Morgunblaðið - 25.04.1981, Side 17

Morgunblaðið - 25.04.1981, Side 17
orðið „fundamentalismi"): annað leggur trú til grundvallar, hitt leggur vísindi til grundvallar. Ef trúin er skoðuð sem grunnur- inn, þá eru vísindin oft talið góð og gild svo lengi sem þau hrófla ekki við trúnni, reyna ekki að leysa hana af hólmi eða koma í hennar stað. Ef vísindin eru skoðuð sem grunnurinn, þá er litið á trúna sem vanþróuð vísindi eða sem viðleitni til að gera sér ljós fyrirbæri sem vísindin hafa ekki enn megnað að ná tökum á eftir öruggum leiðum. Dr. Björn Björnsson, prófessor í guðfræði, fjallaði um Trú og stjórnmál og hafði m.a. þetta að segja: Ég hefi áður hreyft þeirri hug- mynd, að fyrsta skrefið gæti verið að efna til umræðna um þjóðmál innan safnaða kirkjunnar. Þar væru hinir ýmsu þættir þessara mála, efnahagsmál, húsnæðismál, félagsmál, uppeldis- og skólamál, ræddir í ljósi kristilegrar lífsskoð- unar. Á grundvelli slíkrar um- ræðu innan safnaðanna gæti risið þjóðmálahreyfing kirkjunnar. Hreyfing kirkjunnar manna, óbundin flokkspólitískum viðmið- unum, sem skipar í öndvegi manngildishugsjón kristinnar trú- ar. Á þessum vettvangi má kirkj- an gjarnan koma fram sem þrýsti- hópur, sem þrýstir á hið pólitiska valdakerfi í nafni mannúðar og umhyggju fyrir náunganum. Þór Magnús- son, þjóðminja- vörður flutti er- indi um Kirkju- list fyrri alda og sagði í upp- hafi síns erind- is: Það, sem varðveitt er af kirkju- list fyrri alda á íslandi, er sumt af innlendum toga spunnið, en hitt er þó miklu meira, sem erlent er, eins og vænta má. Tengsl kirkjunnar við útlönd voru afarmikil á mið- öldum, kirkjan er alþjóðleg stofn- un og því lætur að líkum, að gripir hennar hafi verið steyptir meira eða minna í sama mót. Þeir voru við það miðaðir að notast við helgihald kirkjunnar, sem var fastákveðið og lítt breytilegt frá einu landi til annars. Dr. Guðmundur Magnússon, háskólarektor, flutti erindi um Trú og markaðsskipulag og sagði þá m.a. Eftirtektarvert er að bæði í MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1981 17 ríkjum sem kennd eru við frjáls- hyggju og skipulagshyggju mynda trúfélög mótvægi á ýmsum sviðum gegn skaðlegum áhrifum aukinna ríkisafskipta. Þannig eru það helst trúfélög sem reka einkaskóla á Vesturlöndum eftir að menntun varð að samneyslu. Á ég þá aðallega við grunnskóla- og fram- haldsskólastig. Er það áreiðanlega til að örva heilbrigða samkeppni á þessu sviði. I Póllandi hefur kirkj- an orðið það afl sem helst getur fengið einhverju áorkað til að auka frelsi einstaklinga og sam- taka. í félagsmálapakka þar í landi var samið um messur á sunnudögum og mér er sagt að Pólverjar hafi sent Bresjnef kirkjutónlist í afmælisgjöf. ÖÁrni Berg- mann, ritstjóri, fjallaði um Trú og sósíalisma og sagði i lok erindis sins: Kristni og sósíalismi eru veiga- mikill þáttur þeirra vona sem mannkynið á kost á. Báðar þessar vonir hafa verið misnotaðar herfi- lega af valdhöfum. Og þeir sem telja sig kristna og/eða sósíalista hafa sjálfir brugðist þessum von- um sem þeir kölluðu sínar: þeir hafa afneitað þeim í verki, með sljóleika, með kröfuleysi til sjálfra sín, með því að gera sér trú og hugsjón að ókeypis aðgöngumiða að auðveldum lausnum. Og á meðan er beðið eftir því að haninn gali í þriðja sinn. Okkar tími kann mörg ráð til að láta öll ljós slokkna, og því fara þeir með þarft mál sem beita sér fyrir því að þessar vonir tvær njóti nokkurrar birtu hvor af annarri. Jón Sigurðsson, ritstjóri nefndi erindi sitt, Kristni og is- lensk þj()ð- menning og sagði m.a. Kristnir menn verða sjálfir að axla ábyrgðina á því að margir telja að kristni sé aðeins falin í hefðbundinni prestþjónustu og eigi ekki að vera til óþæginda um fram það. Það er einnig sök kristinna manna að margir álíta að þeir telji sig „betri og vand- aðri“ en aðra, eða að um kristni verði aðeins fjallað með geistlegu orðfæri. Að sama skapi er það þeirra sök að margir álíta að menningarmál, skáldskapur, bók- menntafræði, söguskoðun og þjóð- menning sé kristninni óviðkom- andi og á annarra færi. Hér hefur því verið haldið fram að í þessu ástandi felist hætta íslenskri þjóðmenningu og þjóð- erni. Samkvæmt þessu er það mikilvægasta menningarverkefnið framundan að snúa af þessari braut. Á ný verður að leggja áherslu á kristinn sið sem undir- stöðu þjóðmenningarinnar og kristnar mælistikur verður á ný að bera við menningarleg og fræðileg viðfangsefni til þess að varpa ljósi á íslenskt þjóðerni og glæða sjálfsskynjun og sjálfs- skilning þjóðarinnar. Gunnlaugur Stefánsson, fyrrv. alþingis- maður flutti er- indi sem hann kallaði Kirkja og alþingi og sagði i sínum lokaorðum: Eðli málsins samkvæmt hlýtur það að vera í hróplegri mótsögn við grundvöll og eðli fagnaðarer- indisins að kirkjan selji ríkisvald- inu ákvörðunarvald í mikilvæg- ustu skipulagsmálum sínum. Kirkjunni ber í framtíðinni að leggja á það megináherslu í við- ræðum við ríkisvaldið að hún fái fullt forræði og fulla sjálfsstjórn í málum sínum. Öðruvísi getur hún ekki kallast virkur samverkaaðili í sístæðri sköpunarbaráttu Guðs. Gunnlaugur A. Jónsson, biaða- maður fjallaði um Kirkjuna og heimsmálin og sagði m.a. Það eru aðstæðurnar á hverjum stað sem segja kirkjunni til um á hvern hátt kærleikanum verður best þjónað og kærleikurinn er ratvís á réttu leiðina. Það er því tæpast við því að búast að kirkjan í heild sinni móti ákveðna stefnu til heimsmálanna. Hún verður ekki rifin upp úr umhverfi sínu og aðstæðum. Dæmi þessa sjáum við í tregðu kaþólska safnaðarins í Kína til að hafa samband við páfagarð þar sem Vatíkanið viðurkennir stjórn Formósu. Guðrún Jónsdóttir, geðlæknir flutti ítarlegt erindi um Kirkju og geðheilsu og sagði m.a.: Lítum fyrst á hugsanleg skaðleg áhrif kristinna siðareglna. Þeir, sem sannfærðir eru um skaðsemi þeirra, halda því fram, að krist- indómsfræðsla og kristin siðfræði leggi áherslu á persónu- leikafyrirmyndir, sem séu óheppi- legar fyrir geðheilsu einstaklings- ins í okkar menningarumhverfi. Og síðan segir: Vissulega á að gefa þessum hugsanlegu þáttum gaum, en þá verður líka að minnast þess, að hreint fræðilega séð eru a.m.k. jafnmargar jákvæðar hliðar á kristnu siðgæði og kristnu upp- eldi. Sé trúarsannfæring, traust á Guði og Frelsaranum fyrir hendi, þá skapar fullvissan um að „vera í Herrans hendi", á hverju sem gengur öryggi, frið og hugarró ... Og enn segir: Kenning biblíunnar um mann- inn gefur að mati margra óvenju raunsæja og raunsanna mynd af manninum, bæði okkur sjálfum og þeim, sem við umgöngumst. Er betri regla til í samskiptum manna en feist í Lúkas 6. kap., 31. versi? „Og eins og þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér sömuleiðis þeim gjöra." Dalla Þórðardóttir, guðfræði- nemi. kallaði sitt erindi Kona og kirkja og sagði m.a.: Kvennaguðfræði er jafnréttis- guðfræði, stefnir að því að hver fáist við það sem henni eða honum fellur best. Guð líkir sér bæði við karla og konur. Eins er um okkur, öll höfum við til að bera bæði það sem kallast kvenlegt og karlmann- legt þannig að ekki eru öll störf þannig að aðeins annað kynið geti gegnt þeim. Siðvenja og manna- setningar eiga ekki að standa í vegi fyrir því að ein persóna fái að njóta þess sem Guð hefur skapað hana til. Þessa verðum við sífellt að minnast að í Kristi er ekki mannamunur, karl og kona eru jöfn. hrn § Sr. Jón Einars- 111-1^, f son. fjallaði um .■ít Kirkju og ríki og sagði m.a.: Það er skoðun mín, að þjóð- kirkjufyrirkomulag hæfi best ís- lenskum aðstæðum, enda hafa tengsl þjóðar og kirkju verið mjög náin og sterk í gegnum aldirnar. Hins vegar þarf að kveðja skýrar á um réttarstöðu kirkjunnar gagnvart ríkinu. Nauðsynlegt er að efla og auka frumkvæði og sjálfstæði kirkjunnar og gera henni kleift, bæði stjórnunarlega og fjárhagslega, að þjóna betur þeirri þjóð, sem hún ber ábyrgð á og er kölluð til að flytja fagnaðar- erindi. son, Skálholts- B* rektor. flutti er- 1 indi um Endur- unnar og sagði Við erum í nokkrum mæli heim- ilislaus, nútímafólk. Samfélag fyrri tíðar er í upplausn, og annað hefur ekki komið í þess stað. Hér er kirkjan kölluð til verka. Gerum hvern söfnuð að heimili, þar sem ekki er látið sitja við helgihaldið eitt, heldur finna einstaklingar sig stadda í hópi vinveittra liðveislu- manna, sem hjálpast að i lífsbar- áttunni, hreinsa nagla og ganga í ábyrgð hver fyrir annan, sitja við sjúkrabeð og gleðjast á góðri stundu. Sigurður A. Magnússon rit- höfundur, flutti lokaerindi ráðstefnunnar og sagði þá meðal annars: Ég er ekki hingað kominn til að boða tiltekna trú, enda hef ég fyrirhitt á ferðum mínum víðsveg- ar um heim fólk af ólíkum trúar- brögðum sem stóð í sama innilega og persónulega sambandi við sinn guð eins og heittrúaðir kristnir menn standa í við Krist eða heilaga þrenningu. Hinsvegar er ekki óeðlilegt að í kristnu landi, jafnvel þó það sé kannski bara nafnkristið, sé minnt á þann stóra þátt sem kristin trú hefur átt í mótun vestrænnar menningar al- mennt og íslenskrar sögu sérstak- lega. Þegar við lítum okkur nær fer ekki hjá því að við sjáum hvílíku Grettistaki íslenska kirkjan lyfti í menningarefnum. Hún var ekki einasta undirrót og aflvaki þeirrar gullaldarmenningar sem við erum stoltust af, heldur bar hún uppi og nærði íslenska menningu um níu hundruð ára skeið og vann meðal annars það afrek að varðveita tunguna frá þeim örlögum sem tunga Norðmanna hreppti, auk þess sem hún hafði frumkvæði um að gera íslendinga læsa og skrif- andi fyrsta allra þjóða. Er þá ótalið það þrekvirki að hughreysta þjóðina og telja i hana kjark á þeim myrku öldum þegar vonlaus- ast mátti virðast að reyna að halda uppi mannlífi í landinu. Þeim sem fara niðrandi orðum um kirkju og kristni sést gjarna yfir þá mikilvægu staðreynd, að margar þær hugmyndir og hug- sjónir sem við virðum hæst í mannlegum samskiptum eru runnar beint upp úr jarðvegi kristninnar sem aftur átti sinni hugmyndlega bakhjarl í gyðing- dómi. Vil ég þar einkum nefna hugsjónir kærleika, miskunnsemi, umburðarlyndis, jafnréttis, rétt- vísi og bræðralags. Tíðindalaust í fóstrudeilunni: „Ef ekki semst fyrir mánaða- mót, þá loka barnaheimilin44 — segir Björgvin Guðmundsson „ÞAÐ IIEFUR ekkert gerst ennþá í fóstrudeilunni, en það stendur til að halda samninga- Spellvirkjar í Sundhöllinni ÓBOÐNIR gestir lögðu leið sina inn um glugga Sund- hallarinnar í Reykjavík að- faranótt fimmtudags og föstudags og unnu þar mikil spellvirki. Þarna er um að ræða tvær stúlkur og fjóra pilta og braut fólkið hurðir, gerði stykki sín víðsvegar og olli talsverðu tjóni. Lögreglan kom að fólkinu aðfaranótt föstudagsins og tók það í sína vörslu. fund eftir helgina,“ sagði Björgvin Guðmundsson, for- maður launamálanefndar Reykjavíkurborgar, þegar hann var inntur eftir stöðunni i deilu fóstra við Reykjavikur- borg, en sem kunnugt er hafa fóstrur sagt upp störfum og hætta þann 1. maí, hafi samn- ingar þá ekki tekist. „Það eina sem gerst hefur að undanförnu er það að ég hef átt óformlega fundi með formanni starfsmannafélagsins og rætt við fulltrúa fóstranna í samn- inganefnd starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Á þessum fundum hefur verið skipst á upplýsingum til þess að hægt sé að auðvelda samningana þegar þeir fara aftur í gang," sagði Björgvin. „Ef samningar hafa ekki náðst fyrir 1. maí getur borgin ekkert gert," sagði Björgvin aðspurður, „vegna þess að borgarstjórn felldi á sínum tíma að fram- lengja uppsagnarfrest þeirra fóstra sem fastráðnar eru. Eini möguleikinn fyrir borgina til að halda einhverjum barnaheimil- um gangandi hefði verið sá að nýta sér þá heimild og jafnframt að fá heimiid til þess að nota ófaglært fólk í auknum mæli. En þessi leið er lokuð vegna þess að uppsagnarfresturinn var ekki framlengdur. Ef ekki semst fyrir mánaðamótin, loka barnaheimil- in, en við vonum ennþá að þetta leysist fyrir mánaðamót,“ sagði Björgvin. Talið frá vinstri: Sitjandi: Einar S. Ingólísson, framkvæmdastjóri GÍ, Sveinn Indriða- son, formaður GÍ, Geir Magnússon, fjármálastióri SÍS. Standandi: Sigurður II. Ólafsson. gjaldkeri GI. Magnús Tryggvason. formaður fjáröflunar- og líknarnefndar Lionsklúbbsins Freys. Bernhard Petersen, formaður Lionsklúbbsins Freys, og Jón Þorsteins- son. yfirlæknir. Gigtarfélagið fær stórgjöf nrT k Drt’i a n . GIGTARFÉLAG íslands hefur fest kaup á 3ju hæð hússins að Ármúla 5, til stofnunar gigtlækn- ingastöðvar. Seljandi var Sam- band islenskra samvinnufélaga. Stórgjöf Lionsklúbbsins Freys til Gigtarfélags íslands átti mik- inn þátt í að gera þessi kaup möguleg. Formaður klúbbsins, Bernhard Petersen, og formaður fjáröflunar- og líknarnefndar, Magnús Tryggvason, voru við- staddir undirskrift kaupsamn- ingsins og færðu Gigtarfélagi ís- lands þar að gjöf kr. 125.000.00. Áður hafði Verslunarmannafé- lag Reykjavíkur gefið 80 þúsund krónur til þessara húsnæðiskaupa og félagið Vinahjálp, handavinnu- klúbbur hafði gefið 115 þúsund krónur til tækjakaupa í þetta húsnæði. Fjölmargir aðrir hafa stutt fé- lagið til þessara kaupa, þó í lægri upphæðum sé. Stjórn Gigtarfélags íslands þakkar öllum þessum góðu gefend- um og væntir þess, að þessi kaup marki tímamót í sögu gigtlækn- inga á íslandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.