Morgunblaðið - 25.04.1981, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1981
21
Yngstu keppendurnir, Brynja Hrönn og systir hennar Hildur ösp. Þær eru frá Akureyri.
Yngstu keppendurnir voru aðeins 4 ára
„ÞETTA ER ægilega gaman og spennandi," sögðu
systurnar Brynja Hrönn og Hildur Ösp Þorsteins-
dætur, en þær voru yngstu keppendurnir að þessu
sinni á Andrésar andar-leikunum. Brynja Hrönn er
fjögurra ára en Hildur fimm ára. Þær ætluðu báðar
að keppa fyrir heimabæ sinn, Akureyri, í svigi og
stórsvigi. Að eigin sögn hafa þær verið á skíðum
síðan þær voru tveggja ára gamlar. Þær systur voru
mjög brattar og báru sig vel og ánægjan skein út úr
andlitum þeirra. Þetta var greinilega skemmtilegt.
„Ætla að verða betri en stóra systir“
Sigurvegarinn í stórsvigi stúlkna, 8 ára flokki,
María Magnúsdóttir, fyrir miðju, með móður sinni
Sólveigu og Birni bróður sínum sem er 5 ára.
— sagði sigurvegarinn í stórsvigi
í 8 ára flokki stúlkna
SIGURVEGARI í stórsvigi í flokki 8 ára stúlkna
varð María Magnúsdóttir Akureyri. María er
systir hinnar kunnu skíðastúlku Hrefnu Magnús-
dóttur. María hafði nýlokið keppni er Mbl.
spjallaði við hana.
— Mér gekk nú mun betur í fyrri ferðinni en
þeirri síðari. Brautin var ekki erfið en svolítið
hörð, sagði María. Ég reyni að fara í fjallið á skíði
á hverjum degi ef ég mögulega get, til að æfa mig.
Ég byrjaði að keppa á skíðum þegar ég var fimm
ára gömul, og ég stefni að því að verða betri en
Hrefna systir mín. Svig finnst mér vera skemmti-
legra en stórsvigið. Ég á eftir að keppa í
stórsviginu og ætla að reyna að sigra í því líka,
sagði þessi bráðefnilega og unga skíðakona.
„Ætla að vera reiður
í seinni ferðinni“
— Stórkostlegt að fá að taka þátt í svona
skíðamóti, sögðu Siglfirðingarnir
FYRRI ferðinni í stórsvigi í
flokki 9 ára var að ljúka og
tveir myndarlegir piltar
stóðu við markið og ræddu
sín á milli möguleika sína í
keppninni og hvernig þeim
hafði gengið í fyrri ferð.
Þetta voru þeir Ari Sig-
urðsson og Haukur Ómars-
son frá Siglufirði. Þeir voru
sammála um það að þeim
hefði gengið bærilega vel í
fyrri ferðinni, þrátt fyrir að
brautin hefði verið nokkuð
hörð og töluverður skari í
henni.
— Þeir félagar sögðust
æfa vel, á Siglufirði væri
góð aðstaða til skíðaiðkana.
Þeir sögðust hafa keppt
mikið og báðir voru sam-
mála um að alpagreinar
væru skemmtilegri en nor-
rænu greinarnar.
— Það er mjög gaman að
keppa hér á Andrésar-
leikunum. Það er stórkost-
legt fyrir unga krakka að fá
tækifæri til að keppa á
svona stóru móti, sagði
Haukur.
— Aðalatriðið er að vera með
og njóta ánægjunnar. En að
sjálfsögðu reynum við að sigra,
bætti Ari við.
Þeir voru sammála um að í
Hlíðaríjalli væri skiðaaðstaðan
eins góð og hugsast getur verið
hér á landi. Þegar blaðamaður
Mbl. spurði þá um möguleika
þeirra í stórsviginu sagði Ari: Ég
ætia að vera reiður í seinni
ferðinni og keyra eins vel og ég get
í gegnum portin.
— Það ætla ég líka að vera og
keyra á fullri ferð og taka mikla
áhættu, sagði Haukur. Svo voru
þessir ungu skíðamenn farnir af
stað og keppnisskapið og kraftur
skein út úr andlitum þessara
myndarlegu og geðþekku pilta frá
Siglufirði.
Siglfirðingarnir Ari Sigurðsson og Hauk-
ur ómarsson. 9 ára gamlir. ætluðu að
standa sig vel i síðari ferðinni í stórsvig-
Ljósm. Þórarinn.
Ellert Jón Þórarinsson fær sér hressingu á milli ferða með móður
sinni.
Þessi tröllahjón
voru ekki meðal
keppenda á leikun-
um en vöktu hins
vegar mikla at-
hygli hjá ungu
kynslóðinni, þar
sem þau renndu
sér á skíðum.
„Skíðaíþróttin skemmtilegust46
ELLERT Jón Þórarinsson, 7 ára
gamall Akureyringur, hafði nýlok-
ið fyrri ferðinni í stórsviginu í
sínum flokki og sat nú í fangi
móður sinnar og fékk sér hress-
ingu. Nokkur bið var hjá keppend-
um á milli ferða enda voru
keppendur allt að 70 í sumum
flokkunum. Það var því gott að fá
heitan kakósopa og hvíla sig í
fanginu á mömmu á milli ferða.
ýkja erfið. Ég hef keppt töluvert á
skíðum og ætla mér að halda því
áfram. Ég stunda fótbolta, sund
og leikfimi en skíðaíþróttin er
skemmtilegust, sagði Ellert.
— Eg er í KA, sagði Ellert,
nokkuð stoltur á svip. Eg hef æft
vel fyrir þessa keppni, mér gekk
allvel í fyrri ferðinni, en ætla
samt að bæta mig í þeirri síðari.
Það er mikið harðfenni í brautinni
en að öðru leyti er hún ekki svo