Morgunblaðið - 25.04.1981, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1981
KJARVALSSTAÐIR
Eiríkur Smith sýnir
Um þessar mundir stendur
yfir málverkasýning Eiríks
Smith í austursal Kjarvals-
staða. Þar sýnir hann 114 verk,
olíumálverk og vatnslitamynd-
ir og einnig 20 litteikningar úr
þjóðsögum.
Sýningin stendur til 10. maí.
Eiríkur Smith við tvær mynda sinna á Kjarvalsstöðum.
FRÍKIRKJUVEGUR 11
Sýning
KetUs
framlengd
MálverkasýninK Ketils Larsens
að FríkirkjuveKÍ 11 hefur verið
IramlenKd til sunnudajtskvölds.
Sýninguna nefnir Ketill „Stef
frá öðrum heimi“ og er hún 10.
einkasýning hans. Þar sýnir hann
60 myndir, olíu- og akrílmyndir, og
einnig nokkrar myndir málaðar á
stein. Opið er frá kl. 14—22 í dag
og á morgun.
Ketill Larsen með eina mynda
sinna.
Skúli R. Hilmarsson og Sigfús Aðalsteinsson í hlutverkum sínum
í „Lofti“, sem leikklúbbur Menntaskólans i Kópavogi sýnir i
kvöld í Kópavogsleikhúsinu (Félagsheimili Kópavogs).
Sýnir söng-
leikinn Loft
LEIKKLÚBBUR MK
í KVÖLD sýnir leikklúhbur
Menntaskólans i Kópavogi
söngleikinn „Loft“ eftir Odd
Björnsson og hefst sýningin í
Kópavogsleikhúsinu kl. 20.30.
Leikstjóri er Sólveig Halldórs-
dóttir, Ijósahönnuður Lárus
Björnsson og stjórnandi ljósa
Egill Árnason. Aðalleikcndur
eru Þór H. Ásgeirsson, sem
leikur Djöfsa, Skúli R. Hilm-
arsson. sem leikur Loft, Guð-
rún, Gunnarsdóttir, sem leikur
Disu, Hulda Björnsdóttir, sem
leikur móður og Sigfús Aðal-
steinsson sem leikur H.A.
Aðrir leikendur í Lofti eru
Þóra Guðmundsdóttir, Guðjón
Reynisson, Stefán Guðleifsson,
Sigríður Ása Richardsdóttir,
Þóra S. Jónasdóttir, Ragna
Ólafsdóttir, Brynja Júlíusdóttir
og Ingibjörg Ingvarsdóttir.
Einnig á mikinn þátt í sýning-
unni 20 manna kór undir stjórn
Gunnsteins Ólafssonar, sem
einnig hefur samið mörg lag-
anna, og jasshljómsveit undir
stjórn Sigurðar Jónssonar. Auk
þess spilar strengjakvartett
undir í nokkrum laganna.
„Loftur" fjallar um tilraunir
ungs manns til að bjarga
mannkyninu á þann hátt að nota
hið illa til góðs. Þegar honum
verða ljós mistök sín, reynir
hann að bæta fyrir þau.
NORRÆNA IIÚSIÐ
Fyrirlest-
ur um barna-
og unglinga-
bækur
Á mánudagskvöld heldur Gunn-
ar Jakobsen, deildarstjóri við
Kennaraháskóla Danmerkur,
fyrirlestur í Norræna húsinu og
talar um barna- og unglingabæk-
ur og hefst hann kl. 20.30.
Gunnar Jakobsen er staddur hér
á landi í boði Norræna hússins og
Kennaraháskóla íslands. Hann er
kennari að mennt, en hefur skrifað
mikið um barnabækur og m.a.
gefið út bókina „Moderne dansk
bernelitteratur" 1975. Einnig hefur
hann mikið haft með málefni
skólabókasafna að gera og sent frá
sér bókina „Skolebibliotek — et
mediacenter" 1970. Hann heldur
fyrirlestur um skólabókasöfn í
Gunnar Jakobsen.
Kennaraháskólanum, stofu 301, í
dag, laugardaginn 25. apríl, og
hefst hann kl. 13.00. Eru allir
velkomnir. Þá mun Gunnar Jakob-
sen halda fyrirlestur fyrir stúd-
enta á 2. og 3. ári og fjallar sá
fyrirlestur einnig um skólabóka-
söfn.
Háskólafyrirlestur um
ensk-íslenska orðabók
í dag flytur Heimir Áskelsson,
dósent 1 ensku, opinberan fyrirlest-
ur á vegum heimspekideildar Há-
skóla tslands og hefst hann kl.
15.00 i stofu 101 i Lögbergi.
Fyrirlesturinn nefnist: „Um ensk-
íslenska orðabók" og er hinn síðasti
af fjórum fyrirlestrum, sem kennar-
ar heimspekideildar flytja nú á
vormisseri um rannsóknir og fræði í
deildinni.
Óllum er heimill aðgangur.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Alltaf uppselt á
Skorna skammta
í kvöld verður Ofvitinn i 154.
sinn á sviðinu i Iðnó, en annað
kvöld er það revían Skornir
skammtar eftir þá Jón Hjartar-
son og Þórarin Eldjárn.
Þetta er tólfta sýning á
Skornum skömmtum og má
segja að leikurinn hafi hitt í
mark, því að uppselt hefur verið
á hverja einustu sýningu til
þessa. Á myndinni eru þeir Gísli
Halldórsson og Kjartan Ragn-
arsson í einu söngatriða reví-
unnar.
A usturbœjarbíó
sýnir Angelu
meö Sophiu Loren
Um þessar mundir sýnir Aust-
urbæjarbio bandariska mynd,
Angela, með Sophiu Loren. Leik-
stjóri Boris Sagal.
Myndin fjallar um unga konu
sem býr í verkamannahverfi í
Montreal í Kanada. Hún elur son
fimm mánuðum áður en maður
hennar kemur heim frá vígstöðv-
unum í Kóreu og hann heldur að
einhver annar hafi gert henni
barnið. Hann leitar til ráðamanns
í undirheimunum og fær hann til
liðs við sig til þess að taka barnið
frá Angelu. Tuttugu og þremur
árum seinna hittast mæðginin
aftur — án þess að vita um
skyldleika sinn.