Morgunblaðið - 25.04.1981, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1981
Apríl í Paris:
Chirac í öðru sæti?
ÓVENJUGÓÐ frammistaða Jacques Chiracs, borgarstjóra gaullista í París, i siðustu skoðanakönnun-
um fyrir fyrri umferð frönsku forsetakosninganna á morgun hefur valdið þremur helztu
keppinautum hans áhyggjum ok vakið áhu«a á annars litt spennandi kosningabaráttu. En eigi að
siður er þvi enn spáð að Valery Giscard d’Estaing forseti sigri og fái um 25% atkvæða,
jafnaðarmaðurinn Francois Mitterand verði annar með um 23% og Chirac og kommúnistinn Georges
Marchais bítist á um þriðja sætið og fái milli 15 og 20 af hundraði atkvæða hvor.
Andstæðingar Chiracs hafa
keppst um að halda þvi fram að
barátta hans sé vonlaus, þótt
sjálfur hann hafi haldið þvi
fram að hann sé í þann veginn
að hnekkja öllum spádómum um
úrslitin, að bilið milli hans og
hinna frambjóðendanna minnki
óðum og að hann hafi góða
möguieika á því að ná efsta eða
næstefsta sæti í fyrri umferð-
inni. Þetta hefur Mitterand kall-
að „hreinan áróður", kommún-
istar spá því að Chirac hafni í
fjórða sæti og stuðningsmenn
Giscard d’Estaings segjast ekki
vera í nokkrum vafa um að
forsetinn og Mitterand verði í
tveimur efstu sætunum.
„Breyting
án áhættu“
Vonir Chiracs byggjast á góð-
um undirtektum sem sá boð-
skapur hans hefur fengið á
ferðum hans um landið, að
hnignun Frakklands verði
ólæknandi ef Giscard verði við
völd sjö ár í viðbót. Tillögur
Mitterands muni leiða til efna-
hagshruns og hann muni leiða
kommúnista til öndvegis því
hann geti ekki verið án þeirra.
Lausnin sé að kjósa Chirac og
velja „breytingu án áhættu".
Astæðan til þess að hann muni
sigra sé sú „að Frakkar vita að á
milli leiðar óvirkrar jástefnu
(Giscards) og leiðar ævintýra-
stefnu (Mitterands)... er þriðja
leiðin, leið raunsæis og átaks",
sagði hann á fundi á fimmtudag.
Chirac er viss um að hann
muni sigra þar sem Giscard hafi
farið of seint af stað og sé of
bjartsýnn á að honum takist að
vinna það upp. En Chirac telur
þá bjartsýni ekki á rökum reista
þar sem hann hafi unnið á sitt
band þá kjósendur sem Giscard
biðli til.
Chirac hefur áður sett strik í
reikninginn í kosningum. Gisc-
ard átt sigur sinn á Mitterand í
forsetakosningunum fyrir sjö
árum því að þakka, að Chirac
sneri allt í einu baki við fram-
bjóðanda gaullista, Jacques
Chaban-Delmas. Chirac var for-
sætisráðherra Giscards í tvö ár,
en hætti í illsku. Þegar hann
hafði stofnað gaullistaflokkinn
RPR bauð hann sig fram til
borgarstjóra í París gegn fram-
bjóðanda Giscards og sigraði. Nú
leggur hann sig allan fram um
að fella forsetann, sem hann
tryggði kosninguna 1974.
Á kosningaferðum sínum hef-
ur Chirac sagt áhorfendum sín-
um að hann muni hleypa nýju
blóði í efnahagslífið til að skapa
atvinnu og létta skattabyrði
smáfyrirtækja. Hann hefur heit-
ið vernd gegn erlendri sam-
keppni í Austur-Frakklandi, þar
sem kreppa ríkir í vefnaðarvöru-
iðnaði, og hann hefur sagt bænd-
um að gefa ætti Bretum kost á
því að segja sig úr Efnahags-
bandalaginu. Stefna Chiracs í
efnahagsmálum gengur í ber-
högg við allt það sem Raymond
Barre forsætisráðherra hefur
reynt að gera síðastliðin fimm
ár. í stað sparnaðarráðstafana
til að halda niðri framfærslu-
kostnaði vill hann skattalækk-
anir og gengishækkun til að
útrýma atvinnuleysi. Barre vísar
efnahagstillögum Chiracs á bug
með fyrirlitningu og kallar þær
„hálfbakaðan reaganisma".
Gaullista-
keppinautar
Vonir Chiracs væru betri ef
hann ætti ekki í höggi við tvo
hæfa keppinauta úr herbúðum
gaullista, Michel Debré, fyrrver-
andi fo—- 'tisráðherra De Gaull-
es 1 fðingja, og Marie-
Franc„ Garaud, fyrrverandi
ráðunaut Pompidous forseta,
þótt þau muni fá sáralítið fylgi í
kosningunum.
Debré hvetur til þjóðarvakn-
ingar í anda De Gaulles og nýtur
stuðnings gamalla og tryggra
félaga hershöfðingjans, sem líta
á Chirac sem uppskafning. Hann
nýtur einnig fylgis stuðnings-
manna Giscards, sem telja að
hann yrði auðveldur andstæð-
ingur forsetans. En samkvæmt
skoðanakönnunum fær Debré
innan við þrjá af hundraði at-
kvæða og hart hefur verið Iagt
að honurn að draga framboð sitt
til baka.
Frú Garaud var valdamesta
kona Frakklands í forsetatíð
Pompidous og eftir dauða
Pompidous hafði hún töluverð
áhrif á skjólstæðing hans,
Jacques Chirac. Afbrýðisemi
leiddi til þess að hún hætti
störfum og hún hvarf sjónum í
tíu ár, þótt hún héldi áfram að
beita áhrifum sínum að tjalda-
baki. Nú segir hún skoðanir
sínar opinskátt og telur sig geta
lyft kosningabaráttunni á æðra
svið með því að knýja hina
frambjóðendurna til að horfast í
augu við óþægileg sannindi. Hún
sakar keppinauta sína um linku
við kommúnista og gegndarlausa
eyðslu í kosningabaráttunni á
tímum efnahagskreppu.
Giscard kvíðinn
Giscard hefur fylgt þeirri
stefnu gagnvart Chirac að forð-
ast að vekja athygli á honum.
Hingað til hefur Chirac ekki
verið nefndur á nafn í kosn-
ingaræðum Giscards. Styrkleiki
Chiracs hefur orðið til þess að
Mitterand hefur hvatt vinstri-
sinnaða kjósendur til að eyði-
leggja ekki atkvæði sín með því
að kjósa frambjóðendur, sem
enga von hafi um að ná kjöri, og
valdið þeim ugg í herbúðum
Giscards að léleg frammistaða í
fyrri umferð muni draga úr
sigurmöguleikum hans í síðari
umferðinni í maí.
Fylgisaukning Chiracs sam-
kvæmt skoðanakönnunum hefur
yfirleitt verið talin stafa af því,
að fylgi Giscards hafi minnkað.
En ef Chirac tekst ekki að
komast í aðra umferð, eins og við
er búizt, þótt staða hans hafi
batnað, mun hann aðeins líta á
það sem tímabundið áfall. Gaull-
istar eru sannfærðir um að
Giscard lendi í vandræðum ef
hann sigrar og ef Mitterand sigri
verði uppgjör við kommúnista
óhjákvæmilegt. Hvort heldur
gerist mun Chirac bíða átekta
tilbúinn að grípa þau tækifæri
sem bjóðast, en ýmsir spá því að
núverandi stöðugleiki í frönsk-
um stjórnmálum sé aðeins logn á
undan nýju fárviðri.
(AP, Observer).
Chirac & frú á kosningafundi
Röskun á tónleikum sov
ézku Fílharmoníunnar
Tókíó dýrasta
Lundim. 21. aprii. — AP.
/ESTIR stuðningsmenn sovézka
andófsmannsins Anatoli Shchar-
anskys trufluðu tónleika sem stóðu
yfir. þar sem Fílharmoníuhljóm-
sveit Moskvu var að leika í gær-
kvöldi. Hrópaði fólkið „Frelsið
Shcharansky“ og var þarna aðal-
lega um að ra-ða ungmenni. Voru
þau fjarlægð úr salnum. en til
nokkurra ryskinga kom. en hljóm-
sveitarstjórinn Kitaenko gaf tón-
listarmonnum hendingu um að gera
ekki hlé á leik sínum. Úti fyrir
tónleikasalnum efndu um þrjátiu
konur af gyðingaættum til andófs,
en það fór friðsamlega fram og
kom ekki til neinna átaka.
Tucson. Arizona. 24. april. AP.
TALSMAÐUR First National Bank
of Arizona. sem var rændur um
helgina. sagði i dag. að ýmislegt
henti til að ránið hefði verið
skipulagt „innanfrá“. Ekkert hefur
gengið né rekið með að upplýsa
hankaránið. sem mun hið mesta i
Bandarikjunum. 3,3 milljónir doll-
ara í reiðufé. Logregluyfirvöld neit-
Tekið er fram í frétt AP, að eftir
að fyrstu ungmennin höfðu verið
leidd út, hafi áhorfendur fagnað
mjög leik hljómsveitarinnar, en þeg-
ar næsta verk hófst, Klassíska sin-
fónían eftir Prokofiev hafi fleira
tekið við, og einnig þá hafi hljóm-
sveitin haldið leiknum áfram þótt
ófriðlegt væri í salnum.
Þá voru einnig látin í ljós mót-
mæli við það að sovézka stjórnin
hefur neitað Veronicu Rostropovitsj,
systur sellóleikarans fræga, um
ferðaleyfi frá Sovétríkjunum og
Rostropovitsj sagði nýlega í viðtali
að systir hans væri eins og gísl í
landi sínu.
uðu i kvöld að segja að einhver
grunaður væri í sigtinu og sömu-
leiðis fengust þau ekki til að
staðfesta áleitnar fréttir um að
ránið væri að einhverju leyti runnið
undan rifjum bankastarfsfólks.
Ræningjarnir voru grímuklæddir
og komu akandi á bíl sem þeir höfðu
málað í litum símaviðgerðarbíls.
Veður
víða um heim
Akureyri 3 skýjaó
Amsterdam 7 snjókoma
Aþena 24 heióskírt
Barcelona 13 alskýjaó
Berlin 6 heiöskírt
BrUssel 9 heióskírt
Chicago 9 heiðskírt
Denpasar 31 heióskírt
Dublín 9 skýjað
Feneyjar 10 rigning
Frankfurt 7 skýjaó
Faereyjar 1 rigning
Genf 15 heiðskírt
Helsinki 3 heióskírt
Hong Kong 26 heiðskírt
Jerúsalem 33 heíóskírt
Jóhannesarborg 20 heiöskírt
Kaupm.höfn 4 skýjaó
Kairó 37 skýjaó
Las Palmas 19 skýjaó
Lissabon 17 heióskírt
London 9 skýjaó
Los Angetes 27 skýjaó
Madrid 12 heióskírt
Majorka 14 skýjaó
Malaga 19 léttskýjaö
Mexicoborg 26 heíóskírt
Miami 27 •kýjaó
Moskva 2 bjart
Nýja Delhi 38 heióskírt
New York 10 skýjaó
Osló 4 heióskírt
París 12 heiðskírt
Perth 29 skýjað
Reykjavík 3 léttskýjaö
Ríó de Janeiro 349 heióskírt
Rómaborg San Francisco 23 heióskírt vantar
Stokkhólmur 6 snjókoma
Sydney 29 heióskírt
Tel Aviv 36 heiðskírt
borg í
Gení. 24. april. AP.
TÓKÍÓ hefur „endurheimt” sæti
sitt sem dýrasta borg heims, en
siðasta ár var Lagos i Nígeríu
metin enn dýrari. Lagos er nú i
öðru sæti, siðan koma Buenos
Aires, London og Osló. Þar á
eftir eru nefndar til Abidjan,
Stokkhólmur, Helsinki, Vínar-
borg, Zúrich og Genf. Fyrir
tveimur árum voru svissnesku
SOVÉTRÍKIN hafa óskað eftir því
að viðræðum um skiptingu Bar-
entshafs verði frestað til haustsins,
en þessar viðræður áttu að halda
áfram í Osló i byrjun maí.
í erindi Sovétmanna kemur fram,
TYRKNESKA stjórnin hcfur
skorað á írönsk yfirvöld að
tryggja betri og öruggari vernd
við tyrkneska sendiráðið í Teher-
an í kjölfar mjög mikilla ócirða
scm kom til í gær. írönsk stjórn-
völd kváðust hafa áhyggjur af
atburðinum og létu að þvi liggja
að þau myndu gera sitt til að slíkt
endurtæki sig ekki.
heimi
borgirnar tvær taldar mun dýr-
ari.
Þessi könnun er gerð árlega.
Upplýsingum er safnað með því að
útbúin er verzlunarkarfa, sem í er
tiltekið magn matar, drykkjar-
fanga, hreinlætisvara, heimilis-
tækja og búnaðar, fatnaður o.fl.
sem nauðsynlegt þykir til almenns
heimilishalds.
að ástæðan fyrir ósk þeirra sé sú, að
þeir hafi lokið eigin undirbúningi
vegna málsins. í Osló telja ráða-
menn, að ástæðan fyrir beiðni
Sovétmanna sé sú, að þeir vilji bíða
eftir lokum Genfarfundar hafrétt-
arráðstefnunnar, sem hefst í byrjun
ágúst.
Fjórir menn af armenskum ætt-
um ruddust inn í sendiráðið, brutu
þar glugga og rifu og tættu áður en
lögregla hafði þá á brott með sér.
Þeir voru í hópi nokkur þúsund
Armena sem hafði uppi hróp og
köll fyrir utan sendiráðsbygging-
una. Kváðust þeir vera að mót-
mæla fjöldamorðum á Armenum í
Tyrklandi árið 1915.
Varað við brotsjóum?
Oslo. 24. apríl. frá Jan-Erik
NORSKA veðurstofan er nú að
kanna, hvort unnt sé að gefa út
sérstakar viðvaranir til sjófar-
enda um hættu á brotsjóum við
norsku ströndina. Rannsóknir
hafa sýnt að á 24 stöðum við
ströndina er sérstök hætta á
brotsjóum og þar hafa farizt 25
skip síðastliðin 10 ár. Sjóslysa-
nefndir hafa komizt að þeirri
niðurstöðu, að í flestum þessara
tiifella hafi brotsjóir riðið yfir
skipin áður en þau fórust og
kemur það heim og saman við
framburð skipverja, er komizt
hafa af. Norskir sjómenn og út-
gerðarmenn hafa tekið mjög vel
hugmyndum veðurstofunnar um
að gefa út viðvaranir um brotsjói.
Var ránið í Arizona
skipulagt „innanfrá“?
Viðræðum um Bar-
entshaf seinkað
Osló. 24. apríl. frá fréttaritnra
Mb!.. Jan-Erik Lauré.
Tyrkir vilja meiri
vernd í Teheran
Ankara. 24. aprfl. AP.