Morgunblaðið - 04.04.1981, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 04.04.1981, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1981 45 lífsgæðakapphlaupið vil ég segja, að kröfurnar nú til dags eru í sjálfu sér ekkert meiri heldur en þær voru fyrir 20—30 árum. Pólk hefur alltaf viljað eiga þak yfir höfuðið og geta búið sjálfu sér og börnum sínum gott heimili. En nú orðið er það erfiðleikum bundið að eignast nokkurn hlut án þess að sökkva sér í skuldir og þar af leiðandi neyðist fólk til að vinna mikið til að skuldirnar sligi það ekki og lætur þá frekar heimilið sitja á hakanum. Gæti farið svo að ég neyddist til þess Mér finnst nú Katrín nokkuð ofstopafull þegar hún heldur því fram, að útivinnandi mæður hafi mikið á samviskunni. Það er ekki hægt að tala um samvisku í þessu tilfelli. Efnalítið fólk á þarna enga valkosti. Mæður reyna auðvitað að vera.heima hjá börnum sínum svo lengi sem þeim er það auðið, en það þýðir ekkert við þær að sakast þó að þær að lokum neyðist til að færa sér dagvistarstofnanir í nyt. Að lokum: Ég er heimavinnandi húsmóðir og er allan daginn heima hjá 7 mánaða gamalli dóttur minni og nenni því alveg. Ég gæti ekki hugsað mér að láta hana í pössun, en það gæti samt farið svo, að ég neyddist til þess. Virðingarfyllst." Jökulsáraurar var það Jón Á. Gissurarson skrifar: „Nýlega strandaði mótorbátur úr Vestmannaeyjum á mörkum Skaftafells- og Rangárvallasýslu. Mikillar ónákvæmni gætti í frásögn blaða um strandstað, minnst á Dyrhólaey, Sólheimasand og Skóg- asand. Hið rétta er, bátinn rak upp á Jökulsáraurum. Sólheimasandur nær vestur að Jökulsá á Sólheimasandi, vestan hennar er Skógasandur en nær þó ekki að henni, því að dæld — Jökulsáraurar — skilur þá að. Jökulsá er heldur ekki sýslumörk nema þá miðsvæðis. Vestan ár er Sýslulækur mörk ofan til. Hann féll í ána neðan brúarstæðis en var veitt í hana ofan þess. Enginn gekk þess dulinn að brúin væri í Skafta- fellssýslu. Sýslulækur er trúlega forn farvegur Jökulsár en hún hafi færst úr stað vegna breytinga uppi við jökul. Hafa látið sér lynda Jökulsá sem landamerki Jökulsá fylgir áráttu margra fljóta, þokast í austurátt. Sjá má merki þess að hún nagi hægt og bítandi úr öldum Sólheimasands, gróf sér eitt sinn meira að segja farveg við austurbrúarsporð gömlu heillin brúarinnar. Svo hægfara hafa þess- ar breytingar verið að Sólheim- ingar hafa látið sér lynda Jökulsá sem landamerki, enda um lítil nytjalönd að ræða nema fjöruna. Fjörumörk eru líka vestan ár, örlítill stubbur Sólheimafjöru vest- an óss allt að Sýslusteini. (Fyrir allmörgum árum höfðu Sólheim- ingar uppi tilburði að helga sér hagbeit á Austastahálsi milli Sýslulækjar og Jökulsár.) Óyggjandi staðreynd Vestan Jökulsáróss teygist stór- grýtisurð í sjó fram. Um fjöru koma klettar í ljós, á öðrum brýtur. Austan eyrar þessarar er hið róm- aða Maríuhlið, sem Eyjólfur Guð- mundsson frá Hvoli hefur gert ágæt skil í ritum sínum. Yfir eyri þessa hefur bátinn borið. Grjóturð þessi er sú eina í sjó fram á strandlengjunni allri frá Flóahrauni austur að Dyrhólaey. Hún er óyggjandi staðreynd þótt ekki sé merkt á sjókortum. Sjófar- endur skyldu forðast hana. Hún er lúmsk og allt sem flýtur sogast að henni með vesturfalli. Það vita þeir sem róið hafa í Maríuhliði. Á öðrum tug þessarar aldar fórst breskur togari þarna alllangt frá landi. Engri björgun varð við komið." Bubbi og Utangarðsmenn Pönkari í heimsókn! Bubbaaðdáandi skrifar: „Kæri Velvakandi. Mig langar til að koma því á framfæri, að mér finnst kynn- ingarnar hjá Sjónvarpinu stundum svolítið villandi, sér- staklega þegar um er að ræða efni fyrir ungt fólk. Um daginn var t.d. sagt að pönkari kæmi í heimsókn í þáttinn Þjóðlíf. Þessi pönkari var víst Bubbi Morthens, og hann flutti rólegt og hugljúft lag sem á ekki frekar skylt við pönk en Trad Kompaníið. Fáir íslendingar hafa gaman af pönki, en flestir íslenskir unglingar eru vitlaus- ir í Bubba. Af hverju var ekki hægt að segja eins og var — að Bubbi kæmi fram í þessum þætti? Það var heldur ekki sagt frá því að Clash kæmi fram í Kampútseuþættinum. Samt er Clash besta og þar að auki ein af vinsælustu nýbylgjuhljóm- sveitum í heimi. T.d. kom hún hingað til lands á síðustu lista- hátíð og fyllti Laugardalshöll- ina. Að vísu söng Bubbi þá með þeim.“ IlingaÖ og ekki lengra Leó Ágústsson skrifar: „Velvakandi. Hin fyrirhugaða skerðing á dagskrá útvarps og sjónvarps er meiriháttar hneykslismál og slík afhjúpun á eðli opinbers rekstrar að allir hljóta að sjá. Það sem er að ske er að opinber stofnun hefur í skjóli einokunar belgt sig svo út af mannafla og kerfiskostnaði að hún hefur ekki lengur efni á að gera það sem er hennar eina hlutverk. Gegn vilja a.m.k. 90% þjóðarinnar Af hverju loka mennirnir bara ekki alveg og hreiðra um sig á fínu kaffistofunni, það væri þá kannski von til að þessar rúmu 100 þúsund gkr. sem hvert heimili á landinu borgar á ári dygðu til að halda þeim volgum. Ég hef ekki vit á því, en ég heyri það sagt að einn maður með myndsegulband gæti í gegnum kabalkerfi haldið uppi bæði lengri og betri dagskrá heldur en við höfum í dag (og ekki er útvarpsútsending flókið mál). Þó þetta sé kannski brandari, þá sýnir hann okkur hvert fúafen þessi opinberi rekstur á útvarpi- sjónvarpi er orðinn. Ætli starfs- mannafjöldinn telji ekki hundruð ef allt er talið með? Svo er það annar handleggur, og hann ekki stuttur, hvernig tónlist- arklíkan á útvarpinu treður ofan í okkur klassískri tónlist í kíló- metra tali þvert gegn vilja a.m.k. 90% þjóðarinnar (það eru víst 15 manns í því að setja þessa eilífðar- sinfóníu á fóninn). Nei, því segi ég það, hingað og ekki lengra." Orðsending til félagsmanna Mjólkurfélags Reykjavíkur Aðalfundir félagsdeilda M.R. fyrir árið 1980 veröa haldnir sem hér segir: Innri-Akraneshrepps-, Skilmannahrepps-, Hvalfjarð- arstrandarhrepps-, Leirár og Melasveitardeildir Mánudaginn 6. apríl kl. 14.00 í félagsheimilinu Fannahlíð, Skilmannahreppi. Kjósardeild Þriðjudaginn 7. apríl kl. 14.00 í félagsheimilinu Félagsgarði. Bessastaöa-, Garða- og Hafnarfjaröardeildir Miðvikudaginn 8. apríl kl. 14.00 í samkomuhúsinu Garðaholti. Vatnsleysustrandar-, Geröa- og Miönesdeildir Fimmtudaginn 9. apríl kl. 14.00 að Neðri-Brunna- stöðum Vatnsleysuströnd. Mosfellssveitardeild Mánudaginn 13. apríl kl. 14.00 í félagsheimilinu Hlégaröi. Kjalarnesdeild Þriöjudaginn 14. apríl kl. 14.00 í félagsheimilinu Fólkvangi. Reykjavíkurdeild Miövikudaginn 15. apríl kl. 20.30 í skrifstofu M.R. Laugavegi 164. Aöalfundur félagsráðs veröur haldinn föstudaginn 1. maí kl. 12.00 að Hótel Sögu. Stjórn Mjólkurfélags Reykjavíkur. Kynningarverö á furubaöinn- réttingum í stuttan tíma. Mkalmar innréttingar hf. SKEIFUNNI 8. SÍMI 82011

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.