélt
síðast einkasýningu í FÍM-
salnum á liðnu hausti. í húsi
Bjarna riddara sýnir hann 15
vatnslitamyndir sem flestar eru
í einkaeign og hafa ekki verið
sýndar opinberlega áður. Að-
gangur að þessari sýningu er
ókeypis og skal vakin athygli á
því að félagið Byggðavernd mun
sjá um kaffisölu í húsi Bjarna
riddara á kvöldin og um helgar
meðan Menningarvakan stendur
yfir.
Kl. 17.00 hefjast einsöngs-
tónleikar í Baejarbíói. Fram
koma söngvararnir Inga Maria
Eyjólfsdóttir, undirleikari Ólaf-
ur Vignir Albertsson, Ingveidur
Hjaltested, undirleikari Jónína
Gísladóttir, og Sigurður
Björnsson. undirleikari Agnes
Löve. Á efnisskrá tónleikanna er
21 lag eftir íslensk, finnsk,
sænsk, norsk, ensk og þýsk
tónskáld.
Inga María
Eyjólfsdóttir
ólafur Vignir
Albertsson
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ:
La bohéme og Sölumaðurinn
óperan La Bohemé eftir Pucc-
ini var frumsýnd í bjóðleikhús-
inu i gærkvöldi fyrir fullu húsi
og var forkunnarvel tekið. önnur
sýning er annað kvöld og er
þegar uppselt á hana.
Aðalhlutverkin syngja Ólöf Kol-
brún Harðardóttir, Garðar Cortes,
Ingveldur Hjaltested, Halldór Vil-
helmsson, John Speight og Eiður
Gunnarsson. Auk þeirra syngja
einnig Kristinn Hailsson og Guð-
mundur Jónsson hlutverk í óper-
unni, en þeir voru báðir í eldlíú-
unni fyrir réttum 30 árum er
fyrsta óperan var sviðsett hér á
landi og var það Rigoletto í
Þjóðleikhúsinu. Sinfóníuhljóm-
sveit íslands leikur undir stjórn
Jean Pierre Jacquillat og enn-
fremur kemur Þjóðleikhúskórinn
fram í sýningunni.
Leikstjóri er Sveinn Einarsson,
Þuríður Pálsdóttir er aðstoðar-
leikstjóri, leikmyndin er eftir
Steinþór Sigurðsson og lýsinguna
annaðist Ingvar Björnsson.
„Soluniaóur deyr“ í kvöld
Ekkert lát á aðsókninni
I kvöld verður sýning á „Sölu-
manninum“ og er uppselt á hana
eins og flestar fyrri sýningar.
Gunnar Eyjólfsson og Margrét
Guðmundsdóttir leika Loman-
hjónin sem eiga svo erfitt með að
sætta sig við að lífsdraumur
þeirra er brostinn. Syni þeirra
leika Hákon Waage og Andri Örn
Clausen. Róbert Arnfinnsson leik-
ur velgengnismanninn Ben
frænda, Árni Tryggvason og
Randver Þorláksson leika feðga
sem búa í næsta húsi við Loman-
hjónin og Bryndís Pétursdóttir
leikur konu sem Willy Loman á
vingott við á söluferðum sínum.
Næsta sýning á Sölumaður deyr
verður nk. þriðjudag, 7. apríl.
Fáar sýningar eftir
á „Oliver Twist“
Nú fer hver að verða síðastur að
sjá sýningu Þjóðleikhússins á
Oliver Twist. í sýningunni eru
ljóslifandi komnir allir þeir
skúrkar og öll þau góðmenni sem
verða á vegi Olivers litla sveitar-
lims og sem Dickens lýsir svo
meistaralega í bók sinni.
KÓPAVOGSLEIKIIÍJSIÐ:
Úr Galdralandi: Þórir Steingrimsson, Aðalsteinn Bergdal og Randver
Þorláksson.
Þorlákur
áttræður og
Galdraland“
í kvöld og annað kvöld verður
Þorlákur þreytti á sviðinu hjá
Leikfélagi Kópavogs í 80. sinn.
en nú fer sýningum að fækka á
þessum sivinsæla gamanleik.
Sýningin hefst kl. 20.30 bæði
kvöldin.
í dag kl. 15 verður Garðaleik-
húsið þar með „Galdraland" eftir
Baldur Georgs. Búið er að sýna
leikritið í Hafnarfirði, Hlégarði, á
Selfossi, Akranesi og í Keflavík,
en þar var það sýnt tvisvar fyrir
fullu húsi. Einnig hafa síðustu
sýningar í Kópavogsleikhúsinu
verið fyrir fullu húsi og er mein-
ingin að halda áfram sýningum
þar um sinn.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR:
Síð^sta sýning
á „Otemjunni“
1 kvöld er siðasta sýning á
ærslaleik Shakcspeares ótcmj-
unni, sem leikin hefur verið fyrir
fullu húsi frá áramótum. Vegna
þess hve aðstaðan er bágborin i
húsnæðismálum Leikfélagsins og
margar sýningar á verkefna-
skránni um þcssar mundir. er
ógerlegt að hafa fleiri sýningar á
leiknum. Á meðfylgjandi mynd
sést Petrútsfó segja þjónum sín-
um til syndanna, en Katrin reyn-
ir af veikum mætti að aftra
honum; Lilja Guðrún Þorvalds-
dóttir i hlutverki Katrinar og
Þorsteinn Gunnarsson i hlut-
verki Petrútsíós. Eggert bor-
leifsson i hlutverki þjóns. Aðrir á
myndinni: Jón Hjartarson og
Sigriður Ilagalin.
Uppselt á revíuna
viku fram í tímann
Hin nýja revía Leikfélags
Reykjavíkur Skornir skammtar
eftir þá Jón Hjartarson og Þórar-
in Eldjárn var frumsýnd um
síðustu helgi, og seldust þá fyrstu
fjórar sýningarnar upp samdæg-
urs. Af viðtökum leikhúsgesta er
þegar ljóst, að gamansöm ádeila
með skemmtilegum söngvum og
hittnum tilvitnunum í liðandi
stund er enn sem fyrr kærkomið
skemmtiefni.
Fáar sýninRar eft-
ir á Ofvitanum
Annað kvöld er 151. sýning á
Ofvitanum eftir Þórberg Þórðar-
son og Kjartan Ragnarsson, en
ekkert lát virðist enn vera á
aðsókn að þessari óvenjulegu
leiksýningu, sem kunnugir hafa
gefið þá umsögn, að sé einn
merkasti viðburður í íslenskri
leiklist hin síðari ár. Leikritið var
frumsýnt í október 1979 og hefur
jafnan verið leikið fyrir fullu húsi
í Iðnó, en senn fer sýningum að
fækka.
FJALAKÖTTURINN:
Atta myndir eftir
á þessu starfsári
Nú um hclgina sýnir Fjalakött-
urinn myndina „bað er leitt að
hún er hóra“, sem gerð er eftir
sögu John Ford. Leikstjóri Gius-
eppe Patroni Griffi.
Myndin er itölsk, árgerð 1971
og aðallcikarar eru Charlotte
Rampling og Oliver Tobias.
Myndin fjallar um Giovanni sem
er ástfanginn af sinni yndislegu
systur, Annabellu. Annabella er
gift valdamiklum aðalsmanni og
er hjónabandið misheppnað. Seg-
ir myndin frá ástar- og kvnlífs-
sambandi þeirra systkina.
Átta myndir eru eftir á þessu
starfsári Fjalakattarins, auk
aukasýninga.
Af þeim myndum sem eftir á að
sýna má nefna „Viturt blóð“,
leikstjóri John Huston; „Hiros-
hima ástin mín“, leikstjóri Alain
Resnais; og „Eitthvað annað",
leikstjóri Vera Chytilova.
Um helgina lýkur sýningu hollenska myndlistarmannsins Frank van
Mens í Djúpinu. en þar sýnir hann tcikningar. Myndin er af einu
verkanna á sýningunni. (Ljósm ól.K.M ).