Morgunblaðið - 25.04.1981, Qupperneq 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
91. tbl. 69. árg.
LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Biggs er
kominn til
Brazilíu
Rio do Janciro. 24. april. — AP.
BREZKI lestarræninKÍnn Ronald
Bíkks kom i daií til Brazilíu á ný,
40 döKum eítir að honum var
rænt ok hann fluttur til Barba-
dos. þar sem hann átti yfir höfði
sér að verða framseldur til Bret-
lands. Hæstiréttur Barbados
ákvað i Kær. að Bíkks skyldi
látinn laus ok flauK hann þá
þeKar aftur til Brazilíu.
Á fluKvellinum í Rio de Janeiro
tók sex ára gamall sonur Biggs
fagnandi á móti honum. Biggs
sagði við komuna til Brazilíu að
hann vonaðist til þess, að þeir sem
rændu honum yrðu framseldir til
Brazilíu og dæmdir þar fyrir
verknaðinn. John Miller, forstjóri
brezks öryggisgæzlufyrirtækis,
sem fékk greitt fyrir að ræna
Biggs á dögunum, sagði í dag, að
hann samgleddist Biggs innilega.
„Þetta mál var aldrei persónulegt
okkar í milli, við gerðum aðeins
það, sem við fengum greitt fyrir,“
sagði Miller í viðtali við brezka
blaðið Sun.
Lestarræninginn Ronaid Biggs
setur Mike son sinn, sem er 6 ára,
á háhest á flugvellinum i Rio de
Janeiro við komuna þangað i gær.
(Símamynd AP).
Fellur sænska
ríkisstjórnin?
Stokkhólmi. 24. april, frá Gudfinnu
RaKnarsdóttur. fréttaritara Mbl.
FELLUR sænska stjórnin á lof-
orðum sinum um að lækka skatt-
ana? Þetta er spurning, sem
margir spyrja sig í dag eftir
viðræður stjórnarinnar og jafnað-
armanna um skattamál.
Það var i febrúar, sem stjórnin
lofaði að lækka skatta á síðustu
þénuðu krónunni fyrir alla laun-
þega, svo jaðarskattar yrðu ekki
hærri en 50%. Undanfarnar vikur
hefur stjórnin setið að samning-
um með jafnaðarmönnum og nú
virðast miðflokkurinn, þjóðar-
flokkurinn og jafnaðarmenn
nokkuð á sama máli, en hægri
fiokkurinn tekur algera afstöðu
gegn þeim tillögum, sem fyrir
lÍKKja.
Tillögurnar fela í sér, að aðal-
skattalækkanirnar verða ári seinna
en upphaflega hafði verið lofað og
koma til framkvæmda 1984 og 1985
en eingöngu verður um minni
háttar lækkun að ræða 1983.
Skattatillagan í núverandi mynd
er í stórum dráttum lík upphaflegri
tillögu jafnaðarmanna, og er þar
m.a. gert ráð fyrir minnkuðum
frádráttarmöguleikum.
Gösta Bohman, efnahagsmála-
ráðherra, leiðtogi hægri manna,
sagði í dag, að skattatillagan hefði
marga galla, sem flokkurinn gæti
ekki sætt sig við og bæri þar hæst
frádráttarreglurnar. Einnig væru
það svik við kjósendur að seinka
lækkununum.
Palme, leiðtogi jafnaðarmanna,
lýsti í dag ánægju sinni yfir því,
hve mikið tillit stjórnin hefði tekið
til tillagna jafnaðarmanna. Stjórn-
arflokkarnir munu taka endanlega
afstöðu til skattamálsins á þing-
flokksfundum á þriðjudag, en ekki
er talið líklegt að hægri flokkurinn
hviki frá afstöðu sinni.
Fálldin forsætisráðherra hefur
lagt mikið upp úr því að ná
samstöðu á þingi um þetta mál, en
hvort hann er reiðubúinn að fórna
ríkisstjórninni fyrir stuðning
stjórnarandstöðunnar er óvíst.
Dragi hægri flokkurinn sig úr
stjórninni fellur hún og boða verð-
ur til nýrra kosninga.
Suslov komínn til Moskvu
eftir skyndif und í V ars já
Varsjá. 24. apríl. — AP.
SOVEZK sendinefnd undir íor-
ystu Mikhail Suslovs, helzta hug-
myndafræðings sovézka komm-
únistaflokksins, hélt i dag heim
frá Varsjá, eftir að hafa átt
viðræður við pólska ráðamenn.
Ekkert var látið uppi af opin-
berri hálfu um umræðuefni Susl-
ovs og Pólverja, en fundur verður
i miðstjórn pólska kommúnista-
flokksins nk. miðvikudag og er
þá búizt við að linurnar skýrist.
Málgagn pólsku stjórnarinnar,
Trybuna Ludu, sagði í dag í fyrsta
sinn, að viss „öfgaöfl" væru
áhrifamikil innan Samstöðu,
hinnar frjálsu verkalýðshreyf-
ingar í landinu. I fréttablaði
Samstöðu sagði í dag að aukinn
ágreiningur væri innan samtak-
Mikhail Suslov
anna, en þar eru stjórnvöld jafn-
framt vöruð við því að reyna að
færa sér hann í nyt.
Nýjar viðræður Samstöðu og
ríkisstjórnarinnar um ýmis laga-
leg atriði er varða m.a. aðgang
Samstöðu að fjölmiðlum munu
fara fram í næstu viku.
Vestrænir fréttaskýrendur
benda á að í frásögnum PAP,
hinnar opinberu fréttastofu Pól-
lands, af viðræðum Suslovs og
pólskra ráðamanna í gær hafi
hvergi verið gefið til kynna að
horfið yrði frá þeim umbótum,
sem Samstaða hefur haft for-
göngu um. I fréttum PAP kom
fram að Suslov hafi lýst ánægju
með viðleitni Pólverja til að hafa
hemil á ástandinu, en bent er á að
Bolfast, London. 24. april. AP.
Öfgasinnaðir mótmæl-
endur á Norður-írlandi
sögðu í dag að til borgara-
stríðs gæti komið þar,
gripu kaþólskir menn til
ofheldis ef Bobby Sands,
einn leiðtoKa írska lýð-
veldishersins (IRA), létist
af völdum hungurverk-
fallsins. sem hann hefur
verið í undanfarna 55
daga.
Talsmaður mótmælendanna
sagði að rúmlega 50 þúsund vopn-
um búnir menn myndu taka til
sinna ráða gegn írska lýðveldis-
hernum gripu þeir til ofbeldis
vegna Sands. IRA-menn hafa hót-
að öllu illu látist Sands.
Tveir fulltrúar í mannréttinda-
nefnd Evrópuráðsins, Dani og
Norðmaður, komu í dag til London
að ósk ættingja Sands til að kynna
sér mál Sands. Búizt er við að þeir
haldi síðan til Belfast, kanni
aðstæður í fangelsinu þar_ sem
Sands er í haldi, og ræði við hann.
hann hafi ekki sagst vera viss um
að þeir réðu við það.
PAP-fréttastofan greindi frá
því í dag, að um 216 þúsund
félagar í pólska kommúnista-
flokknum, eða 7% félaga, hefðu
sagt sig úr honum eða verið reknir
á undanförnum sex mánuðum.
Engar skýringar voru gefnar á
þessu.
Blóðugu borgar^stríði
hótað á Norður-írlandi
Atlantamorðin:
Lögreglan
leitar ungs
blökkumanns
Atlanta. 24. april. AP.
LÖGREGLAN í Atlanta leit-
ar nú að 21 árs gömlutn
blökkumanni. Jimmy Payne
að nafni. sem hugsanlega er
talinn tengjast barnamorð-
unum tiðu þar i borg.
Mannsins er leitað á
grundvelli framburðar konu
einnar, sem telur sig hafa séð
til Payne í nágrenni sex þeirra
staða, þar sem lík hinna
myrtu fundust.
Að sögn lögreglunnar er
vitni þetta ekki „mjög trú-
verðugt", en mannsins er engu
að síður leitað og aðrar ráð-
stafanir hafa verið gerðar til
að sannreyna framburð kon-
unnar.
Iieagan aflóttir
kornsölubanni
WashinKton. 24. apríl. AP.
REAGAN Bandaríkjaforseti
ákvað í dag að aflétta kornsölu-
banni af Sovétríkjunum. en það
var sett á af fyrirrennara hans
eftir innrás Sovétríkjanna í Afg-
anistan fyrir 16 mánuðum. í
yfirlýsingu Reagans vegna máls-
ins sagði, að kornsölubannið
hefði lagt ósanngjarnar byrðar á
herðar bandariskra bænda. Hann
varaði Sovétmenn við þvi að
misskilja ákvörðun sina, Banda-
ríkin fordæmdu innrásina i Afg-
anistan jafn harðlega og fyrr og
myndu staðfastlega mæta ásælni
Sovétmanna um allan heim.
Ekki er búizt við að Sovétmenn
muni festa kaup á bandarísku
korni þegar í stað, þótt banninu
hafi verið aflétt. Sovézka frétta-
stofan Tass sagði í dag, að korn-
sölubannið hefði engin áhrif haft í
Sovétríkjunum, en hins vegar al-
varlega skaðað bandaríska hags-
muni. Bannið hefði einnig sýnt, að
Bandaríkin væru óáreiðanleg í
viðskiptum.