Morgunblaðið - 26.04.1981, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1981
35
ég sko löngun til að skella mér út
á gólfið! En ég get sagt þér, að ef
ég hefði dansað einsog krakkar
dansa núna, hefði mér eflaust
verið fleygt út fyrir fyllirí".
Og Halli hefði án efa getað
sýnt þeim margt. Þegar hann
hafði heilsu til, sýndi hann dans
á skemmtunum út um allt land,
tvist, akrobatic, rokk, allt sem
þá var í tísku. En þó svo að
Haraldur sé bundinn við hjóla-
stólinn, er hann vel vitandi um
lífið útávið. T.d. var hann að-
stoðarmaður við leikstjórn Guð-
rúnar Ásmundsdóttur á Rúm-
rusk í Austurbæjarbíói.
Að lifa á betli
„Ég hef líka gaman af að
klæða mig, kannski af því ég
stundaði þannig vinnu. í tilefni
af Rúmrusk, keypti ég mér
alhvít föt, gallabuxur og bol.
Daginn eftir flýtti ég mér að
klæða mig í þessi föt, áður en
læknir einn kæmi stofuganginn.
Hann hefur sem aðalskemmtun
að hreyta ýmsu í mig. Ég bjóst
því við að hann spyrði hvort ég
væri að klæðast hvítu til að
þykjast vera læknir. Ég var
alveg reiðubúinn með svarið:
„Fleiri geta nú leikið lækna en
þú“. En helvískur sagði ekki
neitt. Þvílík vonbrigði.
Það er verst að maður þarf að
kaupa sér gallabuxur á víxlum.
Með 300,00 krónur á mánuði
verður maður að lifa á betli“.
„Ha?“
„Já, það er alveg satt. í
tryggingabætur fær maður heil-
ar 300,00 krónur til að spila með.
Af þessu þarf að kaupa föt,
sígarettur, skemmtanir og allt
fyrir utan mat og húsaleigu".
Hann sýndi mér launamiðann
sinn og satt var það, samkvæmt
tryggingakerfi íslands er Har-
aldur metinn á nýkr. 300,- mán-
aðarlega.
„Já, hvað skildi eitt stykki
þingmaður vera metinn á?“
sagði hann og renndi stólnum í
áttina að lyftunni. „En nú verð
ég að fara og opna sjoppuna".
Hann rekur
litla sjoppu
Haraldur rekur litla sjoppu í
anddyri Hátúns 12. „Til að sitja
ekki auðum höndum", segir
hann. „Það er ekkert upp úr
henni að hafa“.
Við stóðum fyrir utan lyftuna
og í þann rnund sem hún var að
opnast þustu tveir ungir strákar
í hjólastólum framhjá okkur.
Þeir voru í eltingaleik. Galsinn
var svo mikill að eitt blómið í
horninu dansaði á gólfinu.
„Strákasnar", tautaði Halli og
ýtti sér inní lyftuna. Hann vildi
hjálpa sér sjálfur.
Fótalaus, handalaus,
sjóndapur
en hlæjandi kátur
„Er gott að vera hérna?“ spuri
ég á leiðinni niður.
„Já, það er mjög vel hugsað
um mann hérna. Ég vildi bara
óska þess að samstaðan væri
meiri. Það gæti eflaust verið
mikið meira um að vera og
einhvernveginn heimilislegra.
Það væri t.d. ekki vitlaust að
hjúkkurnar fleygðu þessum
hvítu tuskum sínum og klæddust
almennilegum fötum".
Fyrir utan sjoppuna beið einn
eftir kók og Prince Polo. Ég
kvaddi þorp lamaðra og fatlaða
og lífsglaða manninn sem gat átt
von á dauðanum á hverri stundu.
Skrítið, hgusaði ég. Maðurinn er
fótalaus, handalaus og allt aö
því blindur, en samt getur hann
tekið á móti lífinu hlæjandi
kátur. Það bjargar honum að
vera húmoristi. Eflaust gæti
svona þorp verið fullt af fjöri,
líkst stóru heimili, lifandi og
róstusamt ef það væri ekki fyrir
þá hugsun að gera fötlun að
helteknum alvarlegheitum.
Aumingjagæska er nóg til að
drepa tonn af húmori.
Undanfarið hefur myndlistarfélag nemenda i Menntaskólanum við Hamrahlið staðið fyrir málverkasýn-
ingu i þeim sal sem Miðgarður kailast og nemendur stunda nám sitt milli kennslustunda. Þar hangir nú
mynd við mynd, olíuverk, vatnslitamyndir, teikningar, tússmyndir og er vonandi, að þessi listaverk öll
hvetji nemendur til dáða i komandi próflestri. Ljósnn.: Emiiu
Hafnarfjörður;
Borgarafundur
um skipulagsmál
STEFNIR, félag ungra sjálfstseð-
ismanna i Ilafnarfirði, efnir til
almenns borgarafundar í Hafn-
arfirði um lóða- og skipulagsmál
mánudaginn 27. april, klukkan
20.30, í Sjálfstæðishúsinu í Hafn-
arfirði.
Frummælendur á fundinum
verða þeir Björn Hallsson, arki-
tekt, og Árni Grétar Finnsson,
bæjarfulltrúi. Á fundinum verða
sýndar og skýrðar teikningar af
skipulagi nýrra íbúðarsvæða í
Norðurbæ og Setbergslandi. Fjall-
að verður um framboð og verð-
lagningu íbúðarlóða og fleiri atriði
tengd skipulagsmálum i bænum.
Að loknum framsöguerindum
munu frummælendur svara fyrir-
spurnum.
Kjörinn bíll ársins í Bandaríkjunum 1981
DODGE ARIES
/ Æ I
DODGE ARIES 1981 er einhver glæsilegasti
framhjóladrifsbílinn sem nú er völ á, enda kom
það engum á óvart að hann var kjörinn BÍLL
ÁRSINS 1981 í Bandaríkjunum. Þetta er í
annað sinn á fjórum árum sem CHRYSLER fær
verðlaun fyrir f rábæran f ramhjóladrif inn fólks-
bíl - árið 1978 hlaut DODGE OMNI sömu
verðlaun.
DODGE ARIES er nú fáanlegur með
4 cyl. 90 DIN hestafla vél, auk þess sjálf-
skiptingu, vökvastýri og lúxusfrágangi
í hólf og gólf. í alhliða akstri eyðir
DODGE ARIES 9,4 I pr. 100 km., en á
reynslubrautum verksmiðjanna aðeins
5,7 I. Undir vélarhlífinni leynist tölvu-
búnaður sem stýrir eldsneytisneyslu og
kveikjutíma. Það fer ekki á milli mála að
DODGE ARIES er lítill bandarískur
lúxusbíll frá CHRYSLER. Gæðin þekkja
allir. Endinguna þekkja allir. Endur-
söluverðið þekjýa^allir.
K línan frá CHRYSLER - DODGE
ARIES - er framtíðarbíll hinna kröfu-
hörðu.
DODGE ARIES er lúxuslausn í orku-
kreppu. Fá þú þér lykilinn að lúxus-
bílnum DODGE ARIES.
W Wfökull hf,
Ármúla 36 Sími: 84366
'V.